Þjóðviljinn - 19.05.1962, Qupperneq 3
Maja (t.v. og Anna halda á Levkoj-blójmuni. Þær vinna í garöyrkjustöðinni í Reykja-
hlíð yfir sumartímánn. 1 Mosfcllssvcitinni eru alls 11 gróðrarstöðvar, þar sem aðallega eru
ræktuð blóm. (Ljósm. Þjóðv.).
A morgun er mæðradag-
urinn og þá verður mæðra-
blómið selt á götum bæjar-
ins til ágóða fyrir sumar-
starfsemi mæðrastyrks-
nefndar. Ágóðinn er notað-
ur til að veita þreyttum
mæðrum ókeypis dvöl með
börn sín að Hlaðgerðarkoti
í Mosfellssveit.
Hlaðgerðarkot var tekið í
nptkun árið 1955. Það er opið
sámarmánuðina, júni-septem-
ber. og dvelja þar 10—12
konur í einu með börn sín,
16—17 daga í senn. Börnin
sem konurnar hafa hjá sér,
eru á fyrsta ári til sex ára
aldurs. Tekjur af sölu mæðra-
blómsins, gjafir, styrkir og
áiheit, eru notaðir til reksturs
heimilisins. Nefndin hefur nú
í hyggju að hefja byggingu
á nýrri álmu við húsið, og
fást þá 10, ny herbergi.,
Ellómin verða afhent til
*
Chrysantemum blómstrar nú árið um kring
sölu í öllum barnaskólum f
bæjarins, í KR-húsinu og á
skrifstofu nefndarinnar að ^
Njálsgötu 3. Blómið kostar
10 krónur og fá börn sölu-
laun. Tekjur af sölu blóms-
ins í fyrra námu 126 þúsund
krónum.
Þá fær mæðrastyrksnefnd
nokkrar tekjur af altnennri
blómasölu, en blómabúðir
verða opnar á morgun. Frétta-
, menn ‘ heimsóttu garðyrkju-
: bændú'r 'í' Mosfellssveit í vik-
■ unni 'ofe’^sfeoðuðu framleiðslu
1 þeirra. Vorblómin voru Levk-
: oj og Ljónsmunni, í glöðum
og skærum litum. Þá er í
fyrsta skiþti Chrysantemum ^
á markaðnum á þessum árs-
tíma, en það er haust- og
vetrarblóm. Með sérstakri
umhyggju, sem er fólgin í
því að tempra hita og nota
svartar ábreiður yfir blóma-
beðin, er hægt að takmarka
dagsbirtuna, svo blómin vaxa
á sama hátt og væri haust
og vetur.
Því er ekki að leyna, að
garðyrkjubændur vildu selja
meira af sinni framleiðslu en
nú er og benda þeir á, að
fólk ætti að kaupa blóm oft-
ar og minna í einu.
íhaldið sló skjaldborg um
>
auðfélðg, stóreignamenn
Á borgarstjórnarfundi s.l. fimmtudag sló ihaldið skjaldborg um
hagsmuni auðfélaga og stóreignamanna —: felldi að afla fjár til
gatnagerðar með skatti af íasteignum og eignarióðum. Slíkt gjald
hefði vitanlega komið þyngst niður á auðfélögum og stóreigna-
mönnum, en það mátti ekki að dórni borgarfulltrúa íhaldsins.
Ihaldið samþykkti að taka gatnagerðargjaldið af almenningi
með stórhækkuðum útsvörum og benzínskatti.
Fyrir síðustu bæjarstjórnar-
kosningar samþykkti íhaldið að
byggja höfn og ákvað jafnframt
hvernig hún skyldi vera. Var
ir kosningarnar, og mynd af
höfninni birt í „bláu bókinni“.
Samþykkt þess reyndist við at-
hugun fjarstæða sem aldrei mun
höfnin eitt helzta heit þess fyr- verða framkvæmd.
Nú samþykkir íhaldið að mal-
bika allar götur í Reykjavík á
næstu 10 árum, — bæta á 10
árum fyrir margra áraluga van-
rækslu og slóðaskap!
Við fyrri umræðu við gatna-
gerðina lögðu Alþýðubandalags-
menn fram breytingartillögur
um fjáröflun til verksins. Lögðu
þeir til að sérstakt gjald yrði
innheimt í þessu skyni af öll-
um fasteignum og eignarlóðum.
Framhald á 5. síðu.
Akureyri, 18/5 — Uni hádegi í
dag var gengið frá samningum
milli Verkamannalelags Akur-
éyrarkaupstaðar og Akureyrar-
bæjar. Gáfust Bragi Sigurjöns-’
son og félagar hans upp. þegar
Verkamannafélagið var búið að
semja við aðra atvinnurekendur.
Kaup í almennri verkamanna-
vinnu verður sama hjá bænum
og öðrum fyrirtækjum en nckk-
ur tilfærsla var gerð á milli
flokka í sértöxtum. Þá var sam-
ið um það, að bærinn léti byggja
þrjú færanleg vinnuskýli fyrir
verkamenn hjá bænum, Hefur
það lengi verið baráttumál
verkamanna að fá það fram en
bærinn þrjózkazt við til þess.
