Þjóðviljinn - 11.09.1958, Page 12
I
Þeir töpuðu ,stríðinu’ fyrsta daginn
Hersklpín virSa engar siglingaregiur ~ halda aS þeir séu i
striSi, segir Þórarinn Björnsson skipherra á Ægi
Varðskipið Ægir kom hingað til Reykjavíkur um há-
degisbilið í gær eftir að hafa verið við landhelgisgœzlu
við Vestfrði í rúma viku. Þjóðviljinn náði tali af skip-
herranum, Þórarni Björnssyni, og innti hann frétta af
viðureigninni við brezku landhelgisbrjótana.
— Við Jögðum af stað héðan
frá Reykjavík laugardaginn 30.
ágúst o" vorum á sunnudag út
af Dýrafirði, um sama leyti og
herskipið Russel kom þangað,
segir Þórarinn. Á mánudags-
morgun vorum við út .af Kögri,
en þar var einnig herskipið
Palliser, sem gætti eins togara,
og var það togarinn Vacama frá
Grimsby, sem var að veiðum
11/2—2 mílur fyrir utan gömlu
landhelgisiínuna. Ákváðum við
að taka hann, en þá kom Pall-
iser og renndi sér fyrir stefnið
á Ægi, milli togarans og okk-
ar. Sá ég þá strax hvað þeir
höfðu í hyggju.
Skipstjórinn á Palliser
spurðist fyrir um með Ijósa-
morsi, hver væri þarna á ferð.
Eg svaraði því til og áminnti
hann um að gæta siglinga-
reglnanna, en hann svaraði
því engu — þeir halda víst að
þeir séu í stríði!
Togarinn hélt áfram að toga
í skjóli herskipsins, en við lét-
um reka í námunda við hann
og kölluðum til hans, að hann
yrði kærður fyrir landhelgisbröt,
en hann sinnti því ekki. Þá var
taugastríðið hafið.
Til 4. september skrifuðum við
upp 6 togara, sem gerzt höfðu
brotlegir.
4. september komum við aftur
á svæðið út af Dýrafirði og
stóðum þá togara að verki innan
landhelgislínunnar. Ætluðum við
að leggja að honum, en þá kom
herskipið Russel á fullri ferð
fyrir okkur. Sagði skipstjórinn
þá að við hefðum ætlað að
sígla herskipið niður, en fyr-
ih sitit snarræði, liefði hann
bjargað skipinu!
Annars töluðum við ekkert við
Bretana nema með Ijósmerkjum
— en þeir voru stundum að
bjóða góðan daginn.
Byrjuðu að tapa
fyrsta daginn
— Hvernig haldið þér að þetta
endi?
—> Það er ómögulegt að segja,
em það er mitt álit að þeir hafi
byrjað að tapa fyrsta daginn, og
því lengur sem þeir halda þessu
áfram, þvi meir tapa þeir og því
meir verða þeir að athlægi. Með
tímanum gefast þeir áreiðanlega
upp. — Það gæti varað í nokkr-
ar vikur; þetta er taugastríð sem
við vinnum.
— Er ekki farið að bóla á óá-
nægju hjá þeim?
— Jú, við hlustuðum oft á þá
og heyrðum í þeim gremjutón.
Hásetarnir eru áreiðanlega ekki
ánægðir, því þeir hafa aldrei
frið. Þeir verða alltaf að vera
á varðbergi, enda kölluðu þeir
óðara í Russel, ef við ná'.guð-
umst þá. Þegar þeir koma heim
eiga þeir eflaust erfitt með að
manna skipin aftur, því afli
þeirra er miklu minni en eðli-
legt má kallast. Svo þegar haust-
ar að, þá er ekki gott fyrir þessa
menn að leita til lands, eins og
skiljanlegt er. Svo þykir mér
trúlegt að skipstjórarnir vilji
vera frjálsir ferða sinna þegar
til lengdar lætur.
Framhald á 2. síðu
Ægir á eftirlitsferð á Húnaflóa innanum gríðarstóra
borgarísjaka.
íslendingar andvígir sérstakri
róðstefnu um landhelgismál
Enn einu sinni ósannar fréftir i Morgun-
blaÓinu um landhelgismál Islendinga
Eftir nokkurra daga hlé birti Morgunblaðið í gær fals-
fregn um landhelgismál íslendinga. Segir það í aðalfrétt
á forsíðu að ríkisstjórnin vilji leggja landhelgismál ís-
lendinga undir nýja alþjóöaráðstefnu. Þessi frétt geng-
ur beint í berhögg við sannleikann; ríkisstjórnin telur
slíka ráðstefnu tilgangslausa og er andvíg pví að hún
verði haldin.
Morgunblaðið birti einnig á
forsíðu fregn um það að fiski-
málaráðherra Breta hefði flutt
tillögu um slíka ráðstefnu, og
virtist vera reyna að gefa í
skyn að þarna opnuðust enn
möguleikar á hinum langþráðu
„samningum". En eins og áð-
ur er sagt hefur ríkisstjórn
Kínverjar aðvara Bandaríkin
vegna hernaðarlegra ögrana
Bandaríkjastjórn reiðubúin að leggja út
í styrjöld við Kínverja
!
Brezka blaðið Manchester
Guardian sa"ði í ritstjómargrein
í gær, að sennilegt sé að fyrir-
hugaðar viðræður kínversku
stjómarinnar og Bandaríkja-
stjórnar fari út um þúfur. Blað-
ið telur að innrás verði óhjá-
kvæmilega gerð á Kvemoj fyrr
eða síðar. Bandaríkjastjóm virð-
ist vera reiðubúin að leggja út
í stríð við Kínverja á tveimur
forsendum: í fyrsta lagi vegna
þess að hún telur að styrjöld á
Formósusundi muni ekki breið-
«st út og í öðru lagi heldur hún
að Rússar muni ekki skerast í
leikinn. Síðan segir blaðið að ef
önnur forsendan reynist röng sé
heimsstyrjöld á næstu grösum,
og ef báðar reynast rangar er
heimsstyrjöld skollin á.
