Þjóðviljinn - 11.01.1962, Blaðsíða 12
Síðasta myndin í Tripoli
N. k. mánudag, 15. janúar,
rennur út frestur sá, sem Tón-
listarfélagið heí'ur fengið til
þess að rýma úr Tripólíbíói,
sem nú á að fara að rífa til
grunna, sögðu íorráðamenn
Tónlistarfélagsins í viötali við
fréttamenn í gœr. Hófust sýn-
ingar í gœr á síðustu mynd-
inni. sem sýnd verður í Trí-
pólíbíói. en það er ameríska
stórmyndin Plótti í hlekkjum,
sem er heimsfræg verðlauna-
mynd. Hlaut hún Oscarverð-
launin 1959 fyrir bezta hand-
rit og beztu kvikmyndatækni.
Ennfremur hlaut leikstjórinn,
Stanley Kramer, verðlaun
blaðagagnrýnenda í New York
fyrir beztu mynd ársins og
bezlu leikstjórn- og annar að-
aileikarinn, negrinn Sidney
Poitier, hlaut „silfurbjörninn"
á kvikmyndahátíðinni í Berlín
fyrir leik sinn í myndinni.
Sagan, sem myndin er byggð
á. hefur komið sem fram-
haldssaga í Vikunni. Fjallar
myndin um flóttatilraun 2ja
samanhlekkjaöra fanga, negra,
er Sidney Poitier leikur, og
hvíts manns, sem leikinn er
af Tony Curtis. Þar sem svo
fáir dagar eru, sem hægt
verður að sýna myndina,
verður hún sýnd fjórum si
um á dag. kl. 5, 7. 9 og 11.15.
Trípólíbíó var reist af amer-
íska hernum árið ’ 1941 og var
aðallega n'otað sem leikhús. 1
stríðslok keypti Tónlistárfélag-
ið braggann og hefur nú rek-
ið þar kvikmyndahús í tæp
15 ár. 17. júni 1959 hóf fé-
lagið byggingu nýs kvik-
mynda- og skólahúss að Skip-
holti 15 og var ætiunin, að
það yrði tilbúið til notkunar,
þegar félagið þyrfti að rýma
úr Trípólíbíói. Ekki hefur tek-
izt að standa við þá áætlun
Atriði úr síðustu myndinm í Trípólíbíói
og verða a.m.k. um tveir mán-
uðir, þar til hægt verður að
hel'ja sýningar í nýja húsinu.
Gert er ráð fyrir, að Tónlist-
arskólinn geti tekið til starfa
í nýja húsinu næsta haust.
þJÚÐVILIINH
Fimmtudagur 11. janúar 1962 — 27. árgangur — 8. tölublað
Súkarnö boðar enn
hernaðaraögerðir
★ Seine-héraði við París hafa
★ borið fram mótmæli í
k húsnæðismálaráðuneyt-
★ inu vegna þess aö skorið
hefur verið niður opinbert
★ framlag til húsnæðisbygg'-
★ inga. Ilin nýja tilskipan
k stjórnarinnar kemur líka
Þegar bótagreiðslur almanna-
trygginganna fvrir janúar hófust
i gær, kom í Ijós að greiddar
voru sömu upnhæðir o^ verið
hefur undanfarið, 13,8% uppbót-
in sem lögfest hefur verið kom
ekki til útborgunar. Brá ýmsum
bótaþegum í brún við betta, þar
sem þeir bjuggust við að upp-
bótin vrði areidd mánaðarlega.
Fyjúr siðari hluta ársins 1961 var
uppbótin greidd í einu lagi í
desember.
Sverrir Þorbjörnsson, forstjóri
Tryggingastofnunar rikisins
sagði Þjóðviljanum, að þessi
háttur væri haíður á útborgun-
frumsýndur í
inni samkvæmf sérstakri heimild
sem sett var í lösin i því augna-
miði að spara tíma og vinnu.
Það er ætlunin að greiða UþP-
bótina fyrir fimrn fvrstu mánuði
þessa árs i einu lagi í maí. en í
júní kemur enn '4% hækkun,
og úr þvi verður full greiðsla
mánaðarlega.
— Við erum ekki að re.vna.að
svindta á neinum, sagði Sverrir,
en bað kostar óhemju vinnu - og
tíma aukalega að greiða út í
krónum eða jafnvel aurum, Þetta
var gert í. desember. og við tetj-
um að Það hafi tafið afgreiðslu
urn helming. Eigi útborgun að
ganga greitt þurfa venjulegar
greiðslur að standa á hundraði
eða tug', ellilífeyrir fvrir ein-
stakling hefur til dæmis verið
1200 krónur og 2250 fyrir hjón.
í júní verður reynt að jafna
upphæðir svo að vel standi á
til útborgunar.
DJAKAKTA 10/1 — Veslur-Gín-
eu-málið er búid að valda okkur
naegilegum crfiðleikum, að mínu
áliti hiifum við ekki um aðra
„leið að velja en að beita vopna-
valdi, sagði Súkarnó forseti í
ræðu á fjöldafundi stúdenta í
Djakarta í dag.
