Þjóðviljinn - 09.09.1961, Síða 12
Bragi Kristjánsson stendur við minnisvarða hinna pólsku sjómanna, sem hann starfaði með
á stríðsárunum. (Ljósm. Þjóðv.).
Híkisstjórnin reynir að kaupa innílytiend-
ur til að hætta að smygla nælonsokkum
sambcndið varar
m ayðfelogum
Pprtsmouth 8/9 — Miðstjórn
brezka alþýðusambandsins sam-
þykkti í dag ályktun þar sem
framkvæmdastjórn sambands-
ins er falið að hafa vakandi
auga með erlendum auðfélögum
sem stari'a í Bretlandi. Segir
miðstjórnin að komið hafi í ljós
að auðíélög þessi virði að vett-
ugi samninga verkalýðsfélag-
-fenna við vinnuveitendur.
Fyrir nokkru gáfu stjórnar-
völdin kaupsýslumönnum sjálf-
dæmi um verðlag á fjölmörgunt
nauðsynjum, þar á meðal flest-
um ytri fatnaði. Eru kaupsýslu-
meiin nú önnum kafnir við að
notfæra sér frelsið. Þannig hef-
ur Þjóðviljinn spurnir af því að
heildsalar hafi hækkað álagn-
ingu sína á nælonsokka um
livorki meira né minna en 90%.
90% hækkun á kaupi heildsala
er auðsjáanlega ekkert vanda-
mál þótt allt sé talið fara úr
skorðum ef verkamenn með 400Q
króng mánaðartekjur fái 10%
hækkun! ,
En í sambandi við þessa stór-
felldu álagningarhækkun er
fróðlegt að gefa því gaum að
Stjérncrkreppa
enn í Israel
Jerúsalem 8/9 — Ekki hefur enn
tekizt að mynda stjórn í ísrael
eftir þingkosningarnar sem þar
fóru fram nýlega, en þar varð
flokkur Ben-Gurions fyrir tölu-
verðu áfalli. Ben-Gurion sagði í
gær að hann teldi sig ekki fær-
an um að mynda stjórn og hef-
ur hann gefið í skyn að hann
kunni að draga sig í hlé.
Alþýðublaðið — málgagn við-
skiptamálaráðherrans — skýrir
frá því í gær að árlega sé
smyglað til landsins hvorki
meira né minna en 500.000 pör-
um af nælonsokkum, og segir
í því sambandi ,,að hér séu
starfandi stórvirkir smyglhring-
ar“. Það er á allra vitorði að
þessir smygluðu nælonso.kkar
eru fyrst og fremst seldir á veg-
um heildsala og verzlan-a; þetta
hefur verið aðferð kaupsýslu-
mannanna til þess að tryggja
sér stórfellda aukaálagningu. í
stað þess að uppræta lögbrotin
og refsa þeim seku er aðferð
ríkisstjórnarinnar sú ,að reyna
að kaupa menn til þess að hætta
smyglinu með því að leyfa þeim
takmarkalausa álagningu. Og í
viðbót lofar ríkisstjórnin því að
tollar á þessari vörutegund
skuli lækkaðir til mikilla muna
án þess að kaupsýslumenn þurfi
að lækka sokkana í verði um
einn eyri. í>á verður ekki á-
stæða til þess að standa í smygli
lengur til þess að svíkja ríkis-
sjóð um tollatekjur og komast
fram hjá álagningarreglum!
Viðurkenna ætti þýiku
ríkin tvö og taka í SÞ
Moskvu 8 9 — Stórt skref væri
stigið í friðarátt ef öll ríki við-
urkcndu bæði þýzku ríkin og
þeim yrði báðum veitt aðild að
SÞ, sagði Krústjoff forsætisráð-
herra í ræðu hér í dag.
Krústjoff talaði á indversk-
sovézkum vináttufundi og var
Nehru forsætisráðherra einnig
þar viðstaddur.
Undirritun friðarsamninga við
Austur-Þýzkaland vérður ekki
frestað, hvað sem líður samn-
ingum við vesturveldin um
Þýzkalandsmálið, sagði Krúst-
joff. Þegar friðarsamningur hef-
ur verið undirritaður við Aust-
ur-Þýzkaland verður Berlin
frjáls og afvopnuð borg.
Krústjoff sagði að hætta á
stríði vofði nú yfir mannkyninu
og kenndi ve-sturveldunum um.
En þau vita. sagði hann. að við
óttúmst ekki hótanir þeirra og
að við getum varið hendur okk-
ar ef á okkur verður ráðist.
Vilji vesturveldin taka upp
samningaviðræður, eru Sovét-
ríkin rús til að taka þátt í þeim
ef ætlunin er að komast að
niðurstöðu um friðarsamninga
Við Þýzkaland.
Það er alls ekki hægt að
fresta lausn þýzka vandamálsins
lengur. Þjóðirnar myndu ekki
fyrirgefa okkur frekari frestun.
