Þjóðviljinn - 09.01.1963, Side 1
Miðvikudagur 9. janúar 1963 — 28. árgangur — 6. tölublað.
BUR rekur síldarskipshöfn
Seínt í gærkvöld frétti
Þjóðviljinn, að Hafsteinn Berg-
þórsson forstjóri Bæjarút-
gerðar Reykjavíkur hefði síð-
degis í gær sagt upp allri
skipshöfn svo og skipstjóra á
Leif Eiríkssyni, en báturinn
var nýkominn úr slipp og
rétt búið að ráða á hann
skipshöfn og átti hann að fara
á síldveiðar í dag.
Orsök uppsagnarinnar mun
sú, að hætt mun nú við allar
frekari tilraunir til síldveiða
á Hallveigu Fróðadóttur og á
skipstjórinn á togaranum að
taka við Leifi Eiríkssyni á-
samt skipshöfn sinni, en hann
var áður skipsljóri á Leifi.
Mikff óánægja var ríkjandi
í gær meðal hinna brottreknu
skipsmanna á Leifi Eiríkssyni
og munu þeir hyggja á mál-
sókn á hendur BtJR.
!
i
i
i
Samvinna eða
samvinna ekki
í Hafnarfiréi
0 Miklar viðsjár eru nú í Hafnarfiirði milli Sjálfstæðis-
.iokksins og Framsóknarflokksins sem fara sameiginlega
með stjórn bæjarins. Fyrir nokkrum dögum samþykkti full-
trúaráð Framsóknarflokksins að setja Sjálfstæðisflokknum
skilyrði fyrir áframhaldandi samvinnu. Voru skilyrðin í
mörgum Iiðum og þar á meðal var þess krafizt að Sjálf-
stæðisflokksmaðurinn Óttar Hansson yrði látinn víkja sem
forstjóri Bæjarútgerðar Hafnarfjarðar og að Markús Jónsson
yrði aftur ráðinn verkstjóri, en brottvikning hans vakti
mikla reiði í Hafnarfirði eins og áður hefur verið rakið
hér í blaðinu.
0 Framsóknarflokkurinn krafðist þess að gengið yrði að
skíiyrðu'i.m fyrir sl. Iaugardag, annars væri samstarfinu
slitið Ekki höfðu nein svör borizt þann dag; hins vegar
ræddust efstu menn á bæjarstjórnarlistum beggja flokka
við þá um daginn og gerðu bráðabirgðasamkomulag sín á
milli, og lofaði bæjarfulltrúi Framsóknar að koma því
fram í flokki sínum.
0 Þetta samkomulag var borið undir fulltrúaráð Fram-
sóknarflikksins í fyrrakvöld og var fellt, þrátt fyrir fyrir-
heit bæjarfulltrúans.
0 Hefði mátt ætla að þar með væri samvinnunni um
stjórn bæjarins slitið, þar sem fresturinn var liðinn og ekk-
ert nýtt samkomulag hafði náðst. Eftir því sem ÞJÓÐ-
VILJINN komst næst i gær munu þó enn gerðar tilraun-
5r til að neyða Framsóknarmenn til að falla frá skil-
yrðum sínum og lúta forustu Sjálfstæðisflokksins í einu
og öllu. Mun formaður Framsóknarflokksins, Eysteinn Jóns-
son, beita sér af aleflii fyrir því að samvinnan haldi áfram;
hann lítur á samstarfið í Hafnarfiröi sem einskonar stökk-
pall til að greiða fyrir ríkisstjórnarsamstarfi Framsóknar
og íhalds að loknum kosningum.
Síldarmjöli
skipað út
★ Undanfarna daga höfum vlð
★ birt myndir af síldarbátunum
★ að koma að landi drekkhlöðn-
★ um. Að þessu sinni breytum
★ við útaf og birtum mynd af
★ síldarútskipun. Er myndin tek-
★ in við höfnina, þegar verka.
★ menn voru að skipa síldar-
★ mjöli um borð í Tröllafoss,
★ en það er flutt út í 50 kílóa
★ pappirspokum. — (Ljósm.
★ Þjóðv. A.K.).
LoftSeiðir bjóðast
til að útvega lán
Sigurður Magnússon
fulltrúi skýrði Þjóðvilj-
mum svo frá í gær, að í
desember hefðu Loftleið-
ir sent ríkisstjórninni
bréf þar sem félagið
bauðst til að útvega rík-
issjóði fjögurra milljón
króna lán til þess að gera
við Reykjavíkurflugvöll
og lengja flugbrautir
hans. Hins vegar sagði
hann, að félaginu hefði
enn ekki borizt svar við
þessu tilboði.
DagblaSið Vísir skýrði frá
þessu lánstil'boði í gær og
hafði það eftir Ingólfi Jónssyni
samgöngur*’ '1 ' að Loft-
leiðir hef ’ Tzl ti1 að ^lána
xíikisstjórninni allt að fjórum
milljónum króna í fyrrgreindu
skyni. Sagði Sigurður, að þarna
væri rangt frá hermt, félagið
hefði ekki boðizt til þess að
’.ána þessa fjárhæð sjálft heldur
aðeins til þess að útvega hana
að láni.
