Þjóðviljinn - 08.08.1962, Page 9
Snioll fimleikamaður
Yu Lieh-fcng heitir þessi kínvcrski fimleiðamaður. Hann varð
kínameistari 1959, og annar á alþjóðlegu fimlcikamóti í Kíeff
f apiríl s.l., næstur é eftir heimsmeistaranum Boris Shaklin,
Sovétríkjunum. Hann var einn af 14 Kínvdrjum, scm tóku þátt
f 15. heimsmeistaramótinu í fimleikum sem haldið var í Prag
f byrjun júlí.
Efnilegir tvíburar
Þessir tvíburabræður sem sjást hér á myndinni eru stærsta
von Englcndinga í millivcgalcngdum: Þcir heita Peter og Tony
Milner og æfa saman sex sinnum í viku sumalr jafnt scm vetur.
Allt að 75% afsláttur
Sumarkjólaefni frá kr. 49.00
Ullarefni tvíbr. frá kr. 149.00
sitt af hvérju
■jc Á sundmeistaramóti Vest-
ur-Þýzkalands, sem haldið
var s.1. sunnudag, setti Ger-
hard Hetz nýtt Evrópumet í
1500 m skriðsundi, 17.41.7.
Fyrra mctið átti Ungverjinn
J. Katonan 17.43.7.
Brasiliska knattspyrnulið-
ið Amcrica sigraði í alþjóð-
legri knattspyrnukcppni i
New York nú um helgina.
I úrslitalciknum sigraði það
Bclenenses frá Portúgal með
1:0. Dukla, Prag, sigraði í
þessari kcppni í fy'rra.
Pólverjar sigruðu Eng-
Icndinga í landskcppni í
frjálsum íþróttum sem fór
fram í London um síðustu
helgi. í kcppni kalrla sigruðu
Pólverjar með 108 stigum
gcgn 104, og pólsku stúlkurnar
sigruðu cinnig 54:52.
utan úr
Bréf sent íþróttasíðunni
nefnd liðið gegn Irum
Enn þá einu sinni hefur
landsliðsnefnd gert sig að fífli
fyrir framan alþjóð, með vali
sínú í landsliði gegn Irum; og
þar ber að sama brunni og áð-
ur hefur skeð nú í sumar og
oftast áður að séð hefur verið
fyrir að sem flestir KR-ingar
fái ókeypis ferð sér til úpp-
lyftingar og hressingar til út-
landa, en heilbrigð skynsemi
að velja þá beztu, hefur orð-
íslendingur tekur þótt í
Norðurlandamótinu í golfi
Á laugardaginn var fór fram
golfkeppni á velli Golfklúbbs
Reykjavíkur við öskjuhlíð. Var
um að ræða höggleik með
fullri forgjöf. Voru þátttakend-
ur 13 að tölu.
Úrslit urðu óvænt. Sigurveg-
ari varð ungur Reykvíkingur
Vilhjálmur Hjálmarsson stud.
arch., með 72 högg nettó
(43 + 42 — 13 = 72), sem má
teljast góður árangur hjá svo
til nýliða í greininni. I öðru til
þriðja sæti urðu þeir Halldór
Guðjónsson og Sméri Wíiúm
með 76 högg nettó.
Næsti golfkappleikur hjá G.R.
er Olíukeppnin, sem hefst með
18 holu höggleik næsta laug-
ardag kl. 14. Úrslit verða leik-
in 18. ágúst.
Norðurlandameistaramót í
golfi 1962 verður háð 15.—17.
ágúst næstkomandi á golfvelli
Rundsted Golfklub skammt fyr-
ir utan Kaupmannahöfn.
I fyrsta sinn um langt árabil
verður þar nú þátttakandi frá
Islandi. Pétur Björnsson, sem
varð í þriðja sæti á íslands-
varð í þriðja esæti á Islands-
meistaramótinu í Vestmanna-
eyjum í júlí s.l. og sigurvegari
í Berserk þ.e. keppni um það,
hver slær kúlu lengst, tekur
þar nú þátt af íslands hálfu.
Pétur er eini Islendingurinn,
sem þarna verður í ár, og má
segja, að hann brjóti ísinn fyrir
íslenzka kylfinga, því sennilegt
er að fleiri eða færri sæki mót
þetta héðan næstu árin. For-
gjafarhámark þátttakenda er 4.
ið að víkja, vegna ’ -þes§ - að
nefndarmenn velja sína ;eigin
félagsmenn án tillits til .getu,
og þar af leiðandi er þeirn það
aukaatriði . þótt Island tapi
leiknum.
Það hefur komið i ljós I
sumar að KR-liðið er síður en
svo það gott lið að þeir éigi
rétt á að hafa uppistöðu í lands
liði, það kom í ljós þegar þeir
töpuðu í'yrir Dönum 4:0, eþ. þá
gerðu Skagamenn jafntefli en
fengu að launum tvo menn í
úrvalið gegn Dönum en KR
sex!! Ja, það er munur að vera
í KR. Sama er að segja um
KR-uppistöðuna gegn Norð-
mönnum hún hrást ennþá;
einnig má benda á að þeir
töpðuðu fyrir Val og Skaga-
mönnum nú í sumar; þannig
er þetta val engan veginn
verjandi; og að leikmönnum í
toppklassa eins og Ingvari
Elíssyni, Kára Árnasyni og
Jóni Stefánssyni sé haldið ut-
an við þetta val, er aðeins
skiljanlegt vegna þess að aug-
ljóst er hvernig valið fór fram;
sem sagt íélagsklíkan réði hér
ennþá einu sinni.
Það er einkennilegt hvers
vegna ekki er leikinn pressu-
leikur; þeir skildu þó ekki vera
smeykir um að eitthvað af
KR-ingum yrðu af skemmtireis-
unni?
Virðingarfyllst
Knaílspyrnumaður.
ELECTROLUX
Uppþvottavélin
D-10 er nú aftur fáanleg
D-10 er sænsk úrvals-
fnmleiðsla.
D-10 er auðveld í upp-
setningu þar sem
allar itengingar
fylgja og er því
strax tilbúin til
notkunar .
D-10 þvær allt af 5
manna matar-
borði á aðeins
6 mínútum.
D-10 er ódýr.
D-10 fæst með afborg-
unarskilmálum.
D-10 er óskkadraumur
hverrar húsmóður.
Leitið upplýsinga.
sími 36200.
UMBOÐIÐ
ELECTROLUX Laugaveg 69
Miðvikudagur 8. ágúst 1962
ÞJÓÐVILJINN — (g