Þjóðviljinn - 31.12.1958, Page 1

Þjóðviljinn - 31.12.1958, Page 1
ÞjóðviSjinn er 24 síður í dag UNDANFARIN rúm tvö ár hefur íslenzk alþýða lagt örlög sín í hendur vinstri stjórn, samstjórn Framsóknar, Alþýðuflokksins og Alþýðu- bandalagsins. Það hefur að miklu leyti verið undir aðgerð- um þessarar ríkisstjórnar kom- ið, hvernig farið hefur um lífs- kjör íslenzkrar alþýðu, um at- vinnuöryggi hennar og afkomu, svo sem hlýtur að verða í þjóð- félagi eins og voru, þar sem ríkisstjórnin er fyrst og fremst stjórn á þjóðarbúskapnum. Þegar Framsóknarflokkurinn -nú hefur rofið þessa stjórnar- samvinnu og rift þar með þeim sáttmála, er vinnandi stétiiir landsins gerðu með sér 1956, er nauðsynlegt fyrir alþýðu manna að átta sig á því til fulls, hvað verkalýðshreyfingunni hefur tekizt að ávinna sér og þjóðinni til handa í þessari -stjórnartíð og hverjar orsakir liggja til samstarfsrofsins af hálfu Framsóknar. • ★ • Hið fremsta og mikilvægasta sem Alþýðubandalaginu og Sósíalistaflokknum hefur tek- izt að áorka í hagsmunamálum alþýffustéttanna í þessari stjórn artíff er: Full atvinna um allt Iand aff hedta má, viðl íslenzk framleiðslustörf. Þessi árangur þýðir ekki að- eins útrýmingu þess böls sem atvinnuleysið er, heldur er hann jafnframt undirstaða að þeim lífskjörum, sem alþýða manna býr við, — að vísu með löngum vinnutíma, en góðum lífskjör- um þó. Og hver er undirstaða þessa atvinnuöryggis? Undirstaðan er hin stóraukna fiskframleiðsla. Aðeins freð- fiskframleiðslan ein hefur auk- izt úr 30.000 smálestum 1952 upp í 55 þúsund smálestir 1957 og í 75 þúsund smálestir 1958. Og það sem ríður baggamuninn eru hinir miklu viðskiptasamn- ingar við Sovétríkin og önnur sósíalistísk ríki, sem aukizt hafa svo stórlega fyrir tilverkn- að ráðherra Alþýðubandalags- ins, að t. d. Sovétríkin ein kaupa nú um 30.000 lestir freð- fisks á ári eða eins mikið og alla freðfiskframleiðsluna 1952. Og þessi stóraukning fram- leiðslunnar tryggir ekki aðeins afkomuöryggi alþýðu. Hún er einnig undirstaðan að efnahags- legu sjálfstæði þjóðarinnar, gerir hana óháða hinni niður- lægjandi, siðspillandi og þjóð- hættulegu herstöðvavinnu. 1953 voru útflutningstekjur íslands 706 millj. kr. en 372 millj. kr. komu frá herstöðvavinnu og „gjöfurn" eða 53% móts við eðlilegar þjóðlegar tekjur. En á árinu 1958 munu 1100 millj. kr. koma af eðlilegri, þjóðlegri framleiðslu og störfum, en að- eins um 150 millj. kr. frá hkmi óþjóðlegu herstöðvavinnu. Það er að vísu rúmum 100 millj. kr. of mikið og tekur frá þjóðinni vinnuafl, sem , vantar til þjóð- legrar framleiðslu, en samt hef- ur þróazt í rétta átt, þar sem þetta hlutfall er nú 13% móti 53% árið 1953. • ★ • Stærsta afrekiff og mikil- vægasta fyrir framtiff þjóffar- innar, sem Alþýffubandalaginu og Sósíalistailokknuin heíur tekizt aff knýja fram í þessari stjómartíff, er stækkun fisk- veiffalandhelginnar upp í 12 mílur meff reglugerff þeirri, er Lúffvík Jósepsson sjávarútvegs- ráðherra gaf út 1. september 1958. Með því var stigið eitt stærsta skrefið í sjálístæðisbaráttu vorri fyrir að endurheimta rétt hefur eðlilega verið höfuðat- riði og aðalátakamál í stjórn- artíð vinsti'i stjórnarinnar. Al- þýðubandalagið var myndað að undirlagi verkalýðssamtakanna vorið 1956 til þess að standa vörð um kaupmátt launanna gegn þeim árásum á lífskjörin, sem afturhaldsstjórn íhalds og Framsóknar hóf til að hefna hindra framkvæmd gengislækk- unar og kauplækkunar sam- kvæmt kröfu afturhnldsins. Með