Þjóðviljinn - 04.01.1963, Side 1

Þjóðviljinn - 04.01.1963, Side 1
Föstudagur januar argangur tölublað. Sildveiðískipin í margföldum bryggjur í Reykjavíkurhöfn í gærdag. — Lm. Þjóv. A.K. Mikil síldveiði en versnandi veður Mjög góð síldveiði var í fyrrinótt og fengu 71 skip 65.000 tunnur. Aðal- veiðisvæðin voru í Mið- nessjó og norðvestur af norðri frá Garðskaga, þar sem góð söltunar- síld fékkst. Síldin úr Miðnessjónum og eins síld sem fékkst á Eldeyj- arbanka og fyrir sunnan land var ekki eins góð, allmikið blönduð. Veður var gott, en í gærkvöld var það farið að spillast og ekki gott að spá um veiði af þeim sökum. T.d. var orðið ófært undir Jökli og virtist vera að hvessa á syðri miðunum. Til Reykjavíkur komu 20 bát- ar með tæpar 20.000 tunnur. All- margir þeirra voru með ágæta síld, sem fer ýmist í verkun eða til útflutnings. Hæstur þessara báta var Sigurður Bjarnason 2.8 milljónum uthlutað í 55 staði Úthlutun sjóslysasöfnunarinnar 1961—1962 hefur fyrir nokkru lokið störfum. Úthlutað var kr. 2.8 millj. í 55 staði og hefur féð verið sent hlutaðeigendum eða afhent þeim fyrir milli- göngu sóknarpresta eða yfirvalda á viðeigandi stöðum. Mun rík- isstjórninni afhent greinargerð um úthlutunina ásamt þar að lútandi gögnum, þegar kvittanir hafa borizt frá viðtakendum til nefndarinnar. . tunnur, Guðmundur var með 1700, Pétur 1500, Björn Jónsson voru með 1200 hvort með 1800 Þórðarson Sigurðsson og Hafrún og Heiga með 1300, Ólafur bekk- ur og Sæfari voru með 1150, Þráinn 1100, Hafþór og Nátt- fari 900 hvor, Sæþór, Sigurfari og Víðir SU með 800 hver, Hall- dór Jónsson og Svanur með 750 hvor, Hallveig Fróðadóttir með 600, Ásgeir 500. Akraborg 450 og Hannes lóðs 400. Akranesbátum gekk vel. Þang- að komu 16 bátar með 14.000 tunnur. Þeir voru á sömu slóðum og aðrir og sumir komu með góða sí]d aðrir með bland- aða Skirnir var aflahæstur með 1800 tunnur, Sigurður 1300, Ól- afur Magnússon 1130, Haraldur og Fiskaskagi 1000 hvor, Keilir 950, Anna 925, Náttfari og Sæ- fari 900 hvor, Höfrungur og sig- rún 800 hvort, Sveinn Guð- mundsson 750, Reynir 600, Heimaskagi 500. Ver 400 og Sig- urvon 100. Til Keflavíkur komu 16 bátar með 16.000 tunnur og vitað var um einn sem lá úti með 300, það var Eldey. Hæstur var Gunnólf- ur með 1700, Víðir II 16,00, Hilm- ir og Ingiber Ólafsson með 1300 hvor, Bergvík 1200, Ámi Geir og Manni með 1100 hvor, Ámi Þor- kelsson og Vonin II með 1000, Jón Finnsson, Jón Guðmundsson og Jón Oddsson 800 hver, Kópur og Sigurbjörg með 600 hvor, Heimir og Steingrímur trölli voru með 500. Hafnfirðingum gekk ekki lak- ar en öðrum, 11 bátar voru með- tæpar 9000 tunnur. Aflahæstur Eldborg með 1700, Fákur 1400, Héðinn 1350, Fjarðaklettur og Auðunn voru með 1000 hvor, Álftanes og Hringur voru með 450, Ársæll Sigurðsson, Gísli lóðs og Fram með 400 og Mána- tindur með 250. Sjá 2 og 12 síðu Skrifstofa Happdrættis Þjóðviljans að Þórsgötu 1 verður opin fyrst um sinn daglega frá kl. 10 árdegis til 6 síðdcgis. Símmn er 17514. Eigendur og handhaf- vinningsnúmera (þau hafa verið birt ar í blaðinu inganna í undanfarna daga) skrifstofuna. vitji vinn- Rannsókn lokið a Samkvæm.t upplýsing- um saksóknara ríkisins, Valdimars Stefánssonar, lauk rannsókn Brimness- málsins svonefnda í des- ember sl. og var málið þá sent til saksóknara til athugunar og sagði hann í viðtali við Þjóðviljann í gær, að að henni lok- inni yrði úrskurðað um meðferð þess eftir því sem efni og ástæður þættu til. Kvað hann ó- gerlegt að segja til um, hve langan tíma þessi at- hugun tæki. Það var á sl. vori að dóms- málaráðherra fyrirskipaði rann- sókn á viðskiptum Axels í Rafha og ríkissjóðs vegna Brimnessút- gerðarinnar og var Logi Einars- son yfirsaksóknari