Þjóðviljinn - 21.10.1962, Síða 1

Þjóðviljinn - 21.10.1962, Síða 1
Sunnudagur 21. okíóber 1962 — 27. árgangur 229. tölublað. Bardagar blossa upp í Himalaja Kínverjar og Indverjar beita flugvéium og stórskotaliði PEKING, NÝJU DEHLI 20/10 — Ákafir bardagar blossuðu upp í nótt í Himalajafjöllum, þar sem hersveitir Kína og Indlands hafa átt í smá-! skærum undanfarin .ár Ríkisstjórnirnar saka hvor annarrar heri um að eiga upptök að þessari síðustu viðureign. Beitt er í bardögunum flug- vélum og þungum vopn- um og mannfall er sagt mikið. Snemma á laugardagsmorgun- inn tilkynnti fréttastofan Nýia Kína i Peking að indverskar hersveitir hefðu hafið ákafar á- rásir á stöðvar Kínverja bæði austantil og vestantil á landa- mærum ríkjanna. Deilt er um hvar landamærin liggja á bess- um slóðum. Kínverskir varðflokkar við Kechilang-ána f austanverðum Himalajafjöllum urðu fyrir miklu mannfalli. segir frétta- stofan. Einnig skýrir hún frá hörðum árásum indverskra her- sveita sem nutu stuðnings öflugs stórskotaliðs f r a^alrH-héraðinu í vestri. Innrás Hinn miklj liðsafli sem Ind- verjar beita og að beir tefla fram bæði stórskotaliði og árás- arflugvélum til stuðnings land- hemum. sannar að Indlands- stjóm hyggur á stórfellda innrás á kínverskt land .segir hin kín- verska fréttastofa. Ennfremur skýrir hún frá bví að kínversk stjómarvöld fylgist | af athygli með framvindu bess- ara alvarlegu atburða. Ekki er þess getið að Kínverjar hafi gert gagnáhlaup. Menon segir frá Árdegis á laugardag skýrir Krishna Menon. landvamarráð- herra Indlands. fréttamönnum REP. POPOLARE CINESE Þetta kort af hinum umdeildu landamærum Indlands og Kína er úr ítalska blaðinu „rUnita“. Punktalinan sýnir hvar Ind- verjar telja Iandamærin, feita Iínan hvar Kínverjar hafa þau. Örvarnar tvær benda á staðinn þar scm komið hefur til vopnaviðskipta. í Nýju Delhi frá því að um fimmleytið um morguninn eftir staðartíma hefðu kínyerskar her- sveitir hafið árásir á stöðvar indverja í Himalajafjöllum. Skýrði hann frá bardögum bæði i Ladakh-héraði í Kashmír og i landamærahéruðunum í norð- austri. Skotið hefur verið á indversk- ar flugvélar sem flytja hersveit- um á bessum slóðum birgðir. en þær komust aftur til stöðva sinna. Bardagar stóðu enn þegar síðast fréttist, sagði Men- on. Kommúistaflokkur Indlands hefur birt yfirlýsingu bar sem Kína er fordæmt fyrir árásarað- gerðir gegn Indlandi. Segir flokkurinn, að þessar síðustu á- rásir torveldi stórum friðsam- lega lausn landamæradeilunnar. Fyrir nokkru skýrði Nehru. forsætisráðherra Indlands. frá áð hann hefði gefið indverska hemum skipun um að hrekja kínverskar hersveitir brott af indversku landi. | Myndogóia ! Héðviljsans j í bla'ðinu i dag er mynda- ■ gáta fyrir þá lesendur að ■ spreyta sig sem gaman hafa j af slíku. Veitt verða þrenn j verðlaun fyrir réttar lausnir, ; sem þurfa að hafa borizt fyr- ■ ir 16. nóvember. ".■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■•■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■ Þessi dalur við Longju í austanverðum Himalajafjöllum, þar sem Indverjar og Kínverjar berjast nú, er meðal greiðfærustu svæða á þessum slóðum. Indversk herbílalest er á leið un» dalinn. Snjóar hljóta brátt að binda endi á vopnaviðskipti í þessu hrikalega fjalIIendL Rikisstjórnin kyndir elda verÓbólgunnar: Verðlagseftirlit nú af- numið á bílaviðgerðum • Ríkisstjórnin heldur áfram að kynda elda verðbólgunn- ar. í fyrradag bar hún fram og fékk samþykkta þá tillögu í verðlagsnefnd að allar bíla- viðgerðir skuli undanþegnar verðlagseftirliti. Er eigend- um bílaverkstæða hér eftir í