Þjóðviljinn - 05.07.1959, Blaðsíða 1

Þjóðviljinn - 05.07.1959, Blaðsíða 1
 Sunnudagur 5. júlí 1959 — 24. árgangur — 140. tölublað. Fundir í öllum deildum anná<v ltvöld. Sósíálistaféláj Reykjavíkur Sala íiskiðjuvers ríkisin s framkvæmd næstu daga? Rikisstjórn AlþýSuflokksins œtlar að verða viS kröfu burgeisanna um sölu dýrmœtra rikiseigna Nokkrum dögum fyrir kosningarnar skýrði Þjóövilj- inn frá því að íhaldið heföi nú t jkið rögg á sig og fyrir- skipaö ríkisstjórn Emils Jónssonar að selja Fiskiðjuver iikisins. Þetta mál mun nú vera að komast í kring, eins og Þjóöviljinn skýrði frá því, en hins vegar farið eins leynt meö og hægt er, því mikil átök eru um það hver eigi að hreppa þessa dýrmætu ríkiseign. Er enn sem fyrr gert ráð fyrir að Bæjarútgerð Rey'kja- víkur verði aðaleigandi Fisk- iðjuversins, en fast er sðtt eft- ir af ýmsum verðbólgubröskur- um íhaldsins, eins og t.d. Ein- ari Sigurðssyni, að verða hlut- hafi í þessari miklu eign. Dýrmæt og arðbær eign Fiskiðjuver ríkisins hefur oft átt i erfiðleikum vegna skiln- ingsleysis stjórnarva'da sem hafa mjög látið þcð skorta rekstursfé. Undanfarin ár hafa starfsskilyrði þess batnað veru. lega, og á sl. ári nam tekju- afgangur þess kr. 3.670.000, eftir að búið var að taka milli 600 og 700 þús. kr. í afskriftir, Verðmæti framleiðsl- unnar nam í fyrra um 40 milljónum !kr. Bæjarútgerðin höfð fyrir framan Þegar ljóst var að þarna var orðið um mjög arðbært fyrir- tæki að ræða, jó!kst um allan helming ásókn íhaldsbraskara að reyna að hremma það. Og ekki virðist standa á þjónustu- lipurð stjórnar Emils Jónssonar iað henda dýrmætri ríkiseign úr 'eigu þjóðarinnar. Þó reynt sé að haf'a Bæjar- útgerð Reykjavíkur fyrir fram- an í kaupunum, og reyna í leiðinni að bæta úr þeim ó- fyrirgefanleiga krakkaskap að Bæjarútgerðin skuli ek’ki hafa komið sér upp öðru frystihúsi, er þess að gæta að íhaldið ræð- ur mestu um Bæjarútgerðina og mundi selja togara hennar og íaðrar eignir íhaldsbröskurun- G-llsfans Héraðsnefnd Alþýðubandalagsins í Reykjavík éfnir til kvöldskemmtunar fyrir starfsfólk G-listans í alþingis- kosningunum n.k. miðvikudag kl. 8,30 í Lidó. Flutt verð- ur stutt ávarp, upplestur, tvísöngur (Jón Múli og Jónas Árnasynir), Gestur Þorgrímsson og Haraldur Adolfsson skemintú, dans. Starlsfólk G-Iistans vitji aðgöngumiða í Tjárnargötu 20 á mánudag. um ef það þyrði, og sú gefur orðið raunin á ef það telur sér óhætt að ganga svo langt. Frakkari eftir kosningarnar íhaldið og Emil Jónsson þorði ekki að gera söiu Fisk- iðjuversins opinbera fyrir kosn- ingar. Nú munu þeir vera orðn. ir frakkari að taka að fram- kvæma kröfu burgeisanna um sölu á verðmætustu eignum þjóðarinnar, vegna þess að þeir fengu ékki nægilega ráðningu í kosningunum. Sekf Eretans hækk ea uð úr 74 í 100 þús. kr Hæstiréttur dæmir í rúmlega tveggja ára gömlu landhelgismáli brezks skipstjóra Hæstiréttur hefur nýlega kveðiö upp dóm í rúmlega tveggja ára gömlu landhelgismáli brezks skipstjóra. Þyngdi