Þjóðviljinn - 10.11.1962, Síða 12

Þjóðviljinn - 10.11.1962, Síða 12
Alþýðukórinn heldur hljómleika í næstu viku Alþýðukórinn (Söngfé- lag verkalýðsfélaganna í Reykjavík) hefur vetr- arstarfsemi sína í ár með hljómleikum í kirkju Ó- háða safnaðarins í næstu viku. Á söngskrá er 21 lag, öll eftir íslenzka höf- unda nema Agnus Dei úr As-dúr messu Schuberts. Fjórtán þesara laga hafa ekki verið flutt áður. Stjómandi kórsins Dr. Hall- grímur Helgason, og formaður hans Halldór Guðmundsson sögðu blaðamönnum frá starf- semi hans í gær. Við munum syngja fji'-’ur kvöld í næstu viku, sagði dr. Hallgrímur, á þriðjudag, mið- vikudag, föstudag og sunnudag. Við verðum í kirkju Öháða safn- aðarins eins og í fyrra, en þar eru sérstaklega góð skilyrði til söngs. Eins og sést á efnisskránni höfum við lagt sérstaka áherzlu á íslenzk lög, og hafa fjórtán þeirra ekki verið flutt áður, sem er vissulega nokkuð óvenjulegt. £>ar eru þrjú lög eftir Sigursvein D. Kristinsson, sem um alllangt skeið var stjómandi kórsins. Einnig má nefna sex lög eftir Ingunni Bjamadóttur sem ég hef útsett. Hennar saga er mjög merkileg: hún getur ekki leikið á hljófæri og þekkir ekki nótur, lög sín hefur hún sungið við vm- is uppáhaldslög sín. Eitt þessara laga. Sól stattu kyrr,' hafði hún samið á þennan hátt um ferm- ingu, en það var víst ekki skrif- að upp fyrr en hún var um fer- tugt. Á efnisskránni eru líka fjögur lög eftir Helga Helgason, sem var hrautryðjandi á sínum tíma, stofnaði Lúðraþeytarafé- lag Reykjavíkur sem var fyrsti félagsskapur af því tagi. Ég hef unnið með kómum í tvö ár. Það var eiginlega Jóni Leifs að kenna. I tilefni sextugs- afmælis hans var flutt kantata hans „Þjóðhvöt" og Alþýðukór- inn hafði einn hugrekki til að ráðast í þetta verkefni. Þá var vel haldið á spöðunum: við höfð- um sjö vikur til stefnu og héld- um níutíu æfingar á þessum tíma. Stundum héldum við nokkrar æfingar á dag. Upp úr þessu tókst síðan þetta samstarf. Síðan ég kom að kómum höfum við þrisvar haldið sjálfstæða konserta, þetta er sem sagt sá fjórði. Þess var einnig getið, að Fálk- inn ætlar að gefa út tvær plötur með sörig Alþýðukórsins og kemur sú fyrri út núna fyrir jól. Halldór Guðmundsson sagði að kórinn hefði verið stofnaður 1950 og væri því elzti starfandi blandaði kórinn í Reykjavík. Það væri töluvert erfiðara að halda lífi í blönduðum kór en karla- kór hér á landi. Ekki vildi dr. Hallgrímur segja að það væri kvenfólkinu að kenna, það væri yfirleitt fljótara að læra og mætti betur. 1 kórnum eru nú 37 félagar, þar af tveir Englendingar og þýzk stúlka og mætti því kalla slíkan félagsskap Alþjóðakór engu síður en Alþýðukór. Upp- selt er á fyrstu þrjú kvöldin til styrktarfélaga en aðgöngumiðar á hljómleikana á sunnudagskvÖld munu fást á staðnum. Nýr bátur hleypur af stokkunum á Akureyri AKUREYRI — Á laugardag- inn bættist nýr bátur í flota Akureyringa. Nefnist sá Faxi og ber einkennisstafina EA 11. Engendur bátsins eru Bjarnli Þorvaldsson og Stein- grímur Aðalsteinsson sjó- menn, og munu þeir hafa í hyggju að gera bátinn út héð- an. — Báturinn var smíðáður af tveim smiðum á Akureyri, Trausta Adamssyni og Gunn- laugi