sigursælli sókn Dags- brúnar og annarra verkalýðs- félaga tókst í sumar og haust að knýja fram 6—9 'k % grunn- kaupshækkun. Þar meff mun óhætt aff segja aff íyrir baráttu verkalýffssam- takanna og fulltrúa þeirra í Al- þýffubandalaginu hafi tekizt, þótt kaupmáttur tímakaups hafi nokkuff minnkaff gagnvart einstökum vörum aff halda kaupmætti heildartekna verka- manna áriff 1958 eins effa viffa mun betri en var 1956. O ★ ® Það yrði of langt mál hér upp að telja hvað áunnizt hefur með starfsemi Alþýðubanda- lagsins í vinstri stjórninni eða hinsvegar hvað ábótavant var, enda er það ekki tilætlunin með þessum hugleiðingum. í flokki þeirra mála, er um var samið, en ekki efnd, ber eðlilega hæst brigðmælin á að láta herinn fara samkvæmt á- kvörðun Alþingis frá 28. marz 1956. Þau svik ein við stjórnar- sáttmálann hefðu verið nægt tilefni stjórnarslita af hálfu Alþýðubandalagsins, ef það hefði ekki alltaf skoðað það sem skyldu sína að standa í stjórninni vörð um hagsmuni Einar Olgeirsson: Áramótahugleiðingar um orsakir sfjórnarslifanna vorn yfir fiskimiðum lands vors og hið rriikilvægasta til að tryggja efnahagslega undir- stöðu atvinnulífs vors og af- komu allrar. • Um þennan rétt vorn til lífsins stöndum vér nú þegar í harðri baráttu við brezka ráns- veldið, sem beitir vopnuðu of- beldi til að viðhalda ræningja- skap sínum. Með oss standa í þessari sjálfstæðisbaráttu sjó- menn Færeyja og aðrir þeir fiskimenn, er veiðar stunda við strendur Atlanzhafsins, Sovét- ríkin og önnur ríki sósíalism- ans og fjölmargar þjóðir, sem sjálfar eiga í svipaðri sjálfstæð- isbaráttu. En móti oss er brezka auðvaldið með Atlanzhafs- bandalagið í eftirdragi, sem tví- stígandi milli hræsninnar og riíðingsskaparins þorir enga op- inbera afstöðu að taka til hern- áðarárása Breta á ísland, af því að það óttast að ræningja- eðli þessa bandalags nýlendu- kúgaranna kæmi þá of áþreif- anlega í ljós. — Vér íslendingar höfum séð í landhelgisdeilunni hvar vina vorra er að leita og hvar fjandmenn vora er að finna. • ★ • Baráttan um kaup og kjör verkalýðs og annarfa launþega sin á verkalýð íslands fyrir ó- sigur auðvalds og afturhalds 3 verkfallinu mikla vorið 1955. Vinstri stjórnin var mynduð sumarið 1956. m. a. til þess að tryggja „kaupmátt tekna“, eins og stendur í stjórnarsáttmálan- um. Átökin um þessi hagsmuna- mál allra launþega hafa verið hörð allan tímann. Framsókn krafðist bæði geng- islækkunar og kaupbindingar. Veturinn 1957—58 var krafa hennar að gengi erlends gjald- eyris væri hælckað um 114%. Það hefði hækkað vísitöluna um 38 stig. Framsókn krafðist þess að kaupi yrði haldið niðri í því sem áður var í krónutölu, þrátt fyrir svona hækkun. Það jafngilti kauplækkun er næmi 17%. — Alþýðuflokkurinn sýndi henni mestallur mikla íylgispekt í þessu máli, svo sem fleirum. Það hefur orðið hlutskipti Sósíalistaflokkáins nú sem endranær að standa vörð um lífshagsmuni íslenzks verkalýðs og fylkja honum til baráttu fyr- ir launakjörum sínum á þeim tíma, er helzt væri sigurs auðið. Fyrir atbeina Alþýðubanda- lagsins, — samtaka vinstri jafnaðarmanna og sósíalista, — og Alþýðusambandsins, tókst að verkalýðsins og annarra laun- þega svo lengi sem auðið væri. Afturhaldsöflin í Framsókn undir forustu Eysteins Jónsson- ar, vissu því til fulls, hvar þau ættu að grípa niður. er þau voru ákveðin í að slíta stjórnarsam- starfinu. Eysteinn Jónsson bar fram kröfuna um algera útstrikun 15 vísitölustiga framvegis, það er: um 8% einhliða