Þjóðviljinn - 04.08.1961, Blaðsíða 1
VILIINN
Föstudagur 4. ágúst 1961 — 26. árgangur — 175. tölublað.
Nýja gengis-
skráningin
Sjá 12. SÍSu
NÝ ÓÐAVERÐBÓLGA HAFIN MEÐ GENGISLÆKKUNINNI:
VORUR
Hefndarárás stjórnarvaldanna er komin til fram-v
kvæmda; í gær var allur erlendur gjaldeyrir hækk-
aður í verði um nær 13,2%. Þar með er ný óða-
verðbólga að hefjast; allt hækkar næstu mánuði.
t fyrra nam heildarinnflutningurinn að verðmæti
3.000 milljónum króna; ,með gengislækkuninni
hækkar sama vörumagn í verði um 400 milljónir
króna. Gengislækkunin jafngildir þannig 400 millj-
ónir króna skattheimtu, en sú skattheimta kemur
aftur fram sem gróði hjá verðbólgubröskurum og
fjárplógsrnönnum.
Gengislækkunin merkir að
allar vörur sem keyptar eru
erlendis hækka um 13,2%.
Síðan bælist við mun meiri
hækkun áður en varan er kom-
in til neytenda. Allir (ollar
í ríkissjóð hækka í sama hlul-
falli, og heildsalar og smásal-
ar fá eflaust að bæla sinni á-
lagningu ofan á þessa hækkun
— og raunar eru nú uppi kröf-
ur um það að álagning þeirra
hækki miklu meira en þessu
nemur eða verði gefin alveg
frjáis.
Allt nems kaupið
Eins og menn vila af reynsl-
unni hækkar ALLT við geng-
islækkun — nema kaupið. Flest
íslenzk framleiðsla þarf á
miklu af erlendum rekslrar-
vörum að halda til starfsemi
sinnar; þannig er því t d. hátt-
að um landbúnaðinn — allar
búvörur munu hækka veru-
lega i verði. Sama er að segja
um íslenzka iðnaðinn; tilkostn-
aður hans eykst til mikilla
muna. 'Einnie stórfyrirlæki sem
nota sáralítið af erlendum
rekstursvörum, eins og áburð-
arverksmiðjan, semenlsverk-
smiðjan, hitaveitan og raf-
veiturnar verða nú að standa
undir vöxtum og afborgunum
af stórhækkuðum erlendum
lánum.
368 milljénir kr.
Hei’darupphæð faslra lána
íslenzku þjóðarinnar var 2.500
milljónir króna um síðustu ára-
mót. Auk þess má áætla að
stutt vörukaupalán, sem tekin
hafa verið erlendis, nemi um
250 milljónum króna. Heildar-
skuldir íslenzku þjóðarinnar
erlendis nema þannig um
2.750 milljónum króna. Við
gengislækkunina hækkar sú
fúlga um sem næst 350 millj-
ónir króna. Og þá hækkun á
almenningur að borga af kaupi
sem r.'kisstjórnin ællasl lil að
haldist óbreylt.
Þeir einir pæða
Á síðasta ári nam útfluln-
ingur landsmanna í heild um
2-500 milljónum króna. Með
gengis’ækkuninni hækkar sama
magn í verði um 330 millj-
ónir króna; þar kemur fram
verulegur hluti þeirrar „til-
fæslu“ á þjóðartekjunum sem
Framhald á 2. síðu.
Krónan orðin að fimmeyringi
® Árið 1875 voru sett peningalög sem kváðu á uni gengi íslenzkrar gullkrónu. I>au lög voru
talin mikilvægur áfangi í sjálfstæðisbaráttu þ jóðarinnar, og gildi krónunnar átti að vera
tákn þess hversu vel íslec,dingar megnuðu að stjórna (málefnum síniun.
Q Eftir gengislækkunina í gær var gen.gi íslenzku krónumier komið niður j tuttugasta
liluta af því sem |það var í upphafi; ein pappírskróna jafngilti að verðmæti fimm gullaur-
um, samkvæmt hinu upphaflega mati frá 1875 (eða nánar tilteldð 5,1 eyri). Fátt sýnir bet-
ur en, þessi staðreynd hversu ómegnug íslenzka auðmann.vstéttin hefur verið til þess ,að
stjórna landsmáliim, að kerfi hennar er gersamlega gjaldþrota.
0 Örust hefiir óheillaþróunin orðið síðustu áratugina iog einkanlega á síðustu 11 árum.
Króna sú sem ákveðin var í gær hefur 11 aura a,f verðmæti krónunnar frá 1838. O.g frá árs-
byrjun 1950 liefur gengi krónunnar verið skert um sem næst fjóra fimmtu hluta!
Stjórnin þorir ekki í útvarps-
umræður um gengislækkunina
Bourgiba sendir boðskap
um Bizerte til Krústsjofís
Þingflokkar Alþýðubanda-,
lagsins og Framsóknarflokks-
ins hafa snúið sér til ríkis-
stjórnarinnar og krafizt þess
að hafðar yrðu útvarpsumræð-
ur um síðustu aðgerðir stjórn-
arflokkanna. gengislækkunina
«g árásina á rétt Alþingis.
í gær barst svar frá ríkis-
stjórninni og neita stjórnar-
flckkarnir þar algerlega að
taka þátt í slíkum umræðum.
Þau viðbrögð sýna glöggt
hvernig stjórnin metur mál-
stað sinn. Ilún telur sér auð-
sjáanlega betur henta að láta
ráðherra og embættis-
menni vaða uppi í útvarpinu á
hverju kvöldi, en neita stjórn-
arandstöðunni um málfrefsi
Túnis 3/8 — AFP-fréttastof-
an tilkynnir frá Moskvu, aö
Bourguiba Túnisforseti hafi
sent persónulegan boöskap
lil Krústjoffs forsætisráö-
herra Sovétríkjanna varö-
andi Bizerte-deiluna. Þaö
var utanríkisráðherra Tún-
is, Saddok Mokkadem, sem
kom meö boöskap forsetans
í nótt til Moskvu.
Samkvæmt upplýsingum
stjórnarerindreka í Moskvu.
mun Mokkadem eiga viðræður
við Krústjoff og Gromyko utan-
ríkisráðherra um Bizerte-deil-
una. Sovétr.kin hafa lýst yfir
eindregnum stuðningi við Tún-
is í baráttu Túnisbúa gegn á-
rás Frakka.
Frökkum boðin lausn.
Bourguiba forseti sagði í dag
að Túnisstjórn væri reiðubúin
að draga til baka ákæruna á
hendur Frökkum hjá Samein-
Uðu þjóðunum, ef Frakkar lýstu
því yfir að þeir viUu semja um
brottflutning allra franskra
herja frá Bizerte innan ákveð-
ins tíma.
Jafnframt hefur verið til-
kynnt í Kairo og Túnis, að
Sameinaða arabalýðveldið og
Túnis hefðu ákveðið að taka
aftur upp stjórnmálasamband.
Túnis sleit sambandinu við
Arabalýðveldið 1958 og sakaði
það um að hafa tekið þátt í
samsæri um að myrða BoUrgu-
iba.
Frakkar misþyrma föngum.
Bourgiba forseti sagði á
blaðamannafundi í dag, að
Frakkar beittu túniska fanga
hinu mesta harðræði. Sagði
hann að ef Frakkar kæmu ekki
mannúðlegar fram við þá 700
fanga sem Frakkar hafa í haldi
í Bizerte, myndu franskir fang-
ar í vörzlu Túnisbúa verða látn-a,
Framhald á 10. síðu.