Traustasyni. En yfir- umsjón með smíðinni hafði Tryggvi Gunnarsson skipa- smíðameistari og hann gerði einnig teikningu af bátnum. Faxi cr byggður úr eik og í honum er 137 ha Volvo- Penta-dieseivéi. úaugardagur 10. nóvember 1962 — 27. árgangur — 246. tölublad Valtýr Pétursson opnar sýningu I dag klukkan tvö opnar Val- týr Pétursson listmálari sýningu í Listamannaskálanum. Á sýn- ingunni eru fiimmtíu og fjórar myndir, iangflestar olíumálaverk. Valtýr sýndi síðast fyrir tveim- ur og háifu ári — þá mest mós- aíkmyndir. Þær myndir sem nú <ru upp festar í fátæklegum húsakynnum íslenzkrar mynd- listar eru allar uppskera þess tíma sem síðan er Iiðinn. Eg sá nokkrar myndir eftir Valtý fyrir fjórum árum. Það voru afskaplega strangar mynd- ir. Síðan hefur margt breytzt. t þessum nýju verkum ríkir mikil litagleði, það er tölvert 6 ungir piltar játa á sig mörg innbrot Lögreglan hefur haft hendur í hári 6 pilta á aldrinum 15—18 ára, sem játað hafa á sig mörg innbrot, er framin hafa verið hér að undanförnu. Síðustu ínnbrotin frömdu þeir um fyrri helgi i Háskólabíó og á tveim stöðum við Melavöllinn, en þau innbrot urðu þeim ein- Lá.við stórsiysi á i í gærdag SIGLUFIRÐI 9/11. — Um áíta- leytið í kvöld kom olíuskipið Þyrill til Siglufjarðar. Átti það að losa hér olíu og taka í stað- inn lýsi hjá Síldarverksmiðjum ríkisins og flytja til Englands. 1 sambandi við komu skipsins hafði SR sent lítinn krana á hjólum, um 21/-, tonn að þyngd, sem þær eiga, fram á svokallað- an öldubrjót, en þar lagðist Þyr- ill upp að, til þess að færa til þungar gúmíslöngur, sem notað- ar eru við að losa og lesta skip- ið. Áður en kraninn var nokkuð farinn að athafna sig gaf steypt bryggjan eftir undan þunga hans og lagðist hann því á hlið- ina með þeim afleiðingum, að hús hans klesstist saman og stjórnandi kranans, Jón Kr. Jónsson, klemmdist fastur undir brakinu. AUlangan tíma tók að losa Jón undan krananum, því nota þurfti til þess kranabíl og tjakk en aðstaða erfið vegna þess, að kraninn var hálfgert á lofti og hætta á að hann færð- ist enn lengra niður við hnjask- ið. Þó tókst loks að losa Jón og eru læknar nú að rannsaka meiðsli hans, sem munu vera, að því er heyrzt hefur, furðu lítil. Er mikil mildi, að ekki skylJi alvarlegra slys af hljótast. Dekkið á öldubrjótnum má heita gjörónýtt og sjór hefur grafið uppfyllinguna undan því, en það er úr jámbentri stein- steypu. Bæjaryfirvöldunum hér á Siglufirði hefur oft verið bent á að viðgerðar væri þörf á öldu- brjótnum, þv£ áður hefur það komið fyrir, að bílar með litlu hlassi hafa farið niður um garð- inn. Verkfræðingur, sem athug- aði skemmdimar í honum fyrir einu eða tveimur ámm, taldi að viðgerð myndi kosta um 1 milljón króna, en þeim sem mynda meirihluta í bæjarstjóm hér á Siglufirði fannst meiri þörf á að setja 1 milljón króna í byggingu ráðhúss fremur en lagfæra úr sér gengin og hættu- leg hafnarmannvirki. — Ilannes. mitt til falls. Sá Ieigubilstjóri til ferða eins piltsins á sunnudags- nóttina og var hann þá með út- varpstæki undir hendinni. Þótti bifreiðastjóranum þetta grun- samlegt og tilkynnti það lög- reglunni og leiddi það til hand- töku 5 af