Þjóðviljinn - 18.09.1958, Page 11
FimmíudagT.ir 18. september 1958 — ÞJÓÐVILJINN — (lít
Hans Scherfig
Fuiltrúinn sem hvarf
að því að útskýra þetta fyrir löoreglunni.
— Var hjónaband yðar þá ekki hamingjusamt? —
— Jú. Þaö var það víst. —
— Já. en það getur ekki verið! Það er ekki hægt að
yfirgefa konuna sína sé maður hamingjusamur hjá
henni! —
— Nei'. —
— Hann hefur þá ve'rið ástfanginn af annarri konu?
Hann hefur haldið framhjá konunni sinni? —
— Nei. Nei. — Það var aldrei um aðra konu aö
líka fram. —
Borðstofuklukkan slær. Hægt og hátíðlega. Ellefu
högg.
— Það er orðið framorðið. En hér fer svo vel um
mann. Hér er svo mikill friöur. Það er svo dýrmætt. —
— HvíliÖ yður. Hvílið yður eins lengi og þér viljið.
Látið eins og þér séuð heima hjá yður. Eg skulda
yður svo óendanlega mikið-------yður og honum---------
— Hugsið þér aldrei um framtíðina, frú Amsted? —
Hann er búinn að grípa um hönd hennar og horfir á
línurnar.
— Eg veit ekki-----Getið þér sagt mér eitthvað um
framtíðina? —
— Eg gæti sagt yður margt.--------Þér veröið ham-
ingjusöm. Hér á jarðarplánetunni. Mjög hamingjusöm.
— — Þér eigið eftir að ferðast yfir stórt úthaf. Og
þér kynnist ástinni. Hinni hreinu, flekklausu ást-----
Hann er álútur og horfir með áhuga á hönd henn-
ar og línurnar í lófanum. Það er alger kyrrð í stofunni.
Og svo hrökkva þau allt í einu við bæði tvö. Hvell,
skerandi bjalla rýfur kyrrðina og þau taka viðbragð
eins og þau væru hrædd.
Frú Amsted rís á fætur’ og gengur að símanum. —
Hvað getur þetta verið? Á þessum tíma? — — Eg
verð næstum hræda. Bara ekkert hafi komið fyrir Leif!
Eg hef svo miklar áhyggjur af honum síðan hann
fór í heimavistarskólann. Það er ekki rétt að skilja
barn og móður.--------En það varð ekki hjá því kom-
izt eins og ástatt var-----
— Já, Já. Halló! —
— Hver? — Hvað segið þér? Lögreglan? — Olsen
lítur kvíðandi á frú Amsted. Hann er staðinn á fæt-
ur og gengur háttvís fram í hina stofuna. En hann
hlustar með kvíðablöndnum áhuga.
— Lifandi?------Það veit ég. Hann er lifandi. Það
er enginn dauði til!-------Hvað segið þér? Maðurinn
minn? — — Á Noröur-Sjálandi? — Tekinn fastur á
Norðursjálandi?-------Gekk undir fölsku nafni? —• <
— En — en--------Hvernig getur það verið? Ó, guð
minn góður, hvað eruð þér að segja! Æ — hjálpið mér!
— Olsen! — Olsen!--------Heyriö þér! Hjálpið mér!
— þaö hefur dálítið hræðilegt komið fyrir!-------
Hún er búin að missa símann og hleypur fram til
Olsens.
En hann er ekki lengur í stofunni. Hún heyrir hljóð-
legt fótatak hans frammi í anddyrinu. Og hún heyrir
útidyrnar lokast.
Miðillinn Einar Olsen hefur dregið sig 1 hlé.
XLV
Teódór Amsted fær ekki tíma til að hvíla sig eftir
ökuferðina gegnum Noröursjáland.
Það er svo margt sem lögregluna langar að spyrja
hann um. Þeir vilja fá að vita svo margt. í næstum
ár hefur verið unnið aö því aö hafa upp á honum. Og
nú, þegar hann er fundinn, vei'ður hann að upplýsa
allt sem ennþá er leyndardómsfullt og torskilið.
Hann hefur ekki í hyggju að leyna neinu. Hann er
vanur því að svara spurningum. Hann hefur tekið
mörg próf og vill gjarnan svara öllu rétt.
