Þjóðviljinn - 11.05.1962, Page 1
■
.3
Launastéttirnar verða að hagnýta
tœkifœrið í kosningunum 27. maí
• Einhugur um öfl-
ugt starf fyrir G-listann
fram að kosningadegi 27.
maí og fyrirheit um að
ötullega verði unnið að
sem mestum sigri Al-
þýðubandalagsins ein-
kenndi fyrsta almenna
kosningafund bandalags-
ins fyrir komandi borg-
arstjórnarkosningar í
gærkvöld. Allir lögðu
ræðumenn kvöldsins á-
herzlu á nauðsyn þess að
launastéttirnar í Reykja-
vík fylktu liði um fram-
boðslista höfuðandstæð-
ings íhaldsins og gerðu
borgarstjórnarkosning-
arnar að uppgjöri al-
þýðustéttanna við kjara-
skerðingarstefnu stjórn-
arvaldanna og dugleysi
um borgarmálefnin.
Fundurinn var haldinn í Aust-
urbæjarbíói. Var hinn stóri sam-
komusalur nær fullsetinn, þegar
fundarstjóri, Hannibal Valdi-
marsson forseti Alþýðusambands
lslands, setti fundinn. Ræðu-
menn voru, auk fundarstjóra,
Guðmundur Vigfússon borgar-
ráðsmaður, Ragnar Arnalds stud.
juiis, Haraldur SjÆinþórsson
kennari, Sigurjón Pétursson iðn-
nemi, Ingi R. Helgason lögfræð-
ingur, Guðrún Gísiadóttir hús-
freýja og • Gúðmundur J. Guð-
mundsson, varaformaður Verka-
í mannaleiagsins Dagsbrúnar.
Ekki eru tök á að rekja ræð-
'• urnár að þessu sinni; fáein at-
riði verða að nægja.
Guðmundur Vigfússon minnti
á að þó að sex listar væru í
kjöri við borgarstjórnarkosn-
ingarnar væri í rauninni aðeins
barizt um
tvær stefnur í
kosningun-
urri). annars
vegar þá
stefnu Alþýðu-
bandalagsins
að bæjarfélag-
ið ætti að hafa
forystu um
Iausn þýðingarmestu hagsmuna-
mála borgarbúa, hinsvegar
stefnu íhaldsins þar sem treyst
væri í blindni á einkaframtak
fárra peningasterkra aðila; ann-
arsvegar væri lelagshyggja og
samhjálp í fyrirrúmi, hinsvegar
réði gróðahyggjan ein og skeija-
laust einkabrask. Guðmundur
Framhald á 4. síðu.
Varðskipið Þór enn
að bjorgunarstörfum
• Laust eftir kl. 11 í gærdag lenti norska flutn-
ingaskipið Elgo í hafsnauð undan suðurströnd ís-
lands. Skipið var með fullfermi af síld, sem tek-
in hafði verið um borð á Akranesi. Mun hafa kom-
izt sjór í lestar skipsins og losnað um farminn.
Nokkur skip fóru þegar á vettvang ogf kom varð-
skipið.Þór fyrst að. Hafði Þór bjargað áhöfninni
klukkan 14,37 og verður reynt að draga skipið til
hafnar í Vestmannaeyjum.
Norska skipið Elgo, sem mun
vera um 500 lestir að stærð tók
síldarfarm á Akranesi, 5000
tunnur og. var á leiðinni til
Noregs með hann þegar óhapp-
ið vildi til Neyðarskeyti var
sent út kl. rúml. II og gaf fjöldi
skipa upp staðarákvörðun og
komutíma sinn á staðinn. Þeirra
á meðal voru varðskipið Þór,
Langjökull 0g strandferðaskipið
Helda, auk þess' svöruðu fær-
eyskir fiskibátar kaliinu. Við
skipin fóru í gegnum Vestmanna-
eyjaradíó. Strax og varðskipið
Þór kom á staðinn, tók það á-
höfnina um borð, en setti sína
menn um borð í hið nauðstadda
skip og setti í það dráttartaug.
Skyldi nú reynt að draga skip-
ið til Vestmannaeyja.
Þegar að var komið var á-
standið þannig með hið norska
skip, að ekki var hægt að keyra
neitt, eða snúa síðunni í v.nd-
inn vegna þess, hve farmurinn
slóst til í lestunum. Veður var
þó með bezta móti, lítill vind-
ur en nokkur undiralda, eins og
ævinlega á úthafinu.
Ferðin áleiðis til Vestmanna-
eyja virtist ætla að ganga' að
óskum strax í gærdag, veður
batnandi og allt í lagi um borð
í báðum skipunum. Þjóðviljinn
átti tal við Vestmannaeyja radíó
í gærkvöld og spurðist fyrir um
hvernig ferðin gengi. Fengum
við þau svör að allt gengi að
óskum. Veður íæri enn batn-
andi og von væri á skipunum
tH Eyja kl. 5—6 í nótt með
sama gangi. Kl. 18,43 voru þau
stödd 78 mílur frá Portlandi og
gangurinn 7,5 mílur á klst.
Eyja radíó hældi sérstaklega
allri þjónustu í lofli frá skipun-
um, sem unnu að björguninni
eða voru nærstödd hana og
sagði að þetta hefði gengið al-
veg sérstaklega vel. Mennirnir
blotnuðu ekki einu sinni á leið-
inni á milli.
Hér hefur enn einu sinni tek-
izt giftusamlega til um björgun
mannslífa o.g verðmæta og hin-
um skipreika mönnum og varð-
skipsmönnunum fylgja hlýjar
óskir þjóðarinnar.
Myndin var tekin í upphafi
★ hins fjölsótta kosningafundaB
★ Alþýðubandalagsins í Austur«í
★ bæjarbíói í gærkvöld. Sésí
★ hér yfir nokkurn hluta fund^
★ arsalarins. (Ljósm. Þjóðv.).
55 fórust í
flugslysi
Rangoon 10/5 — 31 maður léí
lífið er Dakota-flugvél frá flugrf
her Burma hrapaði í grennd viii
við Kengtung L gær. Flugvélin*
var á leið frá herstööinni í Mongt
Palvn til Mandalay.
1 gær fórust 24 manns, e*
brazilísk ílugvél hrapaði logandf
til jarðar við flugvöllinn í ViM
oria í Brazilíu.
Fram vann
I gærkvöld léku Fram og
Þróttur í Reykjavikurmótinu og
Jauk leiknuin með sigri Fram
2:1. í hálfleik var staðan 0:0. í
kvöld leika KR og Valur.
Glæsilegur
fundur H-list-
ans í Kópavogi
H-listinn í Kópávogi hélt
framboðsfund í félagsheimil-
inu í gærkvöld. Ræður fluttu
6 efstu menn listans og töl-
uðu þeir fyrir fullu húsi og
við miklar og góðar undir-
tektir áheyrenda.
Ræðumenn voru þcssir:
| Þormóður Pálsson, Svandís
: Skúladóttir, Ólafur Jónsson,
; Ólafur Jens Pétursson, Eyjólf-
• ur Kristjánsson og Siguröur
J Grétar Guðniundsson. Fund-
: arstjóri var Benedikt Davíðs-
; son.
Scm fyrr scgir var ræðu-
fólkinu frábærlega vel tek-
ið og kom fram á fundinum
mikil stemning fyrir því að
tryggja H-listanum scm mcst-
an og glæsilcgastan sigur í
bæjarstjórnarkosningunum 27.
1