piltunum, en cinn þeirra sat þá þegar inni fyrir aðrar sakir. Staðir þeir, sem piltamir höfðu brotizt inn á, eru þessir: Kaffi- stofan Austurstræti 4, Kaffi Höll, Fataverksmiðjan Gefjun við Snorraþraut, Gildaskálinn, Sund- laug Vesturbæjar, Hressingar- skálinn, mjólkurbúð á Hjarðar- haga og Hagabúðin auk áður- nefndra tveggja staða. Á flestum stöðunum var um smáþjófnaði að ræða, þó stálu þeir nær 6500 kr. í peningum á Kaffi Höll og Síldveiðideilan Framhald af 1. síðu. verið gefin á því af hverju þessi geysilegi verðmunur stafar. Ef mögulegt væri að greiða hér sambærilegt síldarverð og í Nor- egi — og því skyldi það ekki vera hægt? — væri hægt að tryggja bæði sjómönnum og út- vegsmönnum stórbætta afkomu, í stað þess að sóa milljónatugum í það að reyna að níða réttmæt kjör af sjómannastéttinni. fjómm karlmannafötum hjá Gefjun og í Gildaskálanum höfðu þeir brotizt inn nokkmm sinnum og stolið matvælum. I innbrotunum um síðustu helgi unnu þeir miklar skemmdir á báðum stöðum og nemur bóta- krafan frá Háskólabíói t.d. 14 þús. krónum. Aðeins einn þessara pilta hef- ur komizt í kast við lögregluna áður, þ.e. sá er í steininum sat. Breytingar á rekstri Lidá I gærkvöld var æskulýðurinn einráður í vcitingahús'inu Lidó í fyrsta skipti eftir breytingar, sem gerðar hafa verið á húsa- kynnum og rekstri. Húsakynnunum hefur m.a. verið breytt þannig að komið hefur verið fyrir matbar við anddyri og vínstúkunni breytt í mjólkurbar. Rekstri veitingahússins mun þannig hagað, að á föstudögum, laugardögum og sunnudögum verður húsið opið æskufólki á aldrinum 16—21 árs, en önnur kvöld leigt út fyrir einkasam- kvæmi og félagasamkomur. Ekki þarf að taka það fram að vín- veitingar verða ekki á boðstólum í Lidó þau kvöld sem æskufólk- ið ræður þar ríkjum. Hin vin- sæla hljómsveit Svavars Gests, sem leikið hefur í Lidó undan- farna mánuði, mun leika þar á- fram fyrir dansi. Glæðist fiskafli Skagstrendinga SKAGASTRÖND 8/11. — Fiskafli hefur verið rýr í Höfðakaupstað það sem af er vertíðar og gæftir fremur stirðar. Sjö bátar, 17—75 lest- ir að stærð, hófu róðra kring- um 7. október. Tveir þeirra, Máni og Helga Björg, leggja aflann upp hjá h.f. Hólnesi. Afli þeirra var í október omanlagt 104 tonn. Fimm bátar leggja upp hjá Kaup- félagi Skagastrandar og var afli þeirra sem hér segir: Húni 56.4 tonn, Stígandi 8.2, Svanur 17.1, Hrönn 16.0, Vísir 24.7. Hefur þá afli 7 báta orð- ið samtals 226.4 tonn í októ- ber. Þrátt fyrir lítinn afla hefur verið mikil vinna hjá frysti- húsi Kaupfélagsins, sem staf- ar af því, að unnið er í dýr- ar pakkningar, en fiskurinn fer annað hvort í frystingu eða skreið. Einstakt góðviðri hefur ver- ið síðustu daga og hefur snjó mikið tekið upp. Veðrabreyt- ing er ekki sýnileg. Afli hef- ur glæzt og hafa aflahæstu bátamir verið með þetta 7—8 lestir í róðri. — FG Rysjótt veðurfar BÚÐARDAL 6/11. — Nú um tíma hefur veðurfar hér um slóðir verið allrysjótt og snjó- aði talsvert um allt héraðið. Þó voru akvegir alltaf greið- færir. En í gær og í dag hef- ur brugðið til góðviðris, svo að snjór er næstum horfinn af láglendi. Sauðfé er víða komið á hús og vafasamt að því verði sleppt