Þjóðviljinn - 19.03.1960, Side 4
<£) ■—■ ÞJÓÐVILJINN — Laugardagur 19. marz 1960
Minnzt )0 éro
' l n i; i 7/1 /1T/ 'T \i;
afmœtis
Oháði söfnurinn í Reykjavík
minntist nýlega 10 ára afmælis
síns með fjölmennu samsæti.
Veizlustjóri var Sigurjón Guð-
mundsson forgtjóri, en ræður
fluttu Andrés Andrésson, sem
verið hefur formaour safnaðar-
Stjórnar frá upphafi, Bogi Sig-
urðsson kennari, gjaldkeri safn
aðarins, séra Emil Björnsson
safnaðarprestur. Álfheiður
Guðmundsdóttir, sem verið hef-
ur formaður kvenfélags safn-
aðarins frá stofnun þess, og
Stefán Árnason, er talaði af
hálfu Bræðrafél. safnaðarins
x forföllum formanns þess, Jón
Arasonar. Ennfremur töluðu
Kristinn Ág. Eiríksson járn-
smiður, Ásmundur Guðmunds-
son fyrrv. biskup, séra Bjarni
Jónsson vígslubiskup og María
Maack. Þuríður Pálsdóttir söng
einsöng og sýnd var kvikmynd
af vígslu kirkju Óháða safnað-
arins sl. vor. Formaður og
prestur safnaðarins vottuðu
•þakkir öllum þeim í söfnuðin-
um og utan hans sem lagt liafa
málum hans og kirkjtibygg-
íngu lið á undanförnum árum.
I afmælishófinu var ekýrt
frá því að kvenfélag safnaðar-
ins hefði ákveðið að gefa altar-
istöflu sem íslenzkur listmálari
málar í sumar. Þá gaf bræðra-
félagið -6000 kr. til kirkjunnar
og Vestur-íslendingurinn Skúli
Bjarnason gaf 10 þúsund kr.
Eitt tonn af
I skreið til Aga-
dir-söfnunar
Þjóðviljanum barst í gær yf-
irlit frá Rauða krossi íslands
um Agadir-söfnunina. Alls
söfnuðust 'í peningum 16.280
krónur og voru gefendur ein-
staklingar og fyrirtæki;
stærsta fjárhæðin 5 þús. kr.
var frá Seyðisfjarðardeild
RKÍ.
Skreiðarsamlagið gaf eitt
tonn af skreið og er verðmæti
þeirrar gjafar ca. 25 þús. kr.
Auk þess fjár, sem að framan
igetur, mun Rauði kross íslands
leggja fram nokkurt fé til við-
bótar. Söfunarfénu verður varið
í samráði við Rauða hálfmán-
ann. í Martkkó.
'I\r v 1 • r • Norskur verkfræ
iNeyöarmerki a ritvel — ingur, Leif Evense
hefur fundið upp tæki sem hann kallar „au'tomorse“. Það er
nokliurs konar ritvél, sem gerir mönnum fært að senda loft-
skeytamerki án þess að kunna mors-stafrófið. Sé til dæmis
slegið á takkana SOS sendir sendistöð í sambandi við ritvélina
ú't neýðarmerkið. Þetta tæki á ekki að koma I stað loftskeyta-
manns, en vera til vara í skipum og björgunarbátum, ef þar er
enginn sem kann að senda loftskeyti á venjulegan hátt.
Öryggisþjólf-
un flugliða
Flugfélogsins
I vetur hefur Flugfélag Is-
lands starfiækt skóla þar sem
flugliðunum, þ.e. flugmönnum,
flugleiðsögumönnum, flugvél-
stjórum og flugfreyjum eru
kynntar nýjungar er fi-am
koma á sviði öryggismála, eldri
fræði rifjuð upp o.fl. Hefur
Flugfélagið fengið fullkomin
kennslutæki, sem gera kleift að
öll þjálfun flugmanna félags-
ins farj fram hér á landi.
Nýr þáttur í þjálfun flug-
áhafna hófst í gær. Hann er
í því fólginn, að flugáhöfn er
flutt með allan útbúnað, sem
er í venjulegri fárþegaflugvél
til staðar sem er innan við 80
km frá Reykjavík, en sem ekki
er tilgreindur að öðru ieyti.
Áhöfnin hefur m.a- senditæki
en engan móttakara. Að nokkr-
um tíma liðnum er leitarflug-
vélum gert aðvart. Þær eiga
síðan að miða staðinn eftir
sendingum tækisins, finna
hann og varpa niður birgðum.
Hæsti útilegubátur
Framh. af 12. síðu
róðrum, Víkingur 100 tn. í 8
róðrum og Hermóður 92 tn.
í 11 róðrum.
Aðrir bátar eru með minna.
