Þjóðviljinn - 26.08.1959, Side 10
10) — ÞJÓÐVILJINN — Miðvikudagur 26. ágúst 1959
Kjarnorkusprengingar ekki hafnar
í haust?
Framhald af 1. síðu.
burtu þeirri hulu sem falið hefur
staðreyndir málsins og gera
verður gagnskör að því að kom-
ast að því eins örugglega og
unnt er hvar hættumörkin eru.
/
Einróma samþykkt kirkjuþings
Um þessar mundir stendur yf-
ir á eynni Rhodos þing mótmæl-
endakirkna og rétttrúnaðarkirkj-
unnar grisk-kaþólsku. Á þing-
fundi í gær var einróma sam-
þykkt áiyktun þar sem skorað
var á kjarnorkuveldin að hefja
ekki tilraunir með kjarnavopn
að nyju. í ályktuninni er m. a.
komizt svo að orði að „engin
þjóð hafi rétt til að gera til-
raunir með kjarnavopn þegar
því er svo háttað að verkanir
þeirra koma niður á fólki í öðr-
um löndum". f ályktuninni er
þess jafnframt krafizt að komið
verði á alþjóðlegu eftirliti með
k j arnasprengingum sem kunni
að verða gerðar í friðsamlegum
tilgangi.
Eisenhower
Framh. af 12. síðu.
verði landbrú undir vesturþýzk-
um yfirráðum.
Það vakti athygli að forset-
inn neitaði því ekki að sér
hefðu borizt slík skilaboð, en
tók aðeins fram að Milton
bróðir sinn hefði ekki komið
með þau.
Aðspurður sagði Eisenhow-
er að hann myndi sjálfur taka
á móti Krústjoff á flugvellinurn
þegar hann kemur til Washing-
ton 15. september. Hann sagð-
ist fagna heimsókn Krústjoffs
af tveim sökum. I fyrra lagi
langaði hann tij að vita hvort
hinn sovézki stjórnarleiðtogi
hefði nokkuð það fram að færa
sem auðveldað gæti samkomu-
lagið 'í heiminum. í öðru lagi
teldi hann að Krústjoff gæti
lært eitthvað af þv'í að kynn-
ast því hvemig fólk lifir í
„hinum frjálsa heimi“.
Þingið samþykkti auk þess á-
lyktunartillögu um að næst þeg-
ar það kemur saman að ári yrði
rætt um trúfrelsi í þeim ríkjum
þar sem rómversk-kaþólskan er
ríkjandi. Áheyrnarfulltrúar frá
kaþólsku kirkjunni sitja þingið.
Ekki endanlega ákveðið
Eisenhower Bandaríkjaforseti
var að því spurður á blaða-
mannafundi í Washington í gær
hvort Bandaríkin myndu hefja
kjarnasprengingar þegar hinu
þegjandi samkomulagi um eins
árs tilraunahlé lýkur, 31. októ-
ber. Sagði hann að enn hefði
engin ákvörðun verið tekin um
það.
Reynt að sætta
Framhald af 12. síðu.
sem undanfarinn mánuð hefðu
átt sér stað í Kabýlafjöllum.
Segjast Frakkar hafa gert ó-
víga 1400 Serki og tekið her-
fangi 800 vopn ýmissa tegunda.
IJtlagastjórn Serkja . í. Kaíró
gaf jafnframt út tilkynningu
um mannfall Frakka og sagði
að 600 Frakk^r hefðu verið
felldir í vikunni sem lauk sl.
föstuidag, en 240 verið særðir.
Fimm járnbrautarlestir hefðu
verið sprengdar í loft upp, 32
önnur farartæki verið eyðilögð
og 2 flugvélar verið skotnar
niður.
Tíu forust í
Austurríki
Tjónið af völdum flóðanna
miklu í Austurríki nemur sam-
kvæmt síðustu rannsóknum yfir
tveim milljörðum austurrískra
shillinga. Tíu manns hefur beð-
ið bana í þessum miklu vanta-
vöxtum. -
1 Salzburg-héraði einu hefur
tjónið orðið sem svarar hálfri
milljarð ‘shillinga. Unnið er af
fullum krafti að björgunarstarf-
inu eftir að flóðin rénuðu.
