Þjóðviljinn - 06.03.1960, Page 7

Þjóðviljinn - 06.03.1960, Page 7
Sunmidagur 6. marz 1960 — ÞJÓÐVILJINN — (7 Þannig: var byrjað -— Hvernig fóruð þið þá éig'- inlega að því að komast yfir hljóðfæri? — í fyrstu notaðist lúðra- sveitin við hljóðfæri sem feng- in voru að láni, og mörg gef- ins frá öðrum hljómsveitum. Þessi hljóðfæri voru vitanlega ílr/;t komin til ára sinna, og því ekki vænleg til mikils árangurs -— en á öðru áttum við ekki kost til að byrja með. Sumir iélagsmennirnir áttu hljóðfæri sjálfir sem þeir léku á. Eti brátt kom að því að ó- hjákvæmilegt var að fá betri hljóðfæri, og hófumst við handa um það fyrir alla þá peninga og bjartsýni er við höfðum yfir. að ráða, og er nú svo komið að lúðrasveitin á mun betri hljóðfæri en í upp- hafi starfs sjns. Fleiri félög þurfa að . . . ,— Þú sagðir áðan að meg- intilgangurinn með stofnun lúðrasveitarinnar hefði verið að efla listiðkun hjá verkalýðn- um og að leika fyrir verka- r 1. maí á Lækjartorgi. Stjórn- fremst á myndinni. lýðsfélögin þegar þau þurfa á að halda, og virðist þá aug- ijóst að þeim beri að gera sitt til að sveitin geti rækt það hlutverk, — hvernig hefur ver- Mynd þessi er tekin fyrir skömmu er Lúðrasveit verkalýðsins var á æfinju. — Ljósm. Sig. Guðm. ið með framlög frá þeim? — Fljótlega skrifuðum við öllum verkalýðsfélögum í bæn- um og mæltumst til að þau styrktu bennan nýgræðing sem væri að skióta róturh innan vé- banda þeirra. Nokkur félög brugðust þegar vel við, en und- irtektir voru í fyrstu lélegar hjá mörgum félögum. Næsta skref okkar var að skrifa full- trúaráði verkalýðsfélaganna um málið. Fulltrúaráðið brást vel við, skrifaði öllum félögun- um og hvatti þau til að styrkja lúðrasveitina, en árangur varð ekki eins góður og við höfðum vænzt. Fnn eru þó nokkur fé- lög sem virðast eiga erfitt með að skilja þýðingu menningar- starfsemi eins og þessarar. Þeim ætti að vera það metnaðarmál Svo farast formanni lúðra- sveitarinnar orð í allri hans vinsamlegu hógværð.' — Verka- lýðsfélög þau er hlut eiga að máli ættu að athuga betur af- stöðu sína til málsins. Gjarnan mættu þau minnast þess að verkalýðsfélögin hafa stundum enga lúðrasveit fengið vegna þess að aðrir. aðilar höfðu tryggb sér lúðrasveitirnar (meðan Lúðrasveit verkalýðs- ins var ekki til). Við nánari at- hugun munu þau brátt sjá að lúðrasveit er ekki grammó- fónsplata eða segulband sem þau geta tekið út úr skúffu á hátíðum og tyllidögum, en lát- ið afskiptalausa þess á milli. Lúðrasveit þarf bæði húsnæði og fé til bess að geta gegnt ætlunarverki sinu. Við nánari athugun munu því einnig þau félög, er lítt hafa skeytt um lúðrasveitina, skilja að tilvera hennar er þeim nauðsynjamál og þá setja stolt sitt í að Lúðrasveit verkalýðsins verði sem bezt undir það búin að gégna hlutverki sínu. Byggist á hinum ungu — Það þarf að leggja meiri rækt við undirstöðuna í tón- listarmenntun, segir stjórn- andi sveitarinnar, Jón Ásgeirs- son. Við höfum fengið full- orðna menn með nokkra þjálf- un í sveitina, en af eðlilegum ástæðum heltast alltaf ein- hverjir úr