Þjóðviljinn - 09.11.1958, Side 1
Sunnudagur 9. nóvember 1958 — 23. árgangur — 256. tölublað
Æ.F.R.
Milfundahópurinn. tekur fii
starfa í dag klukkan 1.30.
Nýr samningur frá 1. þ.m. gildir um alla Vestfirði
Þing Alþýðusambands Vestfjarða samþykkti að leita
eftir hliðstæðum kauphækkunum og Dagsbrún samdi um
á sl. hausti. Samningar við Vinnuveitendasamband Vest-
fjarða gengu greiðlega og gekk nýr kaup- og kjarasamn-
ingur í gildi 1. þ.m. og nær samningurinn til allra félaga
innan A.S.V. en innan þess eru um 1950 félagsmenn.
Helztu breytingar, sem urðu á
fyrri samningi, eru þessar: Kaup-
gjaldsliðirnir hækkuðu um 9,5%
þó einstaka meira. Nokkrar til-
færslur til hækkunar urðu milli
kaupgjaldsliða. Kaup barna, sem
áður var til 14 ára, var tvískipt,
— þannig að kaup barna til 12
ára aldurs hækkaði um 9,5%,
en kaup barna 12—14 ára var
hækkað um tæp 46%, og það
ennfremur ákveðið, að ef börn
vinni við löndun úr togara, þá
sé þeim greitt kvenmannskaup.
Það jafnframt fram tekið, að ó-
heimilt sé að börn vinni slíka
vinnu nema brýna nauðsyn beri
til að fullgildir verkamenn ófá-
anlegir til starfsins.
Nýtt ákvæði þess efnis, að ef
menn vinna í frystiklefum (mat-
vælageymslum), ef hún stendur
yfir 4 klst. samfleytt og í frysti-
lestum skipa, sé greidd með
hærra kaupi en áður var. Oll
vinna í frystiklefum skal þó
aetíð greidd með hærra kaupinu,
ef hún er unnin í sambandi við
útskipun.
Nýtt ákvæði þess efnis, að ef
Fundur Norður-
landaráðsins
hefst í dag
Norðurlandaráð kemur sam-
an til fundar í Osló í dag og
sækja um 100 Norðurlandaþing-
menn fundinn.
Eitt aðalumræðuefni á fund-
inum verður hið svokallaða frí-
verzlunarsvæði Evrópu, og auk
þess tollabandalag Norður-
landa.
Hfifcil kjörsókn
í Færeyjum
Kosningar til Lögþings Fær-
eyinga fóru fram í gær. Kjör-
sókn var mjög mikil þrátt fyrir
slæmt veður, enjókomu og
storm. Var kjörsókn mun betri
en í síðustu kosningum 1954. -
Kosningabaráttan var mjög
hörð að þessu sinni, og var
deilan um fiskveiðilögsöguna
eitt aðalhitamáiið.
Eftir síðustu kosningar var
þingmannatala flokkanna sem
hér segir: Sambandsflokkur 7,
Þjóðveldisflokkur 6, Fólkaflokk
ur 6, Sósíaldemókratar 5, Sjálf-
stjófnarflokkur 2 og Fram-
sóknarflokkur 1.
Kosningaúrslit venða. kunn i
dag.
bifreiðarstjóri annast önnur
störf ásamt stjórn bifreiðarinn-
ar, þá skuli hann hafa hærra
kaup.
Kaffilímarnir að nóttinni, sem
voru 15 mínútur hverju sinni,
lengdir í 20 mínútur, og þeir
jafnframt færðir til, t. d. að
kaffitíminn, sem var kl. 23.45
verður nú kl. 23,00—23,20. Ef
verkamenn eru boðaðir til vinnu
að deginum, skal þeim nú greitt
minnst 2 stundir, en var áður
ein stund.
Þegar vinna var ieyfð eftir
hádegi aðfangadag stórhátíða var
Framhald á 5. síðu.
Brezkir borgarar á Kýpur fá
vopn í hendur gegn innfæddum
Tveir brezkir hermenn vegnir á eynni í gæi
— Búizt við auknum viðsjám á næstunni :
Dalfng hershöfðingi, sem stjórnar hernaðaraögerðum
Breta á Kýpur gegn EOKA-mönnum, hefur látið það
boö út ganga, að allir brezkir karlmenn á Kýpur skuli
fá vopn í hendur. Er þetta gagnráðstöfun Breta gegn
morðum þeim, sem hermdarverkamenn hafa framið á
brezkum borgunim á eynni til að mótmæla aðgeröum
Breta á Kýpur.
Þá sagði Daling, að brezki
herinn myndi æfa borgarana í
vopnaburði og veita þeim alla
leiðsögn í því að berjast við
griskumælandi menn á eynni.
