Þjóðviljinn - 10.09.1958, Blaðsíða 12
Forusfumönnum veiSiþjáianna finnst aS
meginlandsrikin hafi brugSizt sér
Eitt af því sem veldur forsprökkum brezku veiði-
þjófanna við ísland áhyggjum, er að engir aðrir hafa
fengizt til að fylgja þeim í ofbeldisverkunum.
Brezk blöð og embættismenn
torezku ,'haldsstjórnarinnar eru
sárir og uggandi yfir að Bret-
ar skuli standa uppi einangr-
aðir í flotaárásinni á íslenzku
tólf mílna landhelgina.
Hiálegt ástancl
,,Það er hreinskilnisiega ját-
að i Whitehall (brezku stjórn-
arskrifstofunum, ath. Þjóðv.)
að ástandið við Island er hlá-
]egt“, sagði brezka íhaldsblað-
ið Birminghatn Post 4. sept.
„Embættismennirnir í White-
hall eru áhyggjufullir“, segir
blaðið ennfremur. ,,Þeir óttast
að deilan kunni að verða til
þess að ísland fari úr A-banda-
langinu ....
Annað kynlegt atriði í deil-
ianni er að innan A-bandalags-
íns hefur Bretland ekki hlotið
teljandi stuðning við þá á-
kvörðun sína að verja frelsið
á úthafinu fyrir einhliða á-
kvörðun nýrra landhelgis-
marka.“
Álitshnekkir
Margir Bretar gera sér einn-
ig ljóst, að þeir hljóta hvar-
vetna ámæli fyrir að stefna
flota sínum gegn vopnlausu
ríki til að ræna fiskimið þess.
Meðal blaða sem bent hafa
á þessa hlið málsins er frjáls-
lynda blaðið News Chronicle,
sem se^’r í ritstjórnargrein 3.
sept.: ,,Það er enginn álitsauki
fyrir land okkar að verða að
senda herskip á vettvang með
fjskiflotanum.11
Stuðningurinn brást
I langri ritstjórnargrein v
The Journal of Commerce,
kaupsýslublaði sem kemur út
i Liverpool, er rakið hvernig
togaraeigendur sjö Vestur-Evr-
ópuríkja bundust samtökum
um það á fundi í Haag í sum-
ar að virða tólf mílna land-
helgina við ísland að vettugi
og fá ríkisstjórnir sínar til að
Engir samningar
koma tii greina
„Fundur í stjórn ogr trúnaðar-
ráði Verkalýðs- og sjómannafé-
lags Miðneshrepps, haldinn 6.-9.
1958, lýsir ánægju sinni yfir út-
færslu fiskveiðilögsögunnar í 12
sjómílur og skorar á ríkisstjórn-
ina að hvika i engu frá settu
marki og lítur svo á að ekkí
komi 1S1 mála að ganga til neins-
konar samninga um landhelgina.
Jafnframt því að fundurinn for-
dæinir harðlega ofbeldisverk
Breta undanfarna daga, beinir
hann því til rikisstjóriiarinnar
að kalla heini scndiherra okkar í
London og vísa hinum brezka
sendíherra úr landi. Fundurinn
vottar hinum íslenzku varðskips-
mönnum traust sitt og virðingu
•g er þess fullviss að málstaður
okkar vinnur sigur að lokum.“
veita veiðiþjófunum herskipa-
vernd. Blaðið vitnar í ályktun
fundarins „vegna þess að það
álit breiðist nú út erlendis að
Bretar komi fram af hrotta-
skap“ við ísland.
Síðan segir: „Frain til þessa
hefur lítt orðið vart sam-
ræmdra aðgerða. Það er sann-
arlega liarmsefni, að þessar
stnðningsþjóðir okkar slcúli
hafa látið við það sitja að
lialda sig álengdar, án þess að
veita aðgerðuni okkar Breta
noltkurn siðferðilegan stuðning.
Þetta hefur orðið til þess að
útlit er fyrir að við sitjum
uppi með skömmina í milli-
ríkjadeilu, o.g verður það þá
ekki í fyrsta skipti.“
Brezka Ijónið er orðið að sœskrímsli. — Teikning eftir Benedikt Gunnarsson.
Brezkir togaraeigendur ákveðnir
í ú halda veiðiþjófnaði áfram
Miklar íréttaíalsanir í brezka útvarpinu
Brezka útvarpið sagði í gær að milli 40 og 50 togarar
héldu nú áfram veiðum við strendur íslands undir
Vernd flota Hennar Hátignar, þrátt fyrir hina nýju
fiskveiðilandhelgi íslendinga.
Hér er verið að reyna að
villa um fyrir brezkum al-
menningi og láta hann halda
að þeir hafi svosem í fullu tré
við íslendinga og veiði í stór-
um stíl innan landhelgi.
Sannleikurinn er sá að níu
togarar voru að veiðum i land-
helgi í gær, samkvæmt upp-
lýsingum landhelgisgæzlunnar.
Þá skýrði hrezka útvarpið
frá því, að Félag hrezkra tog-
araeigenda hafi lýst yfir því
að brezkir togarar muni halda
áfram að veiða innan hinnar
nýju landhelgislínu. Þegar
brezkir togarar hætti veiðum
í islenzkri landhelgi, komi aðr-
ir í þeirra stað.
