Þjóðviljinn - 18.09.1958, Blaðsíða 1
VILIINN
Fimmtudagur 18. september 1958 — 23. árgangur — 210. tbl.
Sjang Kajsék, leppur Bandaríkjanna,
boðar loftárásir á meginland Kína
StöSugt hávœrarl raddir um aS bandamerm USA taki
i taumana og komi vitinu fyrir ráSamenn þeirra
Á heill mannkyns að velta á þeim?
Sjang Kajsék, skjólstæðingur Bandaríkjamanna
á Formósu, heíur hótað því að hann muni hefja
loftárásir á meginland Kína innan skamms, ef hafn-
banninu á Kvimoj verði ekki aflétt. Bandaríkjamenn
halda áfram að flvtja her, flugvélar, flugskeyti og
kjarnavopn til eyjarinnar og hafa þar allt til taks
til kjarnorkustyrjaldar gegn Kína.
Sjang Kajsék sagði í viðtali
við bandaríska blaðamanninn
Joseph Alsop í fyrradag að hann
rnyndi neyddur til að fyrirskipa
flota sínum að gera loftárásir
á strandvirkin á meginlandinu,
ef þau héldu áfram látlausri
skothríð sinni á Kvimojeyjarn-
ar sem hefur nær alveg komið
í veg fyrir aðflutninga þangað
að undanförnu.
Sjang sagði að stjórn hans
hefð auðsýnt mikið langlundar-
geð og stillingu, en ekki væri
hægt til lengdar að færa 130.000
hermönnum og eyjarskeggjum
vistir og vopn, þegar aðein's
væri með naumindum hægt að
koma þeim í land á óvörðum
ströndum eyjanna. Eina lausnin
væri að leggja til atlögu við
rætur vandans, sagði hann, og
bætti við lað kommúnistar
myndu láta undan eins og jafn-
an áður ef þeim væri endurgold-
ið í sömu mynt.
Bandaríkin samábyrg
Þessi ummæli Sjangs eru mjög
í sama dúr og heyrzt hefur frá
undirtyllum hans á Formósu
síðustu daga. Þeim hefur ekki
verið mótmælt af Bandaríkja-
stjóm, sem sjálf hefur lýst 3'fir
að hún telji sig skuidbundna til
að aðstoða Formósustjórn við
varnir strahdeyjanna. Banda-
rísk herskip og flugvélar hafa
að undanförnu fylgt skipalest-
um frá Formósu sem reynt hafa
að koma birgðum til eyjanna, og
hafa Bandaríkin ekkert skeytt
um nýyfirlýsta 12 mílna land-
helgi Kína.
arinnar, reiðubúnar til árása, og
flugskeyti af Matador-gerð, sem
borið geta kjarnahleðslur, standa
einnig tilbúin á skotpöllum sín-
um.
„Við munum ekki styðja
Dulles“
Brezk blöð, og þá sérstaklega
blöð Verkamannaflokksins, halda
áfram að leggja að brezku
stjórninni að segja skýrt og
skorinort að hún vilji engan
þátt eiga í þem Ijóta leik sem
nú stendur sem hæst við Form-
ósusund. Daily Herald kemst
þannig að orði í gær: „Bretland
skipílr það öllu máli að enginn
vafi leikj á því að fari Dulles í
þetta strið, þá munum við ekki
styðja liann“.
En íhaldsblöðin taka einnig
undir áskoranir Verkamanna-
flokksins. Times sagði í gær að
enginn vafi þurfi að leika á því
að Gaitskell, leiðtogi flokksins,
hafi sagt hug flestra Breta þeg-
ar hann benti á hvílíkt glap-
ræði það væri að ætla að hefja
styrjöld út af Kvimoj. Times
var þó ekki í vafa um að ef til
Foster Dulles
slíks stríðs kæmi myndu Bretarf
ekkj geta setið auðum höndum.
Sú heimsstyrjöld sem af því
gæti lilotizt myndi ekki hlifa
neinum.
Það er víðar en í Bretlandi
sem svipuð sjónarmið koma
fram. Franska blaðið Combat,
stuðningsblað de Gaulle, sagði
þannig í gær:
„Það er víst að neyðist Sjang
til að flytja burt lierlið sitt frá
Kvimoj þá er hann úr sögunni.
Hitt er jafnvíst að Atlanzbanda-
lagið myiuli ekki lifa af stlyrjöld
milli Kína og Bandarikjanna og
Framhald á 5. síðu.
Sjang Iíajsék
Ikveikjnr og '
maimvíg á Kýpur
Grímuklæddir menn brutust
í/ gær inn í brezíka hermanna-
verzlun : Famagnsta á Kýpur,
héldu starfsmönnum hennar í
skefjum á meðan þeir helltu
benzíni yfir húsgögn og birgðir
hennar og kveiktu síðan í öllu
saman. Fyrr um daginn hafði
verið kveikt : einni birgða-
skemmu brezka hersins í borg-
inni.
Skammt frá Larnaca féllu
tveir Grikkir fyrir skotunx
brezks hermanns, en aðrir kom-
ust undan á flótta.
