Þjóðviljinn - 14.06.1961, Síða 9

Þjóðviljinn - 14.06.1961, Síða 9
Miðvikudagur 14. júní 1961 — ÞJÓÐVILJINN — (Sf Reykjavíkurmót yngri flokk- anna eru nú í fullum gangi og má þar oft sjá skemmtilega leiki, og er oft um hina beztu knattspyrnu að ræða. drengj- unum. þjálfurunum og félögun- um til hins mesta sóma. Að ferðast á laugardagseftirmiðdegi á milli þeirra mörgu knatt- spyrnuvalla og sjá æskuna leika til að ná settu marki fullvissar mann um að þar eru verðugir arítakar hinna eldri á ferðinni. er munu leySa þá af hólmi er fram jíða tímar. Öll félögin hafa ó sínum vegum þjáiíara til að leiðbeina drengjunum og opna fyrir þeim þann skemmtilega heim er knattspyrnan hefur upp á að bjóða og er unnið þar fórn- fúst starf er seint fæst laun- að. takist vrel til. Sérstaka á- herzlu þarf að leggja á þjálf- un yngstu flokkana, því það sem lærist þar gleymist ekki. heidur þróast það með piltun- um í uppvexti þeirra og gerir þá hæfari til að mæta þeim erf- iðleikum er á vegi þeirra kunna að verða. Hér fer á eftir yfirlit um Irammistöðu félaganna í Reykja- víkurmótum yngri flokkanna. Tveim mótum er lokið í 2. fl. og S. fi. B. en í hinum öllum eru búnir sex leikir af tíu og skui- um við fyrst líta á 2. fl. A. Þar er efst KR með 5 st. eítir þrjá leiki, Þróttur er í öðru sæti með 4 st. eftir tvo leiki, Valur er í þriðja sæti með 2 st. eftir þrjá leiki. Vikingur er í fjórða sæti með 1 stig eítir tvo leiki. Úrslit ieikja þar til þessa: Þróttur -— Valur 2:0, KR — íTram 1:0, KR — Víkingur 2:2, Valur — Fram 2:0. Þróttur — Víkingur 3:0 og KR — Valur 1:0. í 3. fl. A er KR einnig efst með 6 st. eftir þrjá leiki, i öðru sæti er Valur með 4 st. eftir þrjá leiki. í þriðja sæti er Vík- ingur með 2 st. eftir tvo leiki og í fjórða og fimmta sæti eru Þróttur og Fx'am með ekkert stig eftir tvo leiki. Úrslit leikja þar til þessa: KR — Fram 1:0, Valur — Þróttur 3:0, KR — Víkingur 4:0, Valur — Fram 4:0, KR — Valur 3:0 og Víkingur — Þróttur 1:0. í 2. fl. B hafa fengizt lokaúr- slit og varð þar Reykjavikur- meistari 1961 KR er hlaut 3 stig, Válur hlaut 2 st. Fram hlaut 1 st. Úrslit ieikja þar: KR — Fram 3:1, Fram — Vaiur 4:4, og KR —- Valur 1:1. Einnig hafa fengizt lokaúrslit I í 3. fl. B. en þar sigraði Valur og hlaut því titilinn Reykjavik- urmeistari 1961, hiutu þeir 4 st.. KR 2 st., Frám ekkei't. Úrslit leikja þar: KR — Fram 4:1, Valur — Fram 5:1 og Valur — KR 3:2. í 4. fl. A. er Fram efst með 4 st. eftir tvo leiki, KR er einn- ig með 4 st., en eftir þrjá leiki, Valur er með 2 st. eftir 2 leiki og í fjórða og íimmta sæti eru Þrótlur og Víkingur með 1 st. eftir tvo leiki. Úrsiit leikja þar til þessa; Fram — KR 4:1. Val- ur —■ Þróttur 4:1, KR — Vík- ingur 3:0, Fram — Valur '3:1, KRValur 3:1. og Þróttur 2:2. 1 4. fl. B er Fram með 4 st. eftir tvo leiki. KR 2 st. eftir tvo ieiki, Fram C 1 st. eftý" tvo leiki. Valur 1 st. eítir þrjá leiki og Víkingur ekkert st. eft- ir einn leik. Úrslit leikja þar til þessa: Fram — KR 4:1, KR — Víkingur 5:1, Fram Valur 4:0, Fram C — Valur 1:1, Fram — Fram C 5:0 og KR — Valur 5:1. 1 5- fl. A eru þrjú lið með 4 st.