Hugh Foot, landstjóri Breta
á Kýpur sagði að Bretar myndu
gripa til hvaða ráða sem væri
til að vernda Breta á eynni og
myndu brezkir borgarar og her
sameinast til að berja á Grikkj-
um því að vitað væri að átök
væru í vændum.
Tveir hermenn vegnir
I gær voru tveir brezkir her-
menn drepnir á Kýpur og a!l-
margir aðrir eærðir, þar af
tveir hættulega. Skeði þetta
með þeim hætti að sprengju
var varpað að flokki hermanna
á flugvelli á eynni.
Átviiiiiulcysið í
Bandaríkjunum
1
Verkalýðssamband Banda-
ríkjamanna hefur krafizt þess
að ríkisstjórn landsins geri rót-
tækar ráðstafanir til þess að
útrýma hinu mikla atvinnuleysi
í landinu.
Sambandið leggur til að 5
þessum tilgangi leggi ríkið fram
mikið fé til opinberra fram-
kvæmda.
Þetta er bygging blindra-
heimilis Blindrafélagsins.
eins og hún er nú, en full-
gprð verður hún stór og
glœsileg bygging, par sem
verða íbúöir, vinnustofur,
bókasafn o.fl. — í stuttu
máli fullkomið blindralieim-
ili. Það er félag blinda fólks-
ins sjálfs er stendur fyrir
þessari framkvæmd, en
stjórn pess er að meirihluta
skipuð blindum mönnum.
— í grein er Skúli Guöjóns-
son á Ljótunnarstöðum
skrifar á 7. síðu Þjóðviljans
í dag er mynd af sama stað
og myndin hér aö ofan, tek-
in pegar byrjaö var á
grunni bUndraheimilisins
fyrir tveim árum. — Takið
vel börnunum með blindra-
merlcið í dag!
Dýrti verði skcd þœ§ keypt csð fá
Fjjögur hership eg eitt foirgðaship til
eermdar einum resselmm þ$ófi í gmri
Cockroft fcr til
Sovétríkjanna
John D. Cockroft forseti
kjarnorkurannsóknastöðvar
Stóra-Bretlands Jagði af stað
frá London í gaer í \nkulanga
heimsókn til Sovétríkjanna.
Fer hann. í boði sovézku vís-
indaakademíunnar.
Síöastliðna viku hafa brezkir togarar stöðugt stundaö
veiðar innan fiskveiðitakmarkanna hér við' land. Fjögur
herskip Bretastjórnar vernda veiðiþjófana, auk eins
birgðaskips, en í gær var aöeins einn vesæll brezkur veiði-
þjófur í landhelgi! — Brezkur almenningur er látinn
borga kostnaöinn af því aö Bretar fái að heita þjófar. —-
Eftirfarandi upplýsingar eru frá landhelgisgæzlunni í
gær:
Þessar veiðar hafa ávallt
farið fram á sérstökum vernd-
arsvæðum brezku herskipadeild-
arinnar. Tvö þessara verndar-
svæða hafa verið fyrir Vest-
fjörðum og eitt fyrir Austur-
landi, annaðhvort útaf Langa-
nesi, eða útaf Seyðisfirði. Þó
hefur ekkert verndarsvæði vcv-
ið opið fyrir Austurlandi síðan
á liádegi í gær, en þá tilkynnti
freigátan DUNDAS togurunum,
scm þarna voru að veiðúm, að
svæðinu yrði lokað um óákveð-
in tíma.
í byrjun vikunnar gekk
hvassviðri yfir landið. Brezku
togararnir, sem voru að veið-
um innan markanna fluttu sig
þá útfyrir mörkin og héldu þar
sjó ásamt herskipunum unz
veðrið lægði.
Alls hafa fjögur brezk her-
skip verið liér við land í þess-
ari viku, en þáu eru tundur-
spillarnir LAGOS og HOGOS,
og freigáturnar ZEST og DUN-
DAS. Þá hefur einnig verið hér
birgðaskip f.yrir brezku her-
skipin.
I morgun var aðeins einn
brezkur togari að veiðum inn-
an fiskveiðitakmarkanna hér
við land. Var togari þessi að
veiðum í Isafjarðandjúpi, eina
sjómílu innan takmarkanna. Ut-
af Önundarfirði voru nokkrir
brezkir togarar að veiðum um
og utanvið fiskveiðitakmörkin.
Er greinilegt að fiskur stendur
nú dýpra fyrir Vestfjörðum en
verið Iiefur, því kunnugt er um
allmarga togara, sem eru að
veiðum djúpt undan landi.
Fyrir Austfjörðum var hins-
vegar etormur í morgun og
héldu nokkrir brezkir togarar
sjó útaf Dalatanga.
Af öðrum fiskislóðum um-
hverfis land er ekkert sérstakt
að frétta, en vitað er um all-
marga. togara ,að veiðum utan
12 • sjómílna markanna fyrir
Suðurlandi.