Verkfall hafið í
Mlaiðnaði USA *
Um 100.000 verkamenn hjá
Fordver'ksmiðjunum í Banda-
gær til að knýja fram bætt
kjör. Skömmu eftir að verk-
ríkjunum lögðu niður vinnu í
fallið hófst barst nýtt tilboð
frá Ford og var það talið að-
gengilegra en hin fyrri, en
Reuter, formaður sambands
verkamanna í bílaiðnaðinum,
sagði að verkfallinu yrði haldið
áfram þar til endanlega væri
frá samningum gengið.
Bandarískt atvinnulíf er nú
farið að hjarna við aftur og í
gær komst vísitala hlutabréfa á
kauphöllinni í New York hærra
en nokkru sinni áður.
Fráhvarfið frá stöðvunarstefnunni:
Álcsgning hækkar!
Verðhækkanaholskeflan
heldur áfram af fullum
þunga. Innflutningsskrifstof-
an liefur nú ákveðið nýja há-
marksálagningu á matvörum
og nýlenduvörum, hreinlætis-
vörum, skófatnaði, búsáliöld-
um, vefnaðarvörum, raf-
magnsvörum og byggingar-
vörum o. fl. o. fl„ og er þar
liækkaður hlutur smásölu og
lieildsölu. Er þetta enn ein af—
leiðing fráhvarfsins frá stöðv-
unarstefnunni og mim að
sjálfsögðu birtast í liækkuðu
verðlagi.
Eftir að verzlunin hefur nú
fengið slilcar „bætur“ ætti
varla að verða mikil fyrir-
staða á því að taflarlaust
verði gengið að kröfum Dags-
brúnarmanna.
Lýðrétfindi afnumin í Frakklandi og
ógnarstjórn fögreglu innleidd
Serkir berjast iyrir frelsi sinu á franskri grund, mann-
vig og sprengjuárásir fœrast sföSugt I aukana
Stöðugur straumur hergagna
Fréttaritarar á Formósu skýra í
frá því að þangað berist nú lát- !
laus straumur hergagna frá
Bandaríkjunum. Flugvélar eru ;
til taks á öllum flugvöllum eyj-
I'jóíí \i li.jn n birtir í dag á 7.
síðu grein eftir Eiuar Olgeirs-
son uin efnahagsþróun og kjör
verkafólks, og miui liann ræðá
þau efni áfram í greinum sem
koma liér í blaðinu næstu daga.
De Gaulle, sem gekk af franska lýðveldinu dauðu í til að hún ætli sér að segja
■vor, ætlar ekki að bíða fram yfir gildistöku stjórnar- dómstólunum fyrir um það
skráruppkasts síns, sem myndi veita honum alræðisvald hvernig með mál Sérkja skuli
í landinu, með að afnema almenn lýðréttindi og inn-
leiða í staðinn cgnarstjórn lögreglu. Það hefur þegar ver-
ið ákveðið.
Á fundi i ríkisstjórn de
Gaulle í fyrrakvöld var að s"gn
franskra blaða ákveðið að gera
„sérstakar ráðstafanir“ til að
binda endi á mannvíg og
skemmdarverk Serkja í Frakk-
landi.
Fangelsauir án dóms og laga
Rikisstjórnin gefur lögregl-
unni heimild til að handtaka
12.000 Serki sem búsettir eru í
Frakklandi og grunur leikur á
að séu i einhverjum tengslum
við frelsishrej’fingu Serkja.
Lögregiunni verður heimilt að
flytja þes^a menn hvert, sem er
og hún er undanþegin þeirri
kvöð sem stjórnarskrá landsins
leggur henni á herðar að' leiða
liina handteknu fyrir dómara
áður en sólarhringur er liðinn
frá handtökunni.
Líflátsdómar og aðrar
þyngri refsingar
Þá segja frönsku blöðin að
stjórnin hafi ákveðið að lífláts-
dómar skuli nú oftar felldir
en áður, og virðist það bénda
farið. Dómum verður framfylgt
eftir strangari reglum en áður,
og náðunarbeiðnum dauða-
dæmdra ekki sinnt. Þar virðist
stjórnin ætla sér að grípa fram
fyrir hendur forseta iýðveldis-
ins og segja honum fyrir verk-
um.
Herlið kailað licim frá
Þýzkalaiitli
Marka má hversu alvarlegt
ástandið er orðið í Frakklandi
af því að ríkisstjórnin hefur enn
fremur ákveðið að kalla heim
herlið frá Vestur-Þýzkalandi til
að láta það gæta flugvalla,
járnbrauta og brautarstöðva,
olíuge\ma og annarra mann-
virkja sem hætta er talin á að
Serkir reyni að sprengja í loft
upp.
Auk þess verða kallaðir til
þjónustu 14.000 menn úr vara-*
liði ríkislögreglunnar.
Aðeins fyrsta skrefið
Eins og ekki væri nóg ;><5
gert, er það boðað jafnfrrmt
að þetta sé aðeins fyrsta spcr-
ið. Aðrar og etrangari ráð-
stafanir verði látnar bíða fram
yfir þjóðaratkvæðagreiðsluna
um stjórnarskrárfrumvarpið er
verður 28. þ.m. Þá vönast de
Gaulle til að fá alræðisvald I
hendur og þykist þá fyrst geta
látið til skarar skriða. Þá verð-
ur ekki tekið neinum vettlinga-
t"kúm á þeim frönsku möna*
FramhaM á 12. gíðu.