Þjóðviljinn - 08.05.1962, Qupperneq 9
VALUR vann ÞRÓTT 4:0
í fvrsta leik sumarsins
Við mark Þróttar í síðari hálfleik: markvörðurinn situr og horfir eftir boltanum, en varnarleik-
maður bægir hættunni frá. Björgvin í Val horfir spenntur á. (Ljósm. Bjarnleifur).
Lið Vals;
Björgv.'n Hermannsson, Árni
Njálsson, Þorsteinn Friðþjófs-
son, Ormar Skeggjason, Sigur-
jón Gíslason, Elías Hergeirs-'
son, Steingrímur Dagbjartsson,
Bergsteinn Magnússon, Björg-
vin Daníelsson, Matthías Hjart-
arson og Skúli Þorvaldsson.
í,ið Þróttar;
Þórður Ásgeirsson, Eysteinn
Guðmundsson. Páll Pétursson,
Ólalur Brynjólfsson, Þorvarður
Björnsson, Eyjólfur Magnús-
son, Jens Karlsson, Ómar
Magnússon, Axel Axelsson,
Baldur . Ólafsson (Bill), Hauk-
ur Þorvaldsson.
Dómari var Karl Bergmann.
Þessi fyrsti leikur knatt-
spyrnutímabils'ns hér á því
herrans ári 1962 hafði flest þau
einkenni sem fyrstu leikir eru
vanir að hafa. Liðin ekki orðin
samæfð, ákafi meiri en kunn-
átta leyfir, leikur heldur sund-
urlaus, og við það bættist, að
völlurinn frar með fullkomnu
vorsniði: þungur og ósléttur,
og má að sumu leyti kenna
honum það sem virtist óná-
kvæmni í sendingum.
Leikurinn var ekki nema
þriggja mínútna gamall þegar
fyrsta mark sumarsins sá
dagíins Ijós, Björgvin Daniels-
spn skoraði það af stuttu færi.
Þróttarar létu þetta ekkert
á sig fá og' veittu Val harða
mótstöðu og þó Valur hafi
sótt heldur me:'ra tókst þeim
ekki að skapa sér nein veru-
leg ía‘kifæri. ..
: Leikurinm,: var heldur þæf-
iþgslegur, ,þótt: við og. við sæþ
Úst sæmilegar tilraunir. Á 20.
rþínútunni munaði litlu að
Þróttur jafnaði en ‘ Sígurjón
bjargaði á línu. Litlu síðar er
Þróttur hart klemmdur, en
tekst að bjarga í horn. Á síð-
ustu mín. hálfleiksins var
Þórður einnig vel staðsettur er
Skúli skaut i horn marksins,
og bjargaði. Þannig gerðist
raunar lítið nema þetta eina
mark.
• Síðari hálfleikur 3:0
Síðari há]fle:'kur byrjaði ekki
vel fyrir Val, því Bergsteinn
varð að fara útaf um stund,
og sóttu Þróttarar þá hart og
skutu, en Björgvin varði vel.
Á 10. mín. leika Valsmenn
knettinum upp hægra megin
og er Biörgvin kominn út og
sendir knöttinn fyrir. Þórður
missir af honum og Matthias
nær honum og sandir hann í
mannlaust markið'.
Litlu siðar er Björgvin í all-
góðu færi, en skaut fram-
hjá. Þróttarar eru ekki eins
ákafir og i fyrri hálfleik. Við
og v.ð gera þeir þó áhlaup og
úr einu þeirra átti Bill mjög
gott skot af löngu færi sem
Björgvin bjargaði. Steingrim-
ur átti litlu síðar gott tæki-
færi. eftir að Valur hafði gert
mjög gott áhlaup vinstra meg-
in, 05 fékk hann knöttinn yfir
til hægri.
Á 35. minútu er dæmd víta-
spyrna á Þrótt og skaut Berg-
steinn aftur og notaði hann þá
tækifærið og skoraði 3:0.
Þrótti tókst ekki að ógna
Val, og e.'ga sjálfir í vök að
wórjast, og... á BífitSvin gott
t-, ( tækifæri, sem ekki notast, og
..„Matthías á hörkuskot sem
Þórður varði.