sjálfsvald sett hversu mik- ið þeir taka fyrir verk sín. Ekki þarf að efa að þessi ráða- breytni verður til þess að all- ar bílaviðgerðir hækka stórlega í verði, og það mun þegar hafa áhrif á annað verðlag í land- inu. Hvers kyns bílanotkun er hér almennari en í flestum ef ekki öllum öðum löndum. cg frjáls gróði verkstæðaeigenda mun koma fram í hækkuðum fargjöldum með langferðabílum vörubílum og leigubílum og auknum kostnaði bílaeigenda. Það verður þeim mun auðveld- ara að stórhækka verðið á öli- um viðgerðum. sem verkstæð- isþjónusta er á mjög lágu stigi á tslandi og bíleigendur eiga undir högg að sækja í viðskipt- um við verkstæðin. Þessi ráðstöfun ríkisstjómar- inr.ar stuðlar enn að því að gera allt verðlagseftirlitskerfið á ts- landi að hreinum skrípaleik. Á sumum vörum er frjáls álagn- ing en sumum ekki, atvinnu-. rekendur mega verðleggja sum verkefni að eigin geðþótta en önnur ekki. Afleiðingin verður sú að fólk hefur ekki hug- mynd um hvað er háð verðlags- eftirliti og hvað ekki. Enginn skilur reglur þær sem rikisstjórnin þykist fylgja í þessu tilliti. en trúlega telur hún þennan glundroða hentugt tækifæri til að hygla gæðingum sinum til skiptis. Auk þess get- ur Sjálfstæðisflokkurinn haldið því fram við sína menn að búið sé að afnema allt verðlags- eftirlit i verki, en Alþýðuflokk- urínn getur staðhæft að enn sé framfylgt því stefnumáli hans að hafa víðtækt verðlagseftirlit. Aldrei heyrist þess getið í stjórnarblöðunum að efnahags- kerfi þjóðarinnar fari úr skorð- um þótt atvinnurekendum sé heimilað að verðleggja vörur sinar og þjónustu að eigin geð- þótta; þeirri röksemd er aðeins beitt ef verkafólk reynir að halda í við óðaverðbólguna. Enda er sú stefna ríkisstjómarinnar að afnema verðlagseftirlitið á sumum sviðum og gera það 6- virkt á öðrum ein aðgerðin til þess að ræna hverri kauphækk- un af launþegum um leið og um hana hefur verið samið. Fram og KR í dag Crslitaleiknum i bikarkeppninni milli Fram og KR sem fara átti fram í gær, var frestað vegna veðurs og siæmra vallarskiyrða. Áformað er að Icikurinn "ari fram í dag sunnudag, kl. 2 s.d. BATANA • Ofstækismenn í hópi útgerðarmanna stöðva enn síldarflotann með hinni fáránlegu og ósanngjörnu kröfu um stórskerðingu sjómannakjaranna frá þeim samningi sem enn er í gildi á mörgum stöðum á landinu og verður í gildi til 1. júní næsta sumar. • Það eru útgerðarmenn, ofstækisklíkan í Landssambandi íslenzkra útvegsmanna, sem stöðvar alla samninga á þessari vitleysislegu kröfu um að bátasjómenn, einir allra manna á landinu, semji einmitt nú um verri kjör, þrátt fyrir óðaverðbólgu og dýrtíð sem ríkisstjórn íhalds og Alþýðuflokksins hefúr dengt yfir þjóðina. • Hvert stéttarfélagið eftir annað segir nú upp samningum, til þess að kref jast hærri iauna og bættra kjara En ofstækisklíkan í LÍU stöðvar allan bátaflotann í þeim til- gangi að þrýsta sjómannakjörunum niður, meira að segja langt niður fyrir hinn al- ræmda gerðardóm Emils og íhaldsins, sem sjómenn hafa mótmælt einróma. Engin líkindi eru til að sjómenn láti bjóða sér slíkt, enda skellur fordæming almennings nú með sívaxandi þunga á hinum ofstæku útgerðarmönnum. Það er að verða krafa allr- ar þjóðarinnar að ofstækisklíkan i LÍÚ hætti tafarlaust kjaraskerðingaráformum sín- ‘um, svo síldveiðarnar geti nú hafizt án frekari tafar. Xáknræn mynd frá Selfossi. Þar eru krossgötur og Kaupfélag og þar er mikil umferð. Blaðamaður Þjóðviljans var nýlega á ferð þar eystra og fyrsta grein hans um Selfoss er birt á 8, síðu blaðsins í dag. (Ljósm. Þjóðv. G. O.). i

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.