Þjóðviljinn - 30.03.1960, Side 10
JO) — ÞJÓÐVILJINN — Miðvikudagur 30. marz 1960
Þingsjá ÞjóðvHjans
'Framhald af - 7. siðu.
manna þannig að draga sam-
an seglin um útgjöld og
spyrja engan, hvort hann geti
þetta að skaðlausu."
„Alþýðuhandalagið telur, að
svo vel og örugglega hafi
þj^ðinni miðað í framfaraátt
á undanförnum árum með
aukinni framleiðslu og vax-
andi þjóðartekjum, að ástæðu-
laust og óverjandi sé að láta
hinar brýnustu nauðsynja-
framkvæmdir dragast saman.
Þannig hlýtur það að átelja
þá stefnu ríkisstjórnar-
innar að ætla að Vninnka þjóð-
vegalagningu, brúargerðir og
hafnarframkvæmdir um fast
að þriðjungi með því að veita
í krónum talið sömu eða
næstum sömu upphæð til þess-
árá framkvæmda nú og í
fyrra þrátt fyrir dýrtíðarvöxt-
inn. Vera má, að einhverjar
framkvæmdir ríkisins mættu
dragast saman að .skaðlitlu,
on um vegi, brýr og hafnir
gegnir allt cðru máli, og gerir
Alþýðubandalagið tillögur um
þessa liði og miðar við, að
framkvæmdir haldist svipað-
ar og á fyrra ári.“
★
Breytingartillögurnar er
Kari flutti af hálfu Alþýðu-
bandalagsins og aðrar er
fluttar voru til lagfæringar
fjárlögunum felldi stjórnar-
Iiðið sem einn maður. Á ein-
.staka liðum hafði náðst sam-
komulag í fjárveitinganefnd
um lagfæringar. En eina
„frjálsræðið“ sem stjórnarlið-
liðið leyfði sér var að sam-
þykkja 10 þúsund kr skálda-
laun til Ásmundar frá Skúf-
stöðum og eina milljón í
stjórnarráðshús, sem upplýst
var að kosta ætti 50—60
milljónir.
★
Breytingarnar á lögunum ;
um almannatryggingar voru
allmikið ræddar á Alþingi í
vikunni sem leið, og er stjórn- j
arfrumv&roið komið gegnum
neðri deild og fór 1. umræða
málsins í efri deild fram sl.
laugardag.
Frá því hefur verið skýrt
hér í blaðinu hvernig frum- j
varp þetta er tilkomið. Það er
að meginefni árangur af
starfi tveggja milliþinga- j
nefnda- er unnið höfðu að ó-
hjákvæmilegum endurbótum
á ákvæðum tryggingarlaganna
um lífeyrisgreiðslur og slysa-
tryggingar. Við árangur af
starfi þessara nefnda bætti
ríkisstjórnin svo ,sárabótum“
sínum, hækkunum sem gerð-
ar eru í þeim yfirlýsta til-
gangi rð vega að nokkru upp
á móti hinni stórkostlegu
kjaraskerðingu, sem Sjálf-
stæðisflokkurinn og Alþýðu-
flókkurinn eru að dengja yf-
ir þjóðina.
Að sjálfsögðu er það til
bóta að bætUr almannatrvgg-
inganna séu stórhækkaðar,
W.C.-sæti
hvít og svört
fyrirliggjandi.
Sighvatur Einarsson
i &co.f
{ Skipholti 15.
t . Símar 24133 — 24137.
og skörtir þó mikið á að
tryggingarnar geti fullnægt
þeirri ætlun sem er megin-
hugsun þeirra, að veita
mönnum fjárhagslegt öryggi
í veikindum, þrorku, elli og
öðrum þeim aðstæðum er gera
manni ókleift að sjá sér og
sínum farborða af eigin vinnu.
En ömurlegt er að heyra
hræsnistal Sjálfstæðisflokks-
ins um forgöngu í tryggingar-
málum, Breytir þar engu þótt
1946 hafi hann staðið að
' tryggingarlöggjöfinni. Til þess
þurfti að þrýsta Sjálfstæðis-
flokknum í stjórnarsamning-
unum um nýsköpunarstjórn-
ina, og síðar tókst honum að
skemma svo málið, að það
var lagt fram og samþvkkt án
nægilega trvggðs f járhags-
hagsgrundvallar og neytti
loks- fvrsta færis, ásamt
raunar Framsókn og Alþýðu-
flokknum t.il að gera að engu
eitt merkasta nýmæli löggjaf-
arinar frá 1946, heilsugæzlu-
kaflann.
Og Alþýðuflokkurinn hefði
af meiru að státa í sambandi
við tryggingarnar, ef þessar
umbætur hefðu nú fengizt án
þess að ávinningi þeirra væri
jafnskjótt varpað í gin kjára-
skerðingarmillu ríkisstjórnar
Alþýðuflokksins óg íhaldsins,
sem í algerri forherðingu lét
þinglið sitt fella tillögur
Hannibals Valdimarssonar að
vísitöluuppbót skyldi greidd á
ellilífeyri og örorkubætur, til-
lögur um hækkun bótanna,
um afnám hins illræmda
skerðingarákvæðis, um að
heilsugæzlukaflinn yrði á ný
settur í lögin.
