Þjóðviljinn - 14.08.1962, Page 7
mennings, umskapað gervallt
ísland. Fyrir forystustarf Ein-
ars Olgeirssonar öðru fremur
er hver alþýðumaður á íslandi
efnaðri, upplitsdjarfari, beinni
í baki, og æska íslands keik og
djörf í spori.
Einar varð kommúnisti strax
í menntaskóla. Auðvitað mark-
ar það alla stefnu hans. Hann
er sósáali-sti af lærdómi og
skilningi. Konungshugsjón hans
'eins og Leníns felst í forystu-
hlutverki verkalýðsins. Hinir
vísu. feður marxismans fluttu
kenninguna um hið sögulega
hlu.tverk verklýð-sstéttarinnar
að afnema auðvaldsskipulagið
og skapa framtíðarþjóðfélag
réttlætis, velmegunar, bræðra-
lags, .frelsis og friðar á jörðu:
þjóðfélag kommúnismans. Með
þessu var verkalýðsstéttinni falin
á hendur framkvæmd æðstu
hugsjóna mannfélagsins. Hún
varð forystustétt heimsins, for-
ystu.stéttin með hverri þjóð.
Þetta var heillandi hugsjón, og
kenningin var þegar orðin vald
í heiminum. „Þú töfraðir hetj-
urnar, ókomna öld“. Þessu
mikla hlu.tverki fylgdi að
frelsi verkalýðsins undan áþján
auðvaldsins varð að vera hans
eigið verk. „Lýður bíð ei lausn-
arans, leys þig sjálfur“. Hversu
oft hefur Einar Olgeirsson vitn-
að í þessi vísuorð Stephans G.
Hversu oft hefur hann brýnt
verkamenn til að vera -sínir
eigin lausnafar. Skilningurinn
é þessu forystuhlutverki verka-
lýðsins er lykillinn að allri
stefnu Einars Olgeirssonar og
Sósíalistaflokksins undir hans
forystu, grunntónninn í ritgerð-
um hans og ræðum. Stétt sem
kölluð er til forystu í þjóðfé-
laginu þarf að verða voldug
og sterk. Hún verður að skapa
sér skipulagða hreyfingu og
sterkan forystuflokk. Verka-
menn sem heyra þeirri stétt
þurfa að vera hugdjarfir og
finna til máttar síns. Og þenn-
an mátt öðlast þeir í barátt-
unni og samtökum sínum.
Hversu oft hafa verkamenn fs-
lands heyrt Einar brýna þessa
hluti. fyrir þeim, skírskota til
sjálfstrausts þeirra og hetju-
lundar.
En verkalýðurinn hefur jafn-
framt æðra markmið en hugsa
um frelsun sjálfs síns: hann
er kjörinn til að hafa forystu
fyrir þjóðinni allri. Sjónarmið
forystuflokks verkalýðsins get-
ur því aldrei verið þröngt stétt-
arsjónarmið. Hann þarf að vera
víðsýnn og djarfur, leita sam-
starfs við aðrar stéttir með
hag þjóðarinnar allrar fyrir
augum. Þess vegna er síður en
svo ósamræmi í því, að forystu-
flokkur verkalýðs og sósíalisma
sé urh leið forystuflokkur í
þjóðfrelsisbaráttu landsins,
heldur leiðir það af sjálfu sér.
Og þó er sérílagi athyglisvert
hvernig þjóðfrelsisbarátta fs-
lands og hugsjón sósíalismans
hafa eins og tendrazt í eitt bál
í brjósti Einars Olgeirssonar. Og
hér langar mig til að staldra
ögn við.
K.enningar marxismans eru
að sjálfsögðu hið sterka leiðar-
ljós og bakhjarl Einars Olgeirs-
sonar, en verður þó ekki að
leita dýpra og nær okkur að
þeim krafti sem auðkennt hef-
ur stjórnmálaferil Einars?
