Þjóðviljinn - 11.09.1958, Qupperneq 10
10) — ÞJÓÐVILJINN — Fimmtudagur 11. september 1958 —
Brottnám Snæbjarnar og
Guðmundar Björnssonar
Framhald af 7. síðu.
)>ar við annan tón. Sumrinu
áður hafði prófssorinn komið
með frú sinni hingað til ís-
lands; dvöldu þau þá um tima
að Stað á Reykjanesi hjá síra
Jóni Þorvaldssyni og Óiínu
dóttur minni og undu vel hag
sínum; tvo daga voru þau hjá
mér í Hergilsey, er þau voru
á leið til Patreksfjarðar, en er
þangað kom, bauð Guðmund-
ur Björnsson þeim hjónum að
dvelja hjá sér, á meðan þau
biðu eftir skipsferð. — f grein
sinni skýrði prófessorinn frá
því, að hann hefði verið á ís-
landi næstliðið sumar að Stað;
kvaðst hann þekkja þessa
menn, sem blaðið gæti um, að
öllu góðu; væri illa gert að taia
illa um þá, er þeir kæmu til
Engiands, þegar þeir hefðu
ekki annað til sakt unnið en
að gegna skyldu sinni með
djörfung og hugprýði. Meira
lof var í greininni en hér er
skráð, bæði um okkur og hjón-
in á Stað, jafnvel vafi, hvort
ekki var ofmælt. En greinin
sýndi, að þai-na áttum við vin,
sem þagði ekki við áiasti um
okkur. Ræðismanni þótti vænt
um grein þessa; kvað hann
okkur þar eiga hauk í horni
og mundi lægra talið eftir en
áður í okkar garð. — Sama
daginn fengum við heimboð
frá prófessor Craigie, að koma
til Oxford og dvelja þar hjá
honum nokkra daga, en því
miður máttum við ekki sinna
því. Þekkja margir þennan
mæta íslandsvin.
Það var samkomulag þeirra
ræðismanns og sýslumanns, að
við vorum fluttir yfir elfina
á hjólbát um fótaferðartíma
þ. 15. október; frá lendingar-
staðnum fórum við á járn-
braut til Grímsbæjar. Höfnin
þar er grafin inn í sandbala
fremst við fljótsmynnið að
vestan, og er lokuð að fram-
an með stórum járnhlera. Um
kvöldið fór „Snorri Sturluson“
frá Grímsbæ og bar ekkert til
tíðinda á ferðinni. Við lifðum
við gleði og glaum, fengum
nógan bjór með mat, enda
hafði Thor Jensen lagt svo fyr-
ir við skipstjóra, Bjöm Ólafs-
son, er þá var með ,,Snorra“,
er einn af eldri eða elztu togara-
skipstjórum okkar og drengur
hinn bezti. Á því skipi sýndust
mér skipverjar hver öðrum
röskvari; taldi ég hverja hæfa
öðrum, yfirmenn og undir-
gefna.
Við fórum fram hjá Vest-
mannaeyjum að næturlagi; var
bjart veður og þótti mér slæmt
að geta ekki séð þær til hlít-
ar. Hefði mér þótt gaman að
lenda þar og fá að sjá hvar
Ingólfur mætti þrælunum áð
máltíð sinni. — Þegar til
Reykjavíkur kom, kvöddum við
bræður okkar á „Snorra
Sturlusyni"; — ég kalla þá
bræður okkar, af því að á
skipum, þar sem friður og ein-
drægni ríkir, finnst öllum skip-
verjum þeir vera bræður; há-
setar telja yfirmenn sína elztu
bræðurna og trúa þeim og
treysta í hvivetna.
Við létum ekki bíða að fara
til Thor Jensen og þakka hon-
um fyrir farið. Drukkum við
þar 'whiskyglas, það fyrsta í
ferðinni, því að í Englandi
höfðum við sammæli um það
að koma ekki nærri veitinga-
stöðum; þar vorum við skyld-
ir til að skoða alla mótstöðu-
menn, sem vísir væru til að
gera úlfalda úr mýflugunni —
Frá Reykjavík komumst við
von bráðar heim, og hafði ég
þá verið 17 daga í ferðinni.