SÖFNIN
Landsbókasafnið er opið alla
virka daga nema laugardaga
kl. 10—12, 13—19 og 20—22,
laugardaga kl. 10—12. Útlán
alla virka daga nema laugar-
daga kl. 13—15.
Þjóðskjalasafnið er opið aHa
virka daga nema laugardaga
kl. 10—12 og 14—19, laug-
ardaga kl. 10—12.
Listasafn ríkisins er opið
þriðjudaga, fimmtudaga og
laugardága kl. 13—15, sunnu-
daga kl. 13—16.
Þjóðminjasafnið er oþið þriðju-
daga, fimmtudaga og laug-
ardaga kl. 13—15, sunnu-
daga kl. 13—16.
Jstasafn Einars Jónssonar í
Hnitbjörgum er opið daglega
kl. 13.30—15.30.
Minjasafn Iíeykjavíkurbæjar
Safndeildin Skúlatúni 2 opin
daglega klukkan 14—16.
Árbæjarsafn opið daglega kl.
14—18. Báðar safndeildir lok-
aðar á mánudögum.
Náttúrugripasafnið er opið
þriðjudaga og fimmtudaga
kl. 14—15, sunnudaga kl.
^Í3.30—15.
Bókasafn Lestrarfél. kvenna
að Grundarstíg 10 er opið
til útlána í sumar á mánu-
dögum kl. 16—18 og 20—21.
íæjarbókasafn Reykjavíkur,
sími 1-23-08:
Aðalsafnið, Þingholtsstræti 29A
Útlánsdeild: Alla virka daga
kl. 14—22, nema laugardaga,
kl. 13—16. Lestrarsalur fyrir
fullorðna: Alla virka daga
kl. 10—12 óg 13—22, nema
laugardaga kl. 10—12 og
13—16.
Útibúið Hólmgarði 34.
Útlánsdeild fyrir fullorðna:
Mánudaga kl. 17—21, mið-
‘vikudag og föstudaga, kl.
17—19. Útlánsdeild og les-
stofa fyrir böm: Mánudaga,
miðvikudaga og föstudaga kl.
17—19.
Jtibúið Hofsvallagötu 16.
Útlánsdeild fyrir böm og
fullorðna: Alla virka daga,
nema laugardaga kl. 17.30—
19.30.
Útibúið Efstasundi 26
Útlánsideild fyrir börn og
fullorðna: Mánudaga, mið-
vikudaga og föstudaga kl.
17—19.
F.npiii viðskipti
Framh. af 7. síðu
sinnar verið niðurlægðir". Er
augljóst að þetta málgagn
Sjálfstæðisflokksins telur að
Islendingar hefðu átt að neita
að gera þennan samning, en
„geð okkar nægði ekki til að
firra smáninni“. (Er þessu
sérstaklega beint til Jóhanns
Hafsteins bankastjóra sem var
fulltrúi Sjálfstæðisflokksins í
nefndinni sem gerði samning-
inn um síldarsöltun?) Og síð-
an koma ályktunarorðin, mál-
gagn Sjálfstæðisflokksins spyr
hvort þessi síldarsala sé „upp-
haf tímabils nýrrar þræl-
mennsku“ eða hvort nú sé
loksins komið að því að svipt
verði af þjóðinni „viðskipta-
legum þrældómsviðjum við
einvaldsríkin“, það er hvort
slitið skuli að fullu öllum
viðskiptum við sósíalistísku
löndin.
Hverjar yrðu afleið-
ingarnar?