Sendiherra Kína í Varsjá,
Vang Ping-Nan, fór í gær af stað
áleiðis til Póllands að loknum
fimm daga viðræðum við stjóm
sína í .Peking.
Sendiherran fer nú til fundar
við hendiherra Bandaríkjanna í
Varsjá.
íslands lagzt gegn. hugmynd-
inni um slíka ráðstefnu á fundi
utanríkisráðherra Norðurlanda
í Kaupmannahöfn, og Islend-
ingar munu ekki vera til við-
tals um það að stækkun ís-
lenzbu landhelginnar sérstak-
lega verði rædd af nokkurri
stofnun. Hins vegar hafa ís-
lendingar alltaf talið sjálf-
sagt að Sameinuðu þjóðirnar
kæmust að niðurstöðu um al-
mennar réttarreglur á hafinu
og munu sætta sig við þær nið-
urstöður sem hljóta allsherjar
gildi.
Utanríkisráðuneytið sendi 1
gær frá sér eftirfarandi frétta-
tilkynningu vegna ósanninda
Morgunblaðsins:
Allgódur alSi
reknetabáta
Relcnetabátar við Faxaflóa
öfluðu samtals um 3000 tunn-
ur síldar í gær. Til Akraness
komu 14 bátar með um 700
tunnur og var Svanur afla-
hæstur með rúmar 100 t. Níu
bátar komu til Sandgerðis með
um 425 tunnur og var Mummi
aflahæstur með 116 túnhur.
„Allsherjarþing Sameinuðu
þjóðanna hefst í New York
16. þ.m., og mun utanríkisráð-
herra Guðmundur 1. Guðmunds-
son sækja þingið ásamt öðrum
fulltrúum Islands.
Meðal mála á dagskrá þings-
ins er Genfarráðstefnan um
réttarreglur á hafinu, og kem-
ur landheigismál íslendinga því
til umræðu.
Af þessu tilefni vill ráðu-
Framhald af 8. síðu.
ájfir Torgairs
Anderssen-Rysst
gerð í gær
Bálför Torgeirs Anderssen-
Rysst, ambassadors Norð-
manna á íslandi, var gerð í
kyrrþey liér í Reyk.ja\ ík í gær.
Er fregnin barst af andláti
sendiherrans sendi forseti Isj-
lands Ólafi Noregskonungi sam
úðarskeyti á þessa leið: „Eg
votta yðar hátign einlæga og
djúpa samúð vegna andláts
ambassadors Noregs, Torgeir
Anderssen-Ryssts. Hann hefur
verið traustur vinur Islands
um 30 ára skeið os: ís’enzka
bióðin f'nnur til saknaðar við
fr^fall hans. Ásgeir Ásgeirs-
son“.
Ólafur Noregskonungur hef-
ur þakkað sam úða r k v eð j u n a
með svohljcðandi símskeyti:
„Hjartans þakkir fyrir auð-
sýnda samúð. Eg veit að ekk-
ert liefði getað glatt ambassa-
dor Anderssen-Rysst meir ea
að vita að starfs hans sem
sendiherra Noregs á íslandi
yrði minnzt með gleði og þakk-
læti af íslenzku þjóðinni. Ólaf-
ur R“.
160 þúsuRdir á
námer 42763
í gær var dregið í 9. flokki
Happdrættis Háskóla Islands,
Dregir voru út 893 vinningar,
samtals að fjárhæð 1135000
krónur. Hæsti vinningurinn
100 þús. kr. kom á miða nr,
42763, hálfmiða í umboði Guð-
rúnar Ólafsdóttur og Jóns
Arnórssonar, Bankastræti. 50
þús. kr. vinningurinn kom á nr.
44596, hálfmiða í umboði á Ak-
ureyri. 10 þús. kr. komu á
þessi nr.: 5724, 14875, 26854,
28525, 35083, 40962. 5 þús. kr.
2283, 3539, 7454, 11048, 20297.
29917, 34695, 38929.
(Birt án ábyrgðar).
Hammarskjöld á
leið til New York
Hammarskjöld, framkvæmda-
stjóri SÞ lauk S gær viðræðum
við stjórnarvöldin í Líbanon en
Hammarskjöld hefur umboð
Allsherjarþingsins til að undir-
búa brottför bandariska her-
liðsins frá Líbanon.
Fráhvaríið írá verðstöðvunarsteínunni:
¥erdsú;
í gær kom til fi’amkvæmda stórfelld verðhækkun á
mjólk og mjólkurafúrðum, í dag er nýtt verð tilkynnt
á fiski.
Nýr þorskur kostar nú með haus kr. 3,15 pr, kg.,
en hausaður 3,80 kr. Kíló af nýrri ýsu kostar 3,60 og
4,30 og má þó bæta 50 og 60 aurum ofan á það verð
á tímabilinu fram til 15. okt. n.k. þar sem sérstakir
erfiðleikar eru á öflun hennar. Flakaður þorskur og
ýsa án þunnilda kostar nú kr. 8,50 kílóið. Stórlúða kost-
ar 14 kr. kílóið (16 kr. beinlaus), heil' smálúða 9 kr.
kg. og sundurskorin 11 kr. Kilóið af saltfiski kostar
nú 9 kr. og fiskfarsi 12 kr.
lUÖOVUJtNN
— Fimmtudagur 11. séptember 1958 — ÞJÓÐVILJINN — (11