aftur. I Búðardal er unnið að byggingu Mjólkurstöðvar, og er það hús nú fokhelt or' 'ð. Þá er einnig unnið að bygg- ingu dýralæknisbústaðar. Félagsheimili er í smxðum fyrir Laxárdalshrepp, og er hluti þeirrar byggingar fok- heldur. Ekki þykir fólki horfa vel með félagslífið hér í vet- ur, þar sem eina samkomuhús sveitarinnar, Veitingahúsið Bjarg, brann til grunna nú fyrir skömmu. Slátrun sauðfjár er lokið í sýslunni, en þessa dagana er verið að flytja allt fé af tveimur bæjum í Haukadal til slátrunar í Borgamesi vegna mæðiveiki. Alls mun hafa verið slátrað um 35 þús. fjár í sláturstöðum innan hér- aðs. Er það nokkru fleira en verið hefur. Vænleiki dilka mun vera svipaður og í fyrra. Hrúta-ýningar voru hjá nokkrúm sau.ðfjárx'æktarfé- lögum í sýslunni í haust. Að- aldómari var Leifur Kr. Jó- hannesson héraðsráðunautur í Stykkishólmi. Sýndir voru 255 hrútar. Hlutu 81 fyrstu verðlaun, 82 önnur verðlaun, 50 hlutu þriðju verðlaun, en 42 hlutu engin verðlaun. — BFF Narfi kaupir bátafisk vestra TÁLKNAFIRÐI 9/11. — Fyrsti báturinn, sem hóf hér haust- róðra með línu, var Guð- mundur á Sveinseyri; hann byrjaði 25. okt. Síðan hafa Sæúlfur og Sæfari bætzt við. Aflinn hefur verið frá 3'A upp í 9V, tonn í róðri. Nú um helgina mun togai-inn Narfi koma hingað og kaupa fisk af bátunum til sölu á erlendum markaði. — JE um að vera, öldugangur, ágjöf. Sundurtættur heimur, myndi ein- hver segja sem væri miður vinsam- legur. Samt sem áður hleypir Valtýr frumpörtum myndarinn- ar ekki upp með neina óþekkt Hann er athugull bygginga- meistari. Hann lokar á eftir sér. Sumar myndanna heita eitt- hvað. Ein heitir „Mjúkir litir** önnur heitir „Ljós bygging". Þriðja heitir „Átak“. Það er mjög ákveðinn heildarsvipur á myndunum, fingraför Valtýs eru mjög greinileg. Valtýr talaði um þessar breyt- ingar sem áður var getið. Ég er orðinn impressjónistískari en áður, sagði hann. En það er margt sameiginlegt með þess- um myndum og þeim fyrri. Ekki má gleyma því að maður Valtýr Pétursson. lærir ýmislegt í byggingu af því að vinna eins stíft og strangt og ég gerði áður. Hins vegar vildi Valtýr ekkert segja að ráði um náttúruskoðun og abstraktmálverk. Kannske hann hafi grunað spyrjandann um samúð með natúralisma. Jú hann hafði verið í Moskvu með íslenzka sýningu, og þegar heim kom gerði hann mynd sem hann kallaði lögregluþjón i Moskvu, svo sem til að hrella menn. Það var svo einkenni- legur rauður litur í búningi þeirra. Islenzk náttúra? Það er ákveðið náttúrandrúmsloft í sumum þessar mynda. Auðvitað málum við Islendingar með öðrum litum en aðrar þjóðir. Við erum meiri náttúruböm en Parísarbúar. Annars er ég alveg stefnu- laus í myndlist um þessar mynd- ir sagði Valtýr. Allar stefnur eru góðar. Sýning Valtýs Péturssonar verður opin til 25. nóvember. Á.B. Þing Landssam- bands vörubif- reiðastjóra 5. þing Landssambands vöru- bifreiðastjóra verður sett kl. 2 í dag, Rétt til að sitja þingið eiga um 40 fulltrúar frá 36 vörubif- reiðastjórafélögum, Skélaferð ★ Farið verður í skíðaskála ÆFR um helgina. Lagt af stað frá Tjarnargötu 20 kl. 4 síðdegis í dag. — ÆFR. t

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.