Þjóðviljinn - 09.03.1960, Blaðsíða 1

Þjóðviljinn - 09.03.1960, Blaðsíða 1
1 VILJINN Miðvikudagur 9. marz 1960 — 25. árgangur — 57. tölublað. Kostar 100 millj. Bráðabirgðaáætlun hefur verið gerð um endurreisn Agadirs, en ætlunin er að fyrstu nýbygging- arnar verði tilbúnar að ári. Gert er ráð fyrir að endurreisnin muni kosta a.m.k. 100 milljónir dollara. FARMENN KREFJAST 35% HÆKKUNAR Sjómannafélag Reykjavíkur er búið að bera fram formlegar kröfur um kjarabætur — Sanmingar hefjast á fimmtudag Sjómannafélag Reykjavíkur hefur nú afhent atvinnu- rekendum kröfur sínar um mjög verulega bót á kjörum farmanna. Er þar farið fram á sem næst 35% hækkun á íastakaupi háseta og hliðstæöar eða meiri hækkanir á öörum liðum. Búizt er við að samningaviðræður um þess- ar kröfur. hefjist á fimmtudag. Þjóðviljinn sneri sér í gær til Sigíúsar Bjarnasonar, starfs- manns Sjómannafélags Reykja- víkur og spurðist fyrir um kröíur farmanna. Staðfesti hann að Sjómannafélagið hefði borið íram formlegar kröfur en kvaðst ekkert vilja um þær segja að svo stöddu. Þjóðviljinn ai'laði sér þá upplýsinga um kröfurnar eft- ir öðrum ieiðum og bar þær upplýsingar aftur undir Sigfús; taldi hann þær niðurstöður myndu yfirleitt vera nærri lagi. uiiiiiiiHiiiiiiiiiiuimiiiiiiiiiiiiiiiniii 1 Sósíalista- | | félagsfund- | | ur í kvöld | E Fundur Sósíalistafélags- = E Reykjavíkur liefst kl. 8.30 E E í kvöld í Tjarnar,götu 20. E E Fundarefni: Drög að E E stjórnmálaályktun tólfta E = l'higs Sósíalistaflokksins. E = Félagar sýni skírteini E = við innganginn. = IIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIHIIII! Sendinefnd íslands í Genf í gær barst Þjóðviljanum svo- felld frétt frá utanríkisráðuneyt- inu; • ;Eins og kunnugt er hefst í Genf hinn 17. marz n.k. á veg- um Sameinuðu þjóðanna önnur alþjóðaráðsteína um réttarregl- ur á hafinu, og er hlutverk ráðstefnunnar að setja reglur um víðáttu landhelgi og fiskveiði- lögsögu. í sendinefnd íslands á ráð- stefnunpi eiga þessir menn sæti- Guðmundur f. Guðmundsson. utanríkisráðherra, formaður, Bjarni Benediktsson, dómsmála- ráðherra, HanS G. Andersen, ambassador, Davíð Ólafsson, l'iskimálastjóri, Henrik Sv. Björnsson, ráðuneytisstjóri, Her- mann Jónasson, fv. forsætisráð- herra, tilnefndur af Framsókn- arllokknum, Jón Jónsson, íiski- lræðingur, Lúðvík Jósepsson, fv. ráðherra, tilnefndur af Alþýðu- bandalaginu'*. Samkvæmt því eru kröfur þær sem Sjómannaíélag Reykja- víkur hefur borið fram í aðal- atriðum á þessa leið: Fastakaup hjá fullgiklum há- setum hækki um 34.7%. Yfirvinnutaxtar hækki um 36—54%. Greiðsla fyrir tvískiptar vakt- ir, t.d. á varðskipunum, hækki um 35%. Fæðispeningar hækki um 42,85%. Fatatrygging hækki um 100%. Verkfæralán hjá timburmönn- um hækki um 37%. Tekin verði upp ný persónu- trygging sem nemi 200.