Þjóðviljinn - 10.09.1958, Page 4

Þjóðviljinn - 10.09.1958, Page 4
4) — ÞJÓÐVILJINN — Miðvikudagur 10. september 1958 [ og fræðslukvikmyndir Atriði úr kvikmyndinni „Myrkviði skólanna"; kennarinn (Glenn Ford) og kona lians (Anne Francis). Athyglisverð nivnd í Camla bíói Vísmda- í dag, miðvikudaginn 10. september, hefst í Moskvu ráðstefna alþjóðasamtaka þeirra aðila, sem vinna að töku og gerð vísinda- og fræðilegra kvikmynda. Þessi ráðstefna er sú tólfta í röð- inni og mun standa yfir í hálfa aðra viku, lienni verð- ur slitið laugardaginn 20. þ.m. Samtímis ráðstefnunni verður efnt til alþjóðlegrar vísinda- og fræðslukvik- myndahátíðar. Fyrir síðustu viku var vit- að að ráðstefnuna myndu sækja fulltrúar visinda- og fræðslumyndadeilda kvik- myndafélaga og stofnana í þessum löndum: Austurríki, Eandaríkjunum, Belgíu, Búlgaríu, Englandi, Frakk- landi, Japan, Marokkó, Pól- landi, Rúmeníu, Sviss, Sovét- ríkjunum og báðum hlutum Þýzkalands, Sambandslýð- veldinu og Þýzka alþýðurík- inu. Gera má þó ráð fyrir að fleiri lönd sendi fulltrúa á ráðstefnuna, en búizt er við að þátttakendur frá Evr- ópu-, Asíu- og Afríkuríkj- um verði alls um 150 tals- ins. Hvert það ríki, sem á full- trúa á ráðstefnunni, hefur rétt til að leggja fram og sýna eina. eða fleiri vísinda- legar heimildarkvikmyndir, sem gerðar hafa verið á síð- asta hálfu öðru ári. Tíu beztu kvikmyndirnar, sem sýndar verða, munu hljóta viðurkenningu. Á sviði vísinda- og fræðslukvikmynda standa sovézkir kvikmyndagerðar- menn mjög framarlega og á síðustu árum hafa þeir sent frá sér fjölmargar slíkar myndir, sem alheimsathygli hafa vakið. Á síðastliðnu ári voru t.d. sendar á sýningar- markað í Sovétríkjunum 292 vísinda- og fræðslukvik- myndir, sem gerðar voru þar í landi. Er hér um að ræða bæði vísindakvikmynd- ir, sem fræðimenn fá einir að fullu metið, og svo fræðslu- myndir við hæfi alþýðu. Af þeim kvikmyndum, sem vak- ið hafa einna mesta athygH og notið almennastra vin- sælda, má nefna þessar: „Leiðin til stjarnanna" (það mun vera sama myndin og sýnd var í MlR-salnum sl.. vetur, ..Leyndardómar himingeimsins“, ,,í heimi hljóðsins", „Framtíðin hefst 1 dag“. „í Kyrrahafinu" og fjölmargar .fleiri. Um þessar mundir vinna sovézkir kvikmyndagerðar- menn að töku nokkurra mynda, réttara sagt mynda- flokks, um fyrstu gervi- tunglin, spútnikana, frið- samlega notkun kjarnork- unnar og mörg önnur vís- indaleg efni sem nú eru efst á baugi. I kvikmyndaverinu í Moskvu er nú t.d. unnið að gerð alþýðlegrar fræðslu- kvikmyndar um alþjóðlega jarðeðlisfræðiárið. Verður þetta litmynd og sýningar- tími hennar hálf önnur klukkustund eða svo. Auk langs kafla um sovézku spútnikana mun í kvikmynd- inni m.a. verða lýst nokkuð leiðangri rannsóknarskipsins „Zarja“. Þetta sovézka skip var á sínum tíma sérstak- lega smíðað til þess að ann- ast segulmælingar í norður- höfum, þrímöstruð skonn- orta byggð úr eik, en frá- brugðin öðrum tréskipum að því leyti aðallega, að minnsti stálbútur eða járn- nagli fyrirfinnst hvergi í skipinu, ekki einu einni í afl- vélinni. 1 upphafi fyrstu leiðangursferðarinnar hafði „Zarja“ nokkurra daga við- dvöl hér á landi, eins og sumir leserudur munu ef til vill minnast, og var með- fylgjandi mynd af rannsókn- arskipinu tekin af því 1 Reykjavíkurhöfn á þeim tíma. Kvikmyndaverið í Moskvu vinnur að annarri fræðslumynd, sem vafalaust á eftir að vekja athygli líka, en hún fjallar um eovézka kjarnorkuísbrjótinn „Ijenín". Fyrir tæpum þrem árum, nánar til tekið miðvikudag- inn 12. október 1955, birtist hér í kvikmyndaþætti Þjóð- \iljans grein um nýja banda- ríska kvikmynd, „Blaekboard Jungle" eins og hún hét á ensku. Mynd þessi hafði þá um haustið orðið víðfræg vegna þeirra frétta, sem bor- izt höfðu um bann banda- ríska sendiherrans á ítalíu við sýningum hennar á kvik- myndahátíðinni í Feneyjum. Nú er þessi fræga kvik- mynd loksins komin hingað til lands og Gamla bíó far- 1 Sverdlovsk er nú unnið að töku kvikmyndar um notk- un