Þjóðviljinn - 27.08.1958, Page 7
Miðvikudagur 27. ágúst 1958 — ÞJÓÐVILJINN — (7
Ólafur B. Björnsson við skrifborð sitt
Einn er sá Akurnesingur
sem áreiðanlega er allra
manna fróðástur um söguleg-
ar heimildir að því er við
kemur Akranesi fyrr og síðar,
enda hefur hann um tugi ára
unnið að því að skrásetja sögu
Akraness. Hefur hann nú þeg-
ar unnið mikilvægt og merki-
legt starf á þessu sviði. Mað-
urinn er Ólafur B. Bj'hnsson
rithöfundur.
Ilann er Akurnesingur
Ólafur er fæddur á Akra-
nesi 6. júlí 1895 og hefur
dvalið hér alla ævi. Hann
gérðist aldrei sjómaður, en
bróðir hans Bjarni Ólafisson,
sem var afburða skipstjóri og
kappsfullur sjósóknari fékk
Ölaf til þess að annast fram-
kvæmdir fyrir sig í landi.
Ráku þeir bræður ásamt
frænda þeirra Nielsi Krist-
mannssyni um tugi ára um-
fangsmikla verzlun og útgerð
hér á Akranesi, þar sem þeir
gerðu út stærri og smærri
skip. Verður sú langa, og að
ýmsu leyti merkileg saga ekki
sögð hér.
Ilending réði þessu spjalli
Á 17. ár hefur Ólafur gefið
út merkilegt tímarit. Þótt
hann hafi gefið því nafnið
Akranes, er hvert hefti þess
ekki nema að litlu leyti bund-
ið við staðinn Akranes. Þar
er að finna greinar um hin
margvíslegustu efni auk þátta
úr sögu Akraness, má þar til
nefna: Ævisögu Geirs kaup-
manns Zoega, síra Friðriks
Friðrikssonar og minningar-
greinar um marga merka
brautryðjendur og athafna-
menn. Þar eru greinaflokkar
um ýmsar verstöðvar, svo sem
Vestmannaeyjar, Suðurnes og
Siglufjörð o.fl. staði. Þar er
sögð saga elliheimila lands-
ins, saga Reykjalundar, þar
sem einnig er stiklað á stóru
um varnir gegn berklaveik-
inni. Þættir úr sögu leiklistar
á íslandi og sögu Þjóðleik-
hússins. Þarna má finna
greinaflokka um heilbrigðis-
og menningarmál, bankamál,
kirkjumál og kvikmyndir
framfarir og framtíðarverk-
efni utan lands og innan.
Erindi mitt til Ólafs að
þessu sinni var einmitt að
biðja hann að fletta upp fyrir
mig grein um ákveðið efni í
þessu merkilega riti, og með
hliðsjón af því sem nú hefur
verið sagt, þarf engan að
undra þótt það ætti sér stað.
Þetta var auðsótt mál, og
ég fann það sem ég var að
sækjast eftir og hafði not af
því. Öll er skrifstofa — vinnu-
herbergi — Ólafs full af bók-
um og bV'ðum, í hillum, á
borðum og í st"flum á gólf-
inu. Ég spurði hann hvað hinn
mikli fjöldi bréfabinda hefði
inn að hsdda. Hvort það væri
allt efni í skammir um okkur
sósíalista og átmatur fyrir
Morgunblaðið ?
Ólafur sagði skjótlega, að
það sæti ekki á mér að vera
að spila mig sósíalista, því að
það væri bara í nösunum en
ekki í praxis. Og enda þó
að Mogginn stæði hjarta sinu
nær en Þjóðviljinn, virtist
hann lifa góðu lifi án þeirra
lífgrasa er hann legði hon-
um til. Nei, Ólafur sagði að
allar þessar möppur, sem
væru nokkrir metrar á lengd,
og stórir staflar af öðrum
blöðum og sneplum, væri allt
saman gögn að þeim hluta af
sögu Akraness sem enn væri
óunnið úr, eða aðeins í upp-
kasti.
Ýmislegt vissi ég um elju
Ólafs B. Bjömssonar, en er ég
sá þetta varð ég fyrst forvit-
inn og ásetti mér nú að leika
á Ólaf — þótt ekki sé það
auðgert — og láta hann nú
einu sinni mata Þjóðviljann,
en slá Moggann út, því að
langt er a.m.k. síðan Mogg-
inn hefur birt viðtal við Ólaf.