~ Fram og Vikingur eftir tvo leiki, en Vaiur eftir þrjá leiki. Þróttur er með ekkert st. eftir tvo leiki og KR ekkert stig eftir þrjá leiki. Úrslit þar Framhaid á 10. síðu Archie Moore, heimsmeist- ari í léttþungavigt.. varðl titil sinn s.l. laugardag með þvi að vinna ítalann Giulio Rinaldi á stigum i 15 lot- um. Arehie Moore er 45 ára. Hann kveðst nú vilja keppa við Ingema.r hinn sænska. ★ Nýjustu fréttir af frjálsíþróttamönnum: Marg- ir biða eftir 60 m kringlu- kasti hjá Pólverjanum Pi- atkowski, en hann á bezt í ár 59.43 m. Hann og Babka, Bandarikjunum. eiga heims- metið 59,91 m ....... Dallas Long kastaði kúlu 19,70 fyrir helgi ......... Arthur Rowe hefur enn bætt ár- angur sinn i kúluvarpi, 18,75 .... Brumel stökk 2,18 í Paris og var nærri Bolotnikoff þvi að stökkva 2.23. Á sama móti vann Indverjinn Milka Singh 400 m hlaup á 47.0 Þrír Finnar hlupu 110 m grindahlaup á 14.8 og Dómari oq línuveróir s landsleiknum á mómudog 14.7 .... Tvö norsk met: Kjell Ho.vik 4,35 i stangai'- stökki og Björn Bang And- ersen bætti vikugamalt kúluvarpsmet í 16.75. ★ Heimsmethafinn í 10 km hlaupi, P. Bolotnikoíf, keppti í París á sunnudag í 5000 m hlaupi. Frakkinn Bogey veitti honum mjög harða keppni og fengu þeir sama tíma. 14,02, en Bol- otnikoff var sjónarmun á undan. Brumel Á mánudagskvöldið fór fram fyrsti leikur í A riðli 2. deildar og- áttust þar við Víkiugur og Breiðablik úr Kópavogi. Víking- ur sigraði nxeð þrem mörkum gegnl tveiin. Áhorfendur voru fáir. Breiðabliksmenn voru ákveðn- ari i fyrri hálfleik og áttu þeir allgcð áhlaup fyrst í leiknum og gaf eitt þeirra mark á 10. mín. en það kom þannig að hægri útherji lék frá kanti inn að marki. Rósmundur markv. Vikings kom út á móti og h. úth. Haddi, spvrnir beint í Rósmund og hrekkur knötturinn af hon- um í Hadda er var á harða- hlaupum og beint í mark. Sjald- séð en skemmtilegt mark. Litlu síðar er hornspyrna á Víking en vinstri innherji skallar óná- kvæmt yfir. Á 16. mín. munar bqltabreidd að Víkingar jafni en Ármann J. Lárusson glímukappi er lék mið- framvörð, ætiar að gefa knött- inn til markvarðar en Víking- ur kemst á milli og nær að pota í. knöttinn og rúllar hann meðfram marklínunni á að giska bolta breidd frá henni fram- hjá markinu. Þarna voruð þið heppnir Breiðabliksmenn. Næstu mínútur voru tíðinda- litlar fyrir utan oinu sinni er ' inarkvörður Víkings bjargar með úthlaupi, en á 27. min. kveður miðherji Víkings sér hljóðs og jafnar fyrir hönd Vík- ings 1 : 1. Markið kom þannig að hann íékk háa spyrnu fram og spyrnti framhjá úthlaupandi markverði Breiðabliks. Mjög vafasamt mark þar sem hann var grunsamlega framarlega og áleit ég hann rangstæðan. Þrem mín. síðar spyrnir vinstri bakvörður Víkings beint til hægri innherja Breiðabliks er notfærir sér þetta óvænta tækifæri rnjög vel, leikur nokk- ur skref áfram og skorar fram- hjá úthlaupandi markverði Vík- ings 2 : 1. Tíu mín. síðar eða á 40. mín. jafna Víkingar var þar aftur kominn miðherjinn er skoraði eins og áður, framhjá úthlaupandi markverði Breiða- bliks. Ekkert hættulegt tækifæri skapaðist fram ,að leikhléi og lauk því fyrri hálfleik 2:2. Síðari hálfleikur var öllu bragðdaufari en sá f.vrri. fór hann mestallur fram á milli vítateiganna, því framiínur beggja liða, fundu- ekki. þvervegi þá er liggja frá vítateig inn í markið. Er 20 mín. eru liðnar hafa bæði liðin átt skot á mark er ekkert varð úr og Jóhann Gunnlaugsson, Víking, stóð á marlcteig á 18. mín. en var of seinn að skjóta og hrifsaði markvörður Breiðabliks knött- inn við fætur hans. Á 26. mín. er hætta við Víkings markið er varnarmaður ætlar að gefa markverði knöttinn en hægri út- herji kemst á milli en spyrnti framhjá. Eina markið i síðari hálfleik kom á 30. mín. en þá var hornspyrna á Breiðablik og hafnaði spyrnan hjá vinstri innherja Víkings er skoraði sig- urmark Vikings í leiknum. Ekki fengu liðin fleiri marktækifæri og lauk því leiknum með sigri Víkings 3 : 2. 