I þesSárí grein éíiis af mál-
gögnum ' 'Sjálfstséðisflökksiris
birtist 'étefria sem öll þjóðiri
þárf að veita athygli, og það
er vitað að valdamiklir aðilar
í Sjálfstæðisflok-knum beita
sér af kappi fyrir framgangi
hennar. Fái þessir menn að-
stöðu til að framkvæma
stefnu sína þarf þjóðin ekki
að dylja fyrir sér hvað muni
gerast:
Öllum samningum við sós-
íalistísku ríkin verður slitið
án tafar, og við verðum eft-
jr gersamlega háðir kreppu-
mörkuðum í vestrænu lönd-
unum. Það verður aftur
verkefni stjórnarvaldanna að
takmarka framleiðsluna,
banna fiskiflotanum að veiða
„of mikið“, takmarka afköst
hraðfrystihúsanna, stöðva
síldarsöltunina þegar „of
Stundarósigur
Framhald af 6. síðu.
það getur íslenzk alþýða •—
einmitt í þeim kosningum —
flýtt fyrir að sú stund nálgist.
Til þess er, eins og nú standa
sakir, aðeins ein leið: Það er
að efla Alþýðubandalagið.
Takist Alþýðubandalaginu að
ná aftur fyrri stöðu sinni sem
annar stærsti stjórnmálaflokk-
ur landsins, er það orðið slíkt
afl í íslenzkum stjórnmálum,
að ekki verður fram hjá því
gengið. Alþýðuflokkurinn ætti
þá um tvo kosti að velja, ann-
að hvort að halda áfram þjón-
ustu við íhaldið, eins og nú, og
lognast þar með út af sem
verkalýðsflokkur, eða hefja
samstarf við Alþýðubandalag-
ið, bjarga þannig lífi sínu og
sæmd og tryggja um leið
stjórnmálalegan sigur íslenzkr-
ar alþýðu.
Metin verða ,iöfn í haust
Fylgismenn Alþýðubandalags-
ins munu sýna í væntanlegum
kosnineum að „af skaða má
nema hin nýtustu ráð“ oe eanga
sieurvissir til þeirra átaka, sem
framundan eru.
(Baldur ísafirði).
mikil“ síld berst á Iand!
Hver Islendingur getur gert
sér grein fyrir afleiðingun-
um; þær munu ekki aðeins
bitna á þeim sem vinna
við útflutningsframleiðsluna,
heldur á hverjum einasta
landsmanni (nema hluta af
auðmannastéttinni), því öll
afkoma okkar er háð út-
flutningi og gjaldeyrisöflun.
Og ekki ætti að þurfa að
færa rök að því hver tök
við höfum á að berjast fyrir
lífshagsmunum okkar í land-
helgismálinu og á öðrum
sviðum þegar við erum orð.
in gersamlega háð Bretum
og Bandaríkjamönnum efna-
hagslega.
Þetta eru engir hugarórar,
heldur óhjákvæmileg afleið-
ing af þeirri stefnu sem boð-
uð er í þessu málgagni Sjálf-
stæðisfloksins. Vilja Islending-
ar kalla þá stefnu yfir sig
í kosningunum í haust?
<S>-
WELLIT —
einangrunarplötur
hafa reynzt vel
við íslenzkar
aðstæður.
Verð
kr. 46.35 pr.
fermetri.
Mars Trading Co. h.f.
Klapparstíg 20. Sími 1-73-73.
LÖGREGLMNSSTABA
á ísafirði er laus frá 12. nóv. n.k.
Umsóknir sendist undirrituðum fyrir
1. okt. n.k.
Bæjarfógetmn á Isafirði,
24. ágúst 1959.
TILKYNNING
Silkiprentuðu fyrstadagsumslögin, sem Flugmálafélag
Islands gefuri út í tilefni 40 ára afmælis flugs á ís-
landi, verða seld í afgreiðslu Flugfélags Islands, Lækj-
argötu 4, á morgun og föstudag 'kl. 7—10 e.h. og á
laugardaginn frá kl. 3—5 e.h., ef eitthvað verður óselt.
Flugmálafélag íslands.
HÖTEL BIFBÖST
lokar 1. september. — Ennþá nokkur
herbergi laus í þessari viku.
HÓTEL BIFRÖST.