Hæstiréttur refsingu Bretans úr 74 þús. kr. sekt, eins og héraösdómur hafði ákveöið hana, í 100 þús. kr. Athygli skal vakin á því, tsl sanianburðar við þá dóma sem kveðnir hafa verið upp síðan íslen/ka fiskveiðilögsagan var færð út í 12 sjómílur, að hér var um fyrsta brot brezka skip- stjórans, John Henry Hogarth, að ræða og \ið handtöku sýndi hann ekki lxinn minnsta mót- þróa. Eins og lesendur minnast hlaut Pretious skipstjóri á Valal'elli 74 þús. kr. sekt og Harrison skipstjóri á Lord Montgomery 147 þús. kr. sekt auk nokkurra mánaða varð- haldsrefsingar — og voru þó báðir og eru enn (a.m.k. Harri- son) liluttakendur í ofbeldis- og stríðsaðgerðum Breta í ís- lenzkri landhelgi. Skekkja í mælitækjum varðskipsins í dómi Hæstaréttar í máli Hogarths skipstjóra segir svo m.a.: „Friðrik Ólafsson skip* stjóri hefur markað á sjóupp- drátt staðarákvörðun varð- skipsins Ægis 30. april 1957 Framh. á 3. síðu Það er alltaf mikiil spenn- ingur. ekki aðeins á Siglu- firði, heidur um land allt, þegar fyrsta síldin kemur að landi. Hér að ofan sjáið þið Heiðrúnu, ÍS 4 koma hlaðna inn til Siglufjarðar með fyrstu veiði sína á sumrinu. Þegar að landi kemur bíða allir með mikilli eftirvænt- ing'u eftir niðurstöðum fyrstu fitumæling'arinnar. Myndin til vinstri er einmitt af því þegar verið var að veg'a og' meta fyrstu síldina sem til Sig'lu- fjarðar barst. Þá var fitumagn- ið 12—14%, en síðan hef- ur það hækkað töluvert. Samt hefur síldarútveg'snefnd ekki. leyft söltun ennþá, en 5—6 stöðvar hafa saltað í óleyfi, — Það munar sjómennina um 70% í hlut hvort síldin er: brædd eða söltuð. Brezkur fogari reynir að sigls á uestfirzkan tr&llubáft Brezkur togarí gerði aöfaranótt s.l. föstudags tilraun til þess að sigla á lítinn trillubát frá Patreksfirði, en 25 —30 trillubátar hafa undanfarið stundað veiöar frá Pat- reksfirði og aflað ágætlega þar til síðustu dagana að brezkir togara hafa flykkzt á rniðin. Báturinn, sem Bretinn reyndi að sigla á, Nonni frá Patreks- firði, var aðfaranótt föstudags- ins að veiðum 5—6 mílur frá landi á svonefndri Eyrarhlíð. Kl. 3 um nóttina. var brezkur togari að toga frá landi um 200 faðma frá bátnum, er hann snarbeygði allt í einu af fyrri stefnu, jók ferðina og stefndi beint á trillubátinn. Formaðurinn á bátnum, Gunn- ar J. Waage, dró þegar inn færi sitt og setti vél trillunnar í gang og stefndi frá togar- anum. Félagi hans varð of seinn að draga upp færið, enda missti hann það í togvír tog- arans um leið og hann f.ór framhjá. Svo naumt varð’ bát- urinn fyrir að beygja undail togaranum, að báturinn livarf undir kinnung togaran.s svo bátsverjar sáu ekki stjórnpall togarans meðan á þessu stóð. Brezku sjómennirnir stóðu á þilfarinu og æptu á íslending- ana tvo í trillubátnum. Ekkert varðskip var á þess- um slóðum þegar þetta gerðist. Ekki sáu Islendingarnir nafn brezka togarans, en einkenn- isstafir hans sögðu þeir liafg, verið GY 205. 4*

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.