Þjóðviljinn - 16.01.1963, Page 1

Þjóðviljinn - 16.01.1963, Page 1
Stórfelidur samdréffur í ífcúðo- byggingum í Reykjavík - Sjé við- tai við Guðmund Vigfússon é 2. síðu Bæjarstjórnin i Hafnarfírði: Samvinnuslit Framsókn ar og íhaldsins í gær i ! ,Aðstoðin" við togarana Svívirðileg féfl ing bátaútveg: f gær var gerð að um- talsefni sú furðulega ráð- stöfun stjórnarvandanna, að neita fyrirtækinu „ís- lenzkur fiskur“ um út- flutningsleyfi fyrir 10.000 tonnum af ísaðri síld á þeim forsendum að togar- arnir verði að sitja að út- flutningi ísvarinnar síldar. „íslenzkur fiskur“ hafði gert samning við þ'.zkt fyrirtæki um kaup á þessu magni og vildu Þjóðverj- ar borga 3 krónur fyrir kilóið af stórsíld og 2,60 fyrir kg. af smásíld komna um borð í skip hér. Þetta verð er meira en 100% hærra en sdldarútvegs- menn fá nú. 1 gær og á mánudaffinn seldu 5 togarar síld í Vestur- Þýzkalandi, ýmist eingöngu eða með eigin afla. AIls seldu skipin 1000 tonn af síld fyr- ir 5,9 milljðnir. Síld þessa hafa togaraeigendur keypt yið skiipshlið fyrir kr. 1.57 kílóið eða 1570 krónur tonnið, alls fyrir 1,7 milljónir króna. Brúttóhagnaður togaraeigenda af þessum útflutningi er því um 4,2 milljónir. Eitj skipa þessara var tog- arinn Freyr, eign Ingvars Vil- hjálmssonar. Hann fékk feiknaverð, eða um kr. 6,40 fyrir kílóið, alls 1.7 milljón- ir fyrir farm, sem kostar 429.000 hér. Brúttóhagnaður Ingvars af þessum eina farmi, er því um 1,3 milljónir króna. Ingvar gerir sjálfur út a.m. k. 3 síldveiðibáta, Ásgeir, Ilaf- þór og Bjöm Jónsson. Hann hefur sjálfsagt tekið síldina af þeim að mestu eða öllu leyti og borgað fyrir hana skiptaverðið kr. 1.57 á kíló. Ekki þarf að gera því skóna að sjómennirnir á síldarbát- um Ingvars fái nokkra hlut- deild í hinu háa verði, sem fékkst y.tra. Hér er því um lögvemdaða féflettingu að ræða. Aðstoð ríkisvaldsins við togarana, með því að Iáta þá sitja fyrir útflutningi síldar- innar, er því fólgin í því að ræna miklum fúlgum úr vös- um bátasjómanna og afhenda þær togaraeigendum með djúpu bugti. — G.O. Landhelgisfíugvélin SIF stórskemmist I Snemma í gærmorgun vildi til það óhapp á Reykjavíkurflugvelli, að kranabíl var ekið inn- undir væng nýju land- helgisflugvélarinnar þar sem hún stóð utan við flugskýli Landhelgis- gæzlunnar og varð vængurinn fyrir miklum skemmdum sem enn eru ekki að fullu kannaðar hve alvarlegar eru. Þjóðviljinn snéri sér í gær til Péturs Sigurðssonar forstjóra Landhelgisgæzlunnar og spurði hann eftir skemmdum á vélinni og hvernig þetta slys hefði bor- ið að. Samkvæmt frásögn Péturs stóð Sif en svo heitir flugvél- in. íyrir utan flugskýiið tilbúin til flugs er kranabíl frá Lands- smiðjunni var ekið á hana. Átti að fara að vinna með kranan- um að viðgerð á flugskýlinu. Gætti ökumaður kranabílsins þess ekki, að hann var með kranann á lofti er hann ók inn undir væng flugvélarinnar. Við áreksturinn hjó kraninn skarð í vænginn og reif hann neðan. Einnig laskaði kraninn einn benzíntank flugvélarinnar og rann benzín af tanknum. Var slökkvilið vallarins kvatt á vett- vang í öryggisskyni en sem bet- ur fór kviknaði ekki í benzíninu. Forstjórinn sagði að enn væri ekki vitað til fulls hversu alvar- iegar skemmdirnar á vélinni eru. Var vélin látin standa óhreyfð í gær til þess að benzínið þorn- aði upp en i dag verður hún væntanlega tekin(inn í skýiið og skemmdirnar á vængnum kann- aðar til hlítar. Skiptir það mestu máli. hvort aðalbitar í vængn- um hafa skemmzt eða ekki. Pétur sagði, að þeta slys með flugvélina kæmi sér ákaflega illa, Væri ógemingur segja um það, hve langan tímia við- gerðin tæki eða hvort hægt væri að gera til fults við vélina hér á landi. Það kæmi ekki í ljós fyrr en við nákvæmari sko;ðun á skemmdunum. Verður Landhelg- isgæzlan fyrst um sinn að not- ast við gömlu flugvélina, Rán, meðan þessi er í lamasessi. %ggteafn$his Hrútafirði 8/1 — í byrjun desember var lokið við að koma undir þak