Þjóðviljinn - 15.11.1958, Blaðsíða 9

Þjóðviljinn - 15.11.1958, Blaðsíða 9
4X ÓSKASTUNDIN Laugardagxir 15. nóvember 1958 — 4. argangur — 37. tölublað Urn daginn birtum við mynd af afmælisboði og óskuðum eftir vísu um frá lesendum okkar. Það stend- ur ekki á vísunum — hér kemur heilt kvæði. Óskastundin notar tækifærið til að óska öllum afmæl- isbörnum í dag til hamingju. Kvæðið er frá Böðvari Guðlaugs- syni. zAfmœlisveisldn hennar Tótu Tóta litla. Tóta litla er tíu ára í dag. Vinum vill liún bjóða í veizlu eina góða. Veizla sú, já, vitið bið nú, hún var með rausnarbrag Mamma bakar, mamma bakar mar’gan góðan snúð- Tóta, litla Tóta tíndilfætt má L'jóta ótal ferðir, ótal ferðir út í næstu búð. Allra seinast, allra seinast inn á borðið fór frumrétturinn fínj á fati úr- postulíni: rjómaterta, rjómaterta rosalega stór. Boðsgestirnir, boðsgestirnir borðið setjast við. Sjáið káta krakka kræsingarnar smakka glöð í bragði, glöð í bragði að góðra bania sið. ILátltu ekki, láttu ekki líða yfir þig'. Satt er bezt að segja: sa eg nu einn pey.ia tertustykki, stærðarflykki stinga upp í sig. Ógn er kátur, ógn er kátur’ allur hópurinn. ÖII sú æskugleði yljar mömmu geði. Öllum bauð hún, öllum bauð aftur í bollann sinn. hún Kárnar gaman, kárnar gaman, kyrrist hópurinn. Lítil telputáta trúi ég færi að gráta, af því liún hellti, af því lnin hellti oní kjólinn sinn. Vakír aftur, vakir aftur veizlugleðin Ijúf. Stebbi litli stutti stóð þá upp og flutti ofurlítinn, æðiskrýtinn aiinæMsræðustúf. Börnin áttu, börnín áttu býsna glaðan dag. Léku Ijóð á tiungu, litlu skinnin sungu. Og þau sungu, og þau sungu einmitt þennan brag. Ritstjóri Vilborq Dagbjartsdóttir Utgefandi Þjóðviljinn Dagur í sveitinni (Dagbókarbrot) Þegar ég vaknaði fana éa goluna frá opnum glugganum streyma inn ' herbergið. Eg fór á fætur og leit út um gluggann og sá að það var renn- blautt á en gott veður. Eg fór niðlir' í' eldhus og borðaði grautinn minn. Svo fór ég að tala við Stínu og við ákv’áðum að fara yfir í Hlíð og tína ber éftir hádegið. Eg tefldi eina skák og svo var farið að borða. Síðan fór ég og náði. i mörg box til að tína ber- in í. Nú var allt tilbúið og við lögðum af stað. Okk- ur gekk vel að vaða yfir ána, því að hún var ekki mjög mikil. Við gengum út veginn og síðan upp hlíðina. Þar er mjög golt jútsýni og sézt nærri því um allan dalinn, Himinn var grár og drungalegur og rigning úti á ströndum. Við höfð- um hugsað okkur að fylla öll boxin, en ekki höfð- um við tínt lengi þegar flóðgáttir himinsins opn- uðust og rigningin steypt- ist úr loftjnu í stríðum straumum, Það var eins og margir litlir lækir kæmu úr loftinu og á fá- einum mínútum varð svo blautt að við urðum að hætta. Þá lögðum við af stað niður hlíðina og heim á leið. Við urðum strax gegn- blautar, en við flýttum okkur samt ekkert. Þegar við komum heim fórum við að þurrka af okkur bleytuna og skoða mynd- ir. Eftir kaffi kom ágætt veður. Þá fór ég upp fyr- ir tún að tína bláber. Þegar ég kom heim aftur fór ég í reiðtúr með Ásu og Stínu. Fyrst fórum við hægt' en svo fórum við að hleypa hestunum. Ása og Stína voru oftast langt á undan mér. Þegar. við vorum komnar út hjá Spágilsstöðum snerum við heim. Þegar þangað kom var klukkan orðin hálf níu og allir búnir að borða nema við. Eg fór að hlusta á þáttinn „f stuttu málh* og svo fór ég að sofa og mig dreymdi margt og mikið........ H. K. 12 ára. Fyrir stuttu efndum við til samkeppni um bezta dagbókarþáttinn og væntum þess að fá .helzt frá ungp stúlkunum. Verðlaunín eru bókin Ung og aðlaðandi eftir Olgu Golbæk. H. K. fær bókina í næsta pósti með kveðju frá Óskastund- inni. G Á T A Um morgna skríður á fjórum fótum, en fer á tveim um miðjan daginn og dregst á þrem um dagsetur heim. — Laugardagur 15. nóvember 1958 ÞJÓÐVILJINN (9 A ÍÞRðTTIR HTTSTJOlU> nlMAHn USUCASOK Handknattleiksmótið: IR-Aimann og Fram-Valur geta orðið jafnir leikir Búlgaría vann Balkanleikina Handknattleilcsmót Reykja- víkur heldur áfram um helgina og fara fram átta leikir í kvöld í yngri flokkunum. Á morgun eru svo f jórir leik- ir í meistaraflokki, einn í kvennaflolcki og þrír í karla- flokki. Vafalaust geta tveir þessara leikja orðið jafnir og epennandi, ef allt lætur að lík- um. Það er í fyrsta lagi IR og Ármann, en þar gæti farið svo að Ármenningar yrðu ÍR- ingum erfiðir. Þó að Ármann eigi nokkuð misjafna leiki þá virðist sem liðið sé að fá meiri festu og öryggi. Hitt er svo annað mál að ef maður skoðar einstaldinga liðanna finnst manni sem ÍR ætti að vinna örugglega, en það er eins og þeim gangi illa að ná verulega jákvæðum leik. Leikur Fram og Vals gæti líka orðið jafn og skemmtileg- ur, og takist Val verulega upp gæti svo farið að Fram yrði að gæta sín. Valur hefur í flestum leikjunum náð betri leik en búizt var við af liðinu eins og það ©r í dag. Fram hefur líka sýnt betri leik en áður óg er þegar allt kemur til alls líklegri til sigurs. Þriðji leikurinn, sem er milli Víkings og KR, má gera ráð fyrir að verði einhliða sókn af KR-inga hálfu, enda er KR sterkasta liðið en Vík- ingur annað lakasta liðið í keppninni. í meistaraflokki kvenna eru það Fram og Þróttur sem eig- ást við og getur sá leikur orð- ið jafn og skemmtilegur, þótt hvorugt liðið sé komið í þjálf- un enn þá. Fyrsti leikur sunnudags- kvöldsins er á milli Vals og Ármanns í 2. flokki kvenna. I kvöld fara þessir leikir fram: — 2. flokkur kvenna A. Þróttur — Vikingur, KR — Valur, Ármann — Fram. — 3. flokkur karla B. Víkingur B. —• Víkingur C., Ármann — Valur, Víkingur — Fram, KR >— Ármann; ÍR — Þróttur. ds Silva gerisí leikari Þær eru nýjastar fréttir af okkar ágæta vini da Silva, sem hingað kom í sumar til einvígis við Vilhjálm Einarsson, að hann er byrjaður að leika í kvikmynd. Er hann talinn mjög efnilegur leikari, en ekki er farið að sýna myndina ennþá. Þetta er ekki íþróttakvikmynd, svo það er engin hætta á því að hann verði útilokaður frá keppni, af þeim sökum. Hinir svonefndu Balkanleikir fóru að þessu sinni fram í Sofia í október. Sigurvegari í keppninni var Búlgaria og kom það nokkuð á óvart. Fengu Búlgarar 133,5 stig, en Júgó- slavar 124 stig, Júgóslavía var talin líklegur sigurvegari fyrir Sviss býðor sov- éskom ísknatt- leiksin. heim í fjö’da ára hefur Sviss ekki viljað hafa samband við Sov- ét-íþróttamenn og ekki viljað bjóða þeim heim og ekki þiggja boð heldur. Hefur þann- ig verið um að ræða nokkurs- konar slitið íþrótta-stjórnmála- samband milli landanna. Þó var það ekki svo að sovét-iþrótta- mönnum væri meinað að koma þangað á alþjóðamót, eins og t. d. E.M. í frjálsum íþróttum, er þar fór fram 1954, og heims- meistaramót hafa þeir líka mátt sækja þangað. Nú hefur brugðið svo við, að Svisslendingar hafa, að því er virðist, slegið striki yfir liðna tímann, og boðið landsliði Rússa í ísknattelik að koma til Sviss og taka þátt í vígslu á nýjum vélfrystum ísleik- vangi í Gefn, en hún fer fram í lok þessa mánaðar. keppnina. Rúmenía fékk 109, Grikkland 107,5 og Tyrkland 30 stig. Á mótinu voru sett mörg þjóðamet, og mótið talið skemmtilegt. Bezti árangur: — 100 m hlaup Batvaroff B. 10.4, 200 m Batsvaroff B. 21.2, 400 m Snjader J. 47,0 met. 800 m Murat J. 1.50.0, 1500 m Murat J. 3.43.8, 10 000 m Gregescu B. 30,24,0, 110 m grindahlaup Lorger J. 14.00, 400 m grind, Savel R. 52.6, hástrkk, Sahin- er T. 2,01, langstökk, Marihoff B. 7.37, stangarstökk, Rouban- is G. 4.46, Þrístökk, Gourgou- siloff B. 15.87, kúluvarp Art- arski, B 17,16, kringukast Art- arski B. 53.11, spjótkast Bezim- J. 72,36, sleggjukast Kroumoff B. 61,63, tugþraut Slavkoff B. 6,746 stig. 4x100 m Bulgaria 41,5 met.. 4x400 m Búlgaría 3.12.3, met. Júgóslavía 3.12.4. Keflavík — i Suðurnes | Innlánsdeild Kaupfélags Suðurnesja greiðir yður hæstu fáanlega vexti af iimstæðu yðar. 1 Ávaxtið sparifé yðar hjá oss. KAUPFÉLAG SUÐURNESJ\ Faxabraut 27, Keflavik.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.