Þjóðviljinn - 05.01.1963, Blaðsíða 1
Nýr fískur hækkar \
um 9.5 tíl 17.5%
Verðlagsnefnd hefur ákveðið nýtt hámarks-
verð á nýjum fiski í smásölu og er þar um
mikla hækkun að ræða eða frá 9,5% upp í
17,5% eftir tegundum og verkun. Sagði verð-
lagsstjórj í viðtali við Þjóðviljann í gær, að
hækkun þessi ætti rætur að rekja til þess, að
fiskverð til bátanna hækkaði um 39 aura kg.
nú um áramótin. Hins vegar er ekki um álagn-
ingarhreytingu að ræða.
an
Hækkunin verður sem hér
hér segir:
Nýr þorskur slægður með
haus hækkar úr kr. 3.15 kg.
í kr. 3.70 eða um 17.46%.
Nýr þorskur slægður og
hausaður hækkar úr kr. 3.95
kg. í kr. 4.60 eða um 16.45%.
Ný ýsa slægð með haus
hækkar úr kr. 4.35 kg. í kr.
4.90 eða um 12.64%.
Ný ýsa slægð og hausuð
hækkar úr kr. 5.45 kg. í kr.
6.10 eða um 11.93%.
Nýr þorskur flakaður
þunnilda hækkar úr kr. 8.50 ^
kg. í kr. 9.50 eða um 11.76%.
Ný ýsa flökuð án þunnilda
hækkar úr kr. 10.50 kg. í kr.
11.50 eða um 9.52%.
Fiskfars hækkar úr kr. 11.50
kg. í kr. 13.00 eða um 13.05%.
Eins og sézt af þessarS upp-
talningu hækkar kílóið af
slægðum og hausuðum fiski
bæði þorski og ýsu, um 65
aura en af fiski með haus um
55 aura. Er verðhækkunin á
þorskinum því hlutfallslega
meiri þar sem hann var ó-
dýrari. Flökin hækka um 1.
kr. kílóið en fiskfarsið um kr.
1.50.
Siðasta stórhækkun á fisk-
verði var í febrúar í fyrra en
í haust varð einnig nokkur
veröhækkun á nýjum fiski.
Samningar hófust
um kjör félaga í
við
■$>-
Fyrsti samningafundur Kjararáðs opinberra
starfsmanna og samninganefndar ríkisstjórnar-
innar um kjör opinberra starfsmanna fór fram í
gær kl. 4 síðdegis, en sáttasemjari ríkisins, Torfi
Hjartarson, hefur milligöngu um samningana.
Sáttasemjari tjáði blaðinu í
gærkvöld, að samningsaðilar
hefðu orðið ásáttir um að ræð-
ast við án milligöngu sáttasemj-
ara fram til mánaðamóta, enda
er gagntilboð við samnings-
grundvelli BSRB ekki enn kom-
ið fram af hálfu ríkisstjórnar-
innar. Sáttasemjari mun svo taka
málið í sínar hendur um mán-
aðamótin, hafi ekki náðst sam-
komulag þá.
Fundurinn í gær var því tæp-
ast samningafundur í venjuleg-
um skilningi.
Viðtal við Harald
Steinþérsson
Þjóðviljinn átti fyrir skömmu
viðtal við Harald Steinþórsson,
en hann er starfsmaður BSRB
og 2. varaíorseti sambandsins.
Haraldur hefur sem kunnugt er
unnið mikið að kjaramálum op-
inberra starfsmanna og var hon-
um, ásamt Guðjóni B. Baldvins-
syni, falið að safna gögnum til
undirbúnings tiUögum BSRB um
launakjör opinberra starfsmanna.
Kjararáð bandalagsins gekk síð-
an frá endanlegum tiUögum um
launaflokka og röðun hinna
ýmsu starfshópa í þá. Þessar
tillögur voru lagðar fyrir samn-
inganefnd ríkisstjórnarinnar sem
samningsgrundvöllur þann 22.
nóv. s.l.
Viðtal Þjóðviljans við Harald er
birt á 9. síðu blaðsins í dag, og
rekur hann þar gang þessara
mála frá því s.l. vor fram til
þessa. Einnig er skýrt frá nokkr-
um fjölmennustu starfshópunum
í þeim launaflokkum, sem allur
þorri ríkisstarfsmanna myndi
verða í samkvæmt tillögum
Kjararáðs BSRB. — Það skal
tekið fram að viðtalið fór fram
fyrir nokkrum dögum, og var þá
ekki búið að boða til fyrsta
samningsfundarins eins og sjá
má af viðtaUnu.
Leikur að eldi
Laust fyrir hádegi í gær var
slökkviliðið kvatt að húsinu
númer 33 við Ásvallagötu, en
þar hafðj eldur komist í glugga-
tjöld í kjallaraherbergi. Þau
brunnu og einhverjar skemmdir
urðu á veggnum fyrir neðan
gluggann. Börn munu hafa ver-
ið að leika sér með eldspýtur í
glugganum og af því varð bálið.