byggðasafns- húsi fyrir Stranda- og Húna- vatnssýslur, sem byggt er á Reykjatanga. Lokið var bygg- ingu nokkurs hluta hússins í fyrra og þar er nú til húsa Ófeigur hið fræga hákarla- skip frá Ófeigsfirði á Strönd- um. Húsið er samtals 550 fermetrar. Teikning var gerð á Teiknistofu landbúnaðarins. Byggingameistari er Hákon Kristjánsson. Búið er að safna allmiiklu af munum til safnsins. Þau tíðindi gerðust á fundi bæjarstjórnar Haínarfjarðar í gær að bæjarfulltrúi Framsókn- arflokksins gaf þá yfir- lýsingu að lokið væri samstarfi við íhaldið sem komst á — eftir talsvert bóf — að loknum bæj- arstjórnarkosningunum á úðasta sumri. Yfirlýsingin sem Jón Pálmason bæjarfulltrúi Framsóknarflokks- ins gaf er svohljóðandi: „Vegna alvarlegs ágreinings, sem risið hefur á milli Fram- sóknarflokksins og Sjálfstæðis- flokksins um samstarf í bæjar- málum og þar sem trúnaðarráð Framsóknarfélagsins hafnaði málamiðlun hinn 7. jan. sl. svo og með tilvísun til bréfs er full- trúar Framsóknarfélagsins ritaði bæjarfull.trúum Sjálfstæðis- flokksins hinn 3. jan. sl. lit ég svo á að bæjarmálasamningur- inn frá því í júlí 1962 á milli nefndra flokka, sé ekki lengur í gildi“. Blaðið hafði í gærkvöld sam- band við Kristján Andrésson bæjarfulltrúa Alþýðubandalags- ins í Hafnarfirði um þetta mál. Hann kvað það álit sitt, að sam- starf ihalds og Framsóknar, — sem mun líklega stytzta sam- starf um bæjarmál sem um get- ur — hafi f.yrst og fremst farið út um þúfur vegna furðulegs hroka íhaldsins gagnvart sam- starfsmönnum sínum og bæjar- búum yfirleitt. Þessi málalok má skoða sem sigur fyrir Verkamannafélagið Hlíf og þá menn, sem sætt hafa atvinnuofsóknum af hálfu íhalds- ins. Úm síðustU' áramót sögðu sem kunnugt er 14 verkamenn upp vinnu sinni hjá Bæjarútgerðinni til þess að mótmæla atvinnuof- sóknum hinna nýju húsbæuda, og Verkamannafélagið Hlíf studdi þessi mótmæli verka- manna. Framsókn treysti sér ekki leng- ur til að bera ábyrgð á þessum ofsóknum og fjandskap íhalds- ins við verkalýðshreyfinguna __ í bænum. Einnig hefur komið mjög skýrt fram hvað lítið mark var takandi á áróðri íhaldsins fyrir bæjarstjómarkosningarnar, þeg- ar það kvartaði sem mest yfir úi- svörum í Hafnarfirði. ISfu begar það átti að fara að stjóma bænum. gerði það kröfu um að hækka útsvör oig önnur^ gjöld bæjarbúa um 414 milljón, en það er mesta hækkun sem um getur i sögu bæjarins. Það er þannig í raun og veru verkamennirnir, sem knúið hafa fram þá atburði. sem nú hafa gcrzt og sigrað í þcssu máli, En um leið er það að sjálf- sögðu krafa nm að við laki nýr meirihluti, sem vill hafa vinsam- leg samskipti við verkalýðshreyf- bgmii Þessar óvenjulegu myndir eru teknar í þorpinu Toítse-Lykovo i nágrenni Moskvu. Þrir þorps- búar, Leond Alivín og bræðurn- ir Évgení og Léf Sjevaldisjef, hafa það fyrir fasta venju að synda á hverjum degi í Moskvu- ánni hvemig sem viðrar. Á efri myndinni sjást þremenningarn- ir leika knattspymu á íslnj/n áður en þeir hefja sundið en á neðri myndinni sjást tveir þeirTa á sundi í vök sem höggvin hef- ur verið í ísinn á ánni. Já það má með sanni segja um þessa pilta, að þeir séu „kaldir karlar“. FRÍTTIN YAR RUNNIN FRÁ FORMANNI ÍR Reynir Sigurðsson, formaður^ íþrót.tafélags Reykjavíkur, hefur sent blaðinu þessa atliugasemd vegna fréttar Morgunblaðsins um komu ungverska iþróttaþjálfar- ans Gabors til fslands: — Þar sem upphaflega fréttin í Morgunblaðinu um hingaðkomu Simonyi Gabors er frá mér runn- in, vil ég taka það fram, að mér þykir mjög leitt að umrædd frétjt Morgunblaðsins skuli hafa vaUíi luisskilningi meðal fólks. Flugvél hrapar í Brasilíu SAO PAULO 15/1 — Brasilísk farþegaflugvél af gerðinni Conv- air með 47 farþega innanborðs hrapaði í dag til jarðar skammt frá Sao Paulo. Slysið vildi til aðeins fimm mínútum eftir að flugvélin hóf sig til lofts. Talið er að um helmingur farþeganna hafi lifað slysið af.

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.