Þjóðviljinn - 26.08.1959, Qupperneq 11
VICKI BAUM:
I.
— Lögreglan, sagði yfirlögregluþjónninn í símann og
leit um leið á klukkuna og skrifaði tímann: 1,18 á blokk-
ina fyrir framan sig.
Kvenröddin í hinum enda símans var kæruleysisleg, það
var næstum eins og henni leiddist — eða kannski var hún
þreytt. Hann fór að skrifa hjá sér aðalatriðin.
— Elísabet Po . . . já, ég er búinn að ná því. P-O-K-E-R.
Elísabet Poker, er það ekki rétt? Syðra Sutton torg 41.
Ágætt. Og hvað hefur komið fyrir? Hvað segið þér?
Hefur einhver verið skotinn? Af hverju sögðuð þér það
ekki strax? Ég á við . . . Hver 'þá? Marileen? Marileen
hvað? Þér eigið þó ekki við Marylynn? Söngkonuna?
S,tj:örnuha?v HapáÍngjan góða, ég hlustaði á'.hana í útvarp-
imjL ,i ,ígærkvöld..Það er ágæ,tt. Snertið ekki á neinu.
Qkka'r menn lcoma undi-r eins. Já, l'íka sjúkrafeíÍl. Ségið
mér, haíið þér nokkra hugmynd um hver gerði það?
Þreytuleg röddin svaraði:
— Já, það var ég sem gerði það. Ég gerði það sjálf.
Svo heyrðist smellur og sambandið yar rofið.
Þegár Bess Poker var búinn að leggja tólið á, stóð hún
andartak og hlustaði á hina djúpu þögn í húsinu. Enn
var ekki farið að rign'a. Það hafði verið óþolandi heitt
allan daginn, og borgin hafði kveinkað sér undan lam-
andi skýjaþykkninu, emjað og kvartað og beðið eftir
regninu. Hún hafði fundið til andartaks léttis þegar hún
hleypti skotinu af, andartaks svala og einhvers sem minnti
á þægilegt, róandi vorregn. En fyrir utan gluggana var
nóttin yfir fljótinu þyngri en nokkru sinni fyrr og heim-
urinn stóð enn á öndinni. Bess leit á raka lófa sína, gekk
að snyrtiborðinu, hellti ögn af kölnarvatni í aðra höndina
og neri ennið. Hún var gersamlega máttvana og tóm hið
innra. Hvað tekur nú við, hugsaði hún og forðaðist að
líta á andlit sitt í spegíinum. Hún hafði aldrei haft gaman
af að horfa á andlit sitt þótt hún hefði öðru hverju með ná-
kvæmni grannskoðað galla þess. Það var ófrítt andlit,
gersneytt allri fegurð, en þó ekki nógu ófrítt til að vekja
áhuga — þannig leit Bess að minnsta kosti á málið.
Sjálf bar hún næstum lotningu fyrir fallegu fólki og
fallegum hlutum, og því var andlit hennar sjálfrar með
þungum, sterklegum dráttum eins og léleg fyndni, og
þessa stundina hafði hún ekki aðeins andúð á að sjá
sjálfa sig, heldur var hún líka hrædd um að sjá í
andliti sínu hina nýju beizkju og nýja hatur, sem náði
hámarki í skotinu fyrir fáeinum mínútum. Eins og í
leiðslu fór hún að bursta hárið burt frá gagnaugunum.
Ég verð að fara í 'kjól, sagði hún við sjálfa sig. Hún
hafði verið í grænu náttfötunum, í þann veginn að fara
í rúmið, þegar Márýlynn fór áð tala. Hún leitaði í fata-
skápnum sínum og eftir nokkra yfirvegun tók hún þaðan
þunná, gráa shantungdragt, fann hreina, hvíta hanzka og
lítinn hatt. Biíið frá því áðan og þar til nú var nú orðið
óyfirstíganleg't, og framundán var ekki neitt. Regnkápa?
hugsaði hún, en svo fót,;húþ, að, h|^ej,aj að.sj^lfri sér.
Fólk sem situr 1 fangelsf íiefur énga þörf fyrir regn-
kápur. Dyrnar að svefnherbergi Marylynn voru opnar
og Bess herti upp hugann og fór þangað inn.