ÞÓRSHÓFN, Fær
eyjum 4/1 (Frá
fréttaritara Þjóðvilj-
ans) — Um eittleyt-
ið í nótt tókust
samningar milli
fjögurra flokka Lög-
þingsins, þeirra sem
vilja halda fast við
sjálfstæði Færey-
inga, Þjóðveldis-
flokksins, Fólka-
flokksins, Sjálf-
stjórnarflokksins og
Framfaraflokksins,
um myndun lands-
stjórnar sem setur
sér það mark að efla
andlegt og efnalegt
sjálfstæði þjóðarinn-
ar. Flokkarnir f jórir
sem samtals hafa 15
af 29 þingmönnum á
Lögþinginu (Þjóð-
veldisflokkurinn 6, Fólkaflokkurinn 6, Sjálfsstjóm-
arflokkurinn 2 og Framfaraflokkurinn 1) urðu á-
sáttir um myndun Landsstjómar og um víðtæka
stefnuskrá, þar sem megináherzlan er lögð á rétt
færeysku þjóðarinnar til að ráða sínum málum og
gerbreytingu atvinnuhátta í landinu. (Nánar er
sagt frá stjórnarmynduninni í Færeyjum á þriðju
síðu og þar birtist einnig viðtal við formann Þjóð-
veldisflokksins og nýorðinn varalögmann Færey-
inga, Erlend Patursson).
Erlendur Patursson
Á fyrsta fundinum
Frá samningafundinum í gær. Á myndinni sjást talið frá vinstri:
Haraldur Steinþórsson kennari, starfsmaður Kjararáðs BSRB, Teít-
ur Þorleifsson kennari, Magnús Torfason prófessor, Inga Jóhann-
esdóttir, Guðjón B. Baldvinsson fulltrúi og Knistján Thorlacius for-
seti BSRB, allt fuiltrúar BSRB, Torfi Hjartarson sáttasemjari, þá
eru fulltrúar ríkisstjórnarinnar Sigtyggur Klemenzson ráðuneytis-
stjóri, Gunnlaugur Briem ráðuneytisstjóri, Jón Þorsteinsson alþing-
ismaður og Jón E. Þorláksson, ritari samninganefndar ríkisstjórn-
arinnar. — (Ljósm. Þjóðv. A. K.).
Lítil síldveiði
1 fyrrinótt var lítil síldveiði,
enda óhagstætt veður. 16 skip
fengu um 10.000 tunnur suð-
vestur af Eldey. Að því er leit-
armenn lóta hafa eftir sér eru
j.orfur góðar og nóg síld í sjón-
um.
Veðurstofan kvað ágætt veiöi-
'itlit á miðunum í nótt, dálítill
'lástur væri við Vestmannaeyj-
r, en hægviðri vesturundan.
;tti því að vera óhætt að spá
;.óðum löndunum í dag.
fjöhnenn-
ustu hóp-
urnir / 7.
tii 17.11.
EINS OG Þjóðviljinn hefur áð-
ur skýrt frá, Ieggur Kjararáð
BSRB til að launaflokkar op-
inberra starfsmanna verði 31
og verði byrjunarkaup frá kr.
5.050,00 til 32.828,00. Bæði
nokkrir lægstu og nokkrir
efstu Iaunaflokkarnir eru tii-
tölulega fámennir, og er allur
þorri opinberra starfsmanna í
7.—17. flokki cins og fram
kemur í viðtalinu við Harald
Stelinþórsson, starfsmann
BSRB, í blaðinu í dag.
HÉR Á EFTIR verða taldir upp
fjölmennustu starfshópaTnir í
þessum launaflokkum:
FLOKKUR: Afgreiðslufólk
(Sjálfstæð afgrciðslustörf í
birgðageymslum og skrifstof-
um), innheimtumenn (t.d. toll-
stjóra, útvarpi o.fI.) bréfber-
ar o.fl.
7.
8. FLOKKUR: Talsímákonur
(innanlandsþjónusta), vélritar-
ar II (véMtun eftir upplestri
á ísl. og (eða) eftir handriti
á erL málum. Ritun á bók-
haldsvélar) o.fl.
9. FLOKKUR: Bókarar II (úr-
vinnsla bókhaldsgagna —
færsla undirbóka — minnl-
háttar skýrslugerðir) o.fl.
10. FLOKKUR: Talsímakonur
(utanlandsþjónusta), vélritar-
ar I (semja bréf eftir fyrir-
sögn og vélrita eftór upplcstri),
o.fl.
11. FLOKKUR: Iðnaðarmenn
(sveinspróf), slökkviliðsmenn
o.fl.
12. FLOKKUR: Símritarar, loft-
skeytamenn, símvirkjar, bók-
arar I (verzlunarskólapróf),
tollverðir, lögregluþjónar o.fl.
13. FLOKKUR: Fulltrúar (skipt-
ing síðar), ljósmæður o.fl.
14. FLOKKUR: Vélstjórar (vél-
stjórapróf), hjúkrunarkonur
(menn) o.fl.
15. FLOKKUR: Fulltrúar (skipt-
ing síðar), gjaldkerar (stofn-
ana með mikla peningaveltu
o.þ.u.I.) o.fl.
16 FLOKKUR; Sérlærðar hjúkr-
unarkonur, barnakennarar
o.fl.
17. FLOKKUR: Flugumferðar-
stjórar I (I.F.R.), Kennarar
við gagnfræðaskóla o.fl.
SEM FYRR segir cru hér aðeins
teknir nokkrir fjölmennustu
starfshóparnlir í þessum
launaflokkum. 1 desemberhefti
„Ásgarðs‘% tímarits BSRB eru
birtar tillögur Kjararáðs
BSRB um Iaunastiga og tillög-
ur um röðun í launaflokka,
og gcta menn kynnt sér tillög-
urnar ýtarlega þar. Blaðið
mun hafa verið sent til allra
meðlima BSRB, og fæst einn-
Ig f bókabúðum.