Þjóðviljinn - 18.09.1958, Side 3
Fimmtudagur 18. Eeptember 1958 — ÞJÓÐVTLJINN — (3
Unnið er við tvö stór holræsi
Kringlumýrairæsið hið stærsia í Reykjavík — Háskóla-
hveríið hefur nú loks fengið frárennsli til sjávar
Á þessu ári hefur verið unnið við gerð tveggja mik-
illa holræsa hér í bæ, eru það Kringlumýrarræsið og
ræsi frá Háskólahverfinu.
Ingi Ú. Magnússon, deildarverkfræðingur holræsadeild-
ar og samstarfsmenn hans sýndu blaðamönnum mann-
virki þessi í gær og létu í té eftirfarandi upplýsingar:
Framhald á 5. síðu.
Undirbúningur hafinn að smíði
hins nýfa hafrannsóknaskips
Sœnskur sérfrœSingur frá FAO lýkur
lofsorSi á íslenzka fiskifrœSinga
Sænskur skipaverkfræöingur, Jan-Olof Traung, sem
starfar á vegum FAO, Matvæla- og landbúnaðarstofnun-
ar SÞ, hefur lokið lofsoröi á íslenzka fiskifræðinga eftir
að hafa kynnzt undirbúningi þeirra að' smíði hins nýja
hafrannsóknaskips, sem veitt var fé til á síðasta þingi.
Frá Hafnarfiröi (Sigfús Halldórsson)
Málverkasýning
Nínu Sæmundsson, Pétur Frið-
rik, Sigfús Halldórsson, Svein
Björnsson og Þorlák Haldórs-
son. Yfirleitt eru þetta ,,nat-
úralískar“myndir, olíumálverk,
vatnslitamyndir og teikningar,
og líklegar til að geðjast öll-
um þorra manna.
Blómaverzlunin Sóley sýnir
pottablóm á sýningunni og
Húsgagnverzlun Austurbæjar
húsgögn.
Sýningin verður opin til 21.
september frá kl. 2—11 dag
hvern. 16 myndir hafa þegar
selzt og aðsókn verið góð.
Um síðustu helgi var opnuð
sýning á nálega 100 myndum
í Iðnskólahúsinu í Hafnarfirði.
Það er Höskuldur Skagfjörð
leikari er séð hefur um að
safna þessum myndum saman
og sett upp sýninguna. Hösk-
uldur sagði í viðtali við blaðið,
að húsnæðið væri hið ákjósan-
legasta og rómaði alla þá fyr-
irgreiðslu, er hann hefði notið
hjá skólastjóranum Sigurgeiri
Guðmundssyni.
Á sýningunni eru verk eftir
Braga Ásgeirsson, Ásgeir
Bjarnþórsson Eggert Guð-
mundsson, Magnús Jónsson,
í Hafnarfirði
Vatnasvæði Kringlumýrar-
ræsis er um 232 ha. að flatar-
máli eða heldur minna en
vatnasvæði Laugardalsræsis,
sem er nm 256 ha. Er þetta
næst stærsta svæðið í bæjar-
landinu, sem tekið hefur verið
fyrir til holræsagerðar.
Takmörk vatnasvæðisins eru:
Höfði — Rauðarárholt og Hlíð-
ar að vestan, Golfskálahæð að
sunnan og Grensás, Múlahverfi
og Kirkjusandur að austan. Á
vatnasvæðinu hafa verið byggð-
ar um 550 íbúðir og gert er
ráð fyrir að eftir sé að byggja
um 3000 íbúðir samkvæmt
samþykktum skipulagsupp-
dráttum. Á svæðinu má því
gera ráð fyrir að búi um 20.000
íbúar, þegar það er full byggt.
Auk þess er þar gert ráð fyrir
iðnaðar- og verzlunarhverfi,
sem er um 85 ha að stærð.
líliðarræsin
Út frá aðalræsinu ganga
mörg hliðarræsi, sem taka við
vatninu frá hinum ýmsu göt-
urn. Samanlögð lengd þessara
hliðarræsa verður um 28 km.
Af þeim hafa þegar verið lagðir
um 5 km. Eru það ræsin í hluta
af Túnunum og Teigunum.
Aðalræsið
Lega ræsisins fylgir í höfuð-
dráttum gamla Kringlumýrar-
læknum. Upptök hans eru í
Kringlumýri; sunnan Miklu-
brautar og féll hann tii sjávar
í svonefnda llúlutjörn á
Kirkjusandi.