kauplækkun hjá; ve{”kamönn;um og öllum launþegum og sleit stjórnarsam- starfinu, þegar elcki var gengið að því. Hversvegna brásf Fram- sókn vinsfri samvinnu! Það var ekki hægt að veita verkalýðshreyfingunni áþreif- anlegra kjaftshögg en aftur- haldið í Framsókn gerði með kröfunni um 8% lækkun á árs- launum hvers verkamann[s í landinu. Ríkisstjórnin hafði verið mynduð til þess að tryggja kaupmátt tekna og hafði heitið alveg sérstaklega að leysa öll efnahagsmál í ná- inni samvinnu við verkalýðs- samtökin. Nú var aílri sam- vinnu og samráði slitið og hnef- inn keyrður í borðið að háetti gerðardómslaganna frá janúar 1942. Það er því eðlilegt að íslenzk alþýða velti nú þeirri spurningu fyrir sér: Hverskonar „vinstri“ flokkur er Framsóknarflokkur- inn? — og — hversvegna fór hann í samstaiif um vinstri stjórn 1956, fyrst hann ætlaði sér að svíkja það samstarf svona, þegar fram í sækti? Framsókn er stofnuð sem vinstri flokkur um hugsjón samvinnu í þjóðlífinu í and- stöðu við auðvald og samkeppni, og um hugsjón þjóðfrelsis í landinu, í anda ungmennafé- lagsskaparins. Framsókn er enn skipuð að miklu leyti bændum landsins, er eiga sem vinnandi menn eðlilega samleið með verkamönnum gegn auðvaldi, og mörgum róttækum mrlli- stéttamönnum bæjanna. En á undanförnum áratugum hafa afturhaldsöfl meira og meira náð forustu í Framsókn, þótt vinstri öfl rísi þar upp öðru hvoru, þegar afturhalds- þjónustan keyrir úr hófi fram. Og það er einkum á tveim svið- um sem þessi óheillaþróun hef- ur orðið örlagarík: Annarsvegar hefur forusta Framsóknar ánetjazt auðvald- inu og gróðahyggju þess og Samband íslenzkra samvinnu- félaga, hinn efnahagslegi bak- hjall Framsóknarflokksins, sog- azt inn í auðvaldsspillinguna og gerzt ásamt fleirum einn aðal- frumkvöðull þeirrar óhugnan- legu verðbólgustefnu, sein reynir- að knýja fram gengis- lækkanir' á íslandi á 8 til 10 ára fresti, en rænir þess á milli sjóði rikis og ríkisbanka til lán- veitinga handa sérréttindafyrir- tækjum verðbólgugi'óðans. Þessi spilling, sem ógnar öllu efnahagslífi íslands, öllum eignum íslenzka ríkisins og lífs- kjörum íslenzkrar alþýðu, kom áþreifanlegast í Ijós í ,.helm- ingaskipta“ stjórn íhalds og Framsóknar, er þessir tveir ránsflokkar settust að fjársjóð- um þjóðarinnar og skipulögðu sameiginlega arðránið á alþýðu landsins, til þess að skipta síð- an öllum ránsfengnum til helm- inga á milli sin. Hve rík þessi spilling er í Framsókn kom bezt fram í vinstri stjóminni, er Alþýðubandalagið bar fram þá kröfu verkalýðssamtakanna að tekin væri upp rikiseinkasala á olíu, en ríkið kaupir hana alla sem kunnugt er. Framsókn þverneitaði alltaf þessari sjálf- sögðu kröfu, hagsmunir oliu- hringa máttu sin þar meira en hagur alþjóðar. Og þannig var um allt þar sem auðvaldshags- munir voru annarsvegar, líka um það auðvald, er sérstakan áhug'a hafði á gróða á Kefla- víkurvelli. — Það var því í fullu samræmi hvað við annað að sá aðalagent Reykjavíkur- auðvaldsins í röðum Framsókn- ar og S.Í.S., sem hélt verndar- hendi sinni yfir oliuhringunum, Eysteinn Jónsson, skyldi og bera þá kröfu auðvaldsins fram að verkamenn lækkuðu kaup sitt um 8%, en að auðvald og rikishitin skyldi fá að halda öllu sínu óskertu. Hitt sviðið þar sem óheilla- þróunarinnar gætir, er á hvern veg aíturhaldsöflin í Framsókn hafa reynt að móta bændastétt landsins: Hin hai'ðgerða, vinn- andi bændastétt íslands þurfti Framhald á 7. síðu.

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.