Mér er fyrir minni bros konu
minnar, er ég kom og heilsaði.
En svo var henni meðfædd
stilling og þrek, að enginn sá
henni bregða, þegar hún frétti
að ég væri horfinn út á hafið;
aðeins hafði hún verið lítið
eitt fálátari.
Sími 11864.
RAFMAGNSPERUR
Verö á perum hefir ekki fylgt eftir dýrtíS verö-
bólgu, gengislækkun, tollahækkunum, nýjum
gjöldum og álögum.
Frá 1938 hefir veröið tæplega þrefaldazt, en á
sama tíma verð iðnaöarvara 10-15 og 20 faldazt.
TESLA-perur hafa staöizt endingarprófun hjá
Rafmagnseftirliti ríkisins .
Heilsölubirgðir:
Tsrra Trading h.f.
Jón G, Guðmann
%
Framhald af 7. síðu.
1930, og baráttan náði
há-
marki sínu í hinum sögulegu-
legu átiökum Novu-slagsins.
Það var ætíð vilji Jóns
Guðmanns að vera öllum öðr-
um óháður, en geta, óhindrað-
ur af öðrum, unnið sinni hug-
sjón það, sem hann orkaði
Það ásamt fleiru mun hafa
valdið því að hann gerðist
bóndi að Skarði við Akureyri,
tók á því sviði sem öðrum
að brjóta nýjar brautir að
eigin hyggjuviti, vann þeirri
jörð „æfiverk á hálfum aldrr'
og gerðist einn bezti bóndi
íslands. Hann, sem lagði svo
gjörfa hönd á allt, er hann
kom nærri , dró sízt af sér,
en verkefnið, er hann valdi
sér, var að breyta klettum og
mýrarflákum fósturjarðarinn-
ar, í 'frjósama móðurmold.
Arnór Sigurjónsson kvað upp
þennan eftirminnilega dóm
um afrek hans sem bónda -
Frev 1951;
hve drengilega þú barðist i
hennar Laugaskarði, er mest
á reyndi og tvísýnast var um
sigurinn.
Megi gæfan fylgja þínum
förunaut í lífinu, — við vin-
ir þínir vissum hve hamingja
þér var það að eiga slíka
konu sem frú Guðlaugu, —
megi minningin um svo góð-
an dreng og traustan sem
þú varst, létta ástvinum þín-
um harminn, sem að þeim er
kveðinn.
Við vinir þínir og félagar
kveðjum þig minnugir þess
„að orðstír deyr aldrei hveim
sér góðan getur“.
Einar Olgeirsson
Tilkynning
Nr. 21/1958
Innflutningsskrifstofan hefur ákveðið eftirfarandi |
hámarksverð á fiski í smásölu. j:
Nýr þorskur, slægður: T
Með haus ................... Kr. 3,15 pr. kg. !í
Hausaður ..................... —- 3,80 — —■
Ný ýsa, slægð:
Með haus..................... Kr. 3,60 pr. kg.
Hausuð ....................... — 4,30 — ■— '1
„Að endingu verð ég að
gera þá játningu að hinn
ágæti búskapur Jóns Guð-
manns hefur á einn veg vald-
ið mér áliyggju, er ekki vill
við mig skilja: Er ekki arfur
okkar Islendinga í búskap til
byrði einnar saman? Á ekki
Jón Guðmann afrek sín og
gæfu í búskapnum mjög því
að þakka, hve óbundinn hann
er af íslenzkri búskaparerfð
því að hann varð ekki bóndi
ungur á föðurleifð, heldur
fullorðinn og margreyndur
maður, óháður og víðsýnn, er
tók búskapinn sem nýtt við-
fangsefni á nýrri jf'rð?"
