Þjóðviljinn - 03.02.1963, Page 12
Heilsuhæli í Hvera-
ára / haust
1 haust eru liðin tíu ár frá
bví að byrjað var á bygg'ingu
beilsuhælis Náttúrulækningafé-
lags Islands í Hveragerði. Fyrsta
áfanga byggingarinnar var Iokið
1955 og þá var byrjað að taka
á móti sjúklingum. Það ár var
rúm fyrir 30 sjúklinga á hælinu,
en nú er þar rúm fyrir f*0 og
enn er veriið að bæta við.
Gólfflötur allra bygginga h«-l-
isins er nú orðinn 2000 m2, en
á árunum 1960—1962 hafa verið
byggð starfsmannahús, gróður-
hús, sundlaug og geymsluhús.
Bjúkraherbergin eru yfirieitt 2-
3 manna, en þó eru nokkrar
einmenningsstofur og eftirspum
eftir þeim eykst stöðugt.
Á hæðinni er lögð áherzla á
hollt lífemi og heilnæmt mat-
aræði. Matur er allur úr jurta-
ríkinu, nema egg, smjör ogmjólk.
Bannvörur eru tóbak og afengi,
kjöt, hvltasykur og hvitt hveiti,
fiskur og kaffi.
Skéli hrnndi og
102 létu lífiS
QUITO 2/2 — Hundrað skóla-
stúlkur og tvær nunnur létu líf-
ið þegar gamall klausturskóli í
Qujto í Ecuador hrundi skyndi-
lega í gærkvöld.
Alls voru 450 nemendur og
átta nunnur staddar í skólabygg-
ingunni er slysið varð. Slökkvi-
lið, lögregla og herlið vinna nú
að því að ná særðum og dánum
nndain rústunum.
Gigtarsjúklingar fá margþætta
meðferð á hælinu, nudd, vatns-
nudd, sjúkraleikfimi, leirböð,
hveravatnsböð og ýmiskonar ljós-
böð.
Aðsókn að hælinu iíefur farið
stöðugt vaxandi og sl. ár voru
þar 62 sjúklingar til jafnaðar á
dag en dvalardagar voru alls
22529.
Jónas Kristjánsson læknir var
hvatamaður að því að hæli þetta
var reist. Hann hafði sem kunn-
ugt er óbilandi trú á lækninga
mætti þeim, sem felst í íslenzk-
um hveraleir og hveravatni.
Hann var einnig aðalhvatamaður 1
að stofnun Náttúrulæknmgafé-
lagsins og taldi hann að stofn-
un heilsuhælis, sem í senn ynm
að lækningu sjúkdóma og leið-
beindi um lifnaðarhætti, sem
gætu fyrirbyggt sjúkdóma, væri
það áhrifamesta, sem hægt væri
að gera í baráttunni gegn þvi
böli sem af veikindum stafar.
Yfirlæknir hælisins er nú
Karl Jónsson gigtarsérfræðingur
og kemur hann austur einu sinni
í viku, en læknir hælisins er
Högni Bjömsson í Hveragerði,
hann er daglega til viðtals á
hælinu og sér um daglegar lækn-
ingameðferðir.
Sunnudagur 3. febrúar 1963 — 28. árgangur — 28. tölublað.
Brunli
Haraldur Á. Sigurðsson
ieikari og revíukóngur, er í
kúr fyrir austan. Hann segist
ætla að keppa í fjaðurvlgt
þegar bann sleppur. Náttúru-
Iækningar geta gcrt krafta-
verk. — (Ljósm. Þjóðv. G.O.).
Hvolsvclli 2/2 — Klukkan hálf
níu í gærmorgun kviknaði í .í-
búðarhúsi hjá Sandgræðslunni í
Gunnarsholti og kviknaði út frá
rafmagni hjá ungum hjónum í
einu herbergi í risi hússins.
Konan ásamt ungu barni slapp
naumlega fáklædd á síðustu
stundu vegna eldsins, sem æst-
ist von bráðar. Vaknaði hún á
síðustu stundu.
Maðurinn heitir Sigurður
Sveinbjömsson og vinnur sem
verkamaður hjá Sandgræðslunni.
Hjónin misstu allar eigur sínar
og rishæð hússins eyðilagðist og
varð að rjúfa gat á þakið við
slökkvistarf. Einnig urðu skemmd
ir niðri í húsinu af vatni og
reyk.
Slökkvilið frá Hvolsvelli og
Selfossi var kvatt á vettvang..