lestinni. Tónlistar- menntun æskufólks er almennt mjög lítil, því öll músikmennt- un hefur verið afrækt hér. Þess veg'na höfum við tekið þá stefnu að fá unglinga og börn sem vilja leika á hljóðfæri og geta það, og hjálpa þeim, kenna þeim. Á þetta höfum við lagt aðaláherzluna í vetur. — En eru ekki til barna- lúðrasveitir? • — Jú, bað eru tvær drengja- lúðrasveitir í bænum, en það er rétt tilraun, því það! eru valin úr aðeins fá börn, en engin almenn tónlistarmennt- un. — Hvernig hefur ykkur geng- ið þetta í wtur? — Við höfum fengið tölu- vert af strákum, allt frá 12— 13 ára aldri til tvítugs, svara þeir Jón og Ólafur. Þessir pilt- ar hafa lært í vetur og bind- um við miklar vonir við þessa ungu menn. Aðaláherzluna höfum við lagt á það í vetur að kenna þess- um ungu mönnum og þjálfa þá sérstaklega, og þess vegna hafa samæfingar svéitatinnar ekki orðið alveg eins margar og áður. Við búumst við að flestir þessara ungu manna verði orðnir. það þjálfaðir i vor að þeir geti leikið með sveitinni þá og vonumst því til að sveitin verði þá orðiri betur liðuð en áður var. Að endingu viljum við hvetja öll verkalýðsfélög til þess að styðja v. lúðrasveitina með ráð- um og dáð eftirleiðis. Verka- lýðsbarátta verður ekki háð með árangri ef menningarstarf- semin er afrækt. Menningu hverrar borgar má og marka á því hve mörgum og góðum lúðrasveitum hún hefur ■ a að skipa. ★ Þess er sannarlega að vænta að verjtalýðsfélögin kunni, að meta að verðleikum fórnfúst áhugasfarf þessara ungu manna. Lúðrasveit sem heíur verkalýðssamtökin að bakhjarli ætti að geta verið ein öllugasta lúðrasveit á landinu. J. B. .................................... .............................................. iiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiimiiiiiciiiiiiiiiiiiiiiiimiiiiiiiiiiiiiiiiitiniii S KÚL I GUÐJÓNSSON: daj£ vort JL em verða þær, að stjórnarvöldin, ar snýst um, þótt þeim er telja sennilega látið hina vísinda- legu hagfræði Jónasar Haralz eins og vind um eyrun þjóta, þótt meistarinn Jónas hefði sjálfur komið til hans með fræði sín. færi fram úr öllu valdi og óðaverðbólga tæki við. ,,At- vinnurekendurnir“ gætu ekki safnað sér nægilega digrum sjóðum og það yrði enn að fella gengi, hækka vexti og koma á nýju efnahagskerfi. skilað því daglega brauði, sem ranglega hefur verið af því reiknað og að þeir pólitísku stórsyndarar, sem að þessum útreikning'um hafa staðið og sjá um íramkvæmd þeirra, mættu iðrast sinna misgerða og þau hin veraldlegu, yrðu að grípa til róttækra efnahags- leg'ra aðgerða til þess að koma í veg fyrir að allt hrapaði fram aí brúninni. Þau yrðu bein- hnis að taka ráðin af forsjón- inni og taka nokkurn hluta þess daglega brauðs, er guð hafði gefið fólkinu, af því aft- ur. En Kristur hafði engan Jón- as Haralz sér til ráðuneytis, við samningu hinnar drottin- legu bænar og því stendur bænin um hið daglega brauð í miðju Faðirvorinu, eins og þungamiðja og kjarni, enda ekki ósennilegt að bænin um hið daglega brauð hafi frá önd- verðu verið mönnunum hug- stæðári en aðrir hlutar Faðir- vorsins. Og