Þjóðviljinn - 27.05.1962, Blaðsíða 1
Sunnudagur 27. maí 1962 — 27. árgangur — 117. tölublað
• í dag er kosið um lífskjörin, það viðfangsefni sem yfir
gnæfir öll önnur á alþýðuheimilunum. Hver launþegi á við
það vandamál að etja hvernig hann geti framfleytt sér og
fjölskyldu sinni á óhæfilega lágu kaupi og hvernig hann
geti tryggt sér aukinn kaupmátt launanna. — Járniðnaðar-
menn og togarasjómenn hafa háð kjarabaráttu vikurn og
mánuðum saman. Önnur félög búa sig undir að rétta hlut
'félagsmanna sinna. Nú síðustu dagana hafa stjórnarflokk-
arnir fallizí á kjarabætur hjá nokkrum félögum — fyrir
kosningar. En málgögn þeirra hafa opinskátt hótað því að
öllum kjarabótum skuli rænt aftur með bráðabirgðalögum,
• í dag geta launþegar með atkvæði sínu ákveðið hver
þróun verði í kjaramálunum á næstunni. Því aðeins dirfast
stjórnarflokkarnir að framkvæma hótanir sínar að þeir telji
siq hafa fengið traustsyfirlýsingu frá kjósendum. En hverf
atkvæði sem Alþýðubandalaginu er greitt er stuðningur við
alþýðusamtökm, krafa um kjarahætur, verklýðsbarátta.
• í þessum átökum um lífskjörin birtast andstæðurnar í
Reykjavík. í öllum borgarstjórnarmálefnum, stórum sem
smáum, er tekizt á um það hvort alþýðan eigi
að stjórna höíuðborg sinni eða gróðamenn eigi
að hafa hana að fébúfu. Borgarstjórnarkosning-
arnar eru kjarabarátta.
® í allri kjarabaráttu er eining launþega þao
afl sem ræður úrslitum. Allur árangur alþýðu-
samtakanna hefur unnizt með sameiginlegri
baráttu, þar sem menn hafa látið smærri ágrein-
ingsmál víkja fvrir meainatriðunum, og reynsl-
an sýnir að þeir sem hlaupast undan merkjum
skerða iafnan kiör og réttindi sín og félaga
sinna í þeirri stjórnmálabaráttu sem nú er háð
um lífskiörin er Alþýðubandalagið eini flokkur launþega,
það vald sem ræður úrslitum.
® Um öll þessi stórmál taka launþegar ákvörðun í dag
Það er kosið um afkömu og framtíð íslonzkrar alþýðu — oí
kjörscðiIJinn ákveður kjörin.
KOMt
AÐ nj
BÓT |
MEÐl