OííOVj: en <. . :::ui'nni
v ^ .(Á sjðustu fnip. l^iksins. fær
Valur hornspyrnu, sem Skúli
tekur, og skorar' Bergstfe'nn
- i með ' skalla, án- þess að vera
hindraður af vörninni, og
þannig lauk þessum fyrsta leik
4:0 fyrir Val.
• Valsliðið frískara
en áður
Þó vorbragur hafi verið á
þeirri knattspyrnu sem sýnd
var er þvi ekki að neita að
Valsliðið er mun frískara og
í betri þjálfun en það hefur
verið í undanförnum fyrstu
leikjum, óg kom þetta greini-
lega fram er líða tók á leik-
inn. Flokksleikinn fann ljðið
ekki i þessum leik nema rétt
við og við, og þá var gaman
að horfa á le.'k þeirra, en það
kom alltof sjaldan fyrir.
Of margir hafa hneigð til
þess að halda knettinum of-
lengi og bar með að eyði-
leggja léttan og leikandi sam-
leik. Þar má Matthías mjög
vara sig. og mun skynsamlegra
fyrir svo leikinn mann að nota
kunnáttu sína til að fá sam-
leikinn í gang. Annars gerði
Matthias margt laglega. Berg-
steinn lék einn sinn bezta leik
til þessa, hann var frískur og
harðsækinn. Ormar var líka
stoð og stytta liðsins.
r
Árni var friskur og örugg-
ur í vörninni og eirts Þor-
steinn. Val hefur borizt liðs-
aukj með Sigurjóni. Gislasjmi
(úr Hafnarfirði) en hann lék
sem miðvörður, og slapp vel
frá því í þess.um fyrsta leik.
Hann sótti sig er á leikinn
Þyi
■jiyarð við komið.
fy
Liðið-. íí hfiild, er be^ra. en í
rra. ög'‘þ^gárs þeir ixafa‘ték-
1 ið uþp meiri samleik. meiri
1 hreyfingu þegar"'þeir. hafa ekki
. k'nöttinn, ætti' li.^gu... að ganga
' ýel í sumar. ' *'• ■’■ ..
Framháld á 10. siðu.
FH sigurvegari í esfmœlis-1
móti Hauka, vann Fram 9:8 \
í undanúrslitum vann Fram Hauka 16:11
og FH vann Þrótt 23:7
Hafnfirðjngar að setja EysteiF'
út af laginu (Hafníirðinga\
voru undir nær allan leikjnn\
en Eysteinn sá við þeim oj-
dæmdi leikinn yfirleitt mjöf
vel. Er enginn vafi á, að þaij
er á ferðinni efn: í góðai5
dómara, er tímar liða.
í undanúrslitum lék Fran
gegn Haukum og var það létt.,
ur og skemmtilegur leikul^
Fram lék með marga nýlið?
þennan leilc, en honum lauf
með sigri Fram 16:12. í leik
hléi var staðan 9:4 Fram
vil.
Hinn undanúrslitaleikurinT5'
var á millj FH ög Þróttar o^
varð Þróttur auðunin brá?
fyrir FH-inga, FH lék meN
sínu sterkasta liði. en i lií.
Þróttar vantaði a.m.k. 4- leite
menn. Leiknum lauk mef
sigri FH 23:7. í leikhléi vai,
staðan 8:2 fyrir FH.
I kvennaflokki var auglýst"
ur leikur míili FH og Vals, e*i
Valsstúlkurnar gátu ekki mætf
svo að, Fram,stúlkumar hlupn
í skarðið. FH sigraði Frartp
með 11 mörkum gegn 5. :— II
Úrslitaieikur afmælismóts
Hauka var á milli FH og
Fram og var hann eir.kar
skemmtilegur. FH mætti með
sitt sterkasta lið, en í Fram
liðið vantaði Iugólf og Sig-
urjón. Þrátt fyrir það voru
það Framarar sem tóku for-
ystuna í leiknum. Leit út fyr-
ir „burst“ um tíma, er Fram
komst uPP í 7:2, en í leik-
hléi var staðan 7:4 fyrir Fram,
Síðari hálfleikur byrjaði
ekki §em bezt fvrir Fram. Karl
Ben. tók vitakast, en skaut
framhjá. Hafnfirð.ngar sigu nú
á jafat og þétt, þar til Ragn-
ar jafnar úr vitakasti, og var
þá staðan 8:8. Örn skoraði
síðan sigurmark FH á síðustu
mínútunum.
