Þjóðviljinn - 07.07.1962, Side 9
4) — ÓSKASTUNDIN
ÚLFABRÓÐIR
Eftir Rudyard Kipling
Loksins kom að þvi. og
þá risu hárin á úlfa-
mömmu, að úlfapabbi ýtti
Mowgli — en svo nefndu
þau hann öll, af íþví að
hann var hárlaus eins og
froskur —■ inn í miðjan
úlfahringinn. Og þarna
sat hann skríkjandi af
kæti og lék sér að smá-
steinum, sem glitruðu í
tunglskininu. Akela leit
aldrei upp, en hann hélt
áfram að kalla aftur og
aftur: — Takið eftir, tak-
ið vel eftir, úlfar. Þá
heyrðist allt einu
dimmt öskur bak við
klettana . Það var rödd
Shere Khans, svo mæl-
andi;
— Ég á hvolpinn og ég
vil fá hann. Hvað kemur
hirium frjálsu úlfum
mannshvolpur við? En
Akela lá kyrr eins og áð-
ur. Meira að segja eyrun
á honum voru kyrr.
Hann sagði aðelns:
— Takið eftir, takið
vel eftir, úlfar. Hvað
ikoma hinum frjálsu úlf-
um við skipanir frá öðr-
um en hlnum frjálsu úlf-
um sjálfum. Takið vel
eftir, úlfar.
En sem hann hafði
þetta mælt, laust upp
margrödduðu væli á
úlfaþinginu, og úlfur á
fjórða ári endurtók við
höfðingjann spurningu
Shere Khan. — Hvað
kemur hinum frjálsu úlf-
um mannshvoipur við?
En svo segir í Lögmál-
inu, að leiki vafi á um
það, hvort rétt sé að
veita ylfingi viðtöku í
úlfastóðið, þá verði ylf-
ingur að eiga að minnsta
kosti tvo málsvara á
úlfaþinginu, fyrir utan
föður sinn og móður.
-— Hverjir eru málsvar-
ar þessa ylfings? spurði
Akela. — Hver af hin-
um frjálsu úlfum vill
mæla með honum?
Þessu svaraði enginn,
og úlfamamma bjó sig
undir það, sem hún vissi
að verða mundi hennar
síðasti bardagi ef þil
kæmi. En þá kom sá
til sögunnar, sem einn
allra annarra skógardýra
fær að vera á úlfaþing-
inu, Baloo, syfjulegi mó-
rauði skógarbjörninn,
sem kennir ylfingunum
lögmálið, gamli Baloo,
sem getur komið hvar
sem honum sýnist, af þvi
að hann lifir ekki á öðru
en gróðri jarðar og hun-
angi. Hann reis upp á
afturfæturna, og það
rumdi í honum um leið.
— Mæla með manns-
hvplpnum? endurtók
hann. — Ég mæli með
mannshvolpnum. Manns.
hvolpur gerir engum
mein. Ég er enginn ræðu-
snillingur, en það er
satt sem ég segi. Veitið
honum viðtöku og hleyp-
ið honum í úlfastóðið. Ég
skal sjálfur kenna honum
Lögmálið.
— Það þarf annan
meðmælanda i viðbót,
sagði Akela, Baloo er
búinn að segja sitt álit,
og hann er lærifaðir ylf-
inganna.
Snögglega brá fyrir í
úlfahringnum skugga af
óvæntum gesti. Það var
Bagheera, hlébarðinn,
tinnusvartur á skrokk-
inn. og þó með hin ótví-
ræðu ættareinkenni sín,
ljósleitu dílana á silki-
mjúkum skrokknum. All-
ir þekktu Bagheera, og
enginn kærði sig um að
þurfa að hafa á móti því,
sem hann vildi vera láta,
því hann var eins slægvit-
ur og Tabaqui, hugaður
sem vísundur og ófyrir-
leitinn eins Qg særður
fíll, En rödd hans var
sæt eins og hunang og
feldur hans mýkri en
æðardúnn.