ísótópa í jarðfræðivísind- um. Þess er að vænta, að ráð- stefna sú sem hefst í Moskvu í dag og áður er að vikið, verði til þess að tengja persónuleg kynning- arbönd kvikmyndagerðar- manna frá mörgum löndum og bæta þannig aðstæðurnar til enn aukinnar menningar- skipti þjóða í milli. ið að sýna hana undir ís- lenzka lieitinu „Myrkviði skólanna". Hér verður að þessu sinni ekki fjölyrt um myndina, aðeins vakin verð- ug athygli á henni. Með að- alhlutverkið fer ágæta vel Glenn Ford, sem leikur fyr- irmyndar kennarann er ræðst til tækniskóla eins í einu af fátækrahverfum New ' York-borgar. Fyrstu kynni kennarans af nemend- unum eru hreint ekki upp- örvandi, fyrsta skóladegin- um lýkur með nauðgunartil- raun í bókasafni skólans. Leikstjórinn heitir Richard Brooks og er „Myrkviði skólanna", e.t.v. kunnasta mynd hans, ef undan er skilin sú síðasta „Bræðurnir Karamasoff", sem fullgerð var á þessu ári og áður hef- ur verið lítillega getið hér í kvikmyndaþættinum. Enda þótt deilt hafi ver- ið um gildi þessarar kvik- myndar verður því ekki neit- að að hún er áhrifamikil og sterk á köflum og því full ástæða til að mæla með henni. Sovézka rannsóknarskipið Zarja í Reykjavíkurhöfn. Girðingarsíaurar brotnir — í landhelgif Kveðskap- ur um herverndaðar íiskveiðar. MOSS skrifar: „í skemmti- legri grein, sem Jónas vinur minn Árnason ritar í blaðið i dag, skýrir hann frá kart- öflu- og kálveiðum brezíkra togara hér við land á und- anförnum árum. Þetta er svo sem ckkert einsdæmi. Velmet- inn bóndi vestur við Dýra- fjörð (old Derifjord á sjó- ræningjamáli hennar hátign- ar) skýrði mér frá því í sum- ar, að fyrir nokkrum árum hefði brezkur togari brotið fyrir sér ellefu girðingar- staura, — og síðan siglt til hafs. Hvort togarinn var með vörpuna úti, gat bóndinn ekki um, en sennilega mun hann hafa verið kominn inn fyrir jafnvel þriggja milna tak- mörkin, fyrst. honum tókst að kála 11 girðingarstaurum". HER er svo kveðskapur um hinar hervernduðu fiskveiðar Breta í landhelgi íslands: Á íslandsmiðum. Berserkjasveit Jóns Bola byssurnar púðri hlóð. 1 nafni Hennar hátignar haldið síðan til fanga var. — Litaði kjölfar kugga kúgaðra þjóða blóð. Úti á íslandsmiðum er ástundað vopnað rán. Togarar Hennar hátignar í herskipaverndinni dorga þar. — Fordæming fellur um bóga, freyðir um stafna smán. Nú skyldi ágengni ísjands aldeilis 'takmörk sett! Og umboðsmenn Hennar há- tignar með heimsveldisrembing sögðu þar: — Hvern andskotann varðar okkur um alþjóða lög og rétt? Úti á Islandsmiðum ofbeldið halloka fór. Berserkir Hennar hátignar hafa. fengið að reyna þar, að það er mönnum að mæta á MarJu Júlíu og Þór. Og livort mun nú heimsveld- ishrokinn hafa baráttuþrek til jafns við hið íslenzka landvarnarlið, sem lánds síns heiður — og fiskimið einbeitt og æðrulaust varði og aldrei af hólmi vék? Vísa. Seint vinnur Bretum sæmd og frægð sjórán á íslandsmiðum, þótt bj'ssan sé upp á það bezta fægð, og biblían gyllt í sniðum. Mikill bruni Framhald af 1. síðu. Kaupfélags Ilafnfirðinga við Strandgötu. Eftir því sem kunnugir sögðu þá liefur eldurinn að öllunu líldndum komið upp í lager- iherbergi inn af sjálfri búðinni og varð eldsins ckki varf fyrr en hann brauzt fram í búðina. Slökkviliðinu tókst að ráða niðurlögum eldsins á skammri s'tundu eða tæpum klukkutáma en talið er að tjón af völduni elds, reyks og vatns nemi hundruðum þúsunda króna. í búðinni, sem er með sjálfs- afgreiðslusniði, er verzlað með nýlendu- og vefnaðarvörur, sem hafa að sjálfsögðu stór- skemmzt við brunann. Kaupféia.gsliúsið, sem er við hliðina á Hafnarfjarðarbíói, er tveggja liæða liús og er verið að byggja við það. Ekki var vitað um eldsupp- tök er blaðið fór í prentun, að öðru leyti en hví, sem hér að framan er haft eftir sjón- arvottum. Ekkj munu nein slys hafa orðið á mönnum. Unglingur óskast til að bera blaðið til kaupenda í HAFMRFIRÐI (suðurbæ). Uppiýsingar í síma 50G48 kl. 1—8 á kvöldin.

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.