Þjóðviljinn - 04.08.1961, Blaðsíða 4
ÞJÓÐVILJINN — Föstudagur 4. ágúst 1961
4
fc) -
WWMMm
lllli
Þrjár reykvískar stúJkur
á balletskóla í Englandi
Vegaþjónusta FÍB veitti 20
bílum aðstoð um síðustu helgi
Um sl. helgi var yfir 20 bifreiðum veitt ýmiskonar
aðstoð í nágrenni Reykjavíkur af Vegaþjónuslu Félags
íslenzkra bifreiðaeigenda.
I byrjun næsta tuánaðar
halda þrjár reylsvísliar
stúlkur til nániK ■ Englandi.
Það er í sjálfu ssr ekki
mikill viðburður þótt ung-
ir fslendingar haldi utan til
niennta, en þessi hópur ætl-
ar að nema ballett og það
er fremur óvenjuleg náms-
grein.
Þessar þrjár stúlkur lieita
Stella Hólm Ólafsdóttir 18
ára, Sveinbjörg Kristþórs-
dóttir 17 ára, og Þórhildur
Þorleilsílóttir 16 ára- Þær
hafa verið í ballettskóla
Þjóðieikhússins frá 6—8 ár
og undanfarin 5 ár liafa
þær dansað í nær öllum
þeim leiksýningum þar sem
ballettdansarar hafa komið
fram.
Stöllurnar þrjár hafa
fengið inngöngu í Royal
Ballet School í London. Þær
verði í skólanum í 11 mán-
uði samfleytt og fer kennsl-
a.n fram fr.á kl. 9—5.
Kenns lugreinar eru margs-
konar: klassískur ballett,
„karakter“dansar, þjóðdans-
ar, láfbragð, bókleg fög eins
og enska, franska, ballett-
saga, tónlistarsaga og mann-
kynssaga.
Eftir eins árs nám fær
nemandi aði vita hvort hann
fær að halda áfram námi.
Ef nemandi heldur áfram
nánii er hann tvö ár til
viðbótar og getur þá tekið
lokapróf frá skólanum.
Myndirnar hér á síðunni
tók Ijósmyndari Þjóðviljans
í Þjóðleikhúsinu skömmu
áffur en stúlkurnar sendu
uinsókn sína um skólavist-
ina.
•
Mjmdin: talið frá vinstri:
Stella Hólm Ólafsdóttir, Þór-
hildur Þorleifsdóttir og
Sveinbjör.g Kristþórsdóttir.
E'ii þessara bifreiða, fólks-
bifreið, fór út af Þingvalla-
veginum og féll niður af mann-
hæðar háum vegarkanti. Far-
þega í bifreiðinni sakaði ekki,
en talsverðar skemmdir urðu
á fararlækinu.
Kjörgarðskaffi, nýr kaffi- og
matsclustaður tekur til starfa á
efstu hæð Kjcrgarðs, Lauga-
vegi 57—59 þessa dagana auk
þess sem þar verða á boðstól-
um allar venjulegar veitmgar
og matur, er ráðgert að rekstur
þessa fyrirtækis verði með all~
nýstárlegu sniði og ferðamönn-
um og öðrum, er þess óska,
veitt ým’ss þjónusta þeim til
hagræðis. Meðal þsss má geta,
að ,,Kjörðgarðskaffi“ sér um
útvegun herbergja á opinber-
um gististöðum hér í bænum
fyrir ferðamenn, erlenda og
innlenda svó og svenfpoka-
pláss og tjaldstæði, einkum
fvrir stærri hópa. Einnig er þar
séð um útvegun bifre;ða, með
eða án b'’stjóra; heáta með
fylgdarmanni, veiðileyfa og
rióstangaveiði, fvrir alla, er
bess cska Þá geta þeir er v'l.ia
fengið útbúið nesfi, bæði til
lengri og skemmri ferðalaga —
t. d. ac gcmlu tegundir’ni, þar
sem lögð verður áherzla á ís-
lenzkan rcstismat. Einnig verða.
veittar upplýsingar um stað’
o<r leiðir og minjagripir á boð-
stóbvm.
Pökum pffstæðna verður
..Kjöi'garðskpffi" aðe’ns onið
almenningi frá klukkan 8,39
að morgui til kl. 6 s'íðd, en
bó gec? félög og smærri hcnar
feng'ð að halda þar fundi eftir
þann tíma. Þegar líður á sum-
arið hyggst, „Kjörgarðskaffi"
senda veniulegar veitingar, svo
sem kaffi og kökur í skrifstof-
ur, samkvæmt be’ðni, og verð-
ur sú þjónusta veitt allan dag-
inn.
Vegaþjónusta Félags ís->
lenzkra bifreiðaeigenda frétti
af þessu slysi þannig, að tal-
stöðvarsamband var haft við
aðstoðarbíl. Liðu síðan ekki
nema 20 mínútur frá því vega-
þjónustumenn höfðu fengið
skilaboðin þar til bifreiðinni.
hafði verið náð upp á veginn.
aftur og gert við hana til
; bráðabirgða ovo að hún gat.
haldið ferð sinni áfram.