Nýju Samningunum hefur ver-
ið salrhénnt' vel tekið í bænum.
og er frammistaða Braga Sigur-'
jónp^opar niest tuntöluð í sam-
bandi'við þá. ,1 kvöíd efna ung-"
kratar til kosningafundar og hef-
ur það vakið athygli, að tveir
efstu menn kratalistann Bragi
og Steindór Steindórsson, fá ekki'
að tala á fundinum.
9:0!
I gær kepptu Valur og Vík-
ingur á Melavcllinum í Rvík-
urmeistaramólinu. Valur vann
með níu mörkum gegn engu.
828 ÞÚSUNÐ KRÓNUR f
VEIZLUR OG ÁFENGI
Ihaldið eyddi 828 þúsund
krónum í ráðstefnúr, veizlur
og brennivín á vegum borgar-
sjóðs árið 1960. Þetta var 25%
aukning frá árinu áður. Ekki
liggúr enn fyrir hvaða upphæð
íhaldið hefur komið í lóg á
þessu sviði á s.l. ári þar sem
reikningur er ekki kominn
Borgarfulltrúar Sósíalista-
flokksins og Alþýðubandal.
hafa hvað eftir annað flutt til-
lögur í borgarstjórninni um að
Reykjavíkurborg hætti veitingu
áfengra drykkja í veizlum sín-
um. Slíkum tillögum hefur í-
haldið jafnan vísað frá og þær
hafa yfirleitt aldrei hlotið
stuðning annarra fulltrúa en
sósíalista og Alþýðubandalags.
Hefur
hún röntgenaugu?
Morgunblaðið hneykslaðist
mjög á því í gær, að því var
haldið fram í borgarstjórn
að atkvæðaseðlum væri safn-
að þannig sarnan, að forseti
gæti séð hvernig menn hefðu
greitt atkvæði. Á forsíðu seg-
ir Morgunblaðið hinsvegav:
„Þegar atkvæði vom talin
fyrst hafði mislagzt atkvæða-
seðill borgarfulltrúa Fram-
sóknarflokksins”.
Hvernig vissi forseti borg-
arstjórnar að það var at-
kvæðaseðill Þórðar Björnsson-
ar sem hafði „mislagzt“.
Dá-
leiðsla
Það hefur vakið mikla at-
hygli að Sjálfstæðisflokkur-
inn hefur undanfarnar vikur
verið á hröðum flótta frá öll-
um "rnáléTrium borgarstjórnar-
kosninganna. Morgunblaðið
hefur lagt meginhlutann af
rúmi sínu undir glefsur úr
stolnum einkabréfum frá ís-
lenzkum námsmönnum erlend-
is. Heimdallur heíur neitað
að eiga kappræðufund við
Æskulýðsfylkinguna um borg-
armál. Borgarstjórnarmeiri-
hlutmn hafði fyllsta hug á
að reyna að koma í veg fyrir
útvarpsumræður. Sjálfstæðis-
flokkurinn hefur meira að
segja ekki uppburði L sér til
þess að dreifa Bláu bókinni
fyrr en svo seint að sem
minnst ráðrúm gefist til þess
að ræða efni hennar.
Sjálfstæðisflokkurinn er
þannig í rauninni ekki þátt-
takandi í borgarstjórnarkosn-
ingunum. Hann mun í stað-
inn taka fylgi sitt sem mæli-
kvarða á það, hversu marga
borgarbúa sé hægt að dáleiða
til þess að greiða atkvæði
gegn hagsmunum sínum.
Eina
skilyrðið
Svo er að sjá sem Alþýðu-
flokkurinn geri sér vonir um
að arftaki Magnúsar ellefta
geti orðið Óskar áttundi. Að
minnsta kosti hefur Hannes
á horninu talað um það
nokkra daga í röð að sjálf-
sagt sé að Sjálfstæðisflokkur-
inn og Alþýðuflokkurinn geri
samning um stjórn borgarinn-
ar að kosningum loknum. Og
nú er Alþýðuflokkurinn loks-
ins búinn að finna það eina
skilyrði sem hann ætlar að
setja. Hannes á horninu segir
í gær. „Ef hann (þ:e.‘ Sjálf-
stæðisflokkurinn) missir nú
meirihluta sinn, og Alþýðu-
flokkurinn verður að stjórna
borginni með honum, þá
mun ég berjast fyrir því að
lagfæring Suðurgötu verði
sett sem skilyrði fyrir sam-
stai’finu". Og hann bæk'r við
afsakandi: „Svona kr"'’harð-
ur getur maður orðið“.
Sem betur fer f- ’ ' -"'"r
að slaka svolítið á kröfunum
þegar til saminea kornur.
Kannski myndi Alv,v,nflokk-
urinn sætta si" v- i-nð að
helmingurinn ap <'”ðurgöt-
unni yrði lagfærði”-
— Ausiri.
Laugardagurinn 19. maí 1962 — ÞJÓÐVILJINN — (3