í litla læsta skotinu innst í huganum, þar sem Bess
geymdi draumá sína, flestar tilfinningar og allar einka-
áhyggjur og vonbrigði, hafði hún ef til vill vonazt
eftir kraftaverki. Hún hafði ef til vill gert sér vonir
um að hún gæti fært klukkuna afturábak um eina
klukkustund, fundið Marylynn í rúminu eins og ekkert
hefði komið fyrir. En lífið hafði kennt Bess, að krafta-
verk gerast ekki. Kraftaverkið sem hún hafði gert þeg-
ar hún skapaði Marylynn, háfði iþvöífýlj fþqj;i árang-
urinn af margra ára erfiði. Og nú hafði hún sjálf eyðilagt
sköpunarverk sitt. Hún stóð kyrr fyrir úman dyrnar,
hristi af sér drungann, sem hafði sljóvgað hana undan-
Miðvikudagnr 26. ágúst 1959 — ÞJÓÐVILJINN —- (11
farnar tíu mínútur, og henni varð ljóst á miskunnar-
lausan hátt að Marylynn, sem lá þarna í rúminu. gerði
ekki aðeins að liggja þar — fögur, aðgerðarlaus og löt
eins og venjulega — heldur var hún dáin eða að dauða
komin.
Bess hafði oft á þessum árum sem örlög þeirra höfðu
verið samantvinnuð, sannað að hún var engin hugleys-
ingi. En nú hafði hún ekki hugre'kki til að snerta við
Marylynn og 'hún þorði ekki að koma svo nærri að
hún sæi hvort enn væri lífsmark með þessum fagra,
óhreyfanlega líkama. Hún leit í aðra átt, fór að svipast
um í ríkmannlegu herberginu. Mjúk, hvít teppi, spegl-
ar á veg'gjunum, fangamark Marvlvnn á púðum og tepp-
um og silfurburstum, kristalsflöskununi sem innihéldu
ilmvatnið sem fengið hafði nafn sitt af henni. Kvöldkjóll- -
inn hennar sem lá hirðuleysislePa yfir stólbak, var hríf-
andi íallegur og látlaus í vatnsbláa litblænum, sem Bess
hafði gert að tízkulit undir nafninu — marylynnblátt.
Á gólfinu stóð eitt par af sextíu og fjómm skópörum sem
Marylvnn átti, litlir, gylltir ilskór m°ð akvr>marínspenn-
um. Allt var þetta vandlega úthugsað fil að skapa hag-
stæða mynd af Marylynn hjá hinum forhertu áhugaleys-
ingjum. sem áheyrendahópur New YcrkbnrgaT ramanstóð
af að rni'klu leyti. Þetta var önnur Marylynn. Hin, sem
lá þarna í rúminu, var lauslega hjúpuð víðum, ódýrum,
bleikum slopp. af því tagi sem hennar eigin ómerkilegi
smekkur kaus heldur, og útvöðnu, gömlu inniskórnir
hennar grófu slitnar tærnar í hvíta teppinu, alveg eins
og hún hefði sparkað þeim af sér. En gullið hörundið
á Marylyrm — .ein ,hqnnar mesta prýði— hafði fengið á
sig sjúklegan, gráan litarhátt. Þ'að Har eins og' hún ýæri
einhver hlutur, sem legið hafði þ'árná í' ýíku'ári 'þé'ág að -
af honum væri þurrkað. Emilyj sem lá á lit'Íum brúðu-
kodda við hliðina á kodda Marylynn, starði á Bess með
uppglenntum gleraugum í eilífri andvöku brúðunnar. Þeg-
ar Bess leit af hinni raunverulegu Marylynn og á hina
verðmætu og áhrifamiklu hluti, sem hún hafði sjálf valið
handa stjörnunni Marylynn, fann hún aftur til andar-
taks svala og léttis, sem minnti næstum á ánœgju.
— Þú neyddir mig til þess, Mary, sagði hún. Henni
ibrá þegar hún heyrði sína eigin rödd, og hún kipraði
saman varirnar, svo að þetta nýja, beizka bros hennar
hvarf.
Bergmálið af síðasta samtali þeirra lá enn í loftinu.