27. 3. 1960.
S.G.
Milljónatuga verðmæti eyðileggjast
Framhald af 1. síðu
mikil verðmætí mundu há fara
í súginn.
Sturlaugur sagði. að freðsíld-
in hefði alltaf undanfarin ár
selzt jafnóðum og hefðu menn
búi'/t við, að eins yrði þetta
nú. Fn nú væri skyndilsga ó-
kleift með ollu að selja 1 essa
síid austur á bóginn
og mumli ástæðan vera sú.
að dregið liefði verulega úr
iuníiiiliijngi frá vöruskipta.-
hindinuin í Á-Evrópu. Munu
jnm’lyt.iindur vera að biða
eflir \airtanleguin frílista ev
halda að sér hendinni um
iimtlidning að austan á með-
an En atieiðing þess rr svo
sú að ekki er unnt að scija
vörurnar austur. Mun ],*gar
einnig trrgara um siilu freð-
fisks og fiskimjöls af sómu
asíæouni.
Sturlaugur sagði ennfremur
að ekki yrði úr neinni vorsíld-
veiði að þessu sinni, ef ckki
rættist fljótlega úr um sölu freð-
síltlariiinar. Síldin er þeg'ar kom-
in á Selvogsbanka, sagði Stur-
laugur, og því gætu síldveiðar
hafizt þegar í næsta mánuði, ef
ekki stæði á sölu. Undanfarin
ál hefyr fjöldi fólks haft atvinnu
við vorsíldveiðarnar, og því er
mjög mikilvægt að geta haldið
þeim áfram, sagði Sturlaugur
að lokum“.
Við ákveðum sjálfir
markaðinn.
Þannig segir sjálft málgagn
viðskiptamálaráðherrans irá um-
mælum Sturlaugs Böðvarssonar,
og er þar staðfest allt það sem
Þjóðviljinn hefur haldið fram
Tíminn er
peninqar —
en aðeins nákvæm-
ur tími gefur árang-
ur.
Nútímafólk, sem vill kom-
ast áfram, ætti því að
velja sér nýtízku daga-
tals-úr. Réttur dagur á
úrskífunni veitir ómetan-
lega þjónustu,
I hinu heimsþekkta, sviss-
neska Roamer-úri fer
saman nákvæmni, styrk-
leiki og fegurð,
Það er selt af beztu úrasölum um heim allan.
100% vatnshelt, afsegulmagnað, högghelt, 17 steina.
Bezta gjöfin er — ROAMER l’R
um langt skeið. Eins og rakið
hefur verið hér í blaðinu höfum
við haft möguleika á að ;stór-
auka' markað okkar í löndum
eins og Tékkóslóvakíu og Aust-
urþýzkalandi. Þau voru reiðu-
búin til að auka kaup sín hér.
ef við keyptum meiri vörur af
þeim á móti. Við réðum því
þannig sjálfir hversu mikinn
markað við vildum hafa í þess-
um löndum, þar sem við hiifum
alltaf fengið ágætt verð fyrir af-
urðir okkar. En í stað þess að
ganga á það lagið, er það einn
meginþáttur í viðreisn rikis-
stjórnarinnar að taka upp mjög
víðtækan frílista, gefa heildsöl-
unum frelsi til að ákveða að eig-
in geðþótta — og í samræmi við
sérhagsmuni sína — hvar þeir
kaupi vörur. Og þeir hugsa ein-
göngu um gróða sinn, möguleika
sína á að íalsa faktúrur og stela
undan gjaldeyri erlendis, en ekki
um hag þjóðarheildarinnar eða
n auðsyn útf 1 utningsatvinnuveg-
anna.
Á meðan heildsalarnir liafa
beðið eftir frílistanum liafa
þeir varla gert nokkur inn-
kaup í liindum eins os Tékkó-
slóvakíu og Austurþýzkalaiuli,
Hins yegar liefur þeim þegar
verið Ieyft að kaupa í Vestur
evrópu mikið magn af vörum
sem unnt er að kaupa í sósí-
alistískum löndum fyrir hag-
kvæmara verð og af sömu
gæðum. Afleiðingin er sú að
markaður okkar hefur þegar
þrengzt stórlega eins og Stur-
laugur Böðvarsson lýsir.
Aukin völd Vilhjálms
Þórs.