skipting hins dag- lega brauðs hefur verið og mun líklega verða enn um sinn það sem hugur mannkindarinn- sig mikið andlega sinnaða þyki það nú hvorki háleitt né fínt. Og samkvæmt því sem sá frómi maður, Marteinn Lúther,_ skilgreinir hugtakið daglegt brauð, er hreint ekki svo lít- ið sem í því felst. Meðal ann- ars matur og drykkur, klæði og skæði, hús og heimili, akur, fénaður og öll gæði. Ja, hvorki meira né minna en öll gæði! Og vafalaust myndi upptalning Lúthers hafa orðið miklu leng'ri, ef hann hefði þekkt öll þau gæði, sem upp hafa komið eft- ir hans daga af hinu verald- lega tagi. En Lúther má hins vegar virða það til vorkunn- ar, að hann hefur ekki, frem- ur en Kristur, þekkt hin vís- indalegu lögmál hagfræðinnar, sem leyfa það ekki, að bænin um daglegt brauð verði heyrð. En Lúther var þrár, og hefði Áður fyrr vantaði oft brauð, eða þá að einn einstaklingur sat yfir annars hlut, og þeir hinir sterkari skömmtuðu þeim verr settu og skáru við nögl. Nú ér annar háttur á hafður. Með hjálp hinnar vísindalegu hagfræði og fullkominna reikni- véla er hægt að reikna brauð- ið frá fólkinu. Niðurstöður vís- indanna og vélanna eru ein- faldlega samþykktar á Alþingi og kölluð lög. Og hver skyldi svo sem vilja efast um, að vís- indin og reiknivélarnar hafi rétt fyrir sér? Ekki geta menn- irnir, sem stjórna vélunum gert að því, þótt útkoman yrði svona. Nú þýðir ekki að biðja guð um daglegt brauð. Hann hefur verið settur í sjálfheldu. Og ef guð vildi samt sem áður af ríkdómi sinnar náðar gefa fólkinu daglegt brauð? Þá yk- ist kaupgetan, fjárfestingin Til er fyrirbæri á landi hér, sem nefnist hinn almenni bænadagur þjóðkirkjunnar. Sagt er, að biskup landsins velji hverju sinni bænarefni dagsins. I-Ivernig væri nú, jaín- vel þótt það kunni að stríða gegn lögmálum hinnar vísinda- legu hagfræði, að helga kom- andi bænadag hinu daglega brauði? Þvi að í rauninni er það svo, að spurningin um daglegt brauð mun nú, eftir hinar vísindalegu efnahagsað- gerðir, standa almenningi hjarta nær en allt annað. Ekki einungis samkvæmt hinni frjálslegu túlkun Lúthers, held- ur einnig í orðsins þrengsta skilningi. Og það dugir ekki, að bera bænina fram svona eins og út í bláinn og' beint af augum. Það þarf neínilega að óska eítir því alveg umbúða- laust, að fólkinu verði aftur bæta fyrir þær. Þetta yrði þá jafnframt bæn um, að sú vonda stjórn, sem nú ríkir yfir þessu landi mætti sjá að sér, áður en dagur reikningsskilanna rennur upp, og bæta ráð sitt. Ef að þessu ráði yrði horíið, myndi bað verða öllum til góðs. Kennilýðurinn, sem að bænár- gerðinni stæði, myndi vaxa: áð vizku og náð fyrir guði- og' mönnum. Ríkisstjórnin og reiknimeistarar hennar, myndu ekki fá staðizt slíkt áhltuip andlegrar orku og skila fólk- inu aftur því dagiega brauði,’ sem þeir hafa ranglega af því reikna.ð og fólkið myndi ver'ða ánægt og hamingjusamt yíir þvi að fá aftur sitt brauð og öðlast þarmeð meira traust“á kirkju sinni og kennilýð, en það áður hafði. * Skúli Guðjónssou. í* 1 í

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.