Þjóðviljinn - 16.10.1962, Page 1

Þjóðviljinn - 16.10.1962, Page 1
Þriðjudagur 16. október 1962 — 27. árgangur — 224. 'tölublað. ÁSKPJFEMHSSASÖWMN Ákveðið hefur verið að hefja nú þegar söfnun nýrra áskrifenda að Þjóðviljanum. Þessi söfnua á að standa fram að flokks- þingi Sósíaiistaflokksins, er hefst 25. nóv- ember n.k. Setur flokkurinn sér það mark að safna á þeim txma a.m.k. eitt þúsund nýjum áskrifendum. Er skorað á alla flokks- menn svo og aðra lesendur Þjóðviljans og stuðningsmenn að bregða rösklcga við og hefja söfnunina án tafar. Aukin útbreiðsla Þjóðviljans táknar aukin áhrif alþýðunnar á framvindu þjóðmálanna. — Tekið á móti áskriftum í símum 17500, 17510, 17511. — SÖFNUNARNEFND. • Við umræður á Alþingi^ í gær lýsti Guðmundur í. Guðmundsson utanríkisráð- herra því yfir, að nýju or- ustuþoturnar, sem bandaríski herinn á Keflavíkurflugvelli hefur nú fengið, gætu borið og hagnýtt kjamorkuvopn. Hann sagði hins vegar að kjarnavopn yrðu ekki leyfð á Keflavíkurflugvelli nema íslenzka ríkisstjómin óskaði eftir því og sagði að henni hefðu ekki borizt nein til- mæli um það frá Banda- ríkjastjórn að kjamavopn 3rrðu flutt hingað. ö Utanríkiaráðherra neit- aði hins vegar að gefa yfir- lýsingu um það fyrir hönd ríkisstjórnarinnar, að hún myndi ekki leyfa að kjama- vopn yrðu flutt hingað án þess að leita áður samþykk- is Alþingis. Verður að líta svo á, að þessi afstaða ráð- herrans tákni, að ríkisstjórn- in hugsi sér ekki að leita álits Alþingis í þessu mikils- verða máli heldur ætli að taka ákvarðanir í því upp á sitt eindæmi, ef til kemur. Sjá 5. síðu ABFARANÓTT sl. sunnudags fannst bifreiðin G-771 á hvolfi á Keflavíkurveginum skammt frá Kálfatjöm. Hafði bifreiðin enda- stungizt og var mikið skemmd á toppnum. Ekki er vitað hvem- ig slys þetta hefur viljað til.. Ekki mun hafa orðið slys á mönnum. Nýr þóttur í umsjá Páls Bergþórs- sonar á é. s. immmmmm m-á k tmmmmn i rOm Myndin er tckin í Páfagarði daginn sern heims- þing kaþólsku kirkjunnar hófst þar og sér yfir torgið fjxir framan Péturskirkjuna þcgar skrúð- ganga kardínála og bisknpa fer yfir það. Ræða sú sem Jóhanncs páfi flutti við setningu þings- ins hefur vakið athygli vegna þeirrar sáttfýsi sem einkenndi hana og þess friðarboðskapar sem hún hafði að geyma. Hefur boðskap hans verið vei tekið víðast hvar, einnig þar scm mcnn eru ckki sérlega vinveittir kaþólskunni. 1 annarri ræðu, sem hann hélt daginn eftir, viðhafði páfi ummæli sem ekki verða túlkuð á annan hátt en sem fordæming á nýlcndustefnu og kúgun i hvaða mynd sem hún er. Þetta hefur þó einnig orðið til að minna menn á ósamræmi miili orða og verka, því að kaþólska kirkjan er cinnig öfl- ugur bandamaður þjóðníðinga og nýlendukúgara á borð við Franco og Salazar. Sjómenn einhujjá gegn kjaraskeriingar kröfum LIU 1 samningunum um kaup og kjör á síldveið- um sem nú standa yfir milli fulltrúa sjómanna- samtaka innan Alþýðu- sambandsins og Lands- sambands íslenzkra út- vegsmanna, eru þetta meginatriði: • Útgerðarmenn halda fas-t við kröfu sína um mikla skerðingu á kjör- um síldveiðisjómanna frá síðustu samningum, þeim samningum sem enn eru í fullu gildi fyr- ir verulegan hluta báta- flotans (alls um 70 báta) og verða í gildi til 1. júní 1963. • Samninganefnd sjó- manna mun einhuga um að ekki komi til mála að skerða kjörin, þannig að þau verði lakari en í Al- þý ðusambandssamning- unum frá 1959, lakari en á þeim hluta bátaflo.tans sem nýtur þeirra samn- inga til næsta sumars. ® Um þetta eru aðalátök- in og ber mikið á milli. Mun það vera hvorki meira né minna en 8% sem utgerðarmenn kref j- ast til lækkunar á skipta- prósentunni. Fleiri at- ( riði valda ágreiningi, svo sem flokkun bátanna eftir stærð og tala skip- verja en hvort tveggja varðar miklu um kaup- ið. Nánar um samningáúa á 2. síðu': Brezktir togari í Isndhelgi Síðdegis í gær lauk á Isafirði réttarhöldiim í máli Roy Delchcr skipstjóra á brezka togaranum Drageon FD 60 frá Fleetwood, sem Óðinn tók að ólöglegum vörpuveiðum innan fiskveiði- markanna undan Vestfjöröum kl. 23.18 á laugardagskvöld. Dómur verður kveðlinn upp i dag. 13.þingSésíafista ff@licsiæs 25.-27 «nove Þrettánda þing Sam- einingarflokks alþýðu — Sósíalistaflokksins verð- ur haldið í Reykjavík dagana 25.—27. nóvem- ber n.k. A þinginu verður m.a. fjallað um stjórnmála- viðhorfið, skipulagsmál Alþýðubandalagsins, leið Islands til sósíalisma, landbúnaðarmál og æsku- lýðsmál. Dagskrá þingsins er í heild birt í auglýsingu á öðrum stað í blaðinu. Þessi sjónarmið setti Ólafur Jóhanncsson prófessor fram í háskólafyrirlestri sínum í fyrradag, en í honum ræddi hann m.a. um takmörk þau sem stjórnarskrá lýðveldisins setti fyrir aðild íslands að sérstök- um og valdamiklum alþjóða- stofnunum eins og t.d. Efnahags- bandalagi Evrópu. — Sjá 12. s. 4 \ 4

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.