skipaður setu- dómari í málinu. Átti Þjóðviljinn stutt viðtal við hann í gær en hann varðist allra frétta um nið- urstöður rannsóknarinnar og vís- aði til saksóknara sem einnig varðist allra frétta um það efni. Mun rannsókn málsins hafa reynzt allumfangsmikil og taf- samari en ráð var fyrir gert. Áður en dómsmálaráðherra fyrirskipaði rannsóknina á sl. vori höfðu þingmenn Alþýðu- bandalagsins oftar en einu sinni flutt á Alþingi tillögu um opin- bera rannsókn þessa máls og Þjóðviljinn margsinnis krafizt 1 gærkvöld var slökkviliðið kvatt að geymsluskúr við Háa- leitisbraut. Skúrinn var alelda er á staðinn var komið og eyði- lagðist hann alveg og það sem í honum var geymt, sófi og 2 djúpir stólar. Skúrinn var úr timbri, jámklæddur. Axel Kristjánsson rannsóknar á því en árangurs- laust þar eð forkólfar Sjálfstæð- isflokksins héldu stöðugt hlífi- skildi yfir Axel og komu í veg fyrir að rannsókn yrði samþylskt. I kosningahitanum í vor þegar í odda skarst með stjórnarflokk- unum í Hafnarfirði hafði dóms- málaráðherra loks sjálfur frum- kvæði um að fyrirskipa rannsókn málsins, þótt hann og flokks- bræður hans hefðu áður staðið gegn því að hún yrði samþykkt af Alþingi. Nonni í nota- Jegum fagnaoi Blóðhundurinn Nonni er| mikil skepna á velli og hreintl ekki frýnilegur, en allt um| það er hann þegar 1 miklul afhaldi hjá þessum ungul hafnfirzku skátastúlkum.| Ekki er annað að sjá en dá-l lætið sé gagnkvæmt. (Ljósm.l Þjóðv. G.O.) — Sjá frétt á| 2. síðu. 4.019 sagt upp SANTA MONICA, Kallfomíu 3/1 — Douglas-flugvélaverksmiðjum- ar sem áttu að leggja til flesta hluta Skybolt-eldflaugarinnar sem nú hefur verið hætt við að smíða, tilkynntu í dag að þser myndu verða að segja upp 4.000 starfsmönnum stoum af þeim sökum. Uppsagnirnar munu ganga í gildi eftir einn mánuð. Hér er um að ræða um tíunda hluta alls verkafólks Douglas- verksmiðjanna. Sjúkrasamlags- gjöld hækka úr kr. 54 í kr. 60 Frá og með 1. janúar 1963 hækka iðgjöld Sjúkrar- samlags Reykjavíkur og verða þau nú 60 krónur á mánuði í stað kr. 54.00 eins og þau voru síðast liðið ár. Þjóðviljinn snéri sér til forstjóra Sjúkrasamlagsins í gær og spurði hann um orsökina fyrir þessari ið- gjaldahækkun. Sagði hann, að hún stafaði fyrst og fremst að hækkun sjúkra- húsagjalda er tók gildi nú um áramótin en einnig kæmi fleira til, m.a. að vegna breytinga á gjaldheimtufyrirkomulagsi Sjúkrasamlagsins innheiimt- ust iðgjöldin á þessu ný- byrjaða ári mun síðar á árinu en verið hefur og væri samlagið af þeim sök- um þurfandi fyrir hærri gjöld en áður. Gjaldheimtan heíur nú tekið við innheimtu sjúkra- samlagsgjalda og er fyrsti gjalddagi þeirra 1. febrú- ar n.k. og munu Skýrslu- vélar þá útbúa ný skírteini fyrir árið 1963 sem þeir fá, sem eru skuldlausir fyr- ir árið 1962, en þangað til nýju skírteinin verða gef- in út gilda gömlu skírtein- in frá 1962 án þess greiðsl- ur séu færðar inn á þau. Nýju skírteinin gilda i eitt ár. Reglur um réttinda- missi og biðtíma eru ó- breyttar frá því sem verið hefur. TT\r • rP • loniir aieugis- kassar finnast VífilsstaSahranni í 1 fyrradag fann lögreglan f Reykjavík marga tóma kassa undan áfengi í helli í Vífil- staðahrauni, er hún gcrði þar lcit cftir tilvísun skáta sem höfðu orðið varir við að kass- arnir voru þarna. Alls var þama um 47 kassa að ræða undan ýmsum tegund- um áfengis og báru þeir all:r merki Áfengisverzlunarinnar. Ekki er vitað hvemig á því stendur að kassar þessir vont þarna niður komnir en engu áfengi hefur verið stolið frá Áfengisverzluninni. Kassamir hafa hins vegar aðeins verið skamma hríð í hellinum þar eð skammt er síðan menn komu bar og þá að tómum kofuml

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.