Þjóðviljinn - 11.05.1962, Blaðsíða 1

Þjóðviljinn - 11.05.1962, Blaðsíða 1
■ .3 Launastéttirnar verða að hagnýta tœkifœrið í kosningunum 27. maí • Einhugur um öfl- ugt starf fyrir G-listann fram að kosningadegi 27. maí og fyrirheit um að ötullega verði unnið að sem mestum sigri Al- þýðubandalagsins ein- kenndi fyrsta almenna kosningafund bandalags- ins fyrir komandi borg- arstjórnarkosningar í gærkvöld. Allir lögðu ræðumenn kvöldsins á- herzlu á nauðsyn þess að launastéttirnar í Reykja- vík fylktu liði um fram- boðslista höfuðandstæð- ings íhaldsins og gerðu borgarstjórnarkosning- arnar að uppgjöri al- þýðustéttanna við kjara- skerðingarstefnu stjórn- arvaldanna og dugleysi um borgarmálefnin. Fundurinn var haldinn í Aust- urbæjarbíói. Var hinn stóri sam- komusalur nær fullsetinn, þegar fundarstjóri, Hannibal Valdi- marsson forseti Alþýðusambands lslands, setti fundinn. Ræðu- menn voru, auk fundarstjóra, Guðmundur Vigfússon borgar- ráðsmaður, Ragnar Arnalds stud. juiis, Haraldur SjÆinþórsson kennari, Sigurjón Pétursson iðn- nemi, Ingi R. Helgason lögfræð- ingur, Guðrún Gísiadóttir hús- freýja og • Gúðmundur J. Guð- mundsson, varaformaður Verka- í mannaleiagsins Dagsbrúnar. Ekki eru tök á að rekja ræð- '• urnár að þessu sinni; fáein at- riði verða að nægja. Guðmundur Vigfússon minnti á að þó að sex listar væru í kjöri við borgarstjórnarkosn- ingarnar væri í rauninni aðeins barizt um tvær stefnur í kosningun- urri). annars vegar þá stefnu Alþýðu- bandalagsins að bæjarfélag- ið ætti að hafa forystu um Iausn þýðingarmestu hagsmuna- mála borgarbúa, hinsvegar stefnu íhaldsins þar sem treyst væri í blindni á einkaframtak fárra peningasterkra aðila; ann- arsvegar væri lelagshyggja og samhjálp í fyrirrúmi, hinsvegar réði gróðahyggjan ein og skeija- laust einkabrask. Guðmundur Framhald á 4. síðu. Varðskipið Þór enn að bjorgunarstörfum • Laust eftir kl. 11 í gærdag lenti norska flutn- ingaskipið Elgo í hafsnauð undan suðurströnd ís- lands. Skipið var með fullfermi af síld, sem tek- in hafði verið um borð á Akranesi. Mun hafa kom- izt sjór í lestar skipsins og losnað um farminn. Nokkur skip fóru þegar á vettvang ogf kom varð- skipið.Þór fyrst að. Hafði Þór bjargað áhöfninni klukkan 14,37 og verður reynt að draga skipið til hafnar í Vestmannaeyjum. Norska skipið Elgo, sem mun vera um 500 lestir að stærð tók síldarfarm á Akranesi, 5000 tunnur og. var á leiðinni til Noregs með hann þegar óhapp- ið vildi til Neyðarskeyti var sent út kl. rúml. II og gaf fjöldi skipa upp staðarákvörðun og komutíma sinn á staðinn. Þeirra á meðal voru varðskipið Þór, Langjökull 0g strandferðaskipið Helda, auk þess' svöruðu fær- eyskir fiskibátar kaliinu. Við skipin fóru í gegnum Vestmanna- eyjaradíó. Strax og varðskipið Þór kom á staðinn, tók það á- höfnina um borð, en setti sína menn um borð í hið nauðstadda skip og setti í það dráttartaug. Skyldi nú reynt að draga skip- ið til Vestmannaeyja. Þegar að var komið var á- standið þannig með hið norska skip, að ekki var hægt að keyra neitt, eða snúa síðunni í v.nd- inn vegna þess, hve farmurinn slóst til í lestunum. Veður var þó með bezta móti, lítill vind- ur en nokkur undiralda, eins og ævinlega á úthafinu. Ferðin áleiðis til Vestmanna- eyja virtist ætla að ganga' að óskum strax í gærdag, veður batnandi og allt í lagi um borð í báðum skipunum. Þjóðviljinn átti tal við Vestmannaeyja radíó í gærkvöld og spurðist fyrir um hvernig ferðin gengi. Fengum við þau svör að allt gengi að óskum. Veður íæri enn batn- andi og von væri á skipunum tH Eyja kl. 5—6 í nótt með sama gangi. Kl. 18,43 voru þau stödd 78 mílur frá Portlandi og gangurinn 7,5 mílur á klst. Eyja radíó hældi sérstaklega allri þjónustu í lofli frá skipun- um, sem unnu að björguninni eða voru nærstödd hana og sagði að þetta hefði gengið al- veg sérstaklega vel. Mennirnir blotnuðu ekki einu sinni á leið- inni á milli. Hér hefur enn einu sinni tek- izt giftusamlega til um björgun mannslífa o.g verðmæta og hin- um skipreika mönnum og varð- skipsmönnunum fylgja hlýjar óskir þjóðarinnar. Myndin var tekin í upphafi ★ hins fjölsótta kosningafundaB ★ Alþýðubandalagsins í Austur«í ★ bæjarbíói í gærkvöld. Sésí ★ hér yfir nokkurn hluta fund^ ★ arsalarins. (Ljósm. Þjóðv.). 55 fórust í flugslysi Rangoon 10/5 — 31 maður léí lífið er Dakota-flugvél frá flugrf her Burma hrapaði í grennd viii við Kengtung L gær. Flugvélin* var á leið frá herstööinni í Mongt Palvn til Mandalay. 1 gær fórust 24 manns, e* brazilísk ílugvél hrapaði logandf til jarðar við flugvöllinn í ViM oria í Brazilíu. Fram vann I gærkvöld léku Fram og Þróttur í Reykjavikurmótinu og Jauk leiknuin með sigri Fram 2:1. í hálfleik var staðan 0:0. í kvöld leika KR og Valur. Glæsilegur fundur H-list- ans í Kópavogi H-listinn í Kópávogi hélt framboðsfund í félagsheimil- inu í gærkvöld. Ræður fluttu 6 efstu menn listans og töl- uðu þeir fyrir fullu húsi og við miklar og góðar undir- tektir áheyrenda. Ræðumenn voru þcssir: | Þormóður Pálsson, Svandís : Skúladóttir, Ólafur Jónsson, ; Ólafur Jens Pétursson, Eyjólf- • ur Kristjánsson og Siguröur J Grétar Guðniundsson. Fund- : arstjóri var Benedikt Davíðs- ; son. Scm fyrr scgir var ræðu- fólkinu frábærlega vel tek- ið og kom fram á fundinum mikil stemning fyrir því að tryggja H-listanum scm mcst- an og glæsilcgastan sigur í bæjarstjórnarkosningunum 27. 1

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.