Meðal þeirra togara, sem nú
eru að koma aftur til Eng-
lands eftir veiðar innan 12
mílna landhelginnar við ísland,
er togarinn „Northern Foam“,
en úr honum var íslenzku varð-
skipsmönnunum rænt af brezku
freigátunni „Eastboune“ fyrir
skömmu. Samkvæmt fregnum
brezka útvarpsins, kvaðet
skipstjórinn á Northern Foam
ætla að fara aftur til íslands
og fiska þar í landhelgi og
kvaðst vona að allir aðr-
ir brezkir togaraskipstjórar
myndu gerða hið sama.
Fréttáritari Reuters um borð
Flugvélar rekast á
—12 menn farast
Tvær risastórar bandarískar
sprengjuflugvélar af gerðinni B
52 rákust á í lofti yfir her-
flugstöð í Washingtonfylki í
fyrradag. Flugvélarnar gjör-
eyðilögðust og dreifðist brak
þeirra yfir mjög stórt land-
svæði. Tólf menn létu lífið í
þessu slysi og margir særðust.
Næsti forseti Alls-
herjarþingsins
Stjórnmálanefnd arababanda-
lagsins samþykkti á fundi sín-
um í Kairó í gær að styðja
utanríkisráðherra Súdans til
fj’rradag hafi skipverjar á tog- j kjörs sem forseta næsta alls-
aranum Stelle Canopus hrund- herjarþings Sameinuðu þjóð-
í brezku freigátunni East-
bourne, sagði í fréttum sínum
í gær, að skipverjar á Öðni
hefðu kastað harðfiski i skip-
verja á togaranum Lock Fleet
út af Vestfjörðum, en togara-
menn hefðu svarað í sömu
mynt.
Þá segir fréttaritarinn að í
Framhald á 11. síðu. 1 anna.
Fráhvaríið frá stöðvunarstefnunni:
Stórfelld verðhækk-
un á mjólk og mjólk-
urafurðum í dag
Fráhvarfið frá stöðvunarstefnunni segir til sín í
stöðugt hækkandi verðlagi. I dag kemur t.d. til fram-
kvæmda stórfelld verðhækkun á mjólk og mjólkuraf-
nrðum. Þannig hækkar nýmjólkurlítrinn (flöskumjólk)
úr 3,68 kr. í 4,23 kr. eða um 15% og óniðurgreitt
rjómabússmjör úr 62,50 kr. kg. í kr. 75,70 eða
. tæp 20%, Mjólk i lausu máli kostar nú kr. 4,03 lítrinn,
rjómi í lausu máli 37,20 lítrinn, rjómi í flöskum 37,40
lítrinn, niðurgreitt rjómabússmjör kr. 55.00 kílóið.
Miðvikudagur -10. september 1958 — 23. árgangur — 203. tbl.
„Versta asnastrik sem
/
irezkmn diplómötum hef-
u r tekizt að gera44
Þess sjást mörg merki. aö herferö brezku íhaldsstjórn-
arinnar og togaraeigenda gegn íslendingum mælist illa
fyrir meðal brezks almennings.
Til dæmis er meirihluti les- |birt um málið, Islendingum
endabréfa, sem brezk blöð hafa jhliðhollur.
-----—-------- I Manchester Evening News
' birti 4. sept. svohljóðandi bréf
frá J. Stuttard:
„Það ástand, sem nálgast
skrípaleik, að brezk herskip
skuli látin halda vörð yfir
togurum sem veiða við Island
er vissulega versta asnastrik
sem brezkum diplómötum —-
sem nú eru í sumarleyfi —
hefur tekizt að gera,
Þeim verður ekki flökurt af
því að sóa milljónum í tilgans-
laus ævintýri í löndunum fyr-
ir botni Miðjarðarhafs, en þeg-
ar nágrannar okkar á Islandi
eiga í hlut gloprum við frum-
kvæðinu í hendur Rússa. Þeir
hjóða lán samtimis því að við
sendum fallbyssubáta til að
ógna og hvekkja þjóð, sem
eitt sinn var okkur vinveitt."
Hull-útgáfa Daily Mail birtir
bréf frá J. S. P. Agg Large,
sóknarpresti í Longparish,
Andover, Hants. Hann segir
m.a.: 1
„Eg get ekki orða bundizt
um hve ólíkt Bretland og Is-
land hafa hafst að í fiskveiði-
deilunni sem nú er háð. Island
hefur gert það sem í þess valdi
stóð til að komast að vinsam-
legu samkomulagi, en Bretland
hefur sýnt hreinræktaðan
ruddaskap og stSfni.
Þar að auki hefur Island
mikið til sins máls. Það er
til æði mikils mælzt, að það
eigi að halda að sér höndum
og horfa á skip annarra þjóða
sigla á brott hlaðin fiski sem
hefst við á miðunum rétt við
strönd þess .,..
Tími er til kominn að brezk-
ir útgerðarmenn taki meira til-
lit til þessa eyríkis, sem hefur
verið í vinfengi við okkur öld-
um saman ....
Komið er í óefni, þegar við
eigum engin önnur úrræði en
að senda flota Hennar Hátign-
ar til að koma fram vilja okk-
ar við smáríki, sem hvorki ræð-
ur yfir flota né her.“
Framhald á 8. siðu.
F or sætisráðherrar
ræðast viS í Delhi
Forsætisráðherrar Indlands
og Pakistans, þeir Nehru og
Chundrigar hafa rætt saman .
Nýju Dehli um landamæra-
skærur, er nýlega áttu sér
stað á landamærum ríkjanna.
Tilkynnt var í Karachi,
höfuðborjg Pakistans, að stjórn-
ir ríkjanna hafi skipzt á föng-
um, er teknir hafa verið í áð-
umefndum skærum.
Forsætisráðherrarnir munu
haMa viðræðum. sinum áfram ,í
dag.