Þjóðviljinn - 21.03.1962, Síða 1
Alstaðar ó
YARÐBERGI
Algeng sjón í Reykjavík,
ekki hvað sízt á miðviku-
dögum: bandarískir her-
námsliðar hópast saman á
einu götuhornanna í mið-
bænum.
Og svipaða sjón getur víð-
ar að líta en hér í höfuð-
borg fslands, því sá heims-
hluti fyrirfinnst ekki að
Baflaaríkjamenn hafi þar
ekki flejri eða færri her-
stöðvar, eins og gleggst
scst á eftirfarandi yfirliti
sem erlend blöð hafa birt
um herstyrk Bandaríkja-
manna utan heimalandsins.
Fjöldi bandarískra hcr-
námsliða í einstökum lönd-
um er sem hér segir:
fsland 4.000
V estur-Þýzkaland
og V-Börlín 300.000
Bretlandseyjar 35.000
Frakkland 50.000
ftalía 10.000
Spánn 10.000
Við Miðjarðarh. 35.000
Tyrkland 8.700
Lybía 14.000
Marokkó 5.000
Grænland 6.000
í Karíbahafi 20.000
Suður-Víetnam 3.000
Suður-Kórea 57.000
Japan 50.000
Filipseyjar 10.000
Annarsstaðar á
Kyarahafssvæðinu 60.000
í gær fékk Þjóðviljinn spurnir af því, að í vet-
ur hefði prófessor Magnús Már Lárusson fundið
í sóknarlýsingum Reykholtssóknar frá 1842 heim-
ild fyrir því, að þar í kirkjugarðinum í Reykholti
hefði fundizt steinkista, er verið var að taka þar
gröf, en aðeins ein steinkista hefur fundizt í
kirkjugarði hér á landi, kista Páls biskups Jóns-
sonar 1 Skálholti. Er því hér um merkan fund að
ræða, ef rétt er frá greint og treysta má heim-
ildinni.
Þjóðviljinn snéri sér til próf.
Magnúsar Más og spurði hann
um sannleiksgildi þessarar frétt-
ar. Kvað hann það rétt vera, að
í febrúar sl. hefði hann rekizt
ó þessa heimild í sóknarlýsing-
unum. Varð hann góðfúslega við
þeim tilmælum að láta blaðinu
hana í té orðrétta.
Sóknarlýsingin er rituð 1842
af þáverandi presti í Reykholti,
séra Jónasi Jónssyni, er þá hafði
verið þar prestur í um þrjú ár.
Er kafli sá úr sóknarlýsingunni,
er hér fer á eftir svar prests við
spurningu Bókmenntafélagsins
um fornminjar, er fundizt hefðu
( sókninni. Þeirri spurningu
svarar prestur svo:
„Engar fornleifar hafa hér
fundizt svo ég geti uppspurt eða
verið greindar, en sagt hefur mér
verið, að eitt sinn hafi menn,
þegar gröf var tekin í Reykholts-
kirkjugarði, hitt ofan á fótagafls-
enda á steinlíkkistu yfir hverja
höfðu verið lagðar þunnar og
velfelldar hellur þversyfir. Nokkr-
ar af þessum hellum höfðu graf-
armenn tekið upp og þóttust séð
hafa merki til að ofan í kistuna
hefði verið lögð rauðleit blæja,
þvílíkust sem úr silki, sem þó
strax varð að hismi, þegar á var
tekið. Engar rúnar eða þess kon-
ar þóttust þeir hafa getað fund-
ið. enda voru það hellurnar yfir
fótagaflsendanum, sem upp höfðu
verið teknar. Það kemur mönn-
um saman um, að þessi stein-
kista sé austanundir kirkjugafl-
inum en geta ekki sagt fyrir víst.
hvar helzt hennar sé að leita.“
Prófessor Magnús kvaðst telja
bessa heimild um kistufundinn
nlltrausta. Hins vegar gæti leik-
ið á því nokkur vafi, hvort þarna
hefði verið um að ræða raun-
verulega steinkistu eða aðeins
hellugröf. Það virtist þó eindreg-
ið benda til þess að hér hefði
verið um steinkistu að ræða, að
grafarmennirnir hefðu fundið
leifar silkiblæjunnar. Það sýndi,
að mold hefði ekki runnið inn í
kistuna eins og gert hefði i
hellugröf, því að þá hefði blæjan
löngu verið fúnuð og uppleyst.
Prófessor Magnús kvað það
furðulegt, að. enginn skyldi fyrr
hafa hrokkið upp við lestur
þessarar lýsingar eins og sókn-
arlýsingarnar hefðu verið þaul-
lesnar. Hér væri þó um merki-
legar upplýsingar að ræða, er
gæfu von um að finna mætti
aðra íslenzka steinkistu, mjög
líklega frá sama tíma og stein-
kistu Páls biskups. Kæmi þá
helzt í hug, að Snorra Sturlu-
syni eða Páli presti Sölvasyni
hefði verið veittur svo veglegur
umbúnaður f gröfinni. Væri það
Framhald á 5. siðu.
Steinkista Páls biskups Jónssonar, er fannst í Skálholtskirkjugarði.
Myndin var tekin, er búið var að opna kistuna og scst beinagrind
Páls biskups vel í kistunni.
Franska þingið ræðir samningana um Alsír:
Veik ondstaða gegn
Alsírsamningunum
PARÍS 20/3 — de Gaulle
Frakklandsforseti sendi
þjóðþinginu boöskap árdeg-
YERÐHÆKKANIR 32%
KAUPLÆKKANIR 5%
0 Þjóðviljanum barst í gær fréttatilkynning frá Hagstofu ís-
iands um vísitölu framfærslukostnaðar miðað við verðlag 1. marz
sl. Segir þar að vísitalan sé óbreytt 116 stig, og eru allir liðir henn-
ar óbreyttir nema vísitalan fyrir matvörur sem er talin hafa lækk-
aí (!) úr 130 stigum í 129 stig í febrúarmánuði.
0 Vísitalan fyrir vörur og þjónustu er 132 stig. Almennar nauð-
synjar hafa þannig hækkað í verði um 32°,V síðan 1. marz 1959.
Tímakaup Dagsbrúnarmanns er hinsvegar tæpum 5% lægra en
það var í ársbyrjun 1959.
is í dag í tilefni þess aö um-
ræöur voru aö hefjast í
þinginu um samningana í
Alsírmálinu. Forsetinn til-
kynnti aö þjóöaratkvæöa-
greiösla myndi látin fara
fram um þá tillögu sem
stjórnin legöi nú fyrir þjóö-
þingiö, þ.e. aö samningarn-
ir, sem geröir voru í Evian
milli frönsku stjórnarinnar
og útlagastjórnar Serkja,
veröi samþyk&ir.
Ofstækisfullir * hægriþingmenn
gerðu háreisti í franska þinginu,
þegar umræður um friðarsamn-
ingana hófust í dag. Hrópuðu
þeir ókvæðisorð í garð stjórnar-
innar, sökuðu hana um föður-
landssvik, stórglæpi o.s.frv. 45
voru á mælendaskrá þegar um-
ræður hófust, og er búizt við að
þær standi a.m.k. í tvo daga*
áður en atkvæði verða greidd.
Áður en umræðurnar byrjuöu
hafði de Gaulle forseti sent þing-
inu boðskap sinn og tilkynnt að'
Framhald á 10; síðn.
Hótað að hindra lög-
festingu 290 þús. hr.
dánarbóta fyrir alla
sjómenn — Sjá 12.
síðu.