Sumir dagróðabátanna landa
[ öðrum verstöðvum, einstaka
sinnnum. og því eru aflatölur
eingöngu miðaðar við löndun
hér í Reykjavík.
Þessar aflafréttir frá Reykja-
vík fékk fréttamaður Þjóðvilj-
ans hjá Nikulási K. Jónssyni
fyrrum skipstjórá.
Saumavéla-
v i ð g e r ð i r
Fljót afgreiðsla
SYLGJA, Laufásvegi 19.
Sími 1-26-56.
Rósir
aískornar. •
(gróðrarstöðin við
Miklatorg).
• Bifreiðaeign
íslendinga
■ Fyrir nokkru var getið i
frétt hér í blaðinu um skýrslu
sem Vegamálaskrifstofan hef-
ur gefið út fyrir bifreiðaeign
landsmanna við síðustu ára-
mót. I þessari skýrslu er
ýmsar mjög fróðlegar upp-
lýsingar að finna. Það sést t.
d. að á síðustu 10 árum hef-
ur fjcldi fól'ksbifreiða í land-
inu meira en tvöfaldazt eða
vaxið úr 6327' árið 1950 í
14553 árið 1959. Á sama tíma
hefur vörubifreiðum einnig
stórfjölgað, én þær voru 4380
árið 1950 en eru nú 5703.
Þessar tölur tala óneitanlega
sínu máli. Það væri t.d. gam-
an að vita, hve mikil verð-
mæti liggja í þessari óhóf-
legu bifreiðafjölgun í landinu
og hve miklum erlendum
gjaldeyri hefði Verið varið til
þessara hifreiðakaupa Skyldi
ekki hafa verið hægt að verja
a.m.k. einhverjum hluta hans
á hagkvæmari hátt fyrir
þjóðina ?
Annað, sem hlýtur að vekja
alveg sérstaka athvgli í þess-
ari skýrslu, er tegundaf.jöld-
inn af bifreiðunum. Fólksbif-
reiðirnar skiptast þannig eftir
95 tegundum og vörubifreið-
arnar eftir 106! Þetta er önn-
ur vitleysan frá. Vitanlega
hlýtur það að vera mun kostn-
aðar- og fyrirhafnarsamara
fyrir þjóðina, að útvega t.d.
varahluti í allar þessar b'íla-
tegundir heldur en ef þær
væru helmingi færri. Og í
annan stað eru sjálfsagt fæst-
ar af bessum bifreiðategund-
um heppilegar fyrir þær að-
stæður. sem eru hér á landi.
Heilbrigð skynsemi virðist
sem sé ekki ráða miklu um
bifreiðakaup okkar eftir þess-
ari skýrslu að dæma, og því
miður em bau vist ekkert
einsdæmí um ..verzlunarhygg-
indi“ okkar íslendinga.
• Vísur um hvítu
bókina
Bæjarpósturinn hefur feng-
ið sendar vísur utan af landi
og segist höfundur hafa ort
þær eftir lestur hvítu bókar-
innar svonefndu, sem ríkis-
Menmiigarsaga Breiðfirð-
inga rituð og gefin út
Nú er að hefjast á vegum Breiðfirðingafélagsins ritun
á Menningarsögu Breiðfirðinga, en það verður rit hliö-
stætt ritum Skagfirðingafélagsins um Skagafjörö. og
sögu hans.
Frá þessu var skýrt á aðal-
fundi félagsins nýlega.
Bergsveinn Skúlason fræði-
maður frá Skáleyjum er nú að
skrifa um atvinnuhætti við
Breiðafjörð á liðnum öldum og
árum. en héraðið hafði einmitt
að ýmsu leyti sérstöðu á því
rsviði, einkum vegna eyjanna og
vinnubragða þar. Þá er í ráði
að fá skráða sögu höfðingja-
setranna við Breiðafjörð, sögu
breiðfirzkra sæfara og skálda,
eftir því sem við verður komið.
Tímarit félagsins, Breið-
firðingur, kemur út árlega og
flytur margskonar fróðleik og
fréttir, auk skemmtiefnis og
minningargreina um látna
Breiðfirðinga. Framkvæmda-
stjóri Breiðfirðings er Jón Júlí-
us Sigurðsson bankagjaldkeri,
en ritstjóri er séra Árelíus
Níelsson.