— Akela og þið frjálsu
úlfar, mælti hann blíðum
rómi. Ég hef ekki rétt til
að vera á úlfaþinginu, en
Lögmálið segír, að leiki
vafi á um ungviðið,
hversu með skuli fara, og
þó ekki svo ástatt, að
nauðsynlegt sé að taka
ungviðið af lífi, þá sé
hægt að kaupa því líf,
enda komf veð fyrir. Og
Lögmálið tekur ekkert
fram um það, hverjir
hafi rétt og hverjir hafi
ekki rétt til að inna af
hendi lausnargjaldið.
('Framhald).
- RITSTJÓRI UNNUR EIRÍKSDÓTTIR — ÚTG.: ÞJÓÐVILJINN -
STÍNA OG
KLOSSI
KUBBUR
járnbrautarlestir, bangsa
og tindáta, meðan mamma
lagfærði brúðurnar,
stóru brúðurnar, litiu
brúðurnar og prinsessu-
brúðurnar með gullhárið.
Stína var miög ánægð
þennan rigningamorgun.
Fyrst hjálpaði hún
pabba sínum að stoppa
upp gamlan bangsa, síð-
an aðstoðaðj hún mömmu
sína við að mála nýtt
andlit á brúðu. Að þessu
loknu hljóp hún upp í
litla þakherbergið, þar
sem ungfrú Sigríður átti
• Eftir Roberta Leigh.
• Teikningar eftir
• Marion Wilson,
Það var alveg renn-
andi blautur morgunn.
Regnið streymdi niður,
það rann eftir glugga-
rúðunum og buldi á þak-
inu. Þetta var veður sem
Stínu líkaði vel. Húrra!
hrópaði hún og hentist
fram úr rúminu. — Það
er innidagur í dag. Þeg-
ar veðrið var gott var
Stína látin leika sér úti
í garðinum, en þó hún
aetti bæði þrihjól og
sippiband var það ekki
nærri eins gaman eins og
að leika sér inni.
Ég skal segja ykkur af
hverju Stína vildi heldur
leika sér inni. Pabfoi
hennar átti brúðuspítala,
og gerði bar við alls-
konar leikföng, sem
höfðu bilað, og Stínu
,þótti svo gaman að horfa
þegar hann var að
vinna. Pabbi gerði við
heima.
Ungfrú Sigríður hafði
þykkt, snjóhvítt hár, og
hún sat og snerj sauma-
vé’inni ailan daginn.
Hún saumaði röndóttar
'buxur á sprel’.ikarlana,
og kjóla handa brúðunum
Þegar Stína kom inn var
hún að tína litlar silfur-
stjörnur upp úr öskju og
festa þær á brúðukjóL
Stína tók við og rétti
henni stjörnurnar, eina
og eina í senn.
Framhald á 2. síðu.
FIMLEIKA- OG ÞJÖÐDANSA-
SÝNINGAR í HÁSKOLABÍOI
Það er ekki á hverjum degi
sem við fáum í heimsókn
snjaila fimleikaflokka, og má
vera að ástæðan sé sú, að hér
ihefur ekki tekizt ennþá að fá
fram verul. áhuga fyrir á-
haldaleikfimi, sem þó er mjög
skemmtileg á að horfa og ætti
að vera hvatning fyrir iðkun
leikfimi yfirleitt.
Það voru því kærkomnir
gestir, sem efndu til miðnæt-
ursýningar í Háskólabíói á
fimmtudagskvöld fyrir fullu
húsi áhorfenda.
Flokkar þessir voru komnir
alla leið frá Stokkhólmi, og
skiptust i þrjá hópa: þjóð-
dansaflokk með 18 pörum,
fimleikaflokk kvenna frá „Vik-
inig“, 12 stúlkur talsins, og 1|3
manna karlaflokk frá KFUM
í Stokkhólmi.
í upphafi sýningarinnar á-
varpaði iBenedikt Jakobsson á-
horfendur og gesti, og kvaðst
vona að þessi góða heimsókn
markaðj spor í fimleikaimál
okkar hér. Hann gat þess einn-
ig, að þessi hópur væri sá
fjölmennasti þessarar tegund-
ar sem heimsótt hefði ísland,
og væri tilgangur hans aðeins
sá að sýna íþrótt sína. Þeir
kæmu hingað á eigin spýtur,
greiddu ferðir og uppihald og
væri það einsdæmi.