Ræsið er gert úr járnbentum
pípum, sem steyptar eru i
Pípugerð Reykjavíkurbæjar. I
fremsta hlutanum upp frá
sjónum eru pípurnar 1.6 m í
þvermál og eru það víðustu
holræsapípur, sem lagðar hafa
verið hér á landi. Síðan enf
Tveir Islendingar
á móti tónlistar-
æsku í Lundi
Samkvæmt uppl7singum Árna
Kristjánssonar skólastjóra
Tónlistarskólans í Reykjavík,
tóku tveir . nenjeridur skólans,
Ásdis Þorsteinsdóttir og Jakob
Hallgrímsson, þátt í allsherjar-
móti hljómsveitaræsku Norður-
Janda, sem haldið var í Svíþjóð
í sumar. Mót þessi eru haldin
árlega og jafnan á sama stað,
í Lundi, en þetta var í fyrsta
sinn sem ungir, íslenzkir hljóð-
■ færaleikarar tö'ku þátt í mót-
inu. Væntanlega verður þetta
ekki heldur í síðasta sinn
sem Islendingar fara til móts-
ins, sagði Árni, því okkur hafa
þegar borizt boð um að senda
hóp nemenda að sumri, en báð-
jr íslenzku þátttakendurnir
voru svo heillaðir af að fá að
Jeika með í sinfóníum eftir
. Brahms og Beethoven að þeir
vilja ólmir komast aftur utan
á næstu tónlistarhátið.
pípurnar 1.2 m i þvermál suð-
ur fyrir Miklubraut. Pípurnar
hvíla á 10—15 cm þykkri und-
irstöðuplötu, sem eteypt er i
skurðbotninn. Lengd alls ræs-
isins er 1740 m. Gert er ráð
fyrir að mesta vatnsmagn, sem
rennur um ræsið, geti orðið
um 4500 1 á sek. en mestur
vatnshraði fer ekki yfir 4.0 m
á sek., til þess að koma í veg
fyrir slit á pípunum.
Á sjávarkambinum á Kirkju-
sandi hefur verið byggður yfir-
fallsbrunnur, sem veitir rign-
ingar og leysingavatni fram í
sjávarmál. Frá honum liggur
pípa, sem flytur fjórfalt skolp-
magn fram í stórstraums f jöru-
borð.
I framtíðinni er gert ráð fyr-
ir höfn, þar sem útrás ræsis-
ins er nú. Verður ræsið þá
tengt við Laugardalsræsið, sem
hefur útrás norðar á Kirkju-
sandi og sú leiðsla framlengd
út fyrir væntanlega höfn,
þ.e.a.s. út fyrir Laugarnes-
tanga. Flytti sú leiðsla fjórfalt
skolpmagn frá báðum ræsunum
og yfirfallsbrunnur yrði þá
byggður á Laugardalsræsið til
að taka við rigningar- og leys-
ingarvatni. Gert er ráð fyrir
að þessi viðbót verði um 750
m á lengd.
Vinna við lagningu aðalræs-
isins hófst í febrúarmánuði
1957. Vann einn vinnuflokkur,
um 20 menn, að ræsisgerðinni
fram í októbermánuð s.l. Var
þá lokið við útrásina, yfirfalls-
brunninn og lagningu ræsis-
ins upp að Sigtúni. Síðan lá
vinna við ræsið niðri þar til
um síðustu áramót. Var þá
hafizt handa að nýju og unnu
3 vinnuflokkar að ræsisgerð-
inni, eða um 60 menn, á kafl-
anum frá Sigtúni upp að Soga-
vegi fram á sumar eða þar til
gatnagerð hófst. Þessi kafli er
um 800 m á lengd. Ræsið ligg-
ur í 3ja—6 m dýpi undir jarð-
aryfirborði og að mestu i klöpp.
Tekin hefur verið upp sú ný-
breytni að hafa skurðinn það
víðan, að hægt sé að láta jarð-
ýturnar og vélskóflurnar ganga
eftir sjálfum skurðinum til að
vinna á og moka upp klöppinm,
eftir-að búið er að sprengja
hana. Hefur þetta lækkað
Kostnaðinn til muna, þrátt fyrir
aukið rúmmál á klöpp, sem
sprengja þarf. Við verkið voru
notaðir 5 kranar, 2 gröfur, 2
jarðýtur og 4 loftpressur.
Áætlaður kostnaður við aðal-
ræsið frá sjó og suður fyrir
Miklubraut er um 8 millj. kr.
og eru nú kom-nar um 6.5 millj.
í þessar framkvæmdir.
Aðalræsi frá Hiskólaliverfi
Vatnasvæði ræsinsins er um 63
lia. að flatarmáli og nær það
yfir Skildinganes og hluta af
Grímstaðaholti, flugvælli og
Háskólahverfi. Útrás ræsisins er
í svokallaðri Þormóðsstaðavör.
Þar hefur verið byggður yfir-
fallsbrunnur, sem veitir rign-
ingar- og leysingarvatni fram í
sjávarmál. Frá honum liggur
útrásin, sem flytur fjórfalt
skolpmagnið fram í stór-
etraums fjöruborð. Ræsið ligg-
ur síðan stytztu leið upp að
gatnamótum Njarðargötu og
Reykjavíkurvegar og beygir
síðan og tekur stefnu í áttina
að Nýja-stúdentagarðinum.
