Þjóðviljinn - 09.10.1962, Blaðsíða 5
MENNT
ER
MÁTTUR
Notið f rístundirnar
tiE hagkvæms náms
í Bréfaskóla S í S
1. Skipulag og starí'shættir samvinnuféiaga: 5
bréf. Kennslugjald kr. 100 00. Kennari er Eiríkur
Pálsson, lögfræðingur.
2. Fundarstjórn og fundarreglur: 3 bréf.
kennslugjald kr. 200 00. Kennari Eiríkur Pálsson.
3. Bókfærsla I, byrjendaflokkur: 7 bréf.
Kennslugjald kr. 350.00. Kennari Þorleifur Þórð-
arson, forstjóri.
4. Bókfærsla II: 6 bréf, framhald fyrra flokks,
sami kennari. Kennslugjald kr. 300.00.
5. Búreikningar: 7 bréf og bókin: „Leiðbeining-
ar um færslu búreikninga". Kennari er Eyvindur
Jónsson, búfræðingur. Kennslugjald kr. 150 00.
6. íslenzk réttritun: 6 bréf eftir kennarann
Sveinbjörn Sigurjónsson, magister. Kennslugjald
kr. 350.00.
7. íslenzk bragfræði: 3 bréf eftir kennarann
Sveinbj. Sigurjónsson, mag. Kennslugj. kr. 150.00.
8. íslenzk málfræði: 6 bréf eftir kennarann Jón-
as Kristjánsson, cand. mag. Kennslugj. kr. 350.00.
9. Enska I, byrjendaflokkuT: 7 bréf og ensk les-
bók. — Kennari er Jón Magnússon, fíl. cand.
Kennslugjald kr. 350.00.
10. Enska II: 7 bréf, auk leskafla, orðasafns og
málfræði. Framhald fyrra flokks, sami kennari.
Kennslugjald kr. 300.00.
11. Danska I, byrjendaflokkur: 5 bréf og Litla
dönskubókin eftir kennarann Ágúst Sigurðsson,
cand. mag. — Kennslugjald kr. 250.00.
12. Danska II: 8 bréf og kennslubók í dönsku
eftir kennarann. Kennslugjald kr. 300.00.
13. Danska III: 8 bréf, svo og kennslubók, les-
bók, orðasafn og stílhefti eftir kennarann. —
Kennslugjald kr. 450.00.
14. Þýzka: 5 bréf, þýdd og samin af kennar-
anum Ingvari Brynjólfssyni, menntaskólakennara,
Kennslugjald kr. 350.00.
15. Franska: 10 bréf, þýdd og samin af kennar-
anum Magnúsi G. Jónssyni, menntaskólakennara.
16. Spænska: 10 bréf, þýdd og samin af kennar-
anum Magnúsi G. Jónssyni, menntaskólakennara.
Kennslugjald kr. 450 00.
17. Esperanto: 8 bréf. Kennslugjald kr. 200.00.
18. Reikningur: 10 bréf. Þorleifur Þórðarson
kennir. Kennslugjald kr. 400.00.
19. Algebra: 5 bréf eftir kennarann, Þórodd
Oddss. menntaskólakennara. Kennslug. kr. 300.00.
20. Eðlisfræöi 6 bréf eftir kennarann vSigurð
Ingimundarson, efnafr. Kennslugj. kr. 250.00.
21. Mótorfræði I: 6 bréf. Kennari: Andrés Guð-
jónsson. Kennslugjald kr. 350.
22. Mótorfræði II. 6 bréf. Kennari: Andrés Guð-
jónsson. Kennslugjald: kr. 350.00.
23. Siglingafræði: 4 bréf. Kennari Jónas Sigurðs-
son stýrimannaskólakennari. Kennslugj. kr. 350.00.
24. Landbúnaðarvélar og verkfæri: 6 bréf.
Kennari: Gunnar Gunnarsson. Kennslugjald kr.
150.00
25. Sálarfræði: 4 toréf, þýdd og tekin saman af
kennaranum dr. Brodda Jóhannessyni og frú Val-
toorgu Sigurðardóttur. Kennslugjald kr. 200.00.
26. Skák I. byrjendaflokkur: 5 bréf á sænsku.
Kennari: Sveinn Kristinsson. Kennslugjald kr.
200.00
27. Skák II: 4 bréf. Kennari: Sveinn Kristins-
son. Kennslugjald kr. 200.00.
28. Starfsfræðsla: Bókin „Hvað viltu verða“.
Ólafur Gunnarsson, sálfræðingur svarar bréfum
nemenda og gefur upplýsingar og leiðbeiningar
vaxðandi starfs- og stöðuval. Kennslugj. kr. 200.00.