Rufh Litfle
is
t
Eins og menn munu minnast
kom brezka söngkonan Kuth
Little hingað til lands fyrir
skömmu og söng hér á vegum
Tónlistarfélagsins við góðar und-
irtektir, enda er hún talin ein
hin efnilegasta af ungum söng-
konum Breta. Söngkonan hefur
nú nýverið opinberað trúlofun
sína og er sá lukkulegi íslcnzk-
ur tónlistarmaður, Jósef Magn-
ússon, flautuleikari í Sinfóníu-
hljómsveitinni. Kynntust þau
fyrst er hann var við nám í
flautuleik við Guildhall School
af Music fyrir hálfu fjórða ári.
I frétt um þetta sem blaðið fékk
senda ásamt forsíðumyndinni af
söngkonunni frá Keystone í
London segir að hjónavígslan
muni fara fram í september og
muni Jósef þá ílytjast til Lon-
don þar sem þau stofna heimili.
fllfar éfa hunda
VAHSJÁ 2/2 — Hinn óveníu-
miklj vetrarkuldi i Póllandi hef-
ur orðið til þess m.a. að úlfar
gerast nú nsergönguiir og ráðast
inn í sveitaþorpin í stórum
flokkum í leit að fæðu. í einu
þorpinu drápu úlfar í nótt 20
humda sem réðust að þeim.
Félagshús
verkamanna
og sjómanna
Hér er útlitstciknine af
framhliðinni (að Lind-
argötu) á stórhýsi Dags-
brúnar og Sjómannafé-
lags Reykjavíkur að
Lindargötu 9, eins og
hún á að verða eftir
gagngerar breytingar,
sem nú er verið að gera
á húsinu. — Sjá myndir
og grein á forsíðu og
2. síðu.
SUÐURHLIÐ (aöLindatrgötu)
Tnnis og
Alsír hittasf
ALGEIRSBORG 2/2 —
Tilkynnt var í Algeirs-
borg i dag að rikis-
stjórn Alsírs hefði sam-
þykkt tillögu frá Mar-
okkó um að utanríkis-
ráðherrar Marokkó, Al-
sírs og Túnis haldi rað-
stefnu í Rabat il. febr-
úar
Það var utanríkisráð-
herra Marokkó, Moham-
ed Balafrej, sem bar
fram tillöguna.
Alþýðnbanda-
Hafnarfirði
Ákveðið hefur verið að ann-
aðhvert mánudagskvöid komi
Alþýðubandalagsfólk í Hafn-
arfirði saman tjl rabbfunda í
Góðtemplarahúsinu uppj þar
sem rætt verður um síjórn-
málin innanbæjar og utan.
Húsið verður opnað kl. 8.30
Alþýðubandalagsfólk, fjöl-
mennum í Góðtemplarahúsið
annað kvöld.
Skilaði þýfínu er
téiagar hans stá/u
í fyrradag varð afgreiðslustúlka
í verzluninni Kjólnum í Þing-
holtsstræti vör við að strákur
innan við fermingu var kominn
inn í herbergi á bak við verzl-
unina og var eitthvað að snuðra
þar. Hafði hann komizt inn bak-
dyramegin. Rak stúlkan dreng-
inn út og læsti bakdyrunum.
Rétt á eftir kom hún aftur inn
( herbergið og sá þá drenginn
standa í gluggakistunni að utan-
verðu og hafði honum tekizt að
krækja í tösku stúlkunnar með
priki og draga hana til sín og
var að tæma úr henni innihaldið.
Stúlkan reyndi að ná í strákinn
en hann komst undan og tvejr
drengir aðrir er með honum
höfðu verið.
Stúlkan kærði þegar til lög-
reglunnar yfir þjófnaði þessum,
en í töskunni voru um 3000 kr.
í peningum og annað eins í á-
vísunum og höfðu piltamir hirt
það allt saman.
Nokkru síðar kom einn drengj-
anna inn í verzlunina og skilaði
stúlkunni ávísuninni og mestu
af peningunum. Sagði drengurinn
til nafns síns og sagðjst hafa hitt
hina piltana tvo af tilviljun
skömmu áður. Hefðu þeir orðið
hræddir er þeir sáu hve miklir
peningar voru í töskunni og
varð það að ráði, að hann tókst
á hendur að skila peningunum
aftur en þó hafði forsprakkinn
eitthvað af þeim á brott með
sér. Hefur pilturinn er skilaði
peningunum sýnt með því lofs-
verða framkomu.
