Þjóðviljinn - 01.02.1963, Blaðsíða 1
erjggr/BMgrJBBTJBBFÆBTJEBBTJOEBPÆBFJÆÆÆÆTJBSÆBÆFÆKFÆSFAtmr jMmr jmmt jaar æxsp *Btsr jmsar jsskkt Æli
i Alþýðuflokkurinn á valið
I Þyngdar álögur á al- stæðisfl. í Hafnarfirði. tekin upp vinstri
Föstudagur 1. febrúar 1963 — 28. árgangur — 26. tölublað.
\ menning en hlífð við Nú er það á valdi Al-
| einkafyrirtæki hefur þýðuflokksins, hvort
| einkennt hið skamma horfið verður frá þess-
| valdaíímabil Sjálf- ari stefnu íhaldsins og
stefna. Úr því fæst
skorið á næstu vikum.
Sjá frétt á 2. síðu
í dag.
Mikil síldveiði
Eyjabáta í gær
Mikil síldveiði var hjá
Vestmannaeyjabátum á
Skeiðarárdjúpi í gær-
morgun og bárust til
Vestmannaeyja í gær 20
þúsund tunnur og voru
4 togarar að lesta í gær
11 þús. tunnur á Þýzka-
landsmarkað, en afgang-
urinn fór í bræðslu.
Afli var misjafn hjá þeim bát-
um, sem losuðu síld í Vest-
mannaeyjum í gær og var frá
350 tn. allt að 1200 tn eða full-
fermi hjá nokkrum bátum. Þessi
skip komu inn til Eyja í gær:
Gjafar VE, Reynir VE, Ölafur
Magnússon, Kristbjörg VE, Öl-
afur Bekkur, Hafrún, Halkion,
Sigfús Bergman, Fákur, Sólrún,
Hringver, Haraldur, Leó, Huginn,
Víðir SU, Jón á Stapa, Ágústa,
Gunnólfur, Helgi Flóventsson,
Leifur Eiríksson, Sigurður
Bjarnason, Erlingur 3.
Um átta leytið í gærkvöld
var togarinn Egill Skallagríms-
son þegar lagður á stað, þar
sem nú mun vera síldarhungur
Framhald á 12. síðu.
Fjörir vðurkenna
en einn harðneitar
Réttarhöldin hófust kl. 2 í gær
í Vestmannaeyjum yfir þeim bát-
um, sem voru teltnir í fyrrakvöld
í landhelgi suðaustur af Ingólfs-
höfða að ólöglegum togveiðum.
Samkvæmt viðtali við Freymóð
Þorstéinsson, fulltrúa bæjarfógeta
í gærkvöld, en hann hafði með
málið að gera, höfðu fjórir bát-
ar þegar viðurkennt brot sitt, en
einn neitaði sakargiftum og verð-
ur haldið áfram réttarhöldum yf-
is honum í dag.
Þessir bátar hafa þegar viður-
kennt brot sitt. Ver, Glaður og
Farsæll, allir frá Vestmanna-
eyjum og Sævaldur frá Djúpa-
vogi. Sá sem neitar brotinu heit-
ir Unnur VE, en er nýseldur
til Eyrarbakka og gerður út af
Árvak h.f. Skipstjórinn er Reyk-
víkingur og heitir Þorbjöm
Finnsson.
Allir þessi bátar höfðu þegar
veitt einhvem afla, en á þessu
stigi málsins var ekki hægt að
fá upplýsingar um verðmæti
hans, þar sem dómar höfðu enn
ekki gengið fram í málinu.
Allir bátarnir eru gerðir út frá
Vestmannaeyjum.
Varðskipið Óðinn tók bátana
í landhelgi og hafði raunar næst-
um náð tveimur í viðbót, en þeir
sluppu í næturmyrkrið.
Börnin og gafon „þeirra
w
Nú er snjórinn að vísu farinn
og syrgja hann víst fáir nema
bömin og skíðagalgopar. Sá
háttur hefur verið hafður á
á undanfömum ámm að loka
einstökum götum og eftirláta
þær börnum og sleðum, þegar
snjóað hefur. Börnin hafa svo
sannarlega kunnað að meta
þetta og hér sjáum við fimm
krakka, sem halla sér fram á
girðinguna fyrir götunni „sinni“.
(Ljósm. Þjóðv. G. O.).
Bankamenn mótmæla póli-
tískum stöðuveitingum
I
I
I
Þreyttir stjórnmálamenn
mæna til Noregs
Á s.l. sumri varð Haraldur
Guðmundsson, sendiherra Is-
lands í Noregi, sjötugur og
átti þá að hætta störfum. Eins
og ævinlega þegar þvilíkt em-
bætti losnar hljóp rnikill fiðr-
Sigurður Bjarnason
ingur í stjórnarflokkana því
sendiráð íslands erlendis hafa
sem kunnugt er ekki sxzt ver-
ið notuð sem dvalarheimili
fyrir þreytta stjómmálamenn.
Sá fyrsti sem gaf sig fi’am var
sjálfur Guðmundur I. Guð-
mundsson utanríkisráðherra.
