Þjóðviljinn - 03.10.1962, Side 12

Þjóðviljinn - 03.10.1962, Side 12
Björnsson heiðurs- félagi L.R. Á framhaldsaðalfundi Leik. félags Reykjavíkur, sem hald- inn var sl. mánudagskvöld var Haraldur Björnsson leik- ari, einrónia kjörinn heiðurs- fé'agi Leikfélagsins. ★ ★ ★ Á fundinuni skýrði fram- kvæmdastjóri félagsins, Guð- mundur Pálsson. frá fyrstu verkefnum á starfsárinu sem er að hefjast. Gagngerar endurbætur og breytingar á sætunum í Ionó standa nú yfir og er þeim að verða langt komið. Sett verða í húsið ný sæti, miklu rýmri og þægilegri en göm'u bekkirnir og er smíði stól- anna nú lokið. Þá veður bætt við tveim bekkjaröðum á nýjum svölum, sem gerðar hafa verið og er því verki nú að Ijúka. Nýju sætin verða á upphækkuðum pöllum, sem eru þannig útbúnir að hægt ér að lyfta þeim upp og fella raiður, þegar dansleikir eru haldnir í húsinu. Þrátt fyrir svalaviðbótina fækkar sætum í húsinu úr 304 í um 220 sökum þess, hve nýju sætin eru miklu rýmri og rúmfrek- ari en þau gömiu. Hins veg- ar ná gera ráð fyrir að sætanýting í húsinu verði betri en áður við breyting- f una. J Gert er ráð fyrir að breyt- Framh. á 2. síðu Launamálín rœdd á 22. þingi BSRB Launamál opinberra starfsmanna verður aðal- mál þings Bandalags starfsmanna ríkis og bæja, sem hefst hér í Reykjavík n.k. föstudag. Þetta þing BSRB verður hið 22. í röðinni og verður háð í Hagaskólanum. Þingsetning fer fram klukkan 5 síðdegis á föstu- dag. Scm fyrr segir mun aðalmál þings BSRB verða að þessu 1 sinni launamál opinberra starís- ; manna. Að undanförnu heíur i verið unnið að undirbúningi til- | lagna af hálfu bandalagsins í væntanlegum beildarsamning- um um laun rík'sstarfsmanna, en eins og kunnugt er fengu ríkisstarfsmenn samningsrétt — með ákvörðun Alþingis í vor. Af öðrum málum sem rædd verða á þinginu má nefna laga- og skipulagsmál Bandalags starfsmanna ríkis og bæja. Þá mun Kr. Guðmundur Guð- mundsson trygg:ngafræðingur flytja erindi um lífeyrissjóði ríkisstarfsmanna. Áætlað er að þinginu ljúki á mánudag. VIRBULEG AFMÆLISHATÍB NORRÆNA FÉLAGSINS ' LAUGARDAG Þióðviliinn Miðvikudagur 3. október 1962 — 27. árgangur — 214. tölublaö. HAUSTLAUFIN FALLA Noræna félagið hélt hátíðlcgt af- mæli sitt með hálíð í Þjóðleik- húsinu s.l. laugardagskvöld og var við það tækifæri lýst kjöri þriggja heiðursfélaga félagsins, þeirra Sigurðar Nordals prófess- ors, Guðlaugs Rósinkranz Þjóð- leikhússsljóra og Stefáns Jó- hanns Stefánssonar ambassadors, en þeir hafa allir verið for- menn í félaginu. Gunnar Thoroddsen fjármála- ráðherra, formaður félagsins setti hátíðina með ávarpi en síðan söng norski óperusöngvarinn Olav Eriksen nokkur lög eftir Grieg með undirleik Árna Krist- jánssonar. Frú Anna Borg las upp kvæði H. H. Seedorf Ped- ersen Svanerne fra Norden. Sænski fiðluleikarinn Gert Cha- foorel lék einleik á fiðlu og að- stoðaði Ann Mary Fröler með undirleik á píanó. Paul Reumert flutti því næst kvæði Ibsens Vigen. Eftir hlé söng Kristinn Hall- son óperusöngvari nokkur finnsk lög en Árni Kristjánsson aðstoð- aði með píanóundirleik. Þá las frú Anna Borg smásöguna Sönn- en eftir Gunnar Gunnarsson og að lokum lásu þau frú Anna Borg og Poul Reumert loka- þátt Fjalla-Eyvindar eftir Jó- hann Sigurjónsson. Var öllum flytjendunum vel fagnað og þó sérstaklega þeim hjónunum Önnu Borg og Poul Reumert, sem voru heiðursgestii' félags- ins á afmælishátíðinni. Að loknum flutningi dag- skrár bauð Norræna félagið geslum veitingar í kristalsal Framhald á 4. síðu. FundurÆFRá föstudagskvöld Félagsfundur ÆFR verður haldinn í Tjarnargötu 20 é föstudaginn 5. október klukk- an 8.30. Á dagskrá eru: 1. ]i Inntaka nýrra íélaga. 2. J Verkalýðsmál, framsögumað- ur Guðm. J. Guðmundsson. 