Frá viðgerða- og vegaþjón-
ustu F.Í.B. verður nánar sagt
hér í blaðinu á morgun.
SkóSffhúsnæ5i á
leigu hjá UMFR
Á fundi bæjarráðs sl. þriðju-
dag var samþykkt að fallast á.
tillögu fræðsluráðs Reykjavík-
ur um heimild til að taka á
leigu skólahúsnæði í félags-
heimili Ungmennafélags
Reykjavíkur við Holtaveg.
5 skref á
milii búSa,
5 kr. munur
Húsmóðir hafði samband
við Þjcðviljann í gær og
kvað fulla ástæðu til að
benda á verðmismuninin
á ýmsum vörutegundum '1
verzlunum KRON og búð-
um kaupmanna, ekiki hvað
sízt nú eftir hinar stór-
skornu „efnahagsaðgerð-
ir“ líkisstjórnarinnar. Til
dæmis nefndi hún verð á
nýju grænmeti: 1 KRON
hefði hún keypt hvítkál
á kr. 13,00 kílóið, en
það kostaði 18 kr. í kaup-
manrabúðinni 5 skrefum
í burtu! Kíló'ð af gul-
rófum kostaði 12 kr. í
KRON, 14 kr. hjá kaup-
manninum.
• •
Oryrkjabandalog Islands
stofnað af 6 öryrkjafélögum
í gær kallaöi stjórn hins nýstofnaða Öryrkjabanda-
lags íslands, sem er samtök sex öry-rkjafélaga á landinu,
blaöamenn á sinn fund til aö skýra þeim frá stofnun
og tilgangi bandafagsins. Oddur Ólafsson læknir á
Reykjalundi, formaður bandalagsins, hafði orð fyrir
stjórninni og sagði frá tildrögum þess aö bandalagið
var stofnaö.
Oddur sagði m.a. að auðævi
hvers laud.s lægju í vinnugetu
og hæfni einstaklinga þjóðfé-
lag'ins fremur en í náttúru-
auðsfum landsins. Því væri
það mikilvægt að hagnýta ork-
una hjá hverjum einstaklingi
og að því væri m.a. stefnt með
því að hjá'pa öryrkjum til að
finna störf við silt hæfi. Lítill
áhugi hefði verið sýndur þess-
um málum fyrir fimmtán árum
þsgar fyrsta vinnuheimilið var
etofnað hér á lancli en nú væri
þetta óðum að breytast.
Hann sagði að takmark sam-
taka öryrkjafélaganna væri að
isem fæstir yrðu svo miklir ör-
yrkjar að þeir gætu ekki aflað
sér lífsviðurværis. Læknar gera
það sem þeir geta til að hjálpa
þeim sem verða öryrkjar af
slvsum eða sjúkdómum til að
uá heilsu og í því efni má segja
<að við stöndum framarlega, en
mikið skortir á að allt sé gert
eem unnt er til að hjálpa þeim
sem ekki ná fullri heilsu til að
geta starfað í almennum at-
vinnugreinum- Öryrkjabanda-
lagið mun leggja höfuðáherzlu
á atvinnuútvegun og alls kyns
þjónustu við öryrkja. Það mun
kosta kapps um að ná góðri
samyinnu við ýmsa, atvinnurek-
endur og koma á fót fleiri
þjálfunar- og vinnuheimilum.
Heirnilin yrðu þá fyrst og
fremst einskonar millistig fyrir
þá sem væru að þjálfast til að
komast á ný út í almennar at-
vinnugreinar en þeir sem væru
of miklir öryrkjar lil þess ynnu
þar að sjálfsögðu áfram.
Hvað er öryrld?
Lengst af hefur menn greint
á um, hvernig skilgreina skyldi
orðið öryrki. Bæklaðir menn og
blindir hafa verið taldir aug-
ljósir öryrkjar en við nánari
athugun hafa komið í ljós
stórir hópar örýrkja, sem ekki
' bera örorkuna utan á sér, þ.e.
| öryrkjar vegna innvortis sjúk-
,dóma. Því er nú meira litið á
jörorku með tilliti til möguleika
j einstaklingsins til sjálfsbjargar
' og skilgreining orðsins eitthvað
á þessa leið:
' öryrki er sá, sem á vinnu-
aldri, vagna bæklunar, líkam-
legs eða andlegs sjúkdómsá-
stands, á mun erfiðara en aðr-
ir með að sjá sér og sínum
farborða.
Örorka manna er á mjög
misjöfnu sfigi, ailt frá því að
hafa lítilvæg álirif á stöðuval
og í það að gera menn alveg
ósjálfbjarga.
Fjöldi öryrkja eykst með
hverju ári og þess vegna er
framærsla þeirra og aðbúð
vaxandi vandamál.
Helztu orsakir aukningarinn-
ar eru siaukinn hraði í um-
ferð og aukin notkun véla.
Fleiri sjúkum og slösuðum
tekst nú að bjarga frá dauða
en áður, með betri skurðtækni
og mjög aukinni notkun gagn-
Framhald á 10. síðu.