Frá 1916 hefur Ólafur
Bj'irnsson verið í fararbrcddi
um atvinnu-, menningar- og
framfaramál þessa bæjar og
hafa þau jafnframt verið aðal
verkefni hans. Það sem hann
þegar hefur afrekað á ritvell-
inum, og það sem felst í þeim
óunna efnivið sem hér var
nefndur, bendir því til, að
ekki hafi hann oft verið iðju-
laus, eða látið næðisstundirn-
ar ónotaðar. Ég bað því Ólaf
að lofa mér að bera upp við
hann nokkrar spurningar. Ól-
afur sagðist vera vanari því
að spyrja aðra spjörunum úr,
en hafa minni áhuga fyrir að
svara pólitískum spekulöntum.
Ég sagðist fyrst vilja beina
spurningum mínum að hans
aðal áhugaefni, og þá var
þetta auðvitað auðsótt mál frá
hendi Ólafs, enda er hann
alltaf ljúfur og léttur í máli.
Hér koma svo spumingamar:
Hvenær hófust ritstörf þín?
Það fyrsta er nú vart hægt
að kalla því nafni. Ungmenna-
félag Akraness var stofnað
1910. Það gaf út skrifað blað
er hét Morgunroðinn. Ég
skrifaði dálítið í það og var
stundum í ritstjórn þess. Það
var um félagsmál og hugðar-
efni þessarar miklu hreyfing-
ar, og ejaldnast undir nafni.
Ég var snemma kvaddur til
ýmissa félagsmála og al-
mennra starfa, og það varð
til þess að ég skrif-
aði við og við um ákveð-
in mál í landsmálablöðin.
Stundum var ég beinlínis beð-
inn að skrifa um ákveðin efni
sem efst vom á baugi innan-
héraðs eða almennt.
Hver voru tildrög þess að
þú fórst að rita sögu
Akraness?
Mér þótti snemma vænt um
heimahagana og langaði til að
skvggnast um hin sögulegu
rök er að baki lægju. Ég fór
að grafast fyrir um ritaðar
heimildir, en þær vom fáar
finnanlegar. Ég leitaði á vit
vinar míns og nágranna Ás-
mundar á Háteigi, eem var
einstakur fræðaþulur og stál-
minnugur, þótt ekkert festi
hann á pappír. Margt af þvi
sem Ájsmundur sagði mér frá
fannst mér að ekki mætti
gleymast, lagði ég það vel á
m'nnið, og skrifaði sumt af
því niður. Þá komst ég yfir
erindi er Hallgrimur í Guð-
rúnarkoti flutti um lífið á
Skaganum í 100 ár, en það
flutti hann í barnaskólanum
1889. Þetta var hið merkileg-
asta erindi, og er þar sagt
frá furðu mörgu í ekki lengra
máli. Mér þótti vænt um Hall-
grím, sem var merkilegur
maður og langt á undan sam-
tíð sinni. Mér þótti líka vænt
um þetta erindi. í upphafi
máls síns segir Hallgrímur
m.a. svo; eftir að hafa rætt
um sögulegan heimildaskort
að því er Akranes snertir:
„Þetta frásagnarleysi er líka
eðlilegt, því hér hafa aldrei
búið neinir fyrirtaksmenn
hvorki í orði né verki — en
einstakir menn og þjóðimar
hefja bæina og löndin. Sem
sagt, hafa aldrei í Skaganum
verið fram yfir miðja þessa
öld neinir menn, sem kveðið
hefur að. Enginn lærður mað-
ur, hvorki til munns né
handa, enginn embættismaður
búið þar, ekki svo mikið sem
presturinn, ekkert skáld, sem
plássið hefði getað borið
minjar um í bæjarrímu eða
formannavísum, eða nokkrar
ritsmíðar sem getandi eé“.
Þetta þótti mér miklar öfg-
ar og næsta ótrúlegt, að ekk-
ert væri um Akranes eða Ak-
umesinga að segja fram að
þessum tíma. Ýtti þetta sjálf-
sagt undir mig að kanna bet-
ur heimildir hér að lútandi.
Komst ég fljótt að því að
þetta var ofsagt, þótt á þessu
sviði væri ekki um auðugan
garð að gresja, Þá var og
fleira frásagnar\ært frá síð-
ari hluta 19. aldar, en Hall-
grímur gat komið fyrir í sínu
ágæta erindi.
Hvemig var svo þessu tekið?