3 gep 2 Dómari var Sverrir Kjærne- sted. Lið Víkings er i afturför, mið- að. við leiki þeirra fyrst í sum- ar, því þá var viljinn til að gera sitt bezta fyrir hendi og börð- ust þeir eins og sannir víking- ar. en nú virðast þeir aðeins mæla vegna skyldu sinnar við félagið. Þið getið eflaust betur, Víkingar. Lið Breiðabliks var mun frísk- ara, aðallega í fyrri hálfleik og gerðu þeir ýmislegt laglega. Mest bar á hægri útherja er átti ágætan leik og eins hægri innherja, en liðið virðist í iít- illi þjálfun. II. Dómarinn í landsleiknum gegn Holiandi á mánudags- kvöldið heitir O’Neill, er hann írskur að ætt og lið- lega fertugur. O'Neill er mikils metinn dómari í heimalandi sínu og hefur dæmt marga landsleiki og ættu starfsbræður hans hér heima að fylgjast vel með dómum hans. Þá hefur dómnefnd KSÍ skipað línu- verði á landsleikinn, en það eru þeir Hannes Þ. Sigurðs- son Fram og Magnús V. Pétursson Þrótti er hljóta þann heiður -og eru þeir vel að því komnir. Hannes Þ. Sigurðsson er fæddur 3. júlí 1929 og er því 31 árs. Hannes tók fyrst dómarapróf 1948. en þrem árum síðar var hann einn af þrem fyrstu er hlutu landsdómararéttindi. Hann hefur dæmt 50 leiki gegn erlendum liðum og á annað hundrað meistaraflokks- leiki. Mi}lir|kj'adúmari í handknattleik hefur hann verið frá 1954. Magnús V. Pétursson er fæddur .31. desember 1932 og er því 29 ára. Héraðs- dómarapróf tók hann 1951, en varð landsdómari 1956. Magnús hefur dæmt 13 leiki gegn erlendum liðum og verið í nokkur skipti línu- vörður og er nú í þriðja sinn Hnuvörður í landsleik. Samanlögð skrá Magnúsar sem dómara og línuvarðar í öllum flokkum er á fimmta hundrað leikir. Einnig stendur Magnús framarlega sem handknattleiksdómari. „Pressuleikur" fer frain á Laugardalsvellirum í kvöld. Lið það sem landsliðsnefiul hefur valið er sk'pað sömu mönnum og sigruðu Skotana á dögunum: Markvörður: Helgi Daní- elsson Akranesi, bakverðir Árni Njálsson Val, og Helgi Jónsson KR, ’ framverðir: Garðar Árnason KR, Rúnar Guðinannsson Fram og Sveinn Teitsson Akranesi, framlierjar: Ingvar Elíasson Akranesi, Gunnar Felixson KR, Þórólfur Beck KR, Ell- ert Schrani KR og Þórður Jónsson Akranesi. Liðið, sem íþróttafrétta- menn hafa valið, er þannig skipað: Markvörður: Heiinir Guð- jónsson KR, bakverðir: Jón Stefánsson Akureyri og Bjarni Felixson IvR, fram- verðir: Ormar Skeggjason Val, Hörður Feiixson KR (fyririiði), og Jón Leósson framherjar: Björgvin Dan- íelsson Val, Skúli Ágústsson Akureyri. Steingríniur Björns- son Akureyri, Kári Árnason Akureyri og Guðjón Jónsson Fram. ................—— Varamenn fyrir bæði liðin eru: Geir Kristjáitsson Fram, Hreiðar Ársælss. KR, Ragnar Jóhannss. Fram, Sig- urjón Gíslason Hafnarfirði, Guðmundur Cskarsson Fram og Matthías Iljartarson VaL Samtals eru þarna tiluefnd- ir 28 leikmcnni: 9 KR-ingar, 4 Valsmenn, 5 Akurnesingar, 5 Framarar, 4 Akureyringar, 1 Hafnfirðingur. Le'kurinn, „generalprufa" fyrirl lardsleikinn við Hol- lendinga n.k. mánudag, he$tt kl. 8,30.

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.