Samtalið náði hámarki með kæruleysislegri staðhæfingu
Marylynn um það, að hún væri ákveðin í að hætta á
listabrautinni og snúa sér aftur að tilveru sem var svo
ömurleg og hversdagsleg, að Bess fannst hún hlyti að
vera öldungis óþolandi. Hún heyrði enn fyrir eyrunum
málmkennt hljóðið í rödd Marylynns þegar hún sagði: -—
Það er tilgangslaust að deila um það, Pokéy. Ég er búin
að taka ákvörðun mína, og ég veit nákvæmlega hvað ég
er að gera. Ég er vaxin frá þér. Ég þakka þér fyrir allt,
en nú er ég búin að fá nóg af því að leika taminn apa
fyrir þig og þína. Ég hef aldrei ferigið að lifa mínu eigin
lífi, og það er kominn tími til þess að ég fái það áður en
það er um seinan.
Hugsanirnar suðuðu án afláts í huganum á Bess, eins
og biluð grammófónsplata, endurtóku sömu athuga-
semdirnar upp aftur og aftur, en oftast þó síðustu setn-
inguna sem Marylynn sagði: — Fyrirgefðu Pokey, en nú
hleyp ég frá öllu saman. Svo var eins og hurð væri skellt
og allt var hvítt og tómt. Eitthvað brauzt fram í huga
hennar, sennilega óviðráðanleg örvænting. Ólýsanleg til-
finning sem varð valdandi að skotinu. Og á eftir skotinu
fann hún þessa kennd léttis og þæginda, sem var , ekki
fyllilega hor±'in enn.'Allt í lagi,, hugsaði Bess. Nú:hleypur
þú frá öllu saman, iþað eru endalokin. ’Ég lætti að wera
harmi lostin, en ég er það ekki.
Ósjálfrátt var hún byrjuð að taka til í herberginu ejns
Og hún hafði gert á hverju kvöldi ,1 öll þessi ár, en hún
hélt a,ftur af sér, þegar hún mundi eftir því að lögreglan
ha,fði sagt að 'hún mætti okki snerta neift. Hún fór.aftur
út. úr herþergi Marylynn og gekk niður stigann að dag-
stofunni í virðulega 'húsinu sem þær höfðu flutt í eftir
skilnað Marylynn.
Eftir útvarpshljómleikana, hafði Dale Carbett farið með
Marylynn á Sans Souci, en Bess hafði farið alein heim.
Hún hafði komizt úr jafnvægi yfir ómerkilegu atviki,
sem gerzt hafði um kvöldið, komizt í meiri geðshræringu
en hún kærði sig um að nokkur vissi. Þegar þær fóru upp
í lyftunni í útvarpshúsinu, höfðu þær rekizt á L.uke
Jordan, og Luke hafði látið sem hann sæi þær ekki. Það
var barnale^þ og enginp. heldri maður hefði hagað. sér
þannig við tva^p.,konur —,og hin' failegri þeirra. hafðr
meira að segja verið eiginkona hans þar .lil alveg nýlega
og hin ófríða ’hafði verið bezti vinur hans alla ævL-Eni
Luke var barnalegur. Reyndar var hann miklu meira en
RÖR OG
FITTINGS
Svart: %, V>, %, 1, VA, 1V2,
2, 2V2, 4 tommu.
Galv: 1/2, %, 1, IV4, IV2, 2,
3, 5, 6 tommu, fyrirliggj-
andi.
Sighvatur
Einarsson & Co.
Skipholti 15.
Símar 24133 og 24137.
Miðstöðvarkatlar
kolakyntir
Þvottapottar
kolakyntir
Eldavélar
kolakyntar
fyrirliggjandi.
Sighvatur
Einarsson & Co.
Skipholti 15.
Símar 24133 og 24137.
Þakpappi —
Einangrimar-
korkus*
fyrirliggjandi.
Sicikvalui Imaisson
& Co.,
Skipholti 15.
Símar 24-133 og 24-137.
Hreinlætistæki
Handlaugar
Handlaugafætur
W. C. setur
W. C. skálar
W. C. kassar
lágskolandi.
Vvr. C. kassar
háskolandi
Veggflísar
fyrirliggjandi.
Sighvatur
Einarsson & Co.
Skipholti 15.
Símar 24133 og 24137.
rrúlofunarhringir',. Stein-.
firingir, Hálsmen, 14 og II
kt gull
Nykomið
Finnsk efni í:
píls, kjóla, kápur, drag-
ir, kjólapopplin, skyrtu-
flunnel, kakieíni.
Narðaiy.
Laugav.'60, sími 19031:»