En hann getur ekki gefið skýringu á öllu þótt hann
langi til þess. Margt er honum sjálfum torskilið. Hann
hefur fengið hugmyndir og atvikin leiddu til þess
að hann réð ekki við sig. Þetta hefur ekki verið eins
einfalt og undirbúið og lögreglan álítur.
— Hve'r. vegna gerðuð þér það? — Hvers vegna vild-
uð þér hverfa? — Hvers vegna létuö þér alla halda
að þér hefðuð framið sjálfsmorð? —
Því er ekki auðvelt að svara. Það var sennilega dá-
lítil frelsisþrá, sem komst allt í einu upp á yfirborðið
þegar atvikin gerðu það kleift. Sjálfsagt hefur hann
langað til að stjóma sjálfum sér til tilbreytingar. Hann
hefur lar gað til að ráða yfir sjálfum ser og tíma sínum
og fötum sínum og máltíðum. En það er ekki hlaupið
ræða. —
— En annars hefur lögreglan fundið ljóð til kven-
manns — stúlku í blaðsöluturni. Það fannst við hús-
rannsóknina í íbúðinni í Herluís Trollesgötu. Hvaða
skýringar getur hann gefið á því? —
— Það er svo langt síðan. Það var svo barnalegt.
Það hefur enga minnstu þýðingu. Alls enga.-----------
— Hvað hét sú stúlka? —
Því getur hann ekki svarað. Hvers vegna á alsaklaus
blaðsölustúlka nú að komast í óþægindi. Nei. Hann
man ekki hvað hún hét.
— En um hvað voru þau hjónin þá ósammála? Um
hvaö greindi þau á?
Þau voru ekki ósammála. Þau hafði aldrei greint á
um neitt.
— Nú, svo að þetta hefur verið samkomulag Konan
vissi um ráðagerðina. Það var til þess að fá líftrygg-
inguna greiddál '■
— Nei, nei. Konan hans hafði ekki hugmynd um
neitt. Og hann haíði alls ekki munað eftir líftrygg-
ingunni.
— Heyrið mig nú, þér verðið að manna yður upp!
— segir Haderslev lögreglufullt'úi. — Þér verðið að
svara spurningum mínum rétt! Hugsið yður vel um! —
Og Amsted hugsar og hugsar. En hann getur ekki
upphugsaó neina skýringu sem lögreglufulltrúinn get-
ur sætt sig við.
— Hve mikið unnuð þér í happdrættinu? —
— Happdrættinu? Vitið þér um happdrættið? —
— Já, viö vitum miklu meira en þér haldið. En vilj-
ið þér gera svo vel aö svara! —
— Það kom 50.000 króna vinningur á miðann. —
— Já einmitt. Og það var hálfmiði. Þér fenguð þá
25.000. —
— Já. —
— Hvers vegna leynduð þér konuna yðar því? —
— Eg veit það varla. Það var svo undarlegt með
þessa peninga. Eg hafði engar ákvarðanir tekið í sam-
bandi við þá. Eg geymdi þá bara. Eg lét þá liggja
Allsherjar
atkvæðagreiðsla
um kjör fulltrúa félagsins á 26. þing Alþýðusam-
bands íslands hefur verið ákveðin laugardaginn
20. þ.m. kl. 12—20 cg sunnudaginn 21. þ.m. frá
kl. 10—18 í skrifstofu félagsins að Skólavörðustíg
3 A Kjörskrá liggur frammi á sama stað föstu-
daginn 19. þ. m. kl. 16.30—18 og laugardaginn 20
þ.m. kl. 10—12.
Kjörstjómin,
FITTINGS
fittings fyrirliggjandi.
SIGHVATUH EINARSSÖN & Cö„
SJdpholti 15 — Sínuir 24133 og 24137.
Bíllinn
Sími 18-8-33.
Chevrolet ‘S3
Skipti koma til giein&;
Ferd Perleci ‘57
Lítið keyrður,
Volkswagen '58
Skipti á 6 manna tóf-
reið koma til greinBj
Willy's íólksbifreið
Lítur mjög vel út,
Meskvitsj ‘57
Keyrður 7000 knv
Hillman ‘49,
Mercury ‘49,
Voikswagen ‘55
Ford ‘47,
Vörubíll,
Wcsley ‘47,
Mercury '47,
★------4r------kr
Sími 18-8-33, Varð-
arhusinu við Kalk-
oínsveg,
★------★-------★