Þjóðviljinn - 25.11.1958, Síða 7
Þriðjudagur 25. nóvember 1958 — ÞJÓÐVILJINN — (7
írá
tungli
— Höndina á hjartað, Svavar
Guðnason: til hvers máiar þú?
— Til hvers ég mála? Ja. . .
það veit ég ekki. Með leyfi:
til hvers lifir þú?
Þannig hefst þetta samtal, í
styttingi, kuldalega. Og það er
iíka kalt íf Listamannaskálan-
um ki.- 10.58 á surinudagsmorg-
uninri..
— Mér dettur stundum í hug
atvik austan úr Hornafirði,
þegar ég kem inn í Lista-
mannaskálann, segir Svavar.
Það var formaður sem hét Sig-
urður, og hann var eitt sinn á-
varpaður á þessa leið: Góðan
daginn, Sigurður minn. það er
blessuð bliðan. En Sigurður
stóð víst ekkert sérstaklega
upp á góða tíð, enda svar-
aði hann: Gú da, helvítis
djöfuls blíða. Það á að heita
að Listamannaskálinn haldi
vindi og vatni, en blíðan hans
er að öðru leyti ekkí hrósverð.
Þú aettir að láta konuna þína
setja upp veðurathugunarstöð
hérna í norðausturhorninu.
— Hvað eru margar myndir
á sýnjjigunni, Svavar?
— Þær eru 45,. flestar mál-
aðar seinustu árin. Og þær eru
allar málaðar heima nema
þessi hérna . Leysing heitir
hún —- og er máluð í Dan-
mörku. Þessir gulu reitir þarna
standa í sambandi við endur-
minningu um gult blóm, sem
innieiðir ævinlega vorið í Dan-
mörku,. Þú sérð hvernig litirn-
ir gefa hver öðrum á baukinn
— þa.ð er óstýrilátt líf að
kvikna, upplausnin, leysingin.
— Standa fyrirbæri úr nátt-
úrunni að baki fleiri myndum
þínum — eða sagði ekki
Kjarval að þú værir að nálg-
ast landslagið?
— Náttúran er undirstaða
undir flestum mínum verkum.
Eg byrja mjög margar myndir
mínar á því að vinna úr ein-
hverju sem ég minnist að
hafa séð í náttúrunnar ríki. En
það er satt: maður breytir
henni ansi mikið. umskapar
hana eftir sínu höfði. Listmái-
arinn er alltaf að skapa heim
— skapa allan heiminn. Það
gerir ljóðskáldið líka, jafnvel
þó kvæði hans fjalli aðeins
um nefið á stúlkunni hans. Nei,
við skulum heldur segja aug-
un í henni — það er lýriskara.
— Er náttúran undiístaða
þessarar myndar hérna?
— Já. Þessi mynd heitir
Lómskviða. Þú heldur auðvit-
að að þetta sé eintómur heila-
spuni og vitlausir hugarórar.
En þega.r ég byrjaði að mála
þessa mynd, þá var ég alltaf
að sjá lómana mína í Horna-
firðinum svífa fyrir sjónum
minum; en lómur á flugi
jafnt sem sundi er einhver
merkilegasti fugl undir sól-
inni. Þessi mynd er samt
ekki af lómnum sjálfum, 'neld-
ur af hreyfingum ’hans — og
þó allra helzt af anda hreyf-
inganna. Þú skilur ekki þetta
undariega strik hérna, því þú
hefur aldrei séð lóm. En þetta
er skáldskapurinn í hreyfingum
hans.
— Hérna er önnur mynd sem
heitir Bjargfugl við haf. Get-
urðu ekki hugsað þér, maður,
að þetta sé bjarg, og hérna
kemur fuglinn fljúgandi út úr
því. . . og hérna Og fyrst þú
ert ailur upp á bókmenntaleg-
ar útskýringar á málverki, eins
og aðrir ídiótar, þá máttu svo
sem líta á þennan þríhyrning
hérna sem nefið á fuglinum.
En, vinur minn, það þýðir að
ekki að búa til ljósmyndanef á
fugl í svona mynd; form nefs-
ins verður að vera í samræmi
við önnur form í myndinni.
— Og hér er ennþá mótíf um
fugl. Þessi mynd heitir Hrím-
fugl; og þó þú haldír að þetta
eigi að fyrirstilla hengikoju,
þá er það samt sem áður fugl,
sem er undirstaða myndarinn-
ar. Og þetta hérna leyfi ég þér
að hugsa þér sem fjallöxl. Næt-
urblámi, dauði og snjór allt
í kring.. Hrímfugl. Hann tyll-
ir sér á gnípuna.
— Þú má'.aðir einu sinni
„rausæismyndir“ úr náttúr-
unni?
— Já, en gamli myndstíllinn
hætti að fullnægja mér —
þessvegna hvarf ég frá honum.
Hinsvcgar er abstraksjón alls
ekki betii í sjálfri sér eti til
dæmis impressjónismi, það er
bara tíminn sem heimtar þetta.
Eg hugsa menn máli abstrakt
lengi enn; en einn dag kemur
tíminn með nýjar kröfur, og
málararnir leita sér fulinæg-
ingar í ennþá nýjum stíl.
Við göngum aftur og fram
um skálann. Það er byrjað að
hlýna: rauðu litirnir varpa
geislum sirium milli veggjanna;
en annars leika myndirnar í
öllum regnbogans litum. Svavar
kveðst ekki hafa meira dálæti á
einum iit en öðrum; rautt
skipist á við svart, blátt við
hvítt, gult við grænt, brúnt við
grátt. Það er margt um þrí-
hyrnd form í myndunum, eins
og fyrirmynd þeirra sé útlínur
þaninna vængja; boglínur eru
fáar, rétt horn sjaldgæf. Ein
mynd dregur að sér athygli
mína öllum öðrum fremur.
— Er þetta Tunglskotið? spyr
ég, idíótinn.
— Nei, þessi mynd átti að
heita mjög raunsæislegu nafni,
en svo kom einhver og sagði
hún skyldi heita Vetrarbraut
séð frá tungli. Eg lét það
standa, af þvi ég er allaf svo
veikur fyrir því sem skrítilegt
er. En þú skalt ekki taka mark
á nafninu.
Eg hætti ekki á að biðja höf-
undinn um bókmenntalega út-
skýringu á myndinni, en hún
kom mér fyrir sjónir á þessa
leið:
Formin í myndinni eru eld-
flaugaform. Það er dregið ská-
strik yfir myndflötinn nálægt
miðju, en frá því stefnir hreyf-
ing myndarinnar í tvær áttir.
Annar flaugahópurinn stefnir
upp í vinstra hornið — út í
geiminn: tunglskotin og spútn-
íkarnir; hinn stefnir niður í
hægra. hornið — ofan í djúpin:
atómsprengjurnar, sem koma
okkur sjálfum i koll Þetta er
heimspekileg mynd, og hún
túlkar annars vegar tæknilega
sigurvinninga mannsins, en
hinsvegar ótta hans andspæ»ris
þessum sigurvinningum. En
hið listræna afrek, sem Svavar
hefur unnið með þessari mynd,
grundvallast á þeim gífurlega
hraða sem í henni býr. Eða
eins og hann segir sjálfur: það
er mikið flug i formunum, eins
og hreyfingin riki ein.
— Það hefur áhrif á hugar-
fiug manns, segir Svavar, að
hlusta sýknt og heilaet á fréttir
um þann óskaplega hraða sem
nú þarf að vera á öllum hlut-
um. Mér skilst að höfuðvand-
kvæðin á því að koma hlut-
um að verulegu marki út í
geiminn og'til annarra stjarna
sé sá, að ekki hafi enn tekizt
að spýta þeim af stað með
nógu mik’um hraða. Ótti nú-
timamannsins við þessa ægi-
legu tækniþróun hefur mótað
þessa mynd í stórum dráttum.
Eg reyni ekki aðeins að tákna
hana sjálfa, með flaugunum
sem stefna upp á við, heldur
einnig þær ægilegu afleiðingar
sem hún kann að hafa ef menn
reynast þess" ekki umkomnir að
hafa hemil á henni: fiaugarnar
sem stefna niður á við. Það á
eða vera tragískt hrap í
hrynjandi myndarinnar.
Eg held áfram að horfa á
þessa mynd: Vetrarbraut séð
frá tungli. Og þykist þess full-
viss, að hér hafi Svavari
Guðnasyni tekizt að skapa
Framhald á H. síðu.
JÓLAVÖRUR____________________
... 11 ii
smekklegar og ódýrar
B E Z T, Vesttirveri og Vesturgitu 3
Telpu jólakjólarnir kontnir!
Stærðir 1 til 12.
BEZT, Vesturveri
L.
Roði, málverk eftir Svavar Guðnason.