Nýliði lék í markinu hjá
Fram, Atli Marinóssön, og kom
hann áhorfendum skemmtilega
á óvart með getu sinni,
Hörmuleg yfirsjón var það
hjá dómarafélaginu að láta
ungan ög óreyndan pilt, Ey-
stein Guðmundsson, dæma
leikinn, þó svo að honum hafi
farizt leikstjórn allvel úr
hendi. Hvað eftir annað reyndu
f fvrri umferð afmœlismóti
m ■r. V ‘X. .
Hauka vann Fram ÍR naumt
Eins og frá var skýrt á
fösitudag efndi Knattspyrnufé-
lagið Haukar til afmælismóts
er stóð föstudags- og laugar-
dagskvöld. Leikimir fyrra
kvöldið voru nokkuð skemmti-
legir sumir hverjir. Að vísú
voru fæst liðin með alla sina
menn.
Haukar unnu Val auðveld-
Iega 18:9 (5:3) ’
Það er nú Qrðið langt síð-
an þessi l.'ð hafa keppt sam-
an í meistaraflokki, og hefði
mátt búast við harðari mót-
stöðu af Vals hálfu, en það
var eins og lejkur þessi væri
staðfesting á því, að Valsliðið,
eins og það er í dag, á heima
í annarri deild. Með .elj.u ætty:
J)ó þessir- ‘ungu ménn að ge'ta
'■ rétt hlut sinn.
Haukarnir sýndu oft nokk-.
r.ð góðan iejk og féíl liðið vel
, saman, og miðað við það að
bak við það liggur aðeins ejnn
vétur hvað samæfingu snertir,
má segja, að þeir hafa náð
undra langt. Það er eins og
þeir hafi. harðnað mjög «
hverjum leik í vetur.
FII lék sér að KR og '
vann 2.4:11 — (9:4)
Eftir tap FH gegn Framj í
íslandsmótinu, var nokkur efts
irvænting í mönnum að sjfj
leik þeirra vjð KR. í liú Kft
vantaði Karl Jóhannsson pjf'
varð Guðjón markmaður sa(,.
leika úti.
Frá upphafi höfðu FH-in^af'
leikinn í hendi sinni, og réfin
KR-ingar ekkert við hraða .o*-
Framhald á 10. sí|r-
MINNINGAR-
SPJÖLD DAS
'■f i
Miiiningarspjöldin fást þf \í
Happdrætti ÐAS,;
sími;-1-77-57. — Veiðarfæráy;;
Verð^ndi, sími 1-37-87 —■ -• S| P--
mánnáfél. Reykjáyíkur,
1-19-15 — Guðmundi
sýni gullsmið, ‘Laugavegi 50,-
síml 1-37-69. Hafnarfirði: ’ Á
pósthúsinu, sími 5-02-67. j
Á fimmtudag verðui dregið í 5. flokki
1.050 vinningar að fjárhæð 1.960.000 krónur.
Á morgun eru seinustu forvöð að endurnýja.
Happdrætti Háskéla íslends.
1 á 200.000 kr.
1 á 100.000 —
26 á 10.000 —
90 á 5.000 —
930 á 1.000 —
■ ' -
ISLANDS
V
200.000 kr. ) . Aukavinningar:
100.000 — }■" 2 á 10.000 kr.
260.000 — ----------
450.000 — 1.050
930.000 —-----------
20.000 kr.
1.960.000 kr.
I /I
v ■•'aaBiMinriwO n;
cy |i
Þriðjudagur 8. maí 1962 — ÞJÖÐVILJINN — JjJj
fj ij ímiYi* ;■■ ... r,;-: ,