Lengd ræsisins er um 1180
m. Útrásin sem er 140 m á
lengd er gerð úr 45 cm víðum
pípum. Frá yfirfallsbrunninum
og upp undir Reykjavíkurveg
er ræsið gert úr 80 cm víðum
járnbentum pípum. Síðan fara
pípurnar mjókkandi og í efsta
hlutanum á móts við Nýja-
stúdentagarðinn eru þær 45
cm víðar. Vinna við ræsið
hófst í ágústmánuði 1957, og
hefur einn vinnuflokkur, um 15
menn, unnið að þessum fram-
kvæmdum.
Þann 15. þ.m. náðist að tengja
götuæðarnar í Háskólahverfinu
við þetta aðalræsi en frárennsl-
ið frá hverfi þessu hefur um
10 ára skeið runnið í opna
skurði niður í Vatnsmýri!!
Á kafla var verk þetta eitt
erfiðasta holræsaverk, sem
Traung dvaldist hér í síð-
asta mánuði, en fór héðan á
ráðstefnu þá sem haldin var
í London um ráðstafanir til
að draga úr útgerðarkostnaði.
Hann segir i viðtali við blaðið
Fishing News að íslendingar
séu komnir vel áleiðis í fiski-
rannsóknum, og rómar mjög
allan undirbúning að smíði
hins nýja skips.
íslenzku vísindamennirnir
hafi þegar kynnt sér öll atriði
í smíði sams konar skipa er-
lendis og jafnframt gert sér
ljóst^hvaða sérstakar kröfur
vrði að gera hér svo að sem
mestur árangur yrði með sem
minnstum tilkostnaði.
Nýja liafrannsóknaskipið
Traung er yfirmaður þeirr-
ar deildar FAO sem veitir að-
stoð við smíðí hvers konar
fiskiskipa og hann hefur á
undanförnum árum aflað sér
mikillar reynslu í smíði haf-
rannsóknarskipa sérstaklega.
Hann var því fenginn hingað
til lands á vegum. sjávarútvegs-
málaráðuneytisins til að vera
hinum íslenzku vísindamönnum
til aðstoðar við undirbúninginn
að smíði skipsins.
Hann gerði hér frumupp-
drátt að skipinu, sem að sjálf-
sögðu kann að breytast þegar
fullnaðarákvörðun verður tekin
um smíði þess. I þessum upp-
drætti er gert ráð fyrir að
skipið verði um 160 fet á lengd
og um 500 lestir.
Sjö rannsóknarstofur
Þjóðviljinn átti í gær tal við
Ingvar Hallgrimsson fiskifræð-
ing sem einkum starfaði með
Traung þegar hann var hér.
Skýrði Ingvar svo frá að í
frumuppdrættinum hefði verið
gert ráð fyrir að í skipinu yrðu
sjö rannsókna.rstofur, og
myndu tveir—þrír menn geta
unnið á hverri þeirra.
Tvær þeirra verða fyrir 7ms-^
ar mælingar og greiningar á;
fis'ki, mælingar á stærð og
þunga, aldursákvarðanir o.s.
frv.
í einni verður unnið að
sjófræðirannsóknum, þ.e. rann-
sóknum á seltu, hita, straum-
um og næringarefnum í sjón-
um.
í þeirri fjórðu verður unnið
að líffræðirannsóknum og öll-
um nákvæmari athugunum á
rannsóknarfiskum. Þar verður
þannig unnið úr efnivið þeim
sem síldarleitartæki afla, en
sfldarrannsóknir verða að sjálf-
sögðu einar þær mikilvægustu.
I fimmtu rannsóknarstofunni
verða gerðar athuganir á smá-
sæjum lífverum sjávarins, þ.á.
m. greiningar á átu, en þær
hafa t.d. undirstöðuþýðingu
fyrir síldarrannsóknirnar.
I þeirri sjöttu fara. fram
aflestrar á hina ýmsu mæla
sem notaðir eru við sjávar-
rannsóknirnar.
Loks er gert ráð fyrir sjö-
undu rannsóknarstofunni fvrir
tæki og athuganir sem kunna
að komast á dagskrá með
breyttum aðstæðum og veiði-
aðferðum. Má þar t.d. nefna
veiði með rafstraumi sem til-
raunir liafa verið þegar gerðar
með erlendis.
Tíu vísindamenn og aðstoðar-
menn þeirra
Gert er 'ráð fyrir að skipið
hafi k'ojupláss fyrir tíu- vísinda-
menn og aðstoðarfólk þeirra,
auk áhafnarinnar, og má af
þvf sjá að ætlunin er að hægt
verði að anna umfangsmiklum
rannsóknum um borð, auk þesg
sem að sjálfsögðu verður hald-
ið áfram að vinna í landi úr
gögnum sem aflazt á sjó,
Megináherzla hefur verið
lögð á það í undirbúningnum,
að smíði skipsins að hægt verði
að vinna sem allra fljótast úr
gögnum þeim sem aflað er,
svo að fiskiflotinn geti hag-
nýtt sér þær niðurstöður sem
fyrst.
Ingvar tók fram | ð síðustu
að hér væri aðeins um frum-
drög að ræða. Sérstök nefnd
mun ganga endanlega frá til-
lögum um gerð skipsins.
4