Ó00 kr. ? armannagjaldeyririnn. í kröfum þessum er ekkert tek- ið fram um farmannagjaldeyrinn,, því hann hei'ur aldrei verið bundinn í samningum, heldur að-j’ eins með munnlegu samkomu- lagi. Hins vegar hefur gengis- lækkunin raskað þeim samning- um mjög verulega; farmenn þeir sem stunda siglingar fá nú ann-; aðhvort mun minni gjaldeyri en áður eða gjaldeyririnn gleypir meginhlutann af kaupi þeirra. Er trúlega _að þau atriði beri einnig mjög á góma í viðræðum þem sem hefjast á morgun. Farmannasamningar Sjó- mannalelags Reykjavíkur hafa nú verið laugir í hvorki meira né minna en rúma 15 mánuði. Gengu þeir úr gildi 1. desemb- er 1058. Skömmu eftir það tók stjórn Emils Jónssonar við völd- um, og hélt þá stjórn Sjómanna-j félagsins að sér höndum, þrátt fyrir mikla óánægju farmanna, ekki sízf eftir kaupránslögin í ársbyrjun 1959. Eítir gengis- lækkunina nú heíur rignt yfir stjórn Sjómannafélagsins mót- mælum og kröfum farmanna. þannig að stjórnin hefur að von- um ekki talið stætt á því að hafa samninga lausa og óbreytta lengur. 111111111111111111111111111111111111111111111111L í Reykjavík Loftleiðir eru nú farn- ar að nota hina nýju Cloudmaster-flugvél sína „Leif Eiríksson" í áætlun- arfluginu milli meginlands Evrópu og Ameríku. Flug: vélin fór hér um á vest- urleið sl. laugrdag, eins og frá var skýrt í Þjóðvilj- anum í gær. Um sex leytið í gærmorgun lenti Leifur aftur hér í Reykjavík, kom frá New York. Síðar um daginn hélt flugvélin áfram ferð sinni austur yfir hafið. Myndirnir voru teknar á Reykjavikurflugvelli í gærmorgun, er „Leifur Eiríksson“ var framan við afgreiðsluskýli Loft- leiða_ Eins og 'kunnugt er, verður önnur flugvél, samskonar, afhent Loft- leiðum vestur í Flor'ída í Bandaríkjunum í dag. Sú flugvél kemur hingað til lands að hálfrj annari viku liðinni. JJ111111111111111111111111111111111111111 i 1111111 li 111111111111111111111111111111111111111111 ■ 1J11111111111111111111111111111111 i 1111 i 111II í 111111 | Bretar segjast hafa hindrað I töku togara í 65 skipti 1 lllllllllllllllllllllllll! Brezkir togaraeigemlur liéldu árlegan föguuð sinn í London í siðustu viku. Yfirforingi brezka flotans, sir Charles Lamb; var sérstakur heiðursgestur í þeim fögnuði. Hann skýrði. togaracigendum frá því að undanfarna tæpa 19 llllllllllllllllllllllll mámiði, eða síðan íslendingar stækkuðu Iandhelgina, liefðu brezk lierskip komið í veg fyrir töku brezkra togara við ísland í 65 skipti. Læknisaðstoð hefði verið veitt 330 sinnnm. Auka- kostnaður af aðgerðum brezka flotans við ísland hefði á þessu tímabili numið 250.000 sterlings- pundum, eða rúmlega 25 millj- ónum króna. (Raunverulegur kostnaður af þessum aðgerðum er að sjálfsögðu margfalt sinnum mciri). Atlasskeyti í gær var skotið flugskeyti a£ gerðinni Atlas írá Canaveral- höfða í Bandaríkjunum. Var skeytið búið nýjum sjálfvirkum stjórntækjum. Það fór um 10.000 kílómetra. Herinn hverfi úr landi svo fljótt sem auðið er Þrítugasta og sjöunda þing Ungmennasambands Kjalar- nesþings var háð í félags- heimili Kópavogs um síðustu helgi. Var þar m.a. samþyklit ályktun um brottl'ör banda- ríska hernámsliðsins og önnur um samstöðu í landhelgis- málinu. Álýktunin um hernáms- málið er svohljóðandi: ,Í37. þing U.M.S.K. á- lyktar: Dvöl erlends her- liðs á íslenzku landi er ósamrímanleg hugsjón- um ungmennafélaganna. Þingið telur því að vinna beri að því að her- inn hverfi úr landi svo fljótt sem auðið ei." Þingályktunin um landhelg- ismálið er svofelld: „37. þing U.M.S.K fagnat - útl'ærslu fiskveiðitakmark-- anna við landið og samstöðii allra stjórnmálaflokka uin málið.“ , ___ __ j

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.