Ve-sturveldin hafa aukið hern-
aðarviðbúnað sinn. Við getum
elcki virt að vettugi þá þörf sem
land okkar og önriur sósíalistísk
lönd ~hafa fyrir öryggi. Sovét-
ríkin hafa. neyðzt til að fresta
i að fækka í her sínum og til að
I auka hernaðarútgjöld sín. Vegna
I hótana vesturveldanna höfum
i við verið nauðbeygðir að byrja
| á tilraunum með kjarnavopn.
Tilboð vesturveldanna að stöðva
sh’kar tilraunir ofan jarðar er
aðein.s áróðursbragð. Frakkland
mundi þannig óhundið af slíku
banni og gæti haidið áfram til-
raunum stnum í þágu Atlanz-
bandalagsins.
Nehru svartsýnn
Nehru talaði einnis á fund-
inum og var svartsýnn á á-
standið í heiminum. Hann sagði
að st.ríðsvofan ógnaði nú öllu
mannkvni og framtíð þess væri
nú í höndum stórveldanna. Ind-
land myndi ekki láta neins ó-
freistað til að bægja hættunni
frá dyrum. Tækist stórveldun-
um ekki að semja um afvopn-
un, myndi þeim heldur ekki
takast að varðveita friðinn.
Laugardagur 9. september 1961. — 26. árgangur — 205. tölublað.
í gær var aíhjúpað í Fossvogskirkjugarði miririismerki um
pólsku sjómennina er fórust með pólska flulningaskip-
inu „\Vigry“ undan Skógarsandi á Snæfellsnesj í jan-
úar 1942.' Pólski sendifulltrúinn á íslandi, frú Ko\VáÍska,/
i'lutti ávarp, en frú Auður Auðuns, forseti bæjarstjóm-
arinnar, afhjúpaði minnismerkið. Lúðrasveit Ré.ykjavík- '
ur flutti pólska og íslenzka þjóðsönginn ög sor'gáViúafs !
Chopins. Viðstaddur afhjúpunina var. Bragi Kristjánsson,
Mýrargötu 14, én hann var annar tveggja, sem komust
lífs af er „Wigry“ fórst. Auk þess voru viðstaddir aí-
hjúpunina fulltrúar eriendra ríkja og aðrir gestir. /
Frú Kowalska sagði m.a. að áhöfnin á „Wigry“ hefði
SendifuIItrúi Póllands á íslandi, frú Kowalska, flytur á-
varp sitt. Lengst til hægri er frú Auður Auðuns, forseti
bæjarstjórnar, sem afhjúpaði minnismerkið.
týnt lífi sínu við strendur Islands á hinum miskunnarlausu
dögum annarrar heimsstyrjaldarinnar; sjómennirnir hefðu.
verið að rækja skyldu sína við ættjörðina og mannkyn-
ið, eins og. allir þeir sem börðust fyrir frelsi og gegn
yfirgangi ’ nazista.
,,Wigry“ var í þjónustu bandamanna og meðal áhafn-
arinnar voru einnig Bretar og íslendingar. Af 27 manna
áhöfn komust aðeins tveir lífs af, Bragi sem þa var 17 ára
og Pólverji.
Við grafir hinna pólsku sjómanna, sem gáfu líf sitt
fyrir frelsi okkar og ykkar, minnumst við þeirra hörm-
unga og þjáninga sem styrjöldin leiddi yfir allár þjóðir
heims.
Þessi yfirlætislausi minnisvarði stendur ekki einungis
sem tákn hinna látnu, heldur einnig sem tálcn hörmunga
er leiðir af styrjöldum.
Að endingu mælti frú Kowálska á íslénzku:
„Fyrir hönd hins pólska alþýðulýðveldis leyfi ég mér
að þakka íslandi, sem hefur alið svo marga sjómenn. fyr-
ir að leyfa pólskum sjómönnum að hvíla hér við hlið
bræðra sinna.“
WASIIINGTON 8/9 — Banda-'
rískir herforingjar eru farnir
að óttast að Sovétríkin muni
komast fram úr Bandaríkjunum
í hernaðartækni með tilraunum
sínum sem þau eru nlú að gera
með kjarnavopn.
Hermálafréttaritari blaðsins
Baltiinore Sun, Mark Watson,
segir í grein sem hann sendi i
blaði sínu frá Washington í dag
að bandarískir vísindamenn haíi i
komizt ,að raun um að ein af
þeim fjórum sprengingum sem
gerðar hafa verið í Sovétríkj-
unum að undanförnu hafi átt
sér stað í 70.OOO metra hæð.
Greinilegt sé að sprengjunnx
hafi verið skotið svo hátt upp
með eldflaug og eldflaugar af
þeirri gerð verði hægt \að nota
til að eyðileggja öíl langdræg
flugskeyti sem notuð væyu í á-
rásarskyni löngu áður en þau
kæmust í mark. Það er deginum
ljósara, segir Watson, að það
land sem fyrst yrði til að smíða
slíkar eldflaugar og afla sér á
þann hátt öruggra varna gegn
langdrægum flugskeytum, myndi
hafa náð mikJum yfirburðum.
Watson hefur það eftir yfir-
manni bandarískra loffvarna,
Framhald á 10. síðu.