Sýningarnar tókust mjög vel,
sérstaklega vöktu áhaldaæfing.
ar karlanna mikla hrifningu á-
horfenda. Leyndi það sér ekki
að þar voru á ferð þrautþjálf-
aðir fimleikamenn, listamenn
mætti eins segja.
Sýning stúlknanna var mjög
skemmtileg, æfingarnar voru
undir pianóleik, léttar og leik-
andi með mikilli hreyfingu
og oft hraða. Allt voru þetta
„þlastiskar“ æfirigar, 'mjúkar,
kvenlegar og heillandi.
Þjóðdansaflokkurinn vakti og
mikla athygli, en Svíar gera
mikið af því að halda í heiðri
og varðveita gamia dansa. í
heild var þetta hin bekta
skemmtun og engin furða þótt
flokkar þessir hafi sýnt víðs-
vegar um Norðurlönd óg víðar
við miklar vinsældir.
Gerið skil strax
Þeir, sem enn hafa ekki gert
skil fyrir selda miða í skyndi-
happdrætti Æskulýðsfylkingar-
innar, eru beðnir að gera það
sem allra fyrst svo að hægt sé
að birta vinningsnúmerin. Hafið
samband við skrifstcfuna í
Tjarnargötu 20, sem er opin kl.
2—6 síðdegis, sími 17513.
* i « ; ‘» 'íi 1 J l • * . " .
Háskólabíó var þéttskipað,
og eftir sýninguna ætlaði lófa-
taki áhorfenda aldrei að linna.
Þess má geta að fimleika-
flokkur KFUM hefur tvisvar
áður komið hingað jil sýninga
og ævinlega verið fagnað mjög
fyrir snilli sína og kunnáttu,
enda hafa fimleikaflokkar frá
KFUM haft á að skipa mörg-
um beztu fimleikamönnum
Svía. Frímann.
ÍR kemur
Frjálsiþróttadeild IR hefur
ákveðið að efna fi1 nýjungar til
að auka áhuga unglinga fyrir
frjálsíþróttum. Þjálfari félags-
ins, Ungverjinn Gabor (hann
talar íslenzku) verður staddur
á iMelavellinum ásamt dómur-
um á morgun (sunnudag) kl.
10.30 til 11.30.
með nýjung
Þeir drengir og stúlkur sem
hafa áhuga geta komið á bess-
um tima og reynt sig. Á morg-
un verður það 80 m hláup og
og langstökk, fyrir þau, sem
fædd eru 1944 eða síðar. Næstu.
sunnudaga verður þessu haldið
áfram, aðrir aldursflokkar fá
að reyna sig og aðrar greinar
á boðstólum. Allir þeir ung-
lingar, sem tóku þátt í nám-
skeiði ÍR í vor geta að sjálf-
sögðu komið og reynt si<g og
allir sem áhuga hafa eins og
fyrr segir:
Bezt er að hafa æfingagalla
(overaHs) og bol og stuttbux-
ur, einnig er betra að hafa
gaddskó, en þeir sem ekki ei'ga
„galla', ða gaddskó geta notað
gallabuxur, peysu og strigaskó.
Munið á morgun kl. 10.30 til
12.00 á Melvellinum.
(Frá Frjálsíþróttadeild ÍR)
BARNARCM
HN0TAN , Át
húsgagnaverzlun
Þórsgötu 1
Orðsending
frá Sjómannafélagi Reykjavíkur
Atkvæðagreiðsla oum togarasamningana fer fram í skrif-
stofu félagsins sem hér segir:
Laugardaginn 7. júlí frá kl. 10—12 f.h.
Mánudaginn 9. júlí frá kl. 3—6 éh.
Þriðjudaginn 11. júlí frá kl. 3—6 e.h.
Miðvikudaginn 11. júlí frá kl. 3—6 e.h.
og iýkur þá.
Atkvæði greiða aðeins tcgarasjómenn skv. kjörskrá þeirri
er notuð var, við atkvæðagreiðslu um miðlunartillögu
sáttasemjara. ,
STJÓRNIN.
Laugardagur 7. júlí 1962 — ÞJÓÐVILJINN — (9