Við verðum margsinnis vitni
að því hvernig . kenningar og
fræðisetningar liggja eins og
hismi og hrynja utan af mönn-
um, ef þær komast ekki inn
að hjarta og taugum. „Sjálft
hguvitið, þekkingin hjaðnar
sem blekking, sé hja.rta ei með,
sem undir slær”. Kenningar
marxismans hefðu varla orðið
Einari eins inngrónar, ef þær
hefðu ekki átt hljómgrunn fyrir
í brjósti hans, í sjálfum þeim
taugum sem lágu dýpst til
þjóðarinnar og þjóðarsögu fs-
lands. Verkalýðurinn er ung
stétt á íslandi, en rætur hans
liggja aftur í aldir til bændaal-
þýðunnar sem barðist sem kúg-
uð nýlendu.þjóð þrautseigri bar-
áttu við harðrétti, skört og á-
þjón. Trau.st Einars á verklýðs-
stéttinni styðst einmitt við
traust hans á alþýðu íslands,
ibændaalþýðunni og sjálfri ís-
lenzku þjóðinni. Hvað er frels-
isbarátta verkalýðsins annað en
framhald af frelsisbaráttu hinn-
ar undirokuðu nýlenduþjóðar,
hvað var hugsjón sósíalismans
annað en þjóðardraumurinn í
æðra veldi um frjálst og ham-
ingjusamt líf? Þess vegna var
hin íslenzka harpa svo næm
fyrir áslætti marxismans, í
brjósti skáldanna, í brjósti Ein-
ars Olgeirssonar og annarra
brautry ð j enda verkalýðshreyf-
ingarinnar á íslandi. Strengirn-
ir lágu aftur í sögu þjóðarinn-
ar.
Þannig varð þjóðfrelsisbar-
áttan annar meginstrengurinn í
stjórnmálastarfi Einars. Hann
hefur verið vakinn og sofinn
að hugsa fyrir þjóðinni, fram-
förum hennar, efnahagslegu og
pólitísku sjálfstæði íslands Hann
hefur lagt fram fjölmargar till.
um efnahagslega framtíð þjóð-
ai’innar, hann var höfundur að
nýsköpunartillögunum frægu í
styrjaldarlok. Hann hefur flutt
greinargerðir um áætlunarbú-
skap, um hagnýtingu fossafls-
ins o.s.frv. Jafnframt hefur
hann leitað sér staðfastrar
þekkingar á sögu íslands, orðið
fyrstu.r til að bregða yfir hana
Ijósi marxismans, borið fram
skýringar sem eru hinar at-
hyglisverðustu á þróun hins
forna íslenzka þjóðfélags. Eru
þær í stytztu máli á þá leið, að
germanska ættarsamfélagið hafi
endurnýjazt á íslandi og varð-
veitzt hér lengst og skapað hér
sín stærstu menningarafrek, og
að fslendingasögurnar eins og
Njála séu svanasöngur þessa
ættasamfélags. Með þessu
lyftir hann ekki aðeins íslandi
í nýjar sögulegar hæðir, heldur
allri hinni germönsku arfleifð,
sem hann leggur áherzlu á að
skipa beri til jafns við gríska
fornmenningu. Þessi bók Ein-
ars um ættarsamfélagið hefur
erindi út fyrir ísland, ekki
sízt til hinna germönsku þjóða,
og hefur líka vakið athygli
meðal erlendra sagnfræðinga.
Einar Olgeirsson skilur gildi
hinnar sögulegu arfleifðar fyrir
þjóðfélagsbaráttu nútímans.
Eins og nútímaskáldskapur ís-
lands stendur djúpum rótum í
bókmenntaarfleifð þjóðarinnar,
og nýgróður hans væri óhugs-
andi án hennar, þannig verður
einnig þroski verklýðsstéttar fs-
lands og sigurvinningar henn-
ar að grundvallast á sögulegri
erfð hins íslenzka þjóðfélags.
Það stolt sem með þjóðinni hef-
ur búið og stælzt hefur í.bar-
áttu kynslóðanna, heimtar Ein-
ar af verkalýðnum og íslenzku
alþýðustéttunum og mennta-
mönnum í dag. Af þessum
djúpu söugulegu. rótum er htn
síendurtekna hvatring hans til
alþýðunnar, til þjóðarinnar í
heild, um að sýna manndóm
og stórhug. Allt hans starf mið-
ar fyrst og fremst að því að
kveða manndóm í íslendinga.
Greinar hans eins og Einvígi
íslenzks anda við amerískt doll-
aravald eru þrungnar kynngi-
krafti og þjóðarmetnaði.
í stjórnmálaátökunum á ís-
landi má auðstéttin sín enn sem
komið er betur. Hún hefur
gerzt rík og spillt á öldinni.
