Þjóðviljinn - 05.03.1960, Blaðsíða 4

Þjóðviljinn - 05.03.1960, Blaðsíða 4
4) — ÞJÓÐVILJINN — Laugardagur 5. marz 1960 Athugasemd við grein yfirfiskmats- stjóra Bergsteins A. Bergsteinssonar Þegar við gáfum dagblöðun- um upplýsingar um skemmdir þær. er urðu á íslenzkum fiski, sem sendur var til Jamaica, vorum við þess fyllilega vit- andi að slíkar upplýsingar hafa ekki áður verið gefnar blöðun- um, þótt aðfinnslur um skemmdir á fiski frá íslandi hafi átt sér stað. Við álitum rétt, að ágallar þeir, sem á urðu yrðu heyrum kunnir nú í þetta skipti, vegna þess að hér. var um einstætt og alvarlegt atvik að ræða, það að heilbrigðisyfirvöld lands þess, er þennan fisk fékk, dæmdu nokkurn hluta hans óhæfan til neyzlu og bönnuðu sölu hans. Þetta hefur aldrei komið fyr- ír áður okkur vitanlega. Hér var ekki að ræða um hinar venjulegu aðfinnslur, svo sem undirvigt, ranga flokk- un, brúnan maur, rangar stærðir o.s.frv., sem að vísu skapa kaupanda tjón, en eru á engan hátt sambærilegar við það. sem hér'gerðist. Við ætluðumst til, að blöðin vektu alla þá, sem að fiskfram- leiðslu, verkún fisks og fisk- mati standa, til umhugsunar um, hve háskaleg vond með- ferð, óvönduð verkun og rangt mat eru. í greinargerð okkar var ekk- ert ofsagt, og það tekið fram í upphafi hennar, að hún væri send ;.Með það fyrir augum, - ----— ------- ■ ——- m Kvennadeildin félk 75.000 krónur Hreinar tekjur Kvennadeild- ar Slysavarnafélagsins í Rvík af merkjasölu og kaffisölu á góudaginn urðu yfir 75.000 kr. og er það bezti árangur sem félagið hefur náð á þessum fjársöfnunardegi sínum. Stjórn deildarinnar hefur beðið blaðið að koma á fram- færi þökkum til allra þeirra bæjarbúa sem lögðu henni lið á margvíslegan hátt við fjár- söfnunina. Sérstaklega gladdi það konurnar að skipverjar á Pétri Halldórssyni sendu nú g'jöf- þriðja árið í röð, 1800 krónur. að fiskverkunarstöðvar þær, sem saltfisk þurrka, svo og þeir fiskmatsmenn, er meta saltfisk til útflutnings, geti fengið upplýsingar, sem kæmu þeim að gagrii í framtíðinni“. Grein Bergsteins Á. Berg- steinssonar fiskmatsstjóra í Þjóðviljanum 4. þ.m. — hefst með þessari fyrirsögn: „Fisk- skemmdir á Jamaica.“ Síðan koma ýmsar hugleiðingar, sum- ar okkur með öllu óskiljanleg- ar, og í lokin á grein B. Á. B. segir: „Hins vegar er algerlega sýnilegt öllum, sem athuga gögn þau, er snerta þetta mál, að aðallega hefur fiskurinn skemmzt í óhæfri geymslu kaupanda, eftir að fiskinum er skipað á land í Jamaica“. Áhrif greinarinnar eru Ijós: Hér var ekkert að frá hendi okkar sem seljanda. Fiskmatsstjóra var þó kunn- ugt úm eftirfarandi: 1. Þessi sami kaupandi hafði tekið á móti hvorki meira né minna en 70.000 pökkum af saltfiski frá íslandi á IV2 ári, án þess að nokkrar skemmdir kæmu fram. 2. Að 204 pakkar reyndust skemmdir í septemberfarmin- um í haust, og að 198 pakkar af því voru frá þeim stað, er við undirritaðir töldum aðal- lega hafa valdið tjóni. 3. Að í nóvember voru tæp- ir 500 pakkar frá þessum sama stað, sem allir reyndust stór- skemmdir. 