Markmið Breiðfirðingafélags-
ins er að efla kynnni og sam-
starf Breiðfirðinga, sem flutzt
hafa hingað til Reykjavíkur, og
vinna að framfaramálum í
heimabyggð þeirra eftir föng-
um. Aðalmál félagsins er nú
söfnun til Björgunarskútusjóðs
Breiðafjarðar, en sjóð þennan
stofnuðu hjónin Svanhildur
Vestur-lslending-
um boSið beim
Eins og skýrt var frá hér í
blaðinu í fyrradag, hefur fimm
manna ríkisskinuð nefnd starf-
að undanfarin ár að eflingu
samskipta íslendinga liér heima
og vestan hafs. Hefur aðalverk-
efni nefndarinnar verið undir-
búningur að útgáfu Vestur-ís-
lenzkra æviskráa, en nefndin
mun einnig stuðla að heimboð-
um Véstur-íslendinga. Mun
prófessor Richard Beck m.a.
koma hingað til lands 'í vor
einnig ung stúlka frá Winni-
peg, Heather Sigurdson, dótt-
urdóttir Guttorms Guttorms-
sonar skálds, en hún sigraði í
fyrra í fegurðarsamkeppni sem
hún tók þátt í þar i borg.
stjórnin okkar gaf út hér
fyrir nokkru til þess að sanna
þ.jóðinni blessun gengisfell-
ingariynar og kiaraskerðing-
arinnar. Vísur S.E., en svo
nefnir höfundur sig, eru svo-
hlióðandi:
Það var svo sem auðséð, að
ekki stæði lengi
það ástand, sem því stundum
til leiðar komið fékk,
að almúginn í fötum með
fínu sniði gengi
og fékk sér jafnvel sæti á
höfðingjanna bekk.
Því safnist að þér auður og
ógnarvaldabyrði
og ýmsir fara að kalla þig
talsvert fínan mann,
Jóhannsdóttir og Þorbjörn
Jónsson fyrir nokkrum árum.
Stjórn Breiðfirðingafélagsins
s'kipa nú: Árelíus Níelsson for-
maður, Jóhannes Ölafsson, Al-
fons Oddsson, Ástvaldur Magn-
ússon, Ólafur Jóhannesson, Ás-
björn Jónsson, Erlingur Hans-
son, Jón Júlíus Sigurðsson,
Þórarinn Sigurðsson og Björg-
úlfur Sigurðsson.
Ekknasjóði Is-
lands berast góð-
ar gjafir
Ekknasjóði Islands hefur
borizt minningargjöf að upp-
hæð 25 þús. kr- til minningar
um Guðjón Sigurðsson vél-
stjóra, Freyjugötu 24, Reykja-
vík, sem fórst með vitaskipinu
Hermóði í fyrravetur. Vill gef-
andi ekki láta nafns síns getið.
Áður hefur sjóðurinn fengið
minningargjöf um sama mann
frá Kvenfélagi Mýrahrepps í
Dýrafirði, 2 þús. kr. Hefur
biskupinn, hr. Sigurbjörn Ein-
arsson beðið blaðið að flytja
gefendum alúðarþakkir.
Ekknasjóður íslands var
stofnaður á stríðsárunum.
Stofnfé var gjöf frá sjómanns-
konu, er lagði hluta af áhættu-
þóknun manns síns fram til
þess að mynda sjóð til etyrktar
bágstöddum ekkjum. Sjóðurinn
hefur eflzt verulega en hann
þarf að vaxa að miklum
mun til þess að geta að
nokkru marki gegnt því hlut-
verki sínu að létta eitthvað
undir með lijálparþurfa, fyrir-
vinnulausum heimilum. Eru
gjafir til ejóðsins því þakksam-
lega þegnar. Sjóðstjórn skipa:
Biskupinn yfir Islandi, María
Maack yfirhjúkrunarkona og
dr- Hjalti Þórarinsson læknir.
Lárus Salómons-
son kjörinn for-
maðnr B./EJL
Lárus Salómonsson var kjör-
inn formaður Bandalags æsku-
Iýðsfélaga Reykjavikur á árs-
þingi þess fyrir skömmu.
Aðrir í stjórn eru: Árelíus
Níeisson, Þorsteinn Valdimars-
son, Böðvar Pétursson, Adólf
Tómasson, Hörður Einarsson,
Þorkell Steinar Ellertsson. —
Varamenn • eru: Kjartan Gísla-
son, Þorsteinn Gylfason, Gunn-
ar Guttormsson, Hörður Helga-
son, Brynhildur Sigurðardóttir
og Rögnvaldur Sveinbjörnsson.
Á ársþinginu voru ýms mál
rædd en aðalræðurnar urðu um
tillögur fjárhagsnefndar um
leiðir til fjáröflunar fyrir
BÆR, þar sem bandalagið er
aðili að íþrótta- og sýningar-
! höll þeirri, sem reisa á í Laug-
ardal. Að framkvæmdum
| standa sýningarsamtök at-
sú upphefð mundi reynast vinnuveganna (41%), íþrótta-
svo ósköp lítils virði, ; handalag Reykjavíkur (4%),
ef ættir þú að skála við kam-' BÆR (4%) og Reykjavíkur-
armokarann. ' bær (51%).