Bar hann við þreytu og lagði
einnig til að fyrirkomulagi á
Norðurlöndum yi-ði breytt og
aðeins yrði eitt sendiráð undir
hans stjórn, en Stefán Jóhann
Stefánsson sendiherra i Kaup-
mannahöfn er nú einnig mjög
að nálgast sjötugt. Þessi til-
laga Guðmundar vakti mikla
skelfingu meðal félaga hans í
Alþýðuflokknum, sögðu þeir
forustulið flokksins svo veikt
að Guðmundur mætti með
engu móti missa sig. Hefur
Guðmundur nú látið til leið-
ast að vera enn í kjöri fyrir
flokk sinn, en hefur jafnframt
áskilið sér rétt til að mega
segja af sér þingmennsku að
loknum kosningum og fara í
eitthvað sendiherraembætti.
Innan Sjálfstæðisflokksins
hefur Sigurður Bjarnason, rit-
stjóri Morgunblaðsins, sótt
það mjög fast að komast i
sæti Haralds. Honum var sem
kunnugt er stjakað af þingi
í síðustu kosningum, og síð-
an hefur hann krafizt þess að
fá verulega uppreisn. Hefur
hann dvalizt langdvölum á
þingi Sameinuðu þjóðanna til
þess að fá á sig orð sem sér-
fræðingur í utanríkismálum
og sótti um skeið fast að
verða fastafulltrúi íslands
þar, en sú nafnbót hefur hing-
að til tilheyrt Thor Thors
eilífðarsendiherra í Ameríku.
Einnig er hann tekinn að
safna orðum; nú síðast krækti
hann tjl að mynda í forláta
heiðursmerki frá Svíum án
þess að nokkur viti um tilefni
þess.
Ýmsir fleiri þreyttir stjói’n-
málamenn munu mæna löng-
unaraugum til Noregs um
þessar mundir, en ef til vill
frestar ríkisstjómin ákvörðun-
um fram yfir þingkosningarn-
ar til þess að styggja engan á
viðkvæmum augnablikum.
Á stjórnarfundi í Sam-1 janúar sl. voru samþykkt
bandi íslenzkra banka- með atkvæðum allra
manna er haldinn var 16. stjórnamefndarmanna
harðorð mófmæli gegn
því, að margar betri stöð-
ur í bönkunum séu veitt-
ar öðrum en starfandi
bankamönnum „án tillits
til hæfni eða síarfs-
reynslu, aðeins ef á-
kveðnum pólitískum
sjónarmiðum er full-
nægt“. Segir í samþykkt-
inni að þetta sé „hrein
móðgun við bankamenn“
og vítaverð og hættuleg
þróun.
I samþykktinni segir svo m.a.:
„Að gefnu tilefni vill stjóm
Sambands íslenzkra bankamanna
mótmæla harðlega þeirri þróun
mála í bönkunum, að margar
betri stöður eru veittar án þess
að starfandi bankamönnum sé.
gefinn kostur á að sækja um
þær. Nærtæk dæmi eru stöður
aðstoðarbankastjóra, sem veitt-
ar hafa verið síðustu daga.
Bankamenn leggja áherzlu á,
að nýir hættir verði uppteknir
í sambandi við nýjar stöðuveit-
ingar í bönkunum og í sam-
ræmi við fyrri loforð banka-
ráðanna, að allar slíkar stöður
verði auglýstar og bankamönn-
um gefinn kostur á að sækja
um þær. Förum vér því hér
með fram á, að framvegis verði
bankamonnum gefinn kostur á
aö sækja um eftirtaföa störf,
I
auk þeirra sem bankaráðin hafa
áður samþykkt að auglýsa í
bönkunum: 1. Bankastjórastöður,
2. Aðstoðarbankastjórastöður, 3.
Utibússtj órastöður væntanlegra
bankaútibúa.
Það er að vorum dómi með
öllu ástæðulaust að sækja menn
í áðumefnd störf út fyrir bank-
ana, þar eð nú eru starfandi
í bönkunum hátt á sjöunda
hundrað starfsmanna og í þeixxx
hópi fjöldi hæfra manna, sem
gert hafa bankastörf að ævi-
starfi. Reynslan hefur og sann-
að hæfni þeirra fáu starfsmanna,
sem valdir hafa verið í æðstu
embætti í bönkunum".
Þá var deilt á það í sam-
þykktinni að áðumefndar stöður
séu veittar eftir pólitískum sjón-
armiðum en ekki eftir hæfni
eða starfsreynslu og sagt, að
það verði ekki til þess að gera
bankastörf eftirsóknarverð ævi-
störf. Segir ennfremur að vax-
andi afskipti stjómmálaflokk-
anna af bönkunum síðari árin
séu að dómi bankamanna „til
vanza og stórvítaverð".
„Vér viljum leggja áherzlu á,
að bankamir verði, eins og frek-
ast er unnt reknir sem sjálf-
stæðar stofnanir. Að þeir verði
ekki gerðir að bitbeini stjóm-
málaflokkanna og að í trxinað-
arstöður verði valið eftir hæfni
og starfsreynslu og að jafnaði
úr röðum bankamanna", segir
að lokum í samþykktinni.
Þrír gjaldþrota
i
I síðasta Lögbirtingablaði eru
tilkynnt þrjú gjaldbrot hér í R-
vík og lýst eftir kröfum lána-
drottna í þrotabúin.
;
1