Súkarnó endurtók að Indónes-
4 afkvæðz munur
í Sjómannafélagi
Hafnarfjzrðar
Stjórnarkosningu i Sjómannafé-
lagi Hafnarfjarðar lauk á hádegi
í gær og voru atkvæði talin þá
þegar. A-listi stjórnar og trúnað-
arráðs fékk 36 atkvæði en B-
listi borinn fram af tilskildum
fjölda félagsmanna hlaut 40. At-
kvæði greiddu 77, en einn seðill
var auður.
Stjórn félagsins næsta starfs-
fímabil skipa því þessir menn:
Formaður Einar Jónsson. vara-
formaður Siguröur Pétursson. rit-
ari Björn Þorleifsson, gjaldkeri
Kristján Sigurðsson. varagjald-
'keri Hannes Guðmundsson og
varamenn Grétai' Pálsson og
Bjarni Hermundarson.
ar myndu þvi aðeins hefja samn-
ingaviðræður við Hollendinga, að
gengið væri út frá því að Indó-
nesar fengju yí'irráð yfir vestur-
hluta Nýju-Gíneu. Stúdentar
tóku undir þessi orð forsetans
með hrifningu,
/ i
Bráðabirgðastjórn
Forsetinn upplýsti annars, að
komið hefði verið á fót bráða-
birgðastjórn fyrir vesturhluta
Nýju-Gíneu, sem ennþá er hol-
lenzk nýlenda. Stjórnin situr í
Macassar á Celebes. Súkarnó
sagði að þessi stjórn væri til-
búin að taka að sér stjórn yfir
vesturhluta Nýju-Gíneu )>egar er
veldi Hollendinga hefði verið
steypt.
Haldið er áfram að efla land-
her. flugher og flota Indónesíu
á hinum austlægari eyjum
landsins. Nokkrir af nánustu
samstarfsmönnum Súkarnós hafa
verið sendir þangað til að vera
með í ráðum um undirbúning
hugsanlegrar innrásar Indónesa
í vesturhluta Nýju-Gíneu.
19' manns hafa verið handtekn-
ir vegna banatilræðisins við
Súkarnó s.l. sunnudag. Krústjoff
heíur meðal annars sent Súkarnó
heillaóskaskeyti vecna þess að
hann slapp ómeiddur írá tilræð-
inu.
★ í veg fyrir það að kjörnir
★ l'ulltrúar bæjarfélaga fái
★ nokkru ráðið um þessa
★ hluti. Myndin er tckin
★ þcgar borgarstjórarnir af-
★ hcntu húsnæðismálaráð-
★ herranum mótmæli sín
★ gegn þessari lýðræðis-
★ skerðingu.
í kvöld er frumsýning' í Þjóð-
leikhúsinu; sýnt verður leikrit-
ið „Húsvörðurihn“ (The Care-
taker) cftir brezka skáldið Har-
old Pinter.
Leikstjóri er Benedikt Árna-
son, en leikendur aðeins þrír:
Valur Gíslason, Bessi Bjarnason
og Gunnar Eyjólfsson.
Næsta sýning á „Húsverðin-
um‘' verður n.k. sunpudagskvöld.
Smiði síldarverksmiju á
Reyðarfirði undirbúin
AUSTUULAiyD, blað sósíalista á
Austfjörðum, hefur skýrt frá því
að langt muni nú komið undir-
búningi félagsstofnunar á Keyð-
arfirði í því skyni að hrinda í
framkvæmd byggingu síldarverk-
smiðju þar í þorpinu.
Stofnendur munu vera kaup-
félagið þar og útgerðarmenn og
ætlunin er að byggja litla verk-
smiðju. er geti unnið 500—Í000
mál síldar á sólarhring.
Myndi bæta aöstööuna
Það hefur lengi vérið áhuga-
mál Reyðfirðinga að síldarverk-
smiðja yrði reist þar í þorpinu.
I Síðustu sumur hefur nokkur
síldarsöltun verið á Reyðarfirði,
en það er mjög bagalegt, að þar
hei'ur ekki verið aðstaða til að
I bræða úrgang og slatta, en sölt-
un veröur naumast rekin án þess
slík aðstaða sé fyrir hendi. Síld-
arverksmiðja á Reyðarfirði yrði
kannski þýðingarmest fyrir sölt-
unina. auk þess sem hún getur
unnið úrgang frá frystihúsinu,
en á Reyöarfirði er engin íiski-
mjölsverksmiðja.
iunar á hita
veituæð
1 Mikið ólag hcfur verið á hita- |
| veitunni að undanförnu, og (
I hefur það í flestum tilfellum
. arðið mönnum til óþæginda.
En líklcga hafa ncmendur í
Gagnfræðaskólanum við Von-|
arstræti hugsað hlýlega til |
itofnunarinnar, því skólanum .
var lokað í gær vegna bilun-
ir á hitaveituæðinni í Lækj-
irgötu og sennilega einnig i I
I íag. Seint í fyrrinótt var lok-
| ið við viðgcrðina á æðinni hjá i
k skólanum, en þegar vatnið var .
, sett á aftur sprakk æðin á
' uðrum stað, rétt við húsið
I hans séra Bjarna. Fimm bil- I
| anir hafa oröið á æðinni í |
| Lækjargötu, sem er orðin ,
I mjög tærð af völdum sjávar-
seltu, þar sem sjór hefur kom- '
1 izt inn í stokkinn.