Vísir hefur það einnig eftir
ráðherranum, að bréf Loftleiða
hafi ekki borizt fyrr en fjár-
veitinganefnd hafði lokið störf-
um og hafi ríkisstjórnin enga
afstöðu tekið til tilboðsins enn-
þá, enda ekki verið aflað heim-
ildar til slikrar lántöku.
f fyrrinótt fengu 22 skip sam-
tals um 28.800 tunnur síldar
austarlega í Grindavíkursjó.
Mikið af síld hefur fundizt í
Jökuldjúpi, en hún stendur djúpt
og gefur sig ekki.
Aðalveiðitíminn er nú á morgn-
ana fyrir birtingu, en sáralítið
um miðnættið. Kenna sjómenn
því um að svo bjart sé af tungli
að síldin komi ekki upp. Bezt
mun veiðin vera þegar loft er
skýjað.
Hingað til Reykjavíkur komu
13 bátar með 11.850 tunnur og
var Sigurður Bjarniason með
mestan afla. eða 1800 tunnur.
Pétur Sigurðsson var með 1700,
Sólrún 1200, Hafþór og Guð-
muiidur Þórðarson með 1000
tunnur hvor, Ásgeir 900, Súlan
Skíðaferð
Skíðaferð í skála ÆFR um
næstu helgi. Upplýsingar í
skrifstofu ÆFR í Tjarnargötu
20, simi 17513.
850, Viðir SU 800, Ólafur Magn-
ússon 700 og sprunginn poka,
Sigurfari 500, Sæfari 600, Run-
ólfur og Arnkell 400 hvor.
Síld þessi er sæmilega góð
í frystingu og til útflutnings ís-
uð en óhæf til söltunar.
Alþjóðaráðstefna haldin
um öryggi fískimanna
Hafinn er undlrbúningur al-
þjóðlegrar ráðstefnu í Genf, sem
fjalla skal um öryggi fiskiskipa.
Ráðstefnan er kölluð saman að
tilhlutan Alþjóða vinnumála-
stofnunarinK^ir.
Undirbúningsnefndin hefur
bent á, að í raun og veru hafi
fiskiskip verið undanþegin þeirri
skyldu að hafa um borð öll þau
tæki, sem nauðsynleg eru öryggi
skipshafnarinnar og hún hefur
sett fram grundvallaratriði, sem
eiga að tryggja að fullu hags-
muni fiskimanna gegn og vegna
slysa við störf og atvinnusjúk-
dóma.
Skákbing Reykja-
víknr hefst á
sunnudaginn
Skákþing Reykjavíkur hefst n.
k. sunnudag, 13. janúar. Ekki er
enn að fullu ákveðinn taflstaður
fyrir þingið, en Taflfélagið gengst
fyrir æfingum í Breiðfirðingabúð
þessa dagana og verður sú síð-
asta líklega á fimmtudagskvöldið.
Þá og þar er síðasta tækifærið
til að tilkynna þátttöku í skák-
þinginu, en þangað til er einnig
hægt að gera það í síma 15899.
Hér í blaðinu mun verðafylgzt
með gangi mótsins á meðan það
stendur yfir og leitazt við að
skýra lesendum frá því jafn-
óðum.
um Eggert Stef-
ánsson á mánud.
Minningarathöfn um Eggcrt
Stefánsson söngvara og rithöf-
und verður haldinn í Dómkirkj-
unni i Rcykjavík n.k. mánudag
14. janúar kiukkan 10.30 árdegis.
I
Sjaldan
bregður
vana sinum
1
Fjárhagsáætlun Reykja-
víkurborgar fyrir árið 1963 |l
var afgreidd í borgarstjóm |
rétt fyrir jólin eins og frá k
hefur verið skýrt í fréttum ®
hér í blaðinu. Að venju b
felldi íhaldið, vísaði frá eða J
til ,,svefns“ í nefndum ■
öllum breytingartillögum J
og ályktunartillögum borg- ■
arfulltrúa Alþýðubanda- J
lagsins og annarra minni- O
hlutaflokka í borgarstjóm, B
hvers cðlis scm þær vom J
og hversu brýn hagsmuna- B
mál sem þar var um að j?
ræða fyrir borgarbúa að B
þær næðu fram að ganga. w
Hins vegar er ekki ólíklegt, I
ef að vanda iætur, að í- k
haldið eigi eftir að taka B
upp eitthvað af þessum til- b
lögum, gera þær að sínum, ®
samþykkja þær þá og stæra b
sig síðan af „fmmkvæð- J
inu“, þótt ekki mætti sam- ■
þykkja þær nú, er þær J
voru fluttar af öðram. H
Þannig hafa vinnubrögð J
borgarstjórnaríhaldsins þrá- B
faldlega verið og er það w
raunar loflegt, að það skuli i|
þó stundum um síðir sjá k
villp síns vegar og taka 9
upp umbótatillögur Alþýðu- 9
bandalagsins. Það mætfi b
auk hcldur gerast oftar ®
en raun ber vitni.
Á annarri síðu blaðsins
í dag er viðtal við Öddu
Bám Sigfúsdóttur borgar- B
fulltrúa um álykíunartillög- J
ur þær. er hún flutti við |
afgreiðslu fjárhagsáætlun- ?
arinnar, og þá afgreiðslu, B
er þær hlutu
rneirihlutanum.
hjá íhalds-