4. Að þriðja sendingin frá umræddum stað, sem umskipa átti í Reykjavík til Brasilíu, reyndist svo vanþurrkaður, að yfirfiskmatið hér og Bergsteinn Á. Bergsteinsson sjálfur álitu hann ekki útflutningshæfan, hvað þurrkun o.fl. snerti, og létu þurrka hann upp hér það mikið, að hann léttist um rúm 10% að sögn stöðvar þeirrar í Hafnarfirði, er tók hann til þurrkunar. Fiskmatsstjóri, sem yfirmað- ur íslenzka fiskmatsins, getur •því ekki borið allar sakir af íslenzka matinu á hinn erlenda kaupanda. Jón Axel Pétursson — Kristján Einarsson. * „Nú liggur vel á / 44 mer Hér kemur kafli úr bréfi frá sjómanni, sem pósturinn hefur borizt, en hann hefur áður sent bréf, þar sem rætt var um eftirlit með happdrættum o.fl.: ,,Nú er annað efni, sém ég ætíá aðeins að minnast á. Það eru þá fyrst kempurnar, sem -kriía í dagblaðið Visi. Síðan efnahagsfrumvarpið var sam- þykkt sem lög syngja þeir dag- 3ega: Nú liggur vel á mér, og segja. að þetta sé lítil fórn fyrir verkalýðinn. Já, margt er skrít- íð í kýrhausnum. Það er sann- 'Joikur. Svo hleypur háifgerður Tarzan í þá, þegar þeir minn- ast á kommana. Það er svo sem von, að þeir reyni að vera svo- lítið mannlegir, þegar þeir sjá, hvernig fylgið hrynur af þeim. En vildu þeir nú ekki vera svo góðir að skýra almenningi frá því, hvað þeir taka sjálfir í kaup. Það væri fróðlegt fyrir almenning að heyra það. Allir vita líka, að menn eins og að-. standendur Vísis hafa aðstöðu til þess að kaupa aila sína neyzluvöru í heildsölu og það munar miklu á verði í stað þess að kaupa af smásölum, sem búnir eru að koma vör- unni eins hátt og hægt er, en það er einmitt það, sem al- þýðan verður að sætta sig við. * Fjölskyldubæturnar Já, það tónar í kór íhalds- Annáll 19. aldar sígur áleiðis Annáll nítjándu aldar heitir mikið rit sem séra Pétur Guð- mundsson frá Grímsey tók saman. Þar greinir frá helztu viðburðum á hverju ári aldar- innar, árferði, mannslátum, embættaveitingum og ýmsu öðru. lítgáfa annálsins var hafin á Akureyri árið 1912. Síðan hefur gengið á ýmsu með hana, en fjögur bindi eru komin út. Nú er útgáfan hafin að nýju, í þetta skipti á vegum Akra- nesútgáfunnar, og býr Gils Guðmunidsson ritið undir prent- hans fyrsta hefti fimmta bind- is. Það er sex arkir og nær frá árinu 1884 fram á árið 1888. Lesið um viðureign Péturs H. Salómonssonar við pólitíska andstæðinga er hann fór í framboð 1956, og hver urðu endalok þeirra mála. Frá þessu er skýrt í riti sem komið er út og nefnist Smádjöflar. Ritið kostar 20 krónur og fæst í Reykjavík og flestum kaupstöðum landsins. Einnig fæst ritið hjá Pétri Salómonssyni meðan birgðir endast. Og er öllum heimilt að biðja Pétur um það, hvar sem harin kann að sjást á almannafæri. Kaflaheitj gefa nokkra hugmynd um efni ritsins, en þau eru: Færði mér höfuð siitt, Þeir fölsuðu nöfn sín, Útvarpið ekki hlutlaust, Stórþjófur, Handsprengja, Er kjósendum ógnað?, Fémútur og smádjöflar, Forsetafrú. , tíTGEFANDI. Sigurður Guð- mundsson formað- ur Ljósmyndara- félags Islands Aðalfundur Ljósmyndarafélags íslands var haldinn