Mikil hætta er á að þessi þró-
un verði enn örari þegar frílist-
inn verður birtur. Hafa innflytj-
endur fjallað um hann að und-
anförnu og lagt mikið kapp á
að auka hann frá því sem upp-
haflega var áíormað. Jafnframt
er ætlunin að leggja niður þær
stofnanir þess opinbera sem ann-
azt hafa gjaldeyrisviðskiptin,
Innflutningsskrifstofuna, Út-
flutningsnefnd sjávarafurða og
Útflutningssjóð, en þau verkefni
eiga í staðinn að fara til Seðla-
bankans. Með þeirri ráðstöfun
fær Viflijálmur Þór stóraukin
yöld — sem verðlaun fyrir fram-
lag hans til heiðarlegs fjármáia-
Iífs á íslandi — en Vilhjálmur
er einmitt hatursmaður viðskipt-
anna við sósíalistísku Iöndin. Er
engum efa bundið að undir ein-
ræðisstjórn hans munu þau við-
skipti verða skorin niður til mik-
illa muna.
Liía aí lánsíé í stað
framleiðslu
Ýmsum mun spurn hvernig
íslendingar geti í senn tekið upp
„frjálsan innfiutning” og hætt að
veiða síld eða kastað í gúanó
því sem begar er búið að veiða.
Skýringin felst í því 800 millj.
kr. eyðsluláni sem ríkisstjórnin
fékk jafnhliða gengislækkuninni.
Við eigum sem sé að hætta að
kaupa vörur lyrir þær nauðsynj-
ar sem við framleiðum sjálfir,
en iifa í staðinn af lánsfé. En
nvað tekur við þegar lánið er
uppétið og búið . að . takmarka
eða eyðileggja suma beztu mark-
aði okkar? Verðum við þá ekki
að borga bæði eyðslufé og vör-r-
ur með því 'að sætta okkur við
það lága verð sem fáanlegt er
á vestrænum mörkuðum og uha
þeim lélegu lífsk^iörum sem slíkt:
verð hefur í för með sér
Kappræðufuítdurmn
Framh. af .1. síðu
hað Pétur Sigurðsson, alþingis-
mann og fyrrverandi sjömann,
að gerast meðflutninxsmann
sinn að henni:
„Sameiginlegur fundur Æsku-
lýðsfylkingárinnar og Heimdall-
ar, lialdinn í Sjálfstæðishúsinu
þriðjudaginn 29. marz, fordæm-
ir harðlega þann opinbera fjand-
skap gagnvart íslenzku þjóðinni:
og þann beina stuðning við ó-
dæðisverk Breta í íslenzki land-
lielgi, sem fólgin er í tillögu
Bandaríkjanna á yfirstamdandi
sjóréttarráðstefnu Saineinuðu
þjóðanna, og skorar eindregið á
fulltrúa íslands á ráðstefnunni
að hvika livergi frá núverandí
12 mílna fiskveiðilögsögu ís-
lands“.
Pétur Sigurðsson neitaéi liins
vegar að skrifa undjr þessa til-
liigu og var hún því ekki borin
undir atkvæði fundarmanma, en
flutningsmaður óskaði þess, að
tillagan yrði ekki borim upp
nema full samstaða væri um
hana.
í lok fundarins hylltu gestir
og ræðuihenn ísland með fer-
földu húrrahrópi.
Fjárlögin afgreidd
Framhald af 1. síðu
sýna Alþingi og alþingismöim-
um óvirðingu með því aS láta
samþykkja þann tekjustofn
fjárlaga í algerri óvissu, sam-
kvæmt sögusögnum ofan úr*
Arnarlivoli um fyrirhugaða.
löggjöf. Væri slíkt veikur
grundvöllur fyrir fjárlög, því
að sýnt hefði sig hve lítið mark
væri takandi á yfirlýsingura
ríkisstiórnarinnar um skatta þá
sem hún fyrirhugaði.
G rundvölljírinn að bretlia
Karl sýndi fram á að sjálf
afgreiðsla fjárlaganna sýndi að
ríkisstjórnin teldi efnahags-
kerfið nýja óframkvæmanlegt.
Stórfelld gengislækkun hefði
verið afsökuð með því að af-
nema ætti útflutningsuppbætur
og niðurgreiðslur.
En ríkisstjórnin bemur
ekki fyr; l:a f jirlagafrum-
varpi sínu .gegnum þingiiV
án þess að setja þar inn
nýjan vísi útflutningsiípp -
bóta, 5 milljónir króna til
iitflutningsuppbcta á land-
búnaðarvörur og þetta væri
miklu lægri upphæð eu ætl-
að væri að veita, því 7—S
milljónir væri Ij’tfltónings-
s.jóði ætlað að taka af jþess-
um iippbótum. Og uppliæðir
fjarlaganna til iilðiirgreiðshi
á vÖruverði eru liinar hæstu
seni sézt hafa í fjárloguni.
Það er því augljóst, að ríkis-
stjórnin hefur nú þegar þver-
brotið þær meginreglur sem
hún ætlaðist til að afsökuðu
gengislækkunina.
Fjárlagafrumvarpið var
endanlega samþykkt með 32
samhljóða atkvæðum.