Síðasta afrek hennar er að hafa
kastað fyrir borð nýfengnu
sjálfstæði íslendinga. Hin síð-
ustu ár hefur hún í skjóli er-
lends valds skapað sér öflugt
ríkisvald sem hún beitir óspart
til að kúga með alþýðu lands-
ins og skara eld að fjárgróða
sínum og grafa undan siáifs-
metnaði þjóðarinnar. Þetta rík-
isvald auðstéttarinnar þarf að
afnema. Einar Olgeirsson hefur
öllum öðrum betur skilgreint
eðli þess.
Einar Olgeirsson verður sex-
tugur í dag. Hann er að kom-
ast á góðan ráðherraaldur. Ég
vildi lifa það að Sósíalista-
flokkurinn tæki að sér stjórn-
arforystu og Einar væri for-
sætisráðherra. Þá yrði tekið til
hendinni i stjórnarráðinu. Þá
yrðu ekki atvinnuvegirnir stöðv-
aðir, né bankarnir lokaðir eins
og nú. Þá yrði ekkert hik við
að reka herinn úr landi. Þá
yrði gerð heildaráætlun um
þjóðarbúskapinn. Þá rynnu upp
nýir dagar fyrir alþýðu íslands.
Og hví ekki að gera það heit
á afmælisdegi Einars að undir-
búa framkvæmd þessa verks?
Hví ekki að tvöfalda fylgi
Sósíalistaflokksins í næstu
kosningum? Þáð hefur verið
gert áður. Það var árið 1942.
Þá var þjóðstjórninni illræmdu
sópað burt. Þá úppskar verka-
lýðurinn mikinn ávöxt. Upp
úr því kom nýsköpunin. Sú
stjórn sem nú situr þarf að
víkja. Og hví þá ekki að fella
hana líka? Til hvers hefur Ein-
ar Olgeirsson kveðið kjark í
verkalýðinn, irannd.óm í aí-
þýðuna, ef hún hrlndir ekki af
sér auðvaldinu og tekur for-
ystuna sjálf?
Vil ég svo að lokum send.a
Einari og fjölskyldu hans þakk-
arkveðju.r og árnaðaróskir og
bið hann lengi' að lifa.
Kr. E. A.
★
ET"
í dag, 14. ágúst, veidur Ein-
ar Olgeirsson, formaður Sósíal-
istaflokksins, 60 ára.
Það er ekki vandalaust verk
að skrifa um Einar á þessum
timamótum í ævi hans. Ekki
vegna þess að erfitt sé um efni
í slíka afmælisgrein, heldur
vegna hins, að af svo miklu er
að taka um jafn stórbrotinn og
stai'fsmikinn mann og Einar, að
vandasamt er að ákveða hvað
helzt skuli velja í iitla blaða-
grein.
Ég mun í þessari grein fyrsjt
og fremst ræða um stjórnmálaí-
manninn E:nar Olgeirsson og
það af verku.m hans, sem ég er
kunnugaslur frá starfinu á síð}-
ustu tveim áratugum.
Einar hefur verið einn af
kunnustu stjórnmálamönnum
landsins síðan Kcmmúnista-
flokkur íslands var stofnaðui’
árið 1930. Hann varð strax annf
ar aðalforingi flokksins og s4
sem mest var veitt athygli og
mest umtalaður.
Einar var mikill mælskumaðt
ur og frábær í sókn og vörri
fyrir þann málstað, sem hanri
barðist fyrir. Eftir Einari Oli
• i
geirssyni var tekið, þar sem
hann mætti á fundum, eða þaf
sem hann kom fram í deilum
við andstæðinga. Það var þvl
engin leið að þegja í hel, eða
drepa á dreif því sem hanri
sagði. Eftir því var tekið og
um það var rætt hvort serrj
andstæðingum hans líkaði þaf|
betur eða verr.
Þannig varð Einar brátt mjögj
u.mræddur og umdeildur stjórn-j
málamaður. Persónuleiki Einarsj
og sá málstaður sem hann barð-
ist fyrir, áttu svo eftir að færá
honum og flokki hans marga!
Framhald á 10. siðu.