Það var misjafnt segir
Ólafur. Mér fannst flestir
vera áhugalausir um þessi
efni. Eins og þeim kæmi þetta
ekkert við og það skipti engu
máli, hvorki fyrir nútíð eða
framtíð. Mér fannst margir
vera á máli Hallgrims, um að
hér hefði eiginlega aldrei neitt
gerzt sem í fráa'gur væri fær-
ardi. Einstaka menn og konur
fann ég þó sem voru brenn-
andi í ardanum, og vildu allt
gera til þess að auðvelda mér
þetta starf og’hvetja.
Það er kcmið út fyrsta bindi
af sögu Akraness? —
En hvað verða bindin mörg?
Já og 2. bindið er fullsett
og kemur út í haust.
Bindin verða að minnsta
kosti fimm, ef ég hef tækifæri
til að halda áfram. En ég
býst við að þau verði ekki
fleiri en tvö, vegna þess hve
salan í 1. bindinu hefur verið
lítil, því að út lítur fyrir að
of fáir einstaklingar hér og
þá ekki síður bæjarfélagið
hafi hug á að virða og
viðurkenna það verk sem hér
er verið að vinna. Ég anna
því ekki einn að halda áfram
að óbrevtum aðstæðum.
Var noIJcur prenísmiðja hér?
Nci, hér var engin prent-
smiðja. Aldamótamennirnir
hafa þc eliki verlð alveg iðju-
lausir, svo að ýmsu hefur
þokað í áttina á því tímabili
sem þegar er liðið af öldinni.
Skriffinnskan hefur aukizt
mikið á þessari öld. Það er
margt sem nútíminn heimtar
að fært sé í form og letur.
Fólkinu hefur fj>"lgað mikið á
þessari öld. Bærinn fékk bæj-
arréttindi 1942. Menn drevmdi
stóra drauma um framiíð bæj-
arins á sjávarbakkanum, með
hið víðáttumikla byggilega
land að baki.
Fyrst 1915 var stofnað hér
blaðfélag, og ég, þá tvítug-
ur að aldri, beðinn að veita
því aðalforstöðu. Því neitaði
ég algerlega, og mátti segja
að ekkert yrði úr framkvæmd-
um. Oftar var ymprað á þessu
við mig, en ég færðist alltaf
undan. í marzmánuði 1942
komu eftirtaldir fjórir menn
sér saman um að gera tilraun
til að hefja hér blaðaútgáfu:
Arnljótur Guðmundsson bæj-
arstjóri, Jón Árnason, Óðinn
Geirdal og ég. í þessu sam-
bandi taldi ég nauðsynlegt að
freista þess að fá hingað
prentsmiðju. Ég taldi og litl-
ar líkur til að það gæti borið
sig fjárhagslega með svo litlu
upplagi sem þáverandi Akur-
nesingar myndu kaupa af
slíku blaði.
Þegar í upphafi lofaði ég
að eiga þann eina hlut í þess-
ari útgáfu, að hafa jafnan til-
tækan þátt úr sögu Akraness
í hvert blað. Þetta varð fljótt
vinsælt — utanbæjar og inn-
an. Það lifnaði smátt og
smátt nokkur áhugi fyrir h'nu
sögulega efni. Ekki aðeins
Akurnesinga, heldur ýmissa ó-
viðkomandi og ókunnugra
manna, sem hafa sérstakan á-
huga fyrir mannfræði og
sögulegum fróðleik. Hafa vin-
sældir og álit blaðsins ekki
sízt bj'ggzt á þessum þætti
þess.
Við bmtumst í að fá hi ig-
að prentsmið.ju í okt.óbet
1942. Átti Vilhjálmur Bvan
Jóhannsson í Rvik nokkrai
gamlar vélar er hann f'itti
hingað og stofnsettu eftirt ld-
ir menn Prentverk Akrancss:
Svan, Arnljótur, Þorgeir .Tós-
efsson og ég. í þessum vé’um
var t.d. fyrsta hraðpres<^ " ur
flutt var til landsms 18'i'9 aí
Birni Jónssyni, (föður Svc;ns
Björnssonar forseta). Á rif
1945 kevpti Svan af okkui
pfentsmiðjuna og flutti han:
aftur til Reykjavíkur.
Enn lifði blaðið Akranes og
mér fannst óhugsandi aé
halda því lengi úti án bcss
að hægt væri að prenta þaé
hér heima. Það sýndi si§
Framhald á 10. síðu.