í Reykjvík þriðjudaginn 23. febrúar s.l. Félagið hefur nú starfað um 34 ára skeið, en það var stofn- að árið 1926. Félagið er skipað atvinnuljósmyndurum eingöngu, hvaðanæfa af landinu, og beitir sér fyrir framgangi ýmissa á- huga- og hagsmunamála Ijós- myndara. Stjórn félagsins skipa nú þess- ir menn: Formaður: Sigurður Guð- mundsson, Reykjavík, gjaldkeri: Guðmundur Erlendsson, Reykja- vík, ritari; Óli P. Kristjánsson, Húsavík, varaformaður: Oddur Ólafsson, Reykjavík og bréfrit- Ullarefni í kápur, í kjóla °g í pils. MARKADURINN Haínarstræti 11 ari: Þorl. Þorleifsson, Reykja- vík. Blóma- og Grænmetismarkaðurinn. GLEYMIÐ EKKI að Iáta mig mynda barnið Laugavegi Sími 11-980. Heimasími 84-980. Afhugið hvað blcmin em édýr. Tulipanar kr. 5,00 og 7,00 stk. — Páskaliljur kr. 5,00 — Hyacintúr kr. 12,00 pr. stk. Kartöflur kr. 25.00 í 25 kg. po'kum komnar aftur. Bléma- og Grænmefismarkaðurinn, Laugavegi 63 — Sími 16990. liðið, að þetta sé lítil fórn fyr- ir verkalýðinn og engin fyrir barnafólkið, sem fái svo mikl- ar fjölskyldubætur, en ég er nú hræddur um að þeim bregð- ist bogalistin. Hugmyndin var að reyna að kljúfa verkalýðinn með þessu fjölskyldubótafrum- varpi en það verður ekki hægt. Menn sjá allan blekkingavef- inn, sem fylgir því. Svo er þetta svo mikil háðung og skömm, hvernig þetta er í framkvæmd. Það er alveg sjálfsagt, að fátækt fólk fái þessar bætur, en að vel efnum búnir menn og jafnvel stórrík- ir skuli geta labbað niður í Tryggingar og sótt meðgjöf með krökkunum sínum, það tekur út yfir allan þjófabálk. Ég veit, að ég tala fyrir munn margra, að við, sem erum bún- ir að ala upp mörg böm án aðstoðar annarra, skulum vera skattlagðir í ellinni til að borga með börnum stórríkra manna. Þvílík andskotans ófor- skömmugheit. * Verðbækkanirnar Hún er nú rétt að byrja þessi litla fórn, sem íhaldskórinn kallar. Ég er með kolahitun og hún hækkar. um fimm hundruð krónur á mánuði. Afnotagjald símans hækkar um 360 kr. eftir árið. Hvað hækkar trygg- ingargjaldið? Ég hef heyrt að það eigi að hækka um helming eða meir. Og hvað hækkar sjúkrasamlagsgjaldið? Mánu- dagsblaðið var að fræða okkur á því í gær, að hnífurinn hafi verið settur á barkann á heilli stétt, heildsölum og smásölum. Við trúum því svona mátulega. Það er hægt að tala ýmislegt í einkaviðtölum og það er hægt að skrifa allan fjandann í blöðin til þess að blekkja fólk- ið. Eða hvað segja verðhækk- anirnar. Benda þær til þess, að álagningin hafi verið skorin niður? Ég ætla aðeins að nefna tvennt, kolin og karlmannaskó, sem hækka um rúmar hundrað krónur. Dálaglegt það, góðir hálsar. Verkin tala. Það þýðir ekki að vera að birta neinar lygar og blekkingar í blöðun- um. Við þekkjum ykkur orðið. Ég var að hlusta á Vilhjálm Þór núna. Hann var að segja okkur frá gjaldeyrisörðugleik- unum. Hanri minntist ekki einu orði á innstæðurnar á leyni- reikningnum í Bandaríkjunum. Hann hefur kannske verið að telja endur á Tjöminni og gleymt sér þess vegna. Sjómaður.“

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.