Forsprakkinn að þjófnaði
þessum er hins vegar gamall
kunningi lögreglunnar, þótt hann
sé aðeins tólf ára gamall. Var
hann m.a. nýlega tekinn fyrir
innbrot í Nýja bíó og voru þá
tveir aðrir piltar með honum.
Sagði Tómas, að lögreglan ætti
nú í vandræðum með nokkra
pilta á hans reki. Heimili þeirra
væru búin að gefast upp á að
hafa eftirlit með þeim og ekki
væri hægt að koma þeim neitt
burt úr bænum, þar sem eina
heimilið sem til er fyrir vand-
ræðaböm, Breiðuvíkurheimilið
tekur ekki á móti neinum böm-
um til dvalar í vetur þar sem
nú er unnið að endurbyggingu
þess.
Skákþingsins
hefst í dag
í dag klukkan 2 e.h. hefst
úrslitakeppni í meistaraflokki
Skákþings Reykjavíkur í
Snorrasal við Laugaveg.
Dregið hefur verið um
töfluröð keppenda og verður
hún þessi:
1. Júlíus Loftsson
2. Jón Kristinsson
eða Magnús Sólmundars.
3. Sigurður Jónsson
4. Jón Hálfdánarson
5. Ingi R. Jóhannsson
6. Friðrik Ólafsson
7. Jónas Þorvaldsson
8. Bjöm Þorsteinsson.
Eins og kunnugt er var
keppt í þrem riðlum í undan-
rásum og komust tveir efstu
menn úr hverjum riðli í úr-
slitakeppnina ásamt þeim
Friðriki Ólafssyni og Inga R.
Jóhannssyni. Þeir Jón Krist-
insson og Magnús Sólmundar-
son urðu jafnir í sínum riðli
og áttu þeir að keppa til úr-
slita í gær um sætið í aðal-
keppninni.
önnur umferð verður tefld
annað kvöld klukkan átta á
sama stað.
Samþykkt að reisa
„Norræna húsið
Á fundi menntamálaráðherra
Norðurlanda sem haldinn var í
Stokkhólmi 30. janúar sl. var
til umræðu hið svonefnda Nor-
ræna hús sem ráðgert er að
reisa í Reykjavík og á að verða
miðstöð norrænnar samvinnu á
Islandi. Samþykkti fundurinn
einróma að koma stofnun þess-
ari á fót og kaus nefnd skipaða
einum fulltrúa frá hverju
landi til þess að sjá um bygg
ingarframkvæmdir. Einnig sam-
þykkti fundurinn reglur um
skipulag stofnunarinnar.
Það eru norrænu félög'in sem
tóku mál þetta fyrst upp og var
kosin undirbúninigsnefnd árið
1961 skipuð Bent A. Koch rit-
stjóra frá Danmörku, frú Ker-
stin Sönnerlind frá Svíþjóð,
ungfrú Helene Andersen frá
Noregi og dr. Þórði Kr. Þórðar-
synii frá íslandi. Samdi nefndin
skýrslu um málið sem lögð var
fyrir þing Norðurlandaráðs í
Helsinki í fyrra. Lagði Norður-
landaráð til að málinu yrði
hrundið I framkvæmd og starf-
aðii nefndin áfram að undirbún-
ingi þess.
Ákveðið var á fundi mennta-
málaráðhemmna að Danmörk,
Finnland, Noregur og Svíþjóð
skuli skipta á rnilli sín að greiða
stofnkostnað stofnunarinnar, en
ÍSland leggja fram _ ókeypis lóð
undir bygginguna. Á Svíþjóð að
greiða 2/5 hluta stofnkostnaðar-
ins en hin löndin þrjú % hvert.
Reksturskostnaður verður
greiddur af öllum löndunum
sameiginlega eftir nánarl á-
kvörðun síðar. Á ísleinzka ríkis-
stjómin að hafa eftirlit mieð
rekstri stofnunarinwar með
höndum.
Stjórn Norræna hússins verð-
ur skipuð 7 mönnum og skiipar
mennitamálaráðuneyti hvers
lands einn fulltrúa í hana en
einn verður tiinefndar af Há-
skóla íslands. íslenzku fulltrú-
arnir þrír skipa framkvæmda-
netfnd stofnunarinnar. Ráðinn
verður sérstakur forstjóri stofn-
unarinnar.
Stofnikostnaður við Norræna
húsið cr áætiaður 10.5 milljónár
íslenzkra króna fyrir utan lóð
og kostnað vjð samkeppni sem
fram á að faira um gerð hússáns
meðal norrænna húsameistara.
Ariegur reksturskostnaður er á-
ætlaður 1.2 millj. öl. kr.
A
k