Þjóðviljinn - 19.05.1962, Blaðsíða 14

Þjóðviljinn - 19.05.1962, Blaðsíða 14
V. Einar Olgeirsson var á fundi iborgarstjórnar Reykjavíkur í fyrradag löglega kjörinn í stjórn Sogsvirkjunarinnar. Við kosn- ingu í stjórnina komu fram þrír listar, frá Sjálfstæðisflokkn- um, Alþýðubandalaginu og Framsókn. Listi Sjálfstæðis- iiokksins fékk 9 atkv., listi Framsóknar 1 atkv. og listi Al- þýðubandalagsins 4 atkvæði. Forseti lýsti úrslitum, Tveir af lista Sjálfstæðisflokksins og einn — Einar Olgeirsson — af lista Alþýðubandalagsins væru rétt kjörnir í stjórn Sogsvirkj- unnarinnar, — og hreyfði eng- inn nokkurri athugasemd. Alþýðubandalagið á ekki nema þrjá fulltrúa í borgar- stjórn og hefur því annað tveggja gerzt: Magnús 11. kos- ið Einar o gíhaldsmaður skilað auðu, eða íhaldsmaður kosið Einar Olgeirsson og Magnús 11. skilað auðu. Ekki verður vitað hvort heldur hefur gerzt því atkvæðagreiðslan var leynileg. — Á Alþingi er algengt að menn greiði atkvæði í kosningum öðru vísi en meirihluti sam- flokksmanna, og eru slíkar kosn- ingar vitanlega alltaf teknar gildar. Það er ekki aðeins réttmætt heldur mjög mikilvægt að allir flokkar jeigi aðild að stjóam' jafn þýðingarmikils fyrirtækis og Sogsvirkjunin er, enda hefur sjálf ríkisstjórn Sjálfstæðis- flokksins farið eftir þv£ sjón- armiði með því að SKIPA Framsóknarmann og Alþýðu- flokksmann í stjórn Sogsvirkj- unnar. — Einar Olgeirsson hef- ur verið fulltrúi Alþýðubanda- lagsins í stjórninni, kosinn af borgarstjórn Reykjavíkur. Að lokinni kosningu í stjórn Sogsvirkjunarinnar var næsta mál á dagskrá borgarstjórnar- innar tekið fyrir og afgreitt eft- ir alllangar umræður. Þá tilkynnti forseti hálftíma fundarhlé, og Geir Hallgrímsson og Auður Auðuns kölluðu full- trúa Sjálfstæðisflokksins inn í lokað herbergi — til yfirheyrslu. Að loknu fundarhléi er stóð á aðra klukkustund, las Geir Hall- grímsson borgarstjóri upp yf- irlýsingu er hann hafði ásamt Auði Auðuns, kúgað aðra full- trúa Sjálfstæðisflokksins til að undirrita, þess efnis að þeir vildu nú greiða atkvæði um Sogsvirkjunarstjórnina á annan veg en þeir höfðu gert í frjáls- um leynilegum kosningum fyrr é fundinum. Fulltrúar Alþýðubandalagsius og Framsóknar mótmæltu harð- Iga slíkum aðferðum sem hreinni lögleysu, en Geir Hall- grímsson og Auður Auðuns höfðú þau mótmæli að engu og létu fulltrúá sína endurtaka kosningu ér alllöngu fyrr á fundinum hafði lögiega fram farið og úrslitum • verið lýst án nokkurra athugasemda. Geir Hallgrímsson og Auður Auðuns eru bæði lögfræðingar og hefur þeim því verið ljóst að með þessu voru þau að fremja hreina lögleysu. Með þessu voru þau að vega að frjálsri, leynilegri atkvæða- greiðslu, sem er einn af hyrn- ingarsteinum stjórnarskrárinn- ar ög lýðfrelsis í landinu. Slikar ofbeldisað.ferðir eru án efa gerðar í fullkominni óþökk mikils hluta Sjálfstæðisflokksins í Reykjavíit. Með‘ þéssu hafa þessir tveir foringjar í borgar- stjóírnarliði íhaldsins sýnt að þeir kunna ekki að taka ósigri I frjálsum, leynilegum kosning- um, heldur grípa til grimulauss ofbeldis og kúgunar, og garast forsvarsmenn fasistaklíkunnar í Sjálfstæðisflokknum. Með sama hætti getur íhaldið eyðilagt hvaða frjálsar kosning- ar sem því býður við að horfa. Það þarf ekki annað en að kúga nógu marga til að undirskrifa að þeir hafi viljað kjósa öðru- vísi en þeir gerðu í leynilegum kosningum. Það er vitanlegt að Sjálfstæðisflokkúrinn hefur þau tök á ríkisstjórn, bönkiim, borgarstjórn og fjármálastofn- unum að hann getur eyðilagt menn fjárhagslega, sem ekki fara að vilja hans. Þeim tökum hefur verið beitt — og nú á að fara að beita þeim opinskátt og grímulaust og afnema