Þjóðviljinn - 08.11.1958, Page 6
6) —■ ÞJÓÐVILJINN — Laugardagur 8. r.óvember 1958
gHÓÐVILJINN
ÚtKefandi: Sameir.ingarflokkur olþýðu — Sósíalistaflokkurinn. — Rltstjórar:
Masnús Kjartansson (áb.), Sigurður Guðmundsson. - Fréttaritstjóri: Jón
BJarnason. — Blaðamenn: Ásmundur Slgurjónsson, Guðmiindur Vigfússon,
ívar H. Jónsson. Maenús Torfi Ólafsson, Sigurjón Jóhannsson, Sigurður V.
Friðbiófsson. — Auglýsingastjóri: Guðgeir Magnússon. — Ritstjórn, af-
greiðsla. auglýsingar, prentsmiðja: Skólavörðustíg 19. — Sími: 17-500 (5
línur*. — Áskriftarverð kr. 30 ó món. í Reykjavík og nágrenni; kr. 27 ann-
ersstaðar. - Lausasöluverð kr. 2.00. — Prentsmiðja Þjóðviljans.
s___________________:________
„Lofívarnir” íhaldsins
og hernámið
Ulfhildur frá Efstahœ: III
Vondir menn í Kreml
og vestræn góðmenni
í bæjarstjórnarfundi í fyrra-
dag lagði Alfreð Gíslason,
bæjarfulltrúi Alþj'ðubandalags-
ins fram tiilögu um að ioft-
varnarnefnd yrði leyst frá
störfum um næstu áramót og
henni gert að skyldu að gera
Jokagrein fyrir þeim störfum
sem unnin hafa verið á hennar
vegum á undanförnum árum,
svo og .tillögum sínum ef ein-
hverjar væru varðandi skipun
-þessara mála framvegis.
T framsöguræðu gerði Alfreð
grein fyrir flutningi tillög-
unnar og voru rök hans rak-
in hér í blaðinu í gær. íhaldið
brást mjög ókvæða við til’ög-
unni og rökum Alfreðs Gísla-
sonar. Hver af öðrum sáu þeir
sig til neydda að koma upp
í ræðustólinn til varnar loft-
varnarhneyksli íhaldsins, Gunn-
ar Thoroddsen, Geir Ha’lgríms-
son, Þorvaldur Garðar Kristj-
ánsson og Björgvin Frederik-
sen. Var greinilegt af ræðum
þessara íhaldsmanna allra að
enn brennur sú sök á flokki
Þeirra sem upplýstist í bæjar-
stjórnarkosningunum i fyrravet-
ur, þ.e. sú eindæma sóun og
siðleysi sem í því birtist að
eyða á nokkrum árum um 10
milljónum króna af almannafé
til svonefndra ioftvarna hcr í
-bænum.
Sök ráðamanna íhaldsins ligg-
ur í tvennu. í fyrsta lagi
hafa þeir allra manna mest
að því unnið að* íslandi var
flækt inn í handalag styrjald-
arþjóða, erlendur her kvadd-
ur til landsins og honum ieyft
að gera landið að víghreiðri
í hugsanlegum átökum miili
stórveldanna. I öðru lagi hafa
forkóifar í'naldsins notað þá
hættu, sem yfir þjóðina hefur
verið ieidd fyrir þeirra eigin
tiiverknað, til einhverrar fá-
uýtustu sóunar með almanna-
fé sem um getur. Eftir að hafa
kaliað eriendan her inn í land-
ið er sett á laggirnar rándýrl
bákn undir forustu svonefndr-
ar loftvarnanefndar, sem tek-
izt hefur að sóa 10 milljónum
kr. af fé Reykjavíkurbæjar og
ríkisins á hinn furðulegasta
hátt á fáum árum. Eru um það
margar sögur og ekki ailar
fagrar hvernig þessu íhalds-
bákni loftvarnarnefndar hefui
tekjzt að koma f.vrir þejm
milljónum af fé a’mennings
sem eytt hefur verið með þess-
um hætti.
Engir neita því að íslending-
ar og þá ekki sízt íbúar
Reykjavíkur og annarra þétt-
býlustu staðanna í náunda við
heiztu víghreiður Bandaríkja-
manna séu í geigvænlegri
hættu staddir ef til ófriðar
dregur. Um það hafa hernáms-
flokkarnir, undir forustu Sjálf-
stæðisflokksins, jséð með á-
byrgðarlausu framferði sínu.