4ERKURBREF
bréfasneplana, vindlingsstúfana
og flcskubrotin sem hin yndis-
lega alþýðuæska Islands stráir
ihér stundum út um læk og
runn. Þá hefðirðu ef til vill
loksins öðlast þessa ofu.rmann-
legu , hlutlausu hjar.tans auð-
mýkt sem Kilja.n okkar hefur
verið að leita uppi hjá kamar-
imokurum og mormónum á hin-
um síðustu og verstu tímum.
En þú ert nú allur í alþjóða-
hyggjunni eins og vant er, nátt-
úrlega víðsfjarri frumslóðum ís-
lenzka ættasamfélagsins. Því það
get ég sagt þér að hér ganga
þeir Reyrketilssynir, Ásbjörn og
Steinfinnur, ljósum logum um
hábjartan dag, hamingjusöm-
ustu andar jarðarinnar með all-
an ættbogann spenntan milli
jöklanna, þar sem „eldur geysar
undir”, og biðja um Sovét-ls-
land sem fyrst. Hvar er Einar
nú? hvísla þeir að grjótfigúr-
unni af meistara Þórbergi sem
gónir upp í loftið fyrir utan
musterið mikla í hlíðinni upp
af Búðarhamri. En fígúran
hristir ekki einu sinni höfuðið
— hún er úr steini og hefur
ekki hugmynd um sína eigin
fyrirmynd.. Líða þá Reyrketils-
synir sem hver önnur austan-
gola yfir mörkina, blása á ösk-
una úr Kötlu, rjála við vikur-
inn úr Heklu, sjá blágresið falla
og umfeðminginn taka við og
þannig er sérhver dagur friður,
og fögnuður í heilögum anda.
Það er dálítið skrýtið í allri
þessari gullnu ró Móður Nátt-
úru að hrökkva upp við það ó-
næði að til skuli vera hei.1 ver-
öld utan Krossár, Markarfljóts
og Þröngár, fu.ll af heiftarlegri
baráttu og öllum andskotanum
sem hvergi sér fyrir endann á.
Og að handan þessarar veraldar
skulir þú, Einar Olgeirsson,
hinn óþreytandi lúðurþeytari
sósíalismans, dansa sextugur
með bikar austræns þrúguvíns
í hendi og þeyta til miín hingað
norður í Þórsmörk nýrri eggjan,
nýrri áskorun um að standa á
verði, hvessa tungubroddinn,
gefast aldrei aldrei aldrei upp
nei nei.
Á maðu.r þá aldrei að fá að
véra í friði?
Eða veiztu það ekki, Einar
minn, að enginn maður hefur
oftar raskað ró minni en ein-
mitt þú? Ætli ég muni ekki
þegar ég heyrði þig þruma í
Bröttugötunni í fyrsta sinn.
Gólfið undir fótum mér, landið
allt, jörðin öll, tók allt í einu
að skjálfa, sálin titraði eins og
lauf i vindi, hjartað spriklaði
eins og afvelta fluga. Síðan hef-
ur þú verið ein höfuðskepnan í
lífi mínu, þó ég sé nú reyndar
farinn að vara mig á svæsn-
ustu sviptibyljunum. Ef þú
hefðir ekki alltaf látið svona,
væri ég vafalaust löngu sofn-
aður svefni hinna réttlátu með
dalakút fyrir kodda og guð al-
máttugan fyrir ábreiðu. Að vísu
skal því ekki neitað að ég er
farinn að dotta ískyggilega oft
í seinni tíð, enda orðinn virðu-
legur íbúðareigandi á Klepps-
vegi með útsýn yfir blá sund
eilífðarinnar. En jafnvel sveita-
manni á sjötugsaldri er hvergi
vært með þig og öll þe-ssi atóm
súrrandi í kringum sig.
★
En svo ég snúi mér að öðru,
þá langar mig til að sæma þig
sérstökum heiðurstitli á sex-
tugsafmælinu. Titillinn er: sann-
asti borgari Islands. Það leynir
sér nefnilega aldrei að allt hið
glæsilegasta og lífseigasta úr
borgaralegri menningu glitrar
og titrar í persónuleika bínum
eins og tíbráin yfir Markar-
fljótsaurum, þar vakir draum-
urinn um frelsið, jafnréttið og
bræðralagið, hugsjónir húman-
til Einars Olgeirssonar
---.......--....-...'.....• • •■■ ■' - • - ■-...... - ........ ’■
Þriðjudagur 14. ágúst 1962 — ÞJÖÐVILJINN —