Þjóðviljinn - 21.10.1958, Page 10
20) — ÞJÓÐVILJINN — Þriðjudagrur 21. október 1958
■4 Sigurjón
Framhald af 7. síðu.
og kom hingað suður sem til-
vonandi legsteinn. En það átti
sem sagt ekki fyrir honum að
Jiggja að hafna í Fossvoginum.^
heldur lenti hann í höndum
Sigurjóns og það varð mikil
rekistefna. . .
A veggjum salarins eru ljós-
myndir af fjarstöddum lista-
verkum. Hér er -Verkamaður-
inn, sem færði Sigurjóni gull-
pening Konunglega Akademís-
ins 1.030, og hér eru lágmynd-
irnar fjórar, sem hann gerði
fyrir Vejle á Fjóni og færði
borgarstjórninni fimmtán ára
þras. Það var ekki fyrr en eft-
ir stríð, að hún komst að þeirri
niðurstöðu, að fjónsk siðmenn-
ing liði samt ekki undir lok,
þótt þær væru settar upp. Nú
standa þær fyrir framan ráð-
húsið og eru helzta stolt þess
bæjar.
Hér er einnig ljósmynd af
Fjölskyldunni, sem stendur nú
í fordyri UNESCO-byggingar-
innar í Róm. Hún er höggin
í gildan trjástofn, eins hlý og
upprunaleg og þessi minnsta
eind mannlegs samfélags get-
ur verið innilegust í hamingju
sinni.
Það hefur aldrei verið lista-
maður á íslandi sem hefur
haft eins sterka tilfinningu
fyrir efninu sem hann hefur
í höndunum og Sigurjón Ólafs-
son. Tré er honum ekkj aðeins
■ hráefni, sem má þvinga eftir
geðþótta sínum; né steinn
heldur. Efnið hefur sitt sér-
stæða skap, sem verður að
virða; það verður að vinna
með því, eins og það væri lif-
andj persóna. Stundum verður
jafnvel að iáta það ráða. Sig-
urjón er ekki sú manntegund,
sem hefur forfínast af ísskápa-
menningunni; hann handleikur
tré rétt eins og þegar afi hans
gekk á reka; hann þarf að
finna þyngd grjótsins í fang-
inu tiJ þess að verða elskur að
því. Og þegar Sigurjón og
steinninn hans eru orðnir ein-
ir saman í bragganum inni á
Laugarnesi, þá á Múhameð
þann einn kost að koma til
fjal’sins, ef hann ætlar að vera
með.
Það er oft talað um þjóð-
lega iistamenn eða alþjóðlega
Ólafsson
og átt við, að þeir hafi ann-
aðhvort sprottið upp og að-
lagazt í kálgarðshorninu heima
eða þá riðið gandreið á fínum
teóríum suður í París. Verk
Sigurjóns eru engin menning-
arblómstur í þeim skilningi.
En það er í þeim sá rammi
frumkraftur, sem einn gefur list
alþjóðlegt gildi
B. Th. Bj.
Listin á ekki að þjóna Mammoni
Framhald af 3. síðu.
betur fór ekki sá, en kostaði
þriggja mánaða lærdóm! Eft-
ir stríðið kom ég heim.
Ekki byrjarðu að höggva
stein út í loftið.
— Nei, maður sér hlutinn
fyrir sér áður en maður byrj-
ar og vinnur svo markvisst
samkvæmt því. Það er ekki
hægt að láta sig dreyma þetta
á einni nóttu. Hinsvegar veit
maður ekki fyrirfram hvernig
hluturinn muni líta út ná-
kvæmlega fuligerður.
Þetta er ekki unnið ’eftíh'
pöntun. Heldurðu að þetta væri
héma ef það hefði verið unnið^
fyrir tímakaup?
Eg hef alltaf unnið án þess
að vera að flýta mér fyrir ei-
lífðina.
Þetta þarf ekki að vera gott
eða vont. Það er þessi trú sem
giidir; hver steinn er tímaniót
í lífi manns.
— Og hvað er list?
—, Því get ég ekki svarað
Hvað er lífið? Það er margt
sem erfitt er að svara. Maður
vinnur að því að sjá hlutjna í
kringum sig í öðru Ijósi en
vanalega. Esjan er ekki enda-
veggur fyrir Reykjavík. Það
eru önnur fjöll á bak við hana.
Og hún er ekki hæsta fjall
heimsins, önnur fjöll eru hærri
— og svo er hægt að fara upp
fyrir þau öll og sjá þau að
ofan.
Viðhorfið til listamannsins er
að taka þá ekki alvarlega,
Hann er listamaður segja menn.
Hver tekur listamann alvarlega.
Hann getur verið gaman-
samur, — og því miður hefur
margur slegið á það að vera
gamansamur.
Listin er ekkert grin. Þvert
á móti. Hún er barátta, bar-
átta í sambandi við það að
svíkja eða svíkja ekki.
— Hvað er að svíkja list-
ina?
— Það get ég sagt sér: það
er að láta auðgast: halda að
maður geti slegið slöku við til
að auðgast á um stund — og
ætla svo að gera hið stóra á
eftir. Það endar venjulega með
því að þeir gera aldrei þ'að
stóra.
— Hverju á listin að þjóna?
— Eg get sagt þér hverju
hún á ckki að þjóna. Hún á
ekki þjóna Mammoni.
★
★ *
Svo tek ég í hendina á Sig-
urjóni og hverf útfyrir. Það
næðir svalur haustvindur um
Laúgarnesið.
J. B.
gm
Framhald af 1. síðu.
hreyfingarinnar örlagarík verk-
efni sem hún getur ekki leyst
nema henni takist að skapa
einingu í eigin röðum. Á Al-
þýðusambandsþinginu sem kem-
ur saman að tæpum mánuði
liðnum verða allir fulltrúar
verkalýðsféíaganna að muna að
þeir eru fulltrúar stéttar en
ekki flokka. Þeir verða að
móta þar skýra og ótviræða af-
stöðu alþýðusamtakanna í efna-
•hagsmálum og sanna stjórn-
málaflokkunum, ríkisstjórn, Al-
þingi og þjóðinni allri að frá
þeiryi stefnu verði ekki vikið.
Björn lauk ræðu sinni á
þessa leið:
Verkalýðshreyfingin getur
verið sterkasta þjóðfélagsaflið
í þessu landi. Nú eins og áður
æskir hún einskis fremur en að
beita því mikla aíli í samstarfi
við ríkisvaldið til þess að skapa
vinnandi stéttum Iandsins bsett
lífskjör, en hún kaupir heldur
ekki friðinn því verði að fórna
hagsmunum verkamanna í einu
eða neinu.
Hér hefur aðeins verið drep-
ið á fá atriði þessarar ýtar-
legu og rökföstu ræðu, en hún
verður birt öll í næstu blöð-
um.
okamarkaiur Helgafells i Unuhusi -
Veghásasfíg 7
Þessa daga stendur yíir mikil útsala á bókum í Unuhúsi. Nokkur
þúsund bóka, sem smalað hefir verið utan af landi, verða seldar
fvrir lítið brot af upprunalegu verði þeirra. Langflest mjög eigu-
legar bækur.
Allar aðrar eldri bækur í Unuhúsi verða seldar í eina viku með
20% afslætti.
Framkvæmdar-
stjórastarf
Bæjarútgerð Akraness vill ráða íramkvæmdarstjóra.
Umsóknir ásamt launakröfum sendist formanni út-
gerðarráðs, Guðmundi Sveinbjörnssyni fyrir 1. nóv.
Bæjarútgerð Akraness.
ERLEND BLÖÐ 00 BÆKUR
Utvegum erlend blöð, tímarit og bækur. Blöðin og
timaritin send beint frá útgefendum til kaupenda.
Skrifið á pöntunarseðilinn þau blöð, títaarit eða
bækur, sem þér óskið að fá, og sendið okkur hann.
Tilgreinið einnig nafn útgefanda og heimilisfang.
PÖNTUNARSEÐILL
Undirritaður óskar að (kanpa) gerast áskrifandi að:
Dags :....... Nfcfn: ......................
Heimili: .......
Póststöð; .....................
TIL BÓKA. OG BLAÐASALAN Importistoj
de libroj kaj abono-agentoj,
P.O.B. 202, AKUREYKI.
Tilkynning
Nr. 28/1958
Innflutningsskrifstofan hefur í dag ákveðið eftirfar-
andi hámarksverð í heildsölu og smásölu á inn-
lendum niðursuðuvörum:
Heildsöluv. Smásöluv
Verð kr. Verð kr.
Fiskibollur 1/1 ds. 11,55 15,00
— 1/2 — 7,80 10,15
Fiskibúðingur 1/1 — 13,50 17,55
— 1/2 — 8,20 10,65
Murta 1/2 — 11,00 14,30
Sjólax 1/4 — 8,10 10,55
Gaffalbitjar 1/4 — 6,60 8,60
Kryddsíldarflök , 5 lbs. 55,00 71,50
— 1/2 ds. 14,00 18,20
Saltsíldarflök 5 lbs. 51,00 66,30
Sardínur 1/4 ds. 6,30 8,20
Rækjur 1/4 — 9,00 11,70
— 1/2 — 28,60 37,20
Grænar baunir 1/1 — 9,00 11,70
-— —• 1/2 — 5,80 7,55
Gulrætur og grænar baunir 1/1 — 12,25 15,95
1/2 — 7,15 9,30
Gulrætur 1/1 - 13,50 17,55
— 1/2 — 8,65 11,25
Blandað grænmeti 1/1 — 12,75 16,60
— —• 1/2 — 7,75 10,10
Rauðrófur 1/1 — 17,75 23,10
— 1/2 — 10,20 13,25
Athugið að hér er margt ágætra gjafabóka.
Kaupið jólagjafabækurnar á markaðnum í
Sölusi^attur og útflutningssjóðsgjald er innifalið í
verðinu.
Reykjavík, 20. október 1958.
Verðlagsstjórinn. ...........
Helgafelli I Unuhusi
Veghúsastíg 7. — (Sími 16837).
Auglýsið í Þjóðviljaimm