Eljtt er svo jafn víst, að eftii
að kjarnorku- og vetnissprengj-
ur komu til sögunnar sem múg-
morðs- og eyðingartæki í
styrjöid ásamt langdrægum
eldfiaugum og öðrum nýtízku
vígvélum stórveldanna, er það i
barnaskapur einn og blekking
að taia um loftvarnir sem já-
kvætt framlag til verndar og
björgunar mannslífum ef styrj-
aldarbrjáiæði skellur á. Það
er raunar meira en furðulegt
að til þess að halda slíku fram
skuli fást sæmilega vitibornir
menn, En þó mun helzta skýr-
ingin sú, að hér hefur faiizt
gott tækifæri til að telja fólki
trú um að í loftvarnai-bramli
til viðbótar hinni margrómuðu
„hervernd“ felist umtalsvert ör-
yggi fyrir almenning. Þetta er
þó auðsæ blekking. Hemám
Bandaríkjamanna setur Islend-
inga í fremstu víglinu í styrj-
öld ef af henni verður, og þá
hrökkva þær ,,loftvarnir“
býsna skammt sem íhaldið hef-
ur sóað fé almennings í á und-
anförnum árum, enda er al-
þjóð um það kynnugt að þær
eru hégóminn einber og raun-
verulega engar aðrar en kaup
á hjúkrunargögnum og bruna-
slöngum sem liggja undir
skemmdum. Eða hvar eru loft-
vamabyrgin sem Reykvíking-
um eru ætluð sem vistarver-
ur ef svo ilia fer að stórveld-
unum lendi saman og íslend-
ingar fá að súpa seyðið af
þeirri glæpsamiegu ráðs-
mennsku hernámsmanna að
gera iand þeirra að einum
þýðingarmesta hlekknum í víg-
búnaðarkeðju Bandaríkja-
manna?
essi blekking íhaldsins í
loftvarnarmálum er stór-
léga vítaverð og þá ekki síð-
ur sú meðferð á almannafé
sem átt hefur sér stað í sam-
bandi við hana. Það er því
vissu’ega tímabært að þessum
skrípaleik verði hætt og loft-
varnanefndin lögð niður eins
og Alfreð Gíslason hefur lagt
til og rökstutt í bæjarstjórn.
Ríkissjórnin á þakkir skilið en
ekki ávítur fyrir þá ákvörðun
að hætta greiðslum i þessa
hringavitleysu íhaldsins. Rík-
ið hefur annað og þarfara með
þá peninga að gera sem það
innheimtir af skattþegnunum.
Og trúlega eru þeir Reykvík-
ingar ekki fáir sem_ telja að
bæjarféiag þeirra gaeti einn-
ig varið fjármunum sínum af
meiri skynsemi og fyrirhyggju
en lýsir sér í þeirri ráðs-
mennsku sem frægust er í sam-
bandi við loftvarnarnefnd og
starfsemi hennar.
Sigurður klerkur í Holti og
Sigurbjörn prófessor eiga
lengstar greinar í Félagsbréf-
um Almenna bókafélagsjns.
Þar að auki eru þeir %rðnir
sjálfsagðastir ræðumenn, þegar
forsvarsmenn auðvaldsins á ís-
landi þykjast fyllast mann-
kærleika og vilja endilega
halda fund. Þessir tveir Einars-
synir eru ólíkir á að . heyra,
þó að báðir noti skrúðmælgi
annað veifið, bölvi mikið og
séu fjarskalega orðijótir hitt
veifið. Það, sem helzt sundur-
greinir þá, er það, að prófess-
orinn er betri leikari og tekst
stundum að láta líta svo út,
sem mikil og heilög alvara
fylgi máli hans. Þá list kann
presturinn ekki. Alvara hans
er þeirrar tegundar, að manni
verður helzt á að kenha í
brjósti um hann og líta á hann
sem rekald, sem rekið hefur
á fjörur ýmissa málefna, en
orðið til lítils nothæít, þó að
fyrirferðin væri mikil. Þessir
tveir, sem Almenna bókafélag-
ið reynir nú að notast við sér
og málefnum auðvaldsins til
þurftar, eiga það sameiginlegt
öðrum flóttamönnum, að þegar
þeir taka að skrifa ádeilur á
sósialismann, sem þeir ávallt
kalla kommúnisma án frekari
skilgreiningar, þá taka þeir
strax að rekja ávirðingar
rússneskra yfirvalda. Þessjr
tveir og margir aðrir tala stund-
um um ástkært frelsið og
blessað lýðræðið, en þeir tala
aldrei um blessað auðvaldið.
Hvers vegna ekki? Þeim ber
þó skylda til að uppfræða okk-^,
ur alþýðufólkið úr því þeir.
vilja vera mannkynsleiðtogar.