Hvar sem Jón Guðmann var
og vann, skóp atorka hans og
harðfylgi honum foringjaað-
stöðu. Því var hann og síðari
hluta ævi sinnar löngum for-
ingi stéttarsamtaka bænda í
Eyjafirði.
Allt líf hans og starf ein-
kenndist af þeirri festu og
þrautseigju, sem eru þeir eðl-
iskostir íslendingsins, er gera
oss fært að vinna flesta vora
sigra. Og samfara þessu var
hann gæddur þeirri ótakmörk-
uðu ósérhlífni, sem er aðal
sósíalistískrar verklýðshreyf-
ingar. Hann var raunsær að
hverju sem hann gekk, „batt
eigi bagga sína sömu hnút-
um og samferðamenn“, en
„skörungur var hann í gerð“
og því hlaut hann atfylgi
þeirra, er honum kynntust,
þótt hann ætíð færi sínar eig-
in götur, bryti nýjar brautir,
en hirti lítt um hleypidóma
eða troðnar slóðir. Hann var
maður, er Bjarni Thorarensen
eða Grímur Thomsen hefðu
viljað yrkja um, ef þeir hefðu
hann lifað.
Vertu sæll vinur!
Þakka þér fyrir samfylgd-
ina og samstarfið. Það var
gott að fá að ryðja með þér
jarðveginn, þegar hann var
grýttur, — gæfa að fá að
berjast með þér, þegar bar-
daginn var erfiðastur. Alþýð-
an þakkar þér að þú barst
gróðurmoldina á kalda kletta
kapitalismans, svo jarðvegur-
inn mætti batna fyrir sós-
íalisma og verklýðshreyfingu.
Sósíalistísk verklýðshreyfing
vor mun ætíð minnast þess
Á tímabilinu fram til 15. október n.k. má ný báta-
ýsa seljast sem hér segir hærra verði en að framan '
greinir, þar sem sérstakir erfiðleikar eru á öflun
hennar:
Með haus .................... Kr. 0,50 pr. kg. 1
Hausuð ....................... — 0,60 — —
Ekki má selja fiskinn dýrari, þótt hann sé þver-
skorinn í stykki. !
Ný fiskur( þorskur og ýsa):
Flakaður án þunnilda ....... Kr. 8.50 pr. kg.
Ný Iúða: V
Stórlúða ................... Kr. 14.00 — —
Stórlúða, beinlaus ...........— 16.00 — —
Smálúða, heil ................— 9.00 — — ’
Smálúða, sundurskorin .... — 11,00 — —
Saltfiskur (miðað við 1. flokks fullþurrkaðan fisk, !
að frádreginni niðurgreiðslu ríkissjóðs):
Smásöluverð ................. Kr. 9,00 pr. kg. j
Verðið helzt óbreytt þótt saltfiskurinn sé afvatn- '
aður og sundur skorinn.
Fiskfars ...................... Kr. 12,00 pr. kg. |
Reykjavik, 9. sept. 1958, !
VERÐLAGSST J ÓRINN. ]
Haf nf irðingar
Vegna brunatjóns verður kjörbúð vor að Strand- l!
götu 28 lokuð næstu daga. Það eru eindregin til-
mæli vor til félagsmanna og annarra viðskiptavina,
að þeir beini viðskiptum sínum til annarra kaup- '
félagsbúða eftir því sem við verður komið.
Vér viljum sérstaklega vekja athygli á kjörbúð
vorri að Kirkjuvegi 16, en sú búð er búin fullkomn-
um frysti- og kælitækjum til matvælasölu.
Vér höfum aukið starfslið í útibúum vorum og
skipulagt öruggar heimsendingar frá Kirkjuvegi 16. ,
PÖNTUNARSÍMI 50-159.
Einnig má panta í síma 50-684.
Iíaupfélag Hafnarfjarðar.
Erlent sendiráð
óskar eftir húsi í eöa nálægt raiðbænum.
Tilboö sendist á skrifstofu mína.
Ragnar Oiafsson, hrl.
Vonarstræti 12.