3. Skýrt írá 20. þingi ÆF. 4. (l Önnur mál. J Fclagar mæti stundvíslega og f sýni félagsskírteini við inn- 1 ganginn. Það cr orðið liaustlcgt í borginni enda komið fram í október. Sið- ustu tvær helgar hafa geisað hauststormar og regn og blöðin hafa hrunið af trjánum cins og skæðadrífa og safnazt í rastir á götur, gangstcttir og í garða. Myndin var tckin í Hljómskálagarðinum í gær og sýnir gamlan mann vera að raka saman fölnuðu laufi í hrúgur. Þá var sólskin og stilla. Stormahlé á hausti. — (Lj. Þj. A.K.) Ofdrykkja kvenna mikið vandamál STOKKHÓLMI 2/10 — Ofdrykkja kvenna cr orðin alvarlegt vanda- mál í Stokkhólmi. Ofdrykkja eykst liltölulega mun hraðar með- al kvcnna en karla. Vandamálið getur orðið illleys- anlegt eftir nokkur ár, ef ekki verða þegar í stað bætt skilyrðin til að veita drykkjusjúkum kon- um hjálp. Þetta kemur fram í skýrslu áfengisvarnanefndar Stokkhólms- borgar, sem beðið hefur borgar- stjórnina um fjárveitingu til byggingar heilsuhælis fyrir of- drykkjukonur. Nefndin -ppplýsir, að í fyrra hafi samtals 482 konur verið skráðar sem drykkjusjúklingar, og var það 22 prósent aukning frá árinu áður. Aukning á of- drykkju karla var nær þriðjungi Kosningin í Frama Vinstri ykkur líosningin í Frama heldur á- fram í dag og er kosið á skrif stofu félagsins að Freyjugötu 26 frá klukkan 1—9 í dag. Listi vinstri manna er C-Iisti og er hann skipaður þessum mönnum: Aðalfulltrúar: Jónas Sigurðsson, R—2558 Haíliði G.'slason, R—8637 Vilhjálmur Guðmundsson, R—2345 Grímur Friðbjörnsson, Steindóri Guðbjartur Guðmundsson, R—1021 menn! Fylkið um C- listann Hákon Sumarliðason, R—7143 Páll Eyjólfsson, R—4917. Varafulltrúar: Tómas Kristjánsson, R-4320 Kristinn Magnússon, R-902 Haraldur Jónsson, R-2660 Magnús Eyjólfsson, BSÍ Georg Árnas'ön, R-9095 Haukur Jónsson, R-11060 Guðmundur Óskar Jónsson, R—12393. Vinstri msnn. Fylkið ykkur urn C-listann og svarið þann- ig sundrungar- og afturhalds- öflum félagsins. Kosningaskrifstofa C—listans er í Tjarnargötu 20 (salnum niðri), símar 20252 og 20253- ★ I Tímanum í gær er því haldið fram, að Alþýðubanda- lagsmenn í Frama haii „átt v ði"æður við Sjáífstæð- ismenn og tílkynnt þeim að þsir myndu ekki fara í fram- boð á móti þeim í félaginu“. Hér er um hrein og vísvit- andi ósannindi áð ræða, gérð é þeim e'na tilgangi að draga athygli frá þeirri staðreynd að framsóknarmenn stóðu í samningum við íhaldið, — eins og viðurkennt er í sömu grein, — en gátu ekki feng- ið óbreytta félaga sina til þess að fallast á þau „kjör“, sem íhaldið bauð upp á. Þeg'ar Tíminn ta'.ar um að kjósa B-listann til þess að „vernda hagsmuni“ stéttar- innar, er rétt að minna fram- sóknarmenn á það, að með þvi að koma í veg fyrir sam- stöðu vinstri manna gegn. i- haldinu, er framsókn að reyna a'ð afhenda íhaldinu „fulltrúa félagsins á þing ASÍ og vinnur þannig vísvitandi ' gegn hagsmunum stéttarinnar og verkalýðsins í heild. Tíminn talar réttilega um dugleysi Frama-stjórnarinnar á undanförnum árum, en minna má á að framsókn hef- ur verið samábyrg með íhald- inu um stjórn og reksiur Frama. Starfsleys' íhafdsins er staðreynd. þar er sofið á ö 1- um málum. — Hvað líður at- hugun á tryggingarmálum. Úthlutun atvinnuleyfa er orð- ið svo opinbert hneyksli, að ekki verður dregið öllu lertg-. ur að ræða þau mál opinber- lega. Þegar aðrar stéttir fá stórfeildar launahækkanir, er ökugja'd leigubíla aðeins hækkaö um 6" 0, þrátt fyrir gífurlegar hækkanir á Öllum útgerðarkostnaði bíla. (En Vísir taldi 40° 0 farmgjalda- hækkun hjá Eimskip aðeins „spor í rétt <átt“). B'freiðastjórar. íhaldið í Frama með sitt dugleysi lifir á sundrungu vinsíri manna og þegar yfirráð þess eru í hættu tefiir það íram hægri framsóknarmönnum á þann hátt sem bezt hentar þeim hverju sinni. Bifreiðarstjórar. Það eina sem getur boðað nokkuð nýtt er kosningasigur C-listans i þessum kosningum. — Send- ið fuí''lírúa C-listans á þing ASI. Þe'm e num er treýst- andi ti1 þess að gæta hags- muna stéltai'innar.

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.