Við vitum ekki til, að neitt
nýtt sé komið við sögu, sem
sýni yfirburði kapítalismans
yfir sósíalismanum. Um þessa
tvo isma var stundum rætt hér
í gamla daga og andstæðing-
ar sósíalismans höfðu þá sín
rök fram að færa t.d. um
frjálsa samkeppni og ejnstak-
lingsframtak, einnig höfðu þeir
þá sitt að segja móti þjóðnýt-
ingu kvenna, sem þeir töldu
mjög yfjrvofandi. Nú eru menn
þessarar tegundar löngu hætt-
ir að tala þann veg fyrir skoð-
unum sínum. Þejr eru mejra
að segja hættir að tala gegn
þjóðnýtingu kvenna. Öll rök
þeirra, öll lífshugsjón þeirra
beinast að því einu að sýna
fram á fantaskapinn í Kreml.
Það er ekki vegna þess að
mig langi sérstaklega til að
gera þessum mönnum greiða,
að ég vil segja þeim, að allur
þessi djöfulgangur þeirra um
fantaskapinn í Kreml snertir
okkur hér á Efstabæ ekki
minnstu vitund. Þeir verða að
hitta á betri rök til að sann-
færa okkur um giidi skoðana
sinna. Ég vil geta þess, að
Sennilega værum við hér á
Efstabæ öll fylgjandi sósíal-
demókrötum að minnsta kosti
í flestum innanlandsmálum, ef
ekki væri hjá þeim að fjnna
einnig þemnan skitoiingsvana
ótta við stjórnina í Kreml.
Þau rök sem hrundu af stað
sósíaljsma og það meira að
segja öllum tegundum hans,
eru frá sjónarmiði okkar hér
enn til staðar. Kapjtalisminn
er enn hinn sami ,og hann var
og hefur verið og mun halda
áfram að fæða af sér uppreisn-
ir, byltingar og styrjaldir. Það,
sem breytzt hefur og einkum
vjð tvær heimsstyrjaldjr, er
ekki eðli kapitalismans og
auðhringa hans, heldur er
breytingin sú, að lífsskoðun
sósíalismans hefur vaxið um
allan heim og sósíaldemókrat-
ar og kommúnistar komizt til
valda í hverju ríkinu eftir ann-
að. Byltingin í Rússlandi er
sögulegasti atburðurinn í þeim
áföngum, sem teknir hafa ver-
ið, unz þangað er komið, sem
við erum nú. Hún er söguleg-
ust, en ekki vegna þess hvern-
ig hún gerðist, heldur vegna
þess, sem varð. í skjóli at-
burðanna, sem urðu þar aust-
urfrá, höfum við hér vesturfrá
öðlazt það frelsi sem við stát-
um af. Ég á þó ekki við full-
veldi íslands 1918, en einnig
það hefði veri& óhugsandi, ef
víða hefði ekki kviknað frá
þeim eldi, sem brann i austr-
inu. Ég á einkum við það frelsi,
sem verkaiýðssamtök allra
Vestur-Evrópulanda fundu and-
blæ af og sem gaf þeim mátt-
inn til að verða meira og meira
ráðandi afl í heimalandi sínu.
Það er staðreynd, hvort sem
hún þykir góð eða ill, að hvort
sem menn eru að kalla sig
kommúnista, jafnaðarmenn eða
Framsóknarmenn, þá hafa þeir
allir í fjörutíu ár fengið að
v'era til vegna þeirra, sem
sátu í Kreml þessi ár. Hefði
þeim ekki tekizt byltingin þar
eystra, hefði heimsauðvaldið
fljótt tekið fyrir kverkar svona
lireyfjnga, ejns og það líka
mun strax gera, ef það gæti
komið þeim í Kreml fyrir katt-
arnef. Auðvaldið sést ekki fyr-
ir, þegar það er komið í víga-
hug. Það hefur aldrei gert
það og mun aldrei gera það.
Ég hef grun um að mennirnir
við Morgunblaðið á íslandi
muni ekki, hve grimmt það get-
ur orðið og þess vegna fylgi
þeir því að málum. Við hér í
Efstabæ, sem eldri érurn að
árum, munum vel kreppuárin
eftir 1930. Við munum hvert
áhangendur auðvaldsins srieru
vopnum þá, þó að ýmsir þeirra
virðist hafa gleymt því nuna.
Við vissum, hvað auðvaldið
vildi, en þorði ekki. Við mun-
um fögnuð þess og eftirvænt-
ingu, þegar hinn kjarkmikli
maður þess Adoif Hitler kom
og þorði. Við munum hverjium
hann sagði fyrst strið á hend-
ur. Það voru verkalýðssamtök
og fantarnir í Kreml. Þá.-fór
svo mikil fagnaðaralda um hinn
svokallaða lýðræðisheim, að
burgeisar hans sóðu á öndinni
lengi og sendu út á strætin
sonu sína og dætur, sem veif-
uðu hakakrossfánum við öskur-
æfingar um vonda menn í
Kreml. Rödd fulltrúa Sovét-
Framhald á 10. síðu.
Teikning Ben. Gunn.