Bréfin eru samin og svörin leiðrétt af ágætum
kennurum í hverri grein.
Skólinn leggur ekki til svara- og verkefnahefti,
en mælist til, að nenrendur noti litlar stilabækur
eða laus blöð. Áherzlu ber að leggja á það, að
ganga sem bezt frá svörunum, skrifa greinilega
og hafa spássiu fyrir leiðréttingar. Það er góð
regla að skrifa aðeins í aðra hverja linu.
Nemandi getur tekið eina námsgrein eða fleiri
eftir því sem ástæður hans leyfa. Um leið og
hann sækir um kennslu í einhverri grein, sendir
hann kennslugjaldið fyrir þá námsgrein, eða vott-
orð frá Sambandsfélagi um, að hann hafi greitt
því kennslugjaldið, eða biður um fyrstu náms-
bréfasendingu í póstkröfu. Nemandi verður að
gæta þess, að gefa upp greinilegt heimilisfang.
Nemanda eru svo send tvö fyrstu bréf námsgrein-
arinnar. Hann svarar fyrst bréfi nr. 1 og sendir
það til baka. Svarar bréfi nr. 2 meðan hann bíður
eftir svari Bréfaskólans. Þegar skólinn fær svar
nr. 1, sendir hann nemanda bréf nr. 3 og 1. bréf
leiðrétt. Þegar skólinn fær svar nr. 2 sendir hann
nemanda bréf nr. 4 og leiðrétt bréf nr. 2, og svo
koil af kolli, þangað til flokkurinn er búinn.
Svar við hverju bréfi verður að vera komið til
skólans eigi síðar en 3 mánuðum eftir að bréfið
var sent út. Annars verður litið svo á, að nem-
andi hafi hætt námi, og hefur hann þá fyrirgert
kennslugjaldi sínu. Undanþágu frá þessu getur
skólinn veitt, ef ætla má, að póstsamgöngur hafi
hamlað, eða nemandi hafi verið veikur. Innan
þessara tímatakmarka ræður nemandi þvi sjálfur,
hve mikill námshraði hans er, en heppilegast er
fyrir hann að svara bréfunum eins fljótt og hann
getur. Nýir nemendur fá inngöngu, hvenær sem
er á starfstíma skólans.
Þegar nemandi hefur lokið námi, fær hann vott-
orð um það frá skólanum. Nemendur verða að
skuldbinda sig til að sýna ekki óviðkomandi
mönnum bréf skólans, né svör.
Bréfaskólar eru mikið notaðir erlendis. Sam-
vinnusambönd nágrannalanda okkar reka flest
bréfaskóla. Þeir eru hentugir fyrir fólk á öllum
aldri og hvaða atvinnu, sem það stundar. Nem-
andinn getur notað frístundir sínar hvenær sem
þær eru, til að lesa bréfin og svara þeim. Hann
ræður sjálfur að miklu leyti námshraða sínum.
Á þann hátt notast frístundirnar miklu betur en
í venjulegum skólum. Bréfaskólarnir hafa og þann
kost, að fól'k, sem búsett er á stöðum, þar sem
lítið er um kennslukrafta, getur á þennan hátt
notið kennslu færustu manna í hverri grein.
Margir ágætir menn hafa sótt menntun sina í
bréfaskóla. í ýmsum löndum eru skólarnir orðnir
svo fullkomnir, að þeir kenna allt, sem þarf til
stúdentprófs og í sumum greinum til háskóla-
prófs. Þetta kennslufyrirkomulag hefur alls stað-
ar reynzt mjög vel.
TAKIÐ EFTIR. — Bréfaskóli SÍS veitir ungum
og gömlum, konum og körlum, tækifæri til að
nota frístundimar til að afla sér fróðleiks, sem
allir hafa gagn af. Með bréfaskólanámi getið þér
bætt yður missi fyrri námsára, aukið þekkingu
yðar og möguleika á að komast áfram í lífinu.
Þér getið gerzt nemandi, hvenær ársins sem er,
og eruð ekki bundinn við námshraða annarra
nemenda.
Bréfaskóli S.Í.S. býður yður velkominn.
Utanáskrif Bréfaskólans er: Bréfaskóli S.Í.S.
Reykjavík.
Undirritaður óskar að gerast nemandi í cftirtöldum námsgreinum:
[]] Vinsamlegast sendið gegn póstkröfu.
! j Greiðsla hjálögð kr.
nafn
heimilisfang
Sd
w
X
ÍH
>
P5
W
K-
*n
>
W
o>
r
* g
•z
vK'r f . •: • . i « (- . •
Þriðjudagur 9. október 1962 — ÞJÓÐVILJINN — (5