þannig gildi leynilegra kosninga og lýð- frelsis í landinu. Gegn því verða allir Reykvík- ingar sem lýðfrelsi unna að snú- ast — *með því að greiða at- kvæði gegn Sjálfstæðisflokkn- um í komandi borgarstjórnar- kosningum. Þar sem íundi borgatstjórnar lauk svo seint í fyrrakvöld var ekki rúm til að rekja gang þessa máls á þessum eftirminni- lega fundi, og skal það nú gert. í sambandi við kosninguna í stjórn Sogsvirkjunarinnar gerð- ist fleira athyglisvert en að í- haldið opinberaði fasismainnræt'i sitt. Þórður Björnsson sannaði þar að frá Framsókn hefur í- haldið ekkert að óttast, Fram- sókn skuli sjá fyrir' því að dreifa kröftum vinstri manna, svo íhaldið sé öruggt um völd. Að berá fram Framsöknarlista við þá kosningu gat ckki þjónað neinum öðrum tilgangi en tryggja íhaidinu alger yfirráð — þótt það mistækist — og þeg- ar hjálp Þórðar dugði ekki greip íhaldið til ofbeldis. Að lokinni kosningu í stjórn Sogsvirkjunarinnar var tekið fyrir næsta mál fundarins, til- laga Alfreðs Giíslajsonar um sumardvöl barna, og urðu um það alllangar umræður. Að af- greiðslu þess máls lokinni lýsti forseti yfir hálftíma fundarhléi. Slík hlé eru venjulega á kvöldfundum notuð til kaffi- drykkju og gengu fulltrúar Al- þýðubandalagsins og Framsókn- ar uþp' í 'kaffisal. En þangað kom enginn fulltrúi íhaldsins. Magnús 11. kom nokkru síðar — og settist nú einn sér. Leið svo hálftíminn að enginn íhalds- fulltrúi birtist — en Magnús 11. varð umkomulausari í sæti sínu því lengur sem leið. Að liðnum hálftímanum gengu fyrrnefndir fulltrúar í fundarsal og settust í sæti sín. Forseti o.fl. íhaldsfulltniar komu svo í fundarsalinn og setti for- seti fund kl. 9,34 (að kvöldi) — en þá hljóp Geir Hallgrímsson út úr salnum, en forseti sett- ist og sat hljóður með hönd und- ir kinn. Geir borgarstjóri kom aftur í salinn kl. 9,41 og skrafaði hljótt yið forseta, Borgarstjóri óskaði síðan að fundaúhlé yrði framlengt um hálftíma. Alfreð Gíslason spurði hverju það sætti. Borgarstjóri kvaðst þurfa að ráðfæra sig um fundarsköp. Guðmundur Vigfússon kvað eng- an ágreining hafa komið fram á fundinum um fundarsköp. Geir Hallgrímsson svaraði þá að hann teldi úrslit kosninga í Sogsvirkjunarstjórnina það al- varlegt mál, að hann vildi ræða það nánar við fulltrúa flokks síns. — Forseti veitti enn hálf- tíma fundarhlé, og hurfu fulltrú- ar Sjálfstæðisflokksins aftur af fundi. Fundur var aftur settur kl. 10,16 og las Geir Hallgrimsson þá yfirlýsingu undirritaða af 10 fuiltrúum Sjálfstæðisflokks- ins um að þeir vildu endurtaka kosningu þá í Sogsvirkjunar- stjórn er iöglega hafði farið fram alllöngu fyrr á fundinum. Guðmundur Vigfússon kvað þá kosriingu þegár hafa farið fram, væru það ný og óhúgnan- leg vinnubrögð ef nú ætti að þvinga fulltrúa til að endurtaka þá atkvæðagreiðslu, og liti hann á það sem lögleysu og brot á öllum reglum og venjum borgar- stjórnar. Þórður Björnsson las bókun ritara borgarstjórnar, fyrr á fundinum þar sem lýst var kosn- ingu í Sogsvirkjunarstjórn og úrslitum hennar. Síðan var tek- ið fyrir næsta mál, sagði Þórð- ur, einfaldlega af því að kosn- ingu Sogsvirkjunarstjórnar var lokiö. Eg lít því svo á að hún sé afgreidd og verði ekki end- urtekin. Forseti hefur þegar lýst kosningu án nokkurra athuga- semda. — Að borgarstjóri hefur ekki getað haldið saman liði sínu er svo allt annað mál, sem hann getur rætt á öðrum stað, en alls ekki hér á borgarstjóm- arfundi. Geir Hallgrímsson kvað eng- an af 10 fulltrúum íhaldsins hafa getað gert grein fyrir því að hann hafi ekki kosið lista þess flokks — og vildu þeir nú ier^durtakd, a^kvæðagreiðsluna. Þórður Björnsson kvað það gert til að reyna að finna hinn seka. Auður Auðuns mótmælti því. Magnús Jóhannesson stóð upp og bað um að mega fá að kjósa aftur. Alfreð Gislason kvað engan ■hafa lýst því að sér hefðu orðið á mistök þegar atkvæði voru talin og engan hafa mótmælt þegar forseti lýsti hverjir væru rétt kjörnir. Mótmælti hann að nota ætti flokksvald til að ónýta löglega leynilega kosningu. Guðmundur Vigfússon kvað með þessu verið að taka rétt af fulltrúum í leynilegri kosn- ingu. Með samskonar undir- skriftakúgun mætti ónýta bæj- arstjórnar- og Alþingiskosning- ar og mótmælti hann slíkri und- irskriftasmölun sem lögleysu. Alfreð Gíslason beindi þeirri spurningu til forseta hvort hann teldi kosninguna hafa verið ó- lögmæta. Guðmundur H. Guðmundsson vítti Þórð Björnsson fyrir að hafa svikið það samkomulag er hann gerði við Alþýðubandalag- ið 1948 og tryggði honum setu í hafnarstjórn. Nú sviki hann með þv£ að kjósa ekki Einar Olgeirsson. Hann kvað kosning- una hafa farið á annan veg en væri í samræmi við fulltrúatölu íhaldsins, — dettur þeim í hug að meirihlutinn líði það! sagði hann. Auður forseti kvað kosning- una skyldu endurtekna. Guðmundur Vigfásson lét bóka mótmæli þau er birt voru í Þjóðviljanum í gær, þar sem fulltrúar Alþýðubandalagsins á- skilja sér rétt til að kæra þessa Q SVEFNSÖFAB j—j SVEFNBBKKIB □ ELDHCSSETT H N 0 T A N húsgagnaverzlnn, Þórsgötu 1. löglausu síðari „kosningu“. Þórður Björnsson lét bóka að þar sem kosning hefði þegar farið löglega fram væri ný „kosning“ lögleysa er hann tæki engan þátt í. íhaldsfulltrúarnir 10 endur- tóku kosninguna; aðrir tóku ekki þátt £ henni. Síðan lýsti Auður yfir, að þrír íhaldsmenn væru kjörnir í Sogsvirkjunar- stjórn. Eftir því sem leið á þessar umræður sást betur að Geir Hallgrímsson var orðinn hrædd- ur við það sem hann var að gera og nú flutti hann tillögu um að vísa þessu máli til fé- lagsmálaráðuneytisins, og sam- þykktu íhaldsfulltrúarnir það ásamt Magnúsi 11. Að ofbeldinu unnu varð nokk- ur þögn — kallaði þá Þórður: Á að endurtaka fleiri kosning- ar — frá fyrri fundum? Forseti hristi af sér slenið og tók fyrir næsta mál á dag- skrá. fþróttir Framhald af 13. síðu. steinn átti mjög góðan leik og undirbjó öll mörkin fyrir Grét- ar, sem notaði tækifærin vel. Guðmundur Óskarsson fékk ekki mikið út úr leik sínum. Sveinn Jónsson lék af dugnaði •og var virkasti maður varnar- innar. Árni byrjaði ekki velj. en sótti sig er á leikinn leið. Hall- dór er ekki fyrirferðarmikill en stendur fyrir sínu. Bjarni er sterkur í að stöðva áhaup, en lítið virkur í hinum leikandi samleik. Vafasamt er að hægt hefði verið að setja saman mik- ið sterkara lið, en það er eng- in afsökun fyrir þeirri knatt- spyrnu sem liðið sýndi, sem var of veik hjá úrvalsliði úr R- vík. • Því ekki B-lið sama daginn? Það hefur verið fastur liður í knattspyrnudagskránni hér að efna til bæjakeppni við Akra- nes, og hefur það verið ágæt tiihögun. Má gera ráð fyrir að áíram verði haldið á þeirri braut að efna til bæjakeppni um þetta leyti.' Eðlilega verður ,að verja til þess einu kvöldi, sem senni- lega mun trufla æfingar þetta kvöld. En þá vaknar spurning- in: Því ekki að nota þetta kvöld betur? Við erum meira og minna allt sumarið að velja bezta lið- ið, þá 11 beztu, en látum okk- ur í léttu rúmi liggja hvemig búið er að þeim næstu 11, eða hvort þeim séu búin eðlileg verkefni. Því ekki að efna til B-liðs leik við einhvern bæinn hér í nágrenninu: Hafnarfjörð eða Keflavík þennan sama dag? Það mundi örva þá næstu 11 og það mundi einnig örva á þeim stöðum sem keppt er við. Frímann IT4) — ÞJÓÐVILJINN Laugardagur 19. maí 1962

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.