Þjóðviljinn - 28.12.1958, Qupperneq 1

Þjóðviljinn - 28.12.1958, Qupperneq 1
Sunnudagur 28. desember 1958 — 23. árgangur — 295. tbl. Jólatrésskemmtun 'itádenta Stúdentar halda í dag. jólatrés- skemmtun fyrir börn sín og fer hún fram á Gamla Garði. Hefst skemmtunin kl. 3 og lýkur kl. 6. Aðgöngumiðar á vægu verði verða til sölu við innganginn. Miklar breytingar gerðar í gjaldeyrismálum V-Evrópu Skiptifrelsi aukiS á gjaldeyri V-Evrópu, gengi franska frankans fellt um 17,55% í mörgum höfu'ðborgum Vestur-Evrópu voru í gær gefnar út tilkynningar um aukið frelsi til að skipta á gjaldmiðli ríkjanna þar og öðrum gjaldeyri, svo sem Bandaríkjadollurum. Þessar breytingar á gjaldeyrisregl- um Vestur-Evrópuríkjanna koma til framkvæmda á morgun og hverfur þá Greiðslubandalag Evrópu jafn- framt úr sögunrn. Þá var tilkynnt í París i gær aö gengi franska írankans myndi fellt frá og með mánudeginum um 17,55%. Hinar nýju reglur sem gilda um kaup og sölu sterlings- pundsins, franska og belgiska Happdrætti Þjóðviljans Dregið var í happdrætti Þjóðviljans á Þorláksmessu eins og iilkynnt liafði verið. Vegna þess að enn hefur ekki borizt uppgjör frá öllum umboðsmönnum happdrættis- ins úti á landi verður hinsveg- ar ekki hægt að birta vinn- ingsnúmerin fyrr en eftir nok'fera daga enn, eftir að upp- gjör þeirra hafa borizt blaðinu. Þá eru það eindregin tilmæli til þeirra bæjarmanna sem ekki haía gert full skil að láta það ekki dragast. frankans, hollenzka gyllinsins, vesturþýzka marksins, sænsku norsku og dönsku krónunnar og ítölsku lírunnar miða allar í þá átt að gera skipti á þess- um gjaldmiðlum og dollurum algerlega frjáls. 1 tilkynningu brezka fjár- málaráðuneytisins var sagt að frá og með mánudeginum myndu allir þeir sem ættu sterlingspund eða eignuðust þau og búsettir væru utan sterlingssvæðisins geta breytt þeim í dollara eða hvern annan gjaldeyri á fastákveðnu gengi. Tilkynningar stjórna Vestur- Þýzkalands, Belgíu, Danmerk- ur, Noregs, Svíþjóðar, Italíu og Hollands voru á sömu leið. Þetta aukna frjálsræði tii að skipta á gjaldmiðli þessara landa og dollara á þó efeki við þegar um er að ræða lönd sem þau ha.fa tvíhliða við- skiptasamninga við. Gengi. sterlingspundsins og gjaldmiðla liinna sjö landanna mun haldast óbreytt frá því sem nú er Gengi franska frankans fellt Öðru máii gegnir með franska frankann. Gengi hans verður á Framhald á 11. síðu. r Ovíst hver orðið hafa afdrif loftbelgsins Litla heims Óvíst er hver orðið hafa af- drif loftbelgsins Ldtla lieims sem lagði af stað frá Kanarí- eyjuin vestur yfir Atlanzhaf fyrir hálfiim mánuði. I loftbelgnum voru þrír karl- menn og ein kona. I fyrradag bárust þær fréttir að radíó- amatörar þóttust hafa heyrt í sendistöð loftbelgsins og hefði þar verið sagt að belgurinn hefði svifið til jarðar yfir ós- hólrrium Orinocofljóts í Venez- úéia og væru farþegar «hans íokaðir inni í frumskóginum þar og gætu litla björg sér veitt. Áður höfðu borizt fréttir um að loftbelgurinn liefði sézt yfir Trinidad og Venezúela. Leitarflugvélar voru sendar af stað til að hafa upp á belgn- um og farþegum hans, en þær höfðu í gærkvöld ekki orðið neins ..varar. Leitirini var hald- . ið áfram, enda þótt þær fréttir bærust síðar um daginn frá f jarskiptastöð brezka stórblaðs- ins Daily Mail sem haft hefur samband við beiginn að hún hefði heyrt í sendistöð hans og reiknað út hvar hann væri staddur. Samkvæmt þeim út- reikningi átti belgurinn enn að vera á lofti um 1.300 km und- an strönd Venezúela. lén Bach látinn Jón Bach, íyrsti formaður Sjómannafélags Reýkjavíkur, lézt á aðfangadag jóla í Landa- kotsspítalanum eftir langa sjúkdómslegu. Hann var 84ra ára gamall. Myndin er tekin á götu í Haifa í ísrael. Á henni sjást tveir Arahjar frá Galileu, ungur maður og öldungur, lilckkjaðir saman og er verið að leiða þá fyrir dómara. Þeir eru sakaðir mn njósnir i þágu Sambandslýðveldis Araba Tólf ára drengur missti framan af þrem fingrum á Þorláksmessu Alvarlega skoraÓ á foreldra að hafa eftir- lit meS að börnin fáist ekki v/ð spreng]ur Jólin voru nú að mestu slysalaus. Þó bar þar skugga á: 12 ára drengur missti framan af þrem fingxum er hann var að kveikja í dinamítkvellhettu. Alls munu 8—10 drengir hafa brennzt eitthvaö af slíkum sökum. Drengurinn, Jónas Hermanns- son, Hólmgarði 7, er 12 ára gam- all. Hann fann í geymslunni heima hjá sjr dínamithvellhettur Sprengdi hann þrjár með þeim hætti að kveikja í þræðinum, og varð ekkert slys af. Fjórðu hvellhettuna sprengdj hann með þeim hætti að draga hana niður steinvegginn á húsinu og kvikn- aði þá > henni og sprakk hún r • ar árásir frá Kaíró á sýrlenzka komnmnista Blaðið A1 Aliram í Kaíró birti í gær barðorða grein þar sem ráðizt var á sýrlenzka koinmun- ista. Blaðið sagði að þeir hefðu gert samsæri gegn Sambandslýð- veldi Araba ásamt heimsvalda- sinnum, ísraelsmönnum og zíon- istum. Blaðið sagði að þessir samsærismenn réðu yfir leyrii- legri útvarpsstöð og legðu þeir sig alla fram til að spilla sam- búð Sambandslýðveldis Araba og íraks. Ætlun þeirra sé að stofna iil samtaka ríkja til að fjandskapast við Nasser forseta og stjórn hans. Arabíska fréttastofan í Beirul hefur það eftir sýrlenzkum stjórnmálamönnum sem komu til Bejrut irá Damaskus á jóladag að stjórnarvöld Sambandslýð- veldis Araba hafi látið ioka sov- ézkum menningarstöðvum víða í Sýrlandi. Það er einnig Haft eftir þeim að bönnuð hafi ver- ið útgáfa málgagns kommúnista í Damaskus. Menn þessir spá frekari. að- gerðum gegn sýrlenzkum komm- únistum. Nasser, forseti sam- bandslýðxældisins, réðst harð- lega á þá í ræðu sem hann hélt rétt fyrir jól. Sagt er að leið- togi þeirra, Khalid Bakhdash, sé farinn til Évrópu. í hendi hans. Við sprenginguna tættist íraman af þumalfingri, vísifingur tók af og framan af löngutöng. Talið er að bæði þumalfingur og vísifingur verði honum cnýtir. Vinstri hendi hans sprakk einnig sundur við sprenginguna svo það varð að sauma hana saman. Atbugið vel að hverju börn leika sér Faðir drengsins lézt fyrir fjór- um áruin. Hann hafði haft í fór- um sínum dinamithvellhettur og vissi kona hans ekki hvar þær voru geymdar — fyrr en dreng- urinn varð fyrri til að finna þær, með þeim afleiðingum sem áður segir. Liigreglan biður foreldra að hafa gát á því að hverju börn leika sér, því þau geti alloft fuKidið hvellliettur eða amiað sprengielni, seni þau liafa ekki vit á hve hættulegt er og farið sér þannig að voða. Það virðist hafa verið óvenju- almennt að drengir væru að fikta með elda og sprengjngar um jólin því leitað mun hafa verið læknis með 8—10 drengi á aldrinum 10—15 ára til að gera að meiðslum er þeir hlutu af völdum skotelda. Að undan- skildum drengnum sem fyrst var frá sagt meiddist þó enginn hættulega. Það eru alvarleg tilmæli liigieglunnar til allra for- edra að þeir geri allt sem unnt er til að koma í veg fyr- ir að börn þeirra fari sér að voða með skoteldum eða. heimatilbúnum sprengjum. — Það er ömurlcgt að gera jólin að tíma sára og lemstrana á börnum. Árekstrar Jólaumferðin tókst vel i mið- bænum, Tvær konur urðu Þ» fyrir bílum á Þorláksmessu og aðfangaciag — en þær voru báðar utan mestu jólaumferðar- innar. Önnur konan varð fyrir bíl á Miklubrautinni við Háaleitisveg- inn og krákaðist á fæti. Gatan er Framhald á 12. eíðu. Jólatrésskemmt- uq Dagsbrúnar Jólatrésskemmtun fyrir börn Dagsbrúnarmanna er í Iðnó á þriðjudaginn kl. 4 e.h, Kertasník- ir kemur í heimsókn til barn- anna og flejra verður þar til skemmtunar. Aðgöngumiðar eru seldir í skrifstofu Dagsbrúnar ó morgun og þriðjudaginn og kosta 25 kr.

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.