Þjóðviljinn - 31.10.1958, Side 10
10) — ÞJÓÐVILJINN — Föstudagur 31. október 1958
T£I hjálpar vangefnum
Framhald af 3. síðu.
bregðist vel við vangefnum til
hjálpar.
Stjórn félagsins skipa Guð-
rmmdur Gíslason, Aðalsteinn
Eiríksson, Kristrún Guðmunds-
dóttir, Sigríður Ingimundar-
dóttir, Hjálmar Vilhjálmsson.
1 varastjórn eru Hialldór Hall-
dórsson, Páll Líndal, Fanney
Guðmundsdóttir, Vilhelm Há-
konarson og Arnheiður Jóns-
dóttir.
Békmenntir
Framhald af 7. síðu.
undur standi sífellt á varðbergi
að hún verði það ekki. Þess-
vegna leggur hann sig allmjög
fram um það að skrifa kank-
vísan og jafnvel spaugilegan
stíl. Niðurstaðan verður sú, að
stíllinn er. í ósamræmi við efn-
ið; þau farast á mis. Stíllinn,
sem höfundur valdi sögunni, er
ef til vill . megingalli hennar
þegar öll kurl koma til grafar.
Lesandinn vantreystir í flestu
því skáldverki, sem ritað er
í „röngurn" stíl.
Málið á sögunni er sömuleið-
is skrýtinn bléndingur. Það
er einn þátturinn í ótímabærri
gamansemi höfundar að við-
hafa öðru hverju fornlegt orð-
bragð, sem ekki kemur til mála
að málarinn beiti: hún flugðist
öll á hlaupinu; sú kona er
vakna kunni snemmendis. Á
hinn bóginn ber talsvert á leið-
um málleysum: Eg dundaði
mér þarna. . . heilu dagana;
sparsemi sem afar og ömm-
ur höfðu ræktað með sér
gegnum innlent dg útlent mis-
æri — og fleira þessu líkt.
Skáldið Guðmundur Böðvars-
son vex ekki af þessari sögu,
en maðurinn hækkar: þarna
situr bóndi einn í fásinni upp-
undir fjöllum og brýtur heilann
um þau vandamál, sem at-
vinnuskáld og heimspekingar
einoka í öðrum löndum. Svona
er Guðmundur Böðvarsson
hugrakkur maður — og svona
erum við íslendingar merki-
leg þjóð, þegar öllu er á botn-
inn hvoitft.
B. B.
! Bandarríkjamenn
fá Nóbelsverðlaun
í læknisfræði
Nóbelsverðlaunum í læknis-
fræði var úthlutað í Stokkhólmi
V
í gær, og hlutu þrír Bandaríkja-
menn verðlaunin að þessu sinni
fyrir rannsóknir í erfðafræði.
Helming verðlaunanna hlutu
tveir menn: prófessor George W.
Beadle, 55 ára gamall og prófess-
or í lífeðlisfræði við verkfræði-
skóla í Kaliforníu, og E. Tatum,
sem er 45 ára og starfar við
Standford-háskóla.
Hinn helminginn hlaut svo G.
Lederberg, en hann er aðeins 33
ára að aldri og starfar við Madi-
son-háskólann ’’ Viscounsin. Hann
er meðal þeirra yngstu er hlot-
ið hafa Nóbelsverðlaun í læknis-
fræði.
Þessir þrír menn hafa unnið
brautryðjendastarf á sviði erfða-
fræðinnar og eru tilraunir þeirra
sagðar hafa jfýðingu í sambandi
við hugsanlegár krabbameins-
lækningar.
AB kynnir Haga-
Sín — á Isafirði
Síðast liðið miðviku'lagskvöld,
25. þ.m. gekkst Almenna bóka-
félagið fyrir kynningu á verk-
um Guðmundar G. Hagalíns á
ísafirði. Var kynningin með
sama sniði og sú, sem haldin
var í liátíðasal háskólans 12.
okt. í tilefni af sextugsafmæli
rithöfundarins.
Húsfyllir 'var á kynningunni
og hrifning með áheyrendum.
Umboðsmaður Almenna bóka-
félagsins á ísafirði, Matthías
Bjarnason bóksali sá um þessa
bókmenntakynningu, og róma
þeir, sem vestur fóru vegna
•hennar, undirbúning hans og
móttökur.
Almenna bókafélagið hefur í
hyggju að efna til fleiri bók-
menntakynninga úti um land
í framtíðinni.
R .*
Vetrarkáp
tir
Vetrardragtir
Flokksfonngi Almenna bókafélagið kgnnir
dæmdur til dauða rit Sigurðar Einarssonar
Foringi Framfaraflokks Suð-
ur-Kóreu, Cho Bon Gam, sem
tvisvar hefur verið í framboði
við forsetakosningar á móti nú-
verandi forseta Syngman Rhee,
hefur verið dæmdur til dauða í
Seoul, höfuðborg Suður-Kóreu.
Dómstóllinn þóttist finna
hann sekan um njósnir og sam-
vinnu við stjórn Norður-Kóreu.
Útbreiðið
Þjóðviljann
Á sunnudaginn kemur gengst
Almenna bókafélagið fyrir
kynningu á verkum sr. Sigurð-
ar Einarssonar í Holti í tilefni
af sextugsafmæli skáldsins.
Verður kynningin í hátíðasal
háskólans og hefst kl. 2.30.
Dagskrá verður eem hér seg-
ir:
Guðmundur Daníelsson rit-
höfundur flytur erindi um
skáldið, en kvæði lesa þau Guð-
björg Þorbjarnardóttir og Lár-
us Pálsson. Baldvin Halldórs-
son les eina af hinum al-
kunnu ritgerðum sr. Sigurðar,
en Þorsteinn Hannesson syngur
einsöng, lög við ljóð eftir skáld-
ið. Undirleik annast dr. Páll
Isólfsson.
Þá verður samlestur úr leik-
ritinu Fyrir kóngsins mekt.
Haraldur Björnsson og Ævar
Kvaran lesa. Loks flytur skáld-
ið sjálft kvæði.
Efnið, sem flutt verður á
bókmenntakynningunni er valið
þannig, að það veiti sem bezta
innsýn í skáldskap hans, þann
elzta sem hinn yngsta.
BOKMENNTIR
II. ARG.
- UTGEFANDI: BOKAUTGAFA MENNINGARSJOÐS -
I. TBL,
GðæssSegt rii* um þjóðhátíðina 1874, prýtt
rúmlega 150 myndum
Fyiir skömmu kom á bókamarkað mjög veglegt rit um þjóðhátíðina 1874.
Segir þar frá hátíðahöidum í ölluin sýsluin landsins. Höfundur ritsins er Bryn-
leifur Tobíasson.
Kristján þonungur IX.
Bók þessi er í sama
broti og rit þau, sem út
hafa verið gefin um Al-
þingishátíðina 1930 og
Lýðveldishátíðina 1944.
Kostakjör
Félagsmenn Bókaútgáfu
Menningarsjóðs og Þjóð-
vinafélagsins njóta ekki
aðeins þeirra hlunninda,
að fá félagsbækurnar við
Bók sú, sem hér um
ræðir, hefur að geyma
glögga og greinargóða lýs-
ingu á aðdraganda þjóð-
hátíðar, hátíðahöldunum
sjálfum og þeirri miklu
þjóðlífsvakningu, sem varð
um þessar mundir. Skýrt
er frá komu Kristjáns
konungs IX. hingað til
lands „með frelsisskrá í
föðurhendi“, ferð hans
austur um sveitir, aðal-
hátíðinni á Þingvöllum og
þjóðhátíðanhaldi í öllum
sýslum landsins. í bók-
inni birtast myndir af
fjölda manna, er koma
við sögu, Ijósmyndir frá
konungskomunni og há-
tíðahöldunum, myndir af
ýmsum spjöldum og
merkjum, er uppi voru
höfð, góðum gripum, er
þjóðinni voru gefnir,
skrautrituðum ávörpum
o. fl. Þá hefur bókin og
að geyma allmargar
myndir eftir erlenda lista-
menn, sem sóttu Island
heim í tilefni hátíðarinn-
ar. — Ýmsar þessara
v“8 „Fró óbyggðum", ný fcók eftir Pólma
Fjórtán ár eru síðan
höfundur hófst handa um
söfnun efnis í bók þessa.
Ritaði hann þá allmörg-
um mönnum víðs vegar
um land, er vel mundu
atburðina 1874, og fór
þess á leit að þeir skýrðu
frá þjóðhátíðarmimiingum
sínum. Svör bárust frá
30 mönnum úr ýmsum
landshlutum. Þessir menn
eru nú flestir látnir, en
frásagnir þeirra birtast í
bókinni og auka verulega
gildi hennar.
(Auglýsing)
mjög vægu verði, heldur
er þeim eirrnig gefinn
kostur á að fá aukabæk-
ur útgáfunnar með um
20% afslætti. Eftir því
sem útgáfa aukabóka fær-
ist í vöxt, eftir því eru
þessi hlunnindi mikil-
vægari. Skal vakin at-
hygli á því, að þeir fé-
lagsmenn, sem kaupa 5
helztu aukabækur útgáf-
unnar í ár, fá afslátt af
þeim sem nemur heldur
hærri upphæð en félags-
gjaldið er. Fyrir félags-
gjaldið fá þeir sex bækur,
samtals um 1300 bls. að
stærð.
Gerizt áskrifendur og
njótið þessara mikilvægu
hlurminda. Félagsmenn,
kaupið jólabækurnar hjá
eigin forlagi og sparið
með því fé!
Afgreiðslan er að
Hverfisgötu 21 í Reykja-
vík. Umboðsmenn hefur
útgáfan um land allt.
Höfundur Njáiu
Meðal útgáfubóka vorra
í ár ér rit Barðá Guð-
mundssonar þjóðskjala-
varðar, Höfundur Njálu,
Hefur nokkm’ hluti rits-
ins áður birzt í blö'ðum
og tímaritum, en fimm
ritgerðir eru hér prent-
aðar í fyrsta sinn. Bók
þessi hefur að geyma
stórmerka rannsókn á
einu mesta listaverki ís-
lenzkra bókmennta. Hún
ér mjög vel rituð og víða
bráðskemmtileg aflestrar.
— Skúli Þórðarson mag-
ister og Stefán Pjetursson
þjóðskjalavörður hafa
annazt útgáfu bókarmnar.
Ritar Stefán greinargóðan
inngang, er nefnist: Hin
nýja Njáluskoðun.
Félaqsbœkurnar
1958
Félagsbækur Menn-
ingarsjóðs og Þjóðvinafé-
lagsins munu koma út
um miðjan nóvember-
mánuð. Bækurnar eru
sex, samtals um 1300 bls.
Nú eins og í fyrra
verður félagsmönnum gef-
inn kostur á nokkru val-
frelsi. Brátt verður nánar
sagt frá árbókunum og
tilhögun valfrelsisins.
Hesnnessoii/ fsgur ósíur til Sonds og tungu
Meðal útgáfubóka
Menningarsjóðs og Þjóð-
vinafélagsins í ár er
önnur bókin í flokki rita
þeirra, sem Pálmi Hannes-
son rektor lét eftir sig. í
fyrra kom út bókin
„Landið okkar“, safn út-
varpserinda og ritgerða,
aðallega um ísland, landið
sjálft, íslenzkt þjóðerni,
sögu og tungu. Bók þess-
tekið, svo sem hún átti
skilið. Seldist hún mjög
vel, og er upplagið senn
á þrotum, þótt stórt væri.
Hin nýja bók Pálma „Frá
óbyggðum“, hefur að
geyma snjallar ferðasög-
ur, bráðlifandi lýsingar ó
íslenzkum öræfaslóðum
og allmarga kafla úr dag-
bókum, er höfundur hélt
jafnan á ferðalögum sín-
ari var frábærlega vel I um.
Bók þessi er, eins og
hin fyrri, rituð á þrótt-
miklu og litauðugu máli.
Má hiklaust kveða svo að
orði, að hún sé fagur
óður til lands og tungu.
Bókin er prýdd ágæt-
um myndum, sem Pálmi
Hannesson tók á ferða-
lögum sínum. Hún er
nokkru stærri en „Landið
okkar", í sama broti og
hún og svipuð að frágangi.
MAðKðÐliSINN
Laugaveg 89.
Hafnarfjörítar
Þjóðviljann vantar böm til blaðburðar í
vesturhluta suðurbæjar.
Talið við Sigxúnu Sveinsdóitur. Skúlaskeiði
20, sími 50648
Happdrættið biður útsölumenn sína að herða söluna og gera
jafnóðum skil fyrir selda miða. — Þeir, sem þegar hafa selt
sína miða, ættu að koma í skrifstofuna og taka viðbót. Þeir,
sem enn hafa ekki fengið miða, en taka vilja þátt í sölunni,
ættu að koma sem allra fyrst og sækja sér miða eða hringja
í